Dagur - 22.07.1943, Blaðsíða 4
DAGUR
Fimmtudagur 22. júlí 1943
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Kirkjan: Messað í Akureyrarkirkju
næstk. sunnudag kl. 2 e .h.
Messur í Möðruvallakl.prestakalli:
Bægisá sd. 25. júlí, Glæsibæ sd. 1.
ágúst og Möðruvöllum sd. 8. ágúst.
Björgunarafrek. Um sl. helgi féll
drengur í sjóinn af bryggju á
Hauganesi á Árskógsströnd. Með
snarræði og dirfsku tókst Jóhann-
esi Reykjalín Traustasyni s. st. að
bjarga drengnum frá drukknun með
því að kasta sér í sjóinn pg synda
með hann í land. Þykir þetta vel af
sér vikið, þar sem Jóhannes var all-
mikið klæddur og gaf sér ekki tíma
til að kasta klæðum áður en hann
lagði til sunds.
íþróttir. Eins og getið hefir verið
um hér í blaðinu áður, hafa margir
íþróttaflokkar úr Rvík heimsótt Ak-
ureyringa undanfarna daga. Glímu-
félagið „Ármann" frá Reykjavík hafði
fimleikasýningu hér um daginn með
kven- og karlaflokkum. Þá hefir
Knattspyrnufél. Fram úr Reykjavík
verið hér um 10 daga skeið og háð
fjóra knattspyrnukappleiki, einn við
K. A., jafntefli 1 : 1, og þrjá við úr-
valslið úr félögunum hér; í fyrsta
leiknum varð jafntefli 1:1. Annan
vann Fram með 6 : 0, og þriðja einn-
ig, með 3 : 2. Að skilnaði gaf „Fram“
félögum hér málverk frá Þingvöllum
sitt hvoru, og bikar til knattspyrnu-
keppni. K. R. var hér um síðustu
helgi. Keppti það í handknattleik
karla (nýjung hér) og vann með 12 :
5; í knattspyrnu sigruðu Akureyr-
ingar með 2 : 1. Þá sýndu K. R.-ingar
frjálsar xþróttir og leikfimi karla.
Loks keppti Víkingur frá Rvík við
Akureyringa s. 1. þriðjudagskvöld og
unnu Akureyringar með 4 : 3.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.
hefir flutt í ný húsakynni. Er prent-
smiðjan nú til húsa í „París“, þar
sem áður var húsgagnasmíðaverk-
stæði Kristjáns Aðalsteinssonar.
Sambandsfundurinn
(Framhald af 1. síðu).
eina miljón. Innstæður í inn-
lánsdeild námu 10.8 milljónum
og höfðu nær því tvöfaldazt.
Sambandsfélögin seldu að-
keyptar vörur og iðnvörur, sem
þau framleiddu sjálf, fyrir fullar
65.2 miljónir, en innlendar af-
urðir fyrir 47.9 miljónir. Öll
vörusala Sambandsfélaganna
nam því árið sem leið um 113.1
miljón króna. Árið áður nam
öll vörusalan 71.2 miljónum og
hefir því aukizt um nær því 42
miljónir á árinu.
í árslok 19,42 voru starfsmenn
allra sambandsfélaganna 875.
Stjórn Sambandsins hafa skip-
að á þessu starfsári: Einaf Árna-
son, fyrrv. alþingismaður, Eyrar-
landi, formaður, Björn Kristj-
ánsson, kaupfélagsstjóri, Kópa-
skeri, Jón ívarsson, kaupfékigs-
stjóri, Hornafirði, Sigurður
Jónsson, bóndi Arnarvatni, Vil-
hjálmur Þór, ráðherra, Reykja-
vík, varaform., Þórður Pálma-
son, kaupfélagsstjóri, Borgar-
nesi, Þorsteinn Jónsson, kaupfé-
lagsstjóri, Reyðarfirði.
Varamenn: Skúli Guðmunds-
son, kaupfélágsstjór~ Hvamms-
tanga, Jens Figved, kaupfélags-
stjóri, Reykjavík.
FunjJurinn fór vel fram.
