Dagur - 16.09.1943, Síða 3
Fimmtudaginn 