Dagur - 10.09.1942, Page 3
Fimmtudaginn 10. september 1942
DAGUR
Sjötugur
héraðs-
höfðingi.
Næstkomandi laugardag (12.
sept.) er Davíð Jónsson hrepp-
stjóri á Kroppi 70 ára að aldri.
Davíð hóf búskap á Kroppi
1895 og hefir því rekið búskap
þar 48 ár næstk. vor. Mörg op-
inber trúnaðarstörf hafa hon-
um verið falin á þessu tíma-
skeiði. Síðan 1905, eða nær 38
ár, hefir hann verið hreppstjóri
Hrafnagilshrepps og sýslu-
nefndarmaður síðan 1928.
Ennfremur formaður fasteigna-
matsnefndar síðan árið 1929.
Öll þessi trúnaðarstörf o. fl.
hefir hann rækt af röggsemi og
vandvirkni.
Hitt er þó ekki minna um
vert, að Davíð er vinsæll
drengskaparmaður, djarfur og
einarður í tali og framkomu,
jafnan hress í skapi og fylgir
honum glaðværð, hvar sem
hann fer. Hann er röskleika-
maður til allra starfa, að hverju
sem hann gengur, framsækinn
og fylginn sér í hverju máli.
Þó að aldurinn sé nokkuð
tekinn að færast yfir hann, er
hann enn sami fjör- og gleði-
maðurinn eins og þá hann var
ungur.
Davíð er vel kynjaður í báð-
ar ættir. Faðir hans, Jón Da-
víðsson, síðast í Reykhúsum,
var héraðskunnur gáfu- og
fræðimaður, og móðir Davíðs,
Rósa, var dóttir hins merka
bónda, Páls Steinssonar á
Tjörnum í Saurbæjarhreppi og
því systir Pálma Pálssonar
kennara við Hinn almenna
menntaskóla. Kippir Davíð í
kynið i báðar ættir.
Davíð er kvongaður Sigur-
línu Jónasdóttur frá Stóra-
hamri, hinni mestu myndar- og
dugnaðarkonu. Eiga þau þrjú
börn, öll uppkomin: Ragnar,
bónda á Grund, Rósu, hús-
freyju á Hlöðum í Glæsibæjar-
hreppi og Jón, ógiftan heima.
Allir hinir mörgu vinir Da-
víðs á Kroppi munu á þessum
tímamótum í æfi hans færa
lionum hugheilar þakkir fyrir
samfylgdina á lífsleiðinni og
óska honum allra heilla í fram-
tíðinni, einkum þó að gleðin og
bjartsýnin, sem jafnan hafa
verið förunautar hans á lífs-
leiðinni, megi endast honum til
æfiloka.
Nofið
Freyju
kaffibæti
Erfum vér lendið -
eða töpum vér pví ?
Séra Sigurður Einarsson dó-
sent, flytur erindi um þetta efni
í Akureyrarkirkju kl. 8.30 á
sunnudagskvöld.
í bænum er staddur um þess-
ar mundir Sigurður Einarsson,
dósent. Hefir hann dvalizt á
Fljótsdalshéraði í sumar við rit-
störf. Sigurður hefir nú um
nokkurt skeið lítið látið til sín
heyra opinberlega, en á sunnu-
dagskvöld kl. flytur hann
erindi í Akureyrarkirkju, um
ýms alvarlega málefni, er varða
framtíð og menningu íslenzku
þjóðarinnar. Á undan og eftir
eríndinu syngur kirkjukórinn.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
Óþarft er að nræla með Sig-
urði dósent sem fyrirlesara, til
þess er hann alltof kunnur öll-
um landsmönnum m. a. frá út-
varpsárum , sínum, sem frábær-
lega orðsnjall mælskumaður,
sem ávallt hefir nýstárlega og at-
hyglisverða boðun að flytja.
I HerðubreiQarliflduni
19. Í0IM942
KveðiS við heimför þaðart og skilnað
þeirra sem éengu í Ódáðahraun.
Við höium skoðað Grafarlönd
og éengið
um éróðurríkan Herðubreiðar-
lund
og útsýn viða, glæsta og fríða
fengið
sem fyrnast mun ei æfilanga
stund.