Algjör eining var um að
hrinda þeirri sókn, sem komm-
únistar hafa hafið til þess að
sundra kaupfélögunum og Sam-
bandinu í tvennt eða þrennt, og
gera samvinnuhreyfinguna þar
með máttlitla og veikbyggða.
Fær áróður þeirra engan byr og
kom það berlega í ljós á fund-
inum,
Kappreiðar „Léttis“
(Ffamhald af 1. síðu).
insdótt/r, Ytradalsgerði, knapi
HeJgi Kristinsson. Draumur
náði sarna tíma og Haukur, en
var þó sjónarmun á eftir að
marki. III. verðlaun hlaut Mósi,
5 vetra, úr Eyjafjarðarsýslu, eig-
andi Tryggvi Aðalsteinsson, Jór-
U//narstöðum, knapi eigandinn.
á 21,6 sek., næstur varð Rauður
Jónatans Davíðs^onar, Brúna-
gerði, á' 21,8 sek.
Mót þetta fór mjög vel fram
og var til ánægju fyrir alla, sem
hafa yndi af hestum og á það
horfðu. Aðsókn var sæmileg,
þrátrt fyrir töluverða rigningu og
mjög áberandi skort á farartækj-
um til þess að komast á staðinn
frá Akureyri.
Geta launamenn ...
(Framhald af 3. síðu).
„kjarabætur". Sá áróður hefir
borið lítinn árangur, því að
starfslið kaupfélaganna hefir frá
upphafi fundið, að sterkust
bönd tengja það við félagsmenn-
ina í kaupfélögunum, sem þeir
vinna fyrir. Nú boða kommún-
istar upplausn kaupfélaga og
Sambands, til að gera samvinnu-
hreyfinguna máttlausa. Komrn-
únistar hafa við hlið tveggja
elstu og sterkustu kaupfélag-
anna, K. E. A. og Kaupfélags
Þingeyinga, smáholur, til við-
skipta fyrir flokksmenn sína.
Þeir, sem þekkja til á Akureyri
og Húsavík, geta gizkað á, hve
glæsileg yrði framtíð starfs-
manna við kaupfélögin ef
kommúnistum tækist að gera
félögin jafn gersamlega áhrifa-
og þýðingarlaus eins og þessar
tvær flokksverzlanir eru, hvort
heldur sem litið er á Húsavík
eða Akureyri.
Sú tilraun að draga embættis-
og launastéttir landsins undir
áhrif kommúnismans, er dauða-
dæmd. Hver sæmilega viti bor-
inn maður í þessum stéttum
hlýtur að sjá, að ekki líður á
löngu, þar til ríkissjóður og bæj-
arsjóðir og einstök fyrirtæki
verða í miklum vandræðum með
alla afkomu sína og þá ekki sízt
launagreiðslur. Eina bjargræðið
fyrir launastéttir landsins er að
ganga í lið með framleiðendum
til lands og sjávar, og Iiefja með-
þeim einhuga baráttu móti upp-
lausnarstörfum kommúnista og
bandamanna þeirra. Ef unnt er,
að bjarga atvinnulífinu úr þeirn
háska ,sem vofir ylir hér, þá er
þjóðarskútunni borgið. Þar sem
framleiðslan er í heilbrigðu
lagi, þarf ekki að óttást verðfall
peninganna, atvinnuleysi eða að
ríki, bæir og einstök fyrirtæki
geti ekki goldið lífvænlegt kaup.
Aldrei hefir verið beitt meiri
vísvitandi sviksemi í málfærslu
við. nokkra stétt, heldur en
kommúnistar hafa haft í frammi
við eigendur sparifjár og launa-
stéttirnar. Þeim hefir verið ráð-
lagt að gæta einskis hófs í aukn-
um byrðúm á atvinnu til lands-
ins. Launamenn hafa átt að trúa
því, að ríkissjóður, bæjarsjóðir
og einstök fyrirtæki hefðu yfir
að ráða ótakmörkuðu fé. Þar
væri að ræða um landhelgislaust
haf. En nú en,i allar aðstæður
þannig, að þessir menn mega1
vita betur. í félagi við komm-
únista bíða þeir ósigra og eyði-
leggingu. í félagi við framleið-
endur geta launamenn og spari-
fjáreigendur bjargað þjóð sinni
og sér sjálfum. Öruggt samstarf
þessara þriggja aðila getur bjarg-
að íslenzku þjóðinni úr yfir-
standandi voða.
