Dagur - 10.09.1942, Side 4
DAGUR
ÚRBÆOG BYGGÐ
í. 0. 0. F. = 1249119 —1 =
Kirkjen: Messað í Akureyrarkirkju
næstk. sunnudag kl. 2. (Séra Páll
Þorleifsson predikar).
Kventélag Akureyrarkirkju biður
blaðið að færa bæjarbúum beztu
þakkir fyrir góðar undirtektir og að-
stoð við hlutaveltu kirkjunnar.
Blaðið hefir verið beðið að færa
þeim hjónum Guðrúnu Aðólfsdóttur
og Asgrími Stefánssyni verzlunar-
manni, beztu þakkir fyrir vefstól,
sem þau sendu sjúklingum að Krist-
neshæli að gjöf.
Hjónaband. Ungfrú Björg Una
Sörensdóttir og Hjalti Guðmundsson
húsgagnasmiður.
Hjónaefni. Ungfrú Ólöf Sigurðar-
dóttir og Þorgeir Pálsson, afgreiðslu-
maður á Gefjun.
Áheit á Sjúkrahúsið. Frá N. N. kr.
100.00. Með þökkum móttekið. —
G. Karl Pétursson.
Sjötugsaímæli átti Róbert Bárð-
dal bóndi að Sigríðarstöðum í Ljósa-
vatnshreppi þann 7. þ. m. Róbert er
Þingeyingur að ætt og ólst að mestu
upp í Bárðardal. Reisti hann fyrst bú
að Hallgilsstöðum í Fnjóskadal og
bjó þar um tvo tugi ára, en fluttist
þá að Lögmannshlið, en hefir búið að
Sigriðarstöðum síðan árið 1934. Ró-
bert stendur enn fyrir búi að Sigríð-
arstöðum. Hann er kvæntur Her-
borgu Sigurðardóttur, ættaðri úr
Reykjadal. Eignuðust þau hjónin 9
börn og eru þau öll á lífi. Róbert
Bárðdal hefir alla tíð verið dugnað-
arbóndi, talinn afburða fjárglöggur
og röskur maður við hvert starf. Nýt-
ur hann trausts og vinsælda sveit-
unga sinna og annarra er til hans
þekkja.
Nýja Bíó
sýnir í kvöld kl. 9:
Stjörnufundurinn
Föstudaginn kl. 6 og 9:
Drengjaborgin
Laugardaginn kl. 6 og 9:
St j örnuf undurinn
Sunnudaginn kl. 3:
Stjörnufundurinn
Kl. 5:
Merki Zorros
Kl. 9:
Drengjaborgin
Fiskilínur
(enskar Sisallínur)
18 þátta
fyrirliggjandi
Kaupfél. Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
Jfldasarkossar íhaidsins.
(Framhald af 1. síðu).
að samningaborðinu eftir styrjöldina
og skipað til um málefni og sjálf-
stæðiskröfur þjóðanna í heild. Væri
þá ver farið en heima setið. Flokk-
urinn fékk þessu ekki ráðið: Lýð-
veldinu lá að vísu ekkert á í augum
stjórnarflokkanna: Það átti, þegar
bezt gerðist, aðeins að fá að fljóta
með! — En „steiktu gæsunum“ lá á,
og því var hrapað að hinum dæma-
fáu og gersamlega ráðlausu stjórnar-
skrárbreytingum, sem enginn hefir
hinn minnsta hag af, en kynt hefir
ófriðarbálið og sundrungareldinn í
stjórnmálalífi þjóðarinnar á hinum
hættulegustu tímum, þegar mest
reyndi á samheldni og rólega yfirsýn
borgaranna.
'P’NGINN fær enn séð út yfir, hve
“ dýrar hinar alóþörfu haustkosn-
ingar muni reynast þjóðinni: íhaldið
þarf að kyssa allar stéttir — og helzt
alla menn, sem kosningarétt hafa í
landinu — Júdasarkossi, áður en þeir
ganga að kjörborðinu: Allir verða að
fá öllum kröfum sínum fullnægt, og
í sumum greinum miklu meira en
þeir sjálfir hafa mælzt til eða óskað
eftir. Flestum kröfunum og óskunum
á þó að sinna með látlausri skæða-
drífu af þingsályktunartillögum, þar
sem allar eftirlanganir þegnanna á
hendur ríkisvaldinu eru fullkomlega
teknar til greina — á pappímum.