Við nutum friðar, sællrar sóls-
skinsblíðu,
við sáum íslandsfjalla töfra-
geim,
við dáðumst, hriíumst, gleymd-
um ströngu og stríðu.
Nú stefnum glöð og þakklát
áftur heim.
Við kveðjum þau sem héðan
burtu halda
í heiðarbláma duldrar fjar-
lægðar
og biðjum þess að faðir allra
alda
þeim unni heilla og sinnar ná-
lægðar.
Á liðnum öldum eftir troðnum
slóðum
ei íslands niðjar stýrðu lífsins
knörr.
Enn lifir þrá í gömlum ættar
glóðum
um gjár og auðnir heyja sigur-
för.
Þ.
Öllum þeim, fjcrr og nœr, sem glöddu mig með heimsóknum,
gjöfum, heillaskeytum og blómum d fimmtuggafmœli minu, ■/.
sept. s. L, sendi ég minar hugheilustu þakkir.
Ólafur Magnússon, sundkennari.
m
Olafur Magn-
ússon
sondKennari iirafugur
Fjöldi gesta heimsótti Ólaf
Magnússon sundkennara á
fimmtugsafmæli hans s. 1. f’östu-
dag, og fjöldi heillaskeyta barst
lonum frá vinum hans hvaða-
næfa af landinu, auk blóma og
annarra góðra gjafa. Var glatt á
hjalla að vanda á því ágæta
heimili, risna mikil og margar
ræður fluttar fyrir minni ,,af-«
mælisbarnsins“ og kvæði flutt,
ort í þessu tilefni. Ól. hefir nú
starfað sem sundkennarihéríbæ
um rösklega 30 ára skeið og
látið mikið til sín taka í íþrótta-
málum bæjarins á þeim tíma.
Mun hann tvímælalaust í
fremstu röð íþróttakennara
landsins, enda hefir í. S. í. sæmt
hann heiðurspeningi úr gulli
fyrir afrek hans í þeim efnum.
Auk íþróttamálanna hefir Ólaf-
ur tekið mikinn þátt í ýmsum
opinberum málurn og nýtur alls
staðar trausts og virðingar, þar
sem hann leggur hönd á þlóg-
inn. Er hann tvímælalaust í hópi
hinna mætustu og allra vinsæl-
ustu borgara þessa bæjarfélags.
,,Dagur“ árnar Ólafi og fjöl-
skyldu hans allra heilla á þess-
um tímamótum.
BÓKAFREGNIR
EIMREIÐIN, 2. heiti, 1942.
Eimreiðin, 2. hefti, 1942 hefir ný-
lega borizt blaðinu til umsagnar. At-
hygli okkar Akureyringa og annarra
Norðlendinga vekja að þessu sinni
tvær ritgerðir um Skrúðsbóndarm,
leikrit Björgvins Guðmundssonar,
önnur eftir Helga Valtýsson, en hin
eftir Finnboga Jónsson. Fjöldi mynda
frá leiksýningunum hér fylgja grein-
unum. Þá eru þarna greinar um við-
horfið til Rússlands eftir ritstjórann,
verndun þjóðernis eftir próf. Ólaf Lár-
usson, í beitufjöru eftir Hjört frá
Skálabrekku, kvæði eftir Sigurjón
Friðjónsson, og Þráin, og smásögur
eftir Hans Klaufa, Þóri Bergsson og
útlenda höfunda, auk margra smá-
greina og annars lestrarefnis.
JÖRÐ, 2. hefti, 1942.
í hinu nýja hefti Jarðar birtist m.
a.: Grein um ljóðaþýðingar Magnúsar
Ásgeirssonar eftir Arnór Sigurjónsson,
Heima og heiman eftir Agúst Sigurðs-
son, Verkmenning eftir Olaf Jónsson,
Breiðafjarðarheimili fyrir 50 árum
eftir Guðmund Eggerz, Gönguferð og
jarðfræði eftir Ólaf við Faxafen, og
ritgerðabálkurinn Æskan talar með
smágreinum ýmissa ungra manna. Þá
er þarna kvæði eftir Guðmund E.
Geirdal, þýdd saga, matreiðsluþáttur
og fjöldi smágreina. Ritið er prýtt
fjölda mynda, m. a. 5 myndasíður frá
íþróttamóti í Reykjavík 17. júní s.l.
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA,
3. h., 1942.
Ritið flytur marghóttaðan fróðleik
fyrir iðnaðarmenn og kennir þar
Dívanteppa-
efni
(Plus) nýkomið.
KAUPFÉLAG
VERKAMANNA.
ðbiigeíieg stuka
öskast í vist nú þegar eða
F október næstkomandi.
JÓRUNN GEIRSSON,
Aðalstræti 8.
Dugieoar stoikur
vantar. Ekki svarað í síma.
HÓTEL GULLFOSS.
Suíplr sauitlðarmanna
(Framh. á 2. síðu).
fékk sæti í herforingjaráðinu i
Washington.
þESSUM manni hefir verið falin
yfirstjórn alls herstyrks Banda-
ríkjamanna í Evrópu og telja margir
að honum verði falin yfirstjórnin er
Bandamenn hefja hina margumtöl-
uðu innrás á meginlandið.
Herfræðingar Bandamanna telja
Eisenhower sérlega vel hæfan til
þessa starfs. Skriðdrekar munu verða
eitt áhrifamesta vopnið í hinni kom-
andi sókn á meginlandinu. Hann tók
þátt í skriðdrekaorrustum x fyrri
heimsstyrjöld og starfaði siðar við
skriðdrekasveitir hersins við mikinn
orðstír. Sóknin til meginlandsins
verður í lofti ekki síður en á láði og
legi. Eisenhower er sjálfur flugmað-
ur góður og stjórnaði m. a. skipulagn-
ingu flughers Bandaríkjamanna í
Filippseyjum. Dvöl hans á Filipps-
eyjum færði honum og dýrmæta
reynslu í sjóhernaði og flutningi her-
liðs yfir sjó. Hin fjölþætta menntun
Eisenhowers, skarpskyggni hans og
skipulagningargáfa hafa fleytt hon-
um í eitt ábyrgðarmesta embættið
sem nú er völ á innan Bandaríkja-
hersins. Undirmenn hans treysta
leiðsögn hans og forsjó. Þeir segja
um hann, það sem hann sjálfur sagði
um Marshall yfirhershöfðingja
Bandaríkjamanna: „Þar er hermaður
í raun“.
margra góðra grasa. Þá eru þarna
minningargreinar um ýmisa oddvita
iðnaðarins, m. a. grein um Tryggva
Jónatansson byggingameistara hér í
bæ. Fylgir mynd af Tryggva greininni
og ennfremur myndir af húsahverfi
því, er hann hefir reist við Ægisgötu
og grunnteikningar af smáhýsum þess-
um, en þau eru sérstaklega hentug til
íbúðar, einföld og stílhrein, en urðu
þó mjög ódýr. Stjórnaði Tryggvi verk-
inu og fóði gerð húsanna að öllu leyti.
RYKIRAKKAR með hettu.
GÚMMÍKÁPUR á drengi og
telpur.
REGNHLÍFAR.
GARDÍNUTAU.
PEYSUFATASILKI.
„SPEJL“-FLAUEL, svart.
KJÓLAEFNI og blúndur.
LAKALÉREFT.
LÉREFT í sláturpoka.
SÍU-LÉREFT o. m. fl. af góð-
um varningi.
Brauns
Vepzlun.
Pdll Sigurgeirsson.
Góð stúlka
óskast*nú þegar*eðad. okt. n.U.
KRISTÍN BJARNADÓTTIR,
Þingvallastræti 18, Akureyri.
Sími 370.
Ágætt
í slátur.
Vöruhús Akureyrar
Búðardömu
°g
sendil
vantar okkur.
KAUPFÉL. VERKAMANNA.
Enskarhúfnr
í úrvali,
frá kr. 5.00.
VERZLUN JÓNS EGILS
Hárvetn
í úrvali.
STJÖRNU APOTEK
K. E. A.