I- J-
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar og
sjálfstæðismálið.
(Framhald af 1. síðu).
þykkja án tafar stjórnarskrá fyr-
irlýðveldið, og veröi hún látin
ganga í gildi svo fljótt sem íram-
ast er unnt og eigi síðar en 1.
febrúar 1944.
Bæjarstjórn vill í sambandi
við afgreiðslu þessa máls leggja
áherzlu á eftirfarandi atriði:
1. *Með mál þetta verði farið
senr algert sérmál íslendinga.
Engar samningaumleitanir varð-
andi það verði uppteknar við
dönsku stjórnina og afskiptum
hennar og ráðleggingum ann-
arra þjóða, ef frarn koma, vísað
á bug.
2. Ef nauðsynlegt þykir að
þjóðaratkvæðagreiðsla verði
höfð um málið, þá verði hún
látin fram fara eigi síðar en fyrri
hluta janúarmánaðar n. k. og
standi yfir svo marga daga sem
þurfa þykir, svo tryggt sé, að
allir sem vilja, fái neytt at-
kvæðisréttar síns. Atkvæði verði
talin heima í hverju kjördæmi
að lokinni atkvæðagreiðslunni.
3. Minningardagur um end-
urreisn lýðveldis hér á landi,
sem einnig verður gerður að
minningardegi Jóns Sigurðsson-
ar, verði hafður einhvern dag á
timabilinu frá 10. júlí til 10.
ágúst, t. d. 2. ágúst ár hvert. —
Vegna veðurfars og staðhátta,
einkum á Austfjörðum og víðar
um land, verður að telja 17. júní
miður heppilegan sem þjóðhá-
tíðardag.
Þá vill bæjarstjórnin skora á
alla stjórnmálaflokka að hefja
nú þegar sameiginlega sókn í
blöðum og útvarpi og með
fundahöldum, til þess að vekja
áhuga og styðja að einingu þjóð-
arinnar í þessu stærsta velferðar-
máli hennar“.
sýnir í kvöld kl. 9:
SPELLVIRKJARNIR
Föstudag kl. 9:
A L G I E R
Laugardag kl. 9:
SPELLVIRKJARNIR
Sunnudag kl. 9:
A L G I E R
Engin sýning kl. 3 og kl. 5.
AUGLVSIÐ í DEGI.
SALA Á ÞURRKUÐUM EPLUM
stendur nú yfir. Aðeins afgreidd til félagsmanna gegn
miðum, útgefnum á skrifstofu voni.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
NÝLENDUVÖRUDEILD
VINNUFÖT OG SKYRTUR
fáið þér bezt og ódýrast hjá oss.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
V ef naðarvörudeild.
Eins og myndin sýnir, v
er vöxtur manna á-
kaflega breytilegur.
Það skiptir hins-
vegar engu máli fyrir
oss. Hvernig sem
menn eru byggðir,
fara þeir allir jafn
harðánægðir út af
Saumastofu vorri. —
Við látum fötin fara jafn vel á feitum sem
mögrurn, háum sem lágum.
SAUMASTOFA GEJUNAR
húsi K.E.A., 3 ju hæð
Tilk/nning
Vegna hreinsunar á kartöflu-
geymslu bæjarins verða þeir,
sem eiga kartöflur geymdar
þar, að hafa tekið þær fyrir
1. ágúst n. k. .
Bæjarstjóri.
TIL SÖLU
eru tveir bólstraðir stólar.
Afgr. v. á.
VETRARSTÚLKA
óskast á fámennt heimili á
Akureyri frá 1. okt. n. k.
Sérherbergi. Hátt kaup.
Afgr. vísar á.
FJÁRMARK mitt er:
Gat hægra, heilrifað og biti
aftan vinstra, en ekki biti
framan, eins og auglýst var
í næstsíðasta blaði. —
Brennimark: J. Steins.
JÓHANN STEINSSON,
Grundavgötu 3, Akureyri.
Notuð ritvél
óskast keypt.
FORNSALAN
Sðpa liiniia uanmatu