Svo er öll súpan látin daga uppi í
þinglokin! Það er ódýrast í fram-
kvæmdinni, og alltaf hægt að benda
á, hvað þingmannsefnin hafi þó ætl-
að að gera fyrir blessaða kjósend-
urna! Dýrtíðinni og verðbólgunni
hefir verið hleypt í skefjalausan al-
gleyming, þótt öllum sé ljóst, hvílík-
ur reginháski er þar á ferðnini. En
enginn hefir þorað að stinga fótum
við nokkrum kröfum, hvaðan sem
þær hafa komið, af ótta við það að
stíga á stél einhvers háttvirts kjós-
enda, með því að sinna ekki kvabbi
hans. Og nú síðast á að teygja stjóm-
arskrána eins og hráa hrosshúð út
yfir öll svikin og óheilindin í hinum
örlagaríkustu og vandasömustu mál-
um. Má segja, að þá keyra fyrst
óskammfeilnin og blygðunarleysið
um þvert bak. — Framsóknarflokk-
urinn hefir ekki tekið þátt í þessum
leik, né tafið þennan markað með
yfirboðum: Hann hefir þegar varað
kröftuglega við hættunni og boðið
ábyrgt samstarf um lausn vandamál-
anna, ef smáskæruhemaðurinn og
ófriðurinn í landinu verði látinn nið-
ur falla. Það boð hefir enn ekki verið
þegið, og á meðan verður ekki hjá því
komizt, að hinn ábyrgðarlausi þing-
meirihluti verði látinn einn um hit-
una. En því miður mun þjóðin öll
fyrr eða síðar verða, nauðug eða vilj-
ug, að súpa hinn beiska drykk, sem
bruggaður er í ölhúsi hinna ráðandi
ráðleysingja.
B a r n a*
va gn a r
(enskir)
nýkomnií.
Silkivoile
í gluggatjöld,
slétt og mynstruð.
Hannyrðaverzlun
Ragnh. O. Bjömsson.
Spil
í fallegum gjafa-
kössum.
Verzlun Guðjóns
Bernharðssonar.
Kaupfél. Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
Herraveski
vönduð.
Verzlunin LONDON.
Væntanlegt
með Súðinni:
SAUMUR
PIANOHENGSLI
SKRÚFUR, margar teg.
KANTRÍLAR, o. m. fl.
Verzlunin LONDON.
Grænmeti
allskonar, svo sem blómkál,
höfuðkál, salat, grænkál,
spínat, graslaukur o. fl., selt
daglega í garðyrkjustöðinni
Flóru. — Ennfremur nýjar
kartöflur. — Beztu kaupin
alltaf í
FLÓRU, Brekkugötu 7.
TIL SÖLU
2 kýr, snemmbær og vorbær. —
Upplýsingar gefur
PÁLL TÓMASSON, Skipag. 2.
ARMBANDSÚR
úr stáli hefir tapazt á Þverá s. 1.
laugardagskvöld. Skilist gegn
fundarlaunum í Vélsm. Oddi.
DANS
verður haldinn á þinghúsinu að
Þverá laugardaginn 12. sept. n.k.
kl. 10 e. h. Veitingar d staðnum..
Kaplmannsúp
tapaðist í síðastliðnum mánuði í
Vaglaskógi. Skilist vinsamlegast
á afgreiðslu blaðsins.
99
W aterman “
llndarpennar
eru beztu pennar í heimi.
Fást í
Bókaverzlun
Gvmnl Tr. Jónssonar.
Fimmtudaginn 10. september 1942
KjóUiefiii
í miklu og fallegu úrvali.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Vefnaðarvörudeild.
SUNDNÁMSKEIÐ
fyrir börn þau, er fermast eiga í Akureyrarkaupstað
á nœstkomandi vori, verður haldið frá 15. sept. til
10. okt. þ. á.
Nánari tilhögun námskeiðsins verður auglýst
við sundstæðið.
Vegna sundprófs eru öll börnin áminnt um að
sækja námskeiðið með kostgæfni.
Ólaiur Magnússon.
Slátur og kföt
seljum vér, að forfallalausu, alla næstu
viku í sláturhúsi voru á Oddeyri.
Sími 306.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Bændur og aðrir
er reka sauðfé á næstkomandi hausti í
fjárskýli eða sláturhús vort á Oddeyrar-
tanga, aðvarast hérmeð um, að sauðfjár-
veikivarnirnar hafa lagt svo fyrir, að öllu
sauðfé, er kemur þar inn skuli lógað þegar
í stað. Fæst því engin sauðkind tekin þar
út aítur, hver sem í hlut á.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Hrossakjöt
verður selt á sláturhúsi voru á Oddeyrar-
tanga að aflokinni sauðfjárslátrun. Tekið
á móti pöntunum á sláturhúsinu. Aðeins
slátrað í pantanir. — Sími 306.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
HðHSHOHOH9HOH9HCHSHCHCHSHÍHOHOH9HOHiHCHOHOH9HOH9HðHOHOHOHOHÍHOHOHOHOHOHOHeH9HiHCHOHOHOHOHOHOH9H9HSHOH9HOl
Notið PERLU-þvottaduft.
•••••••••••••••••••••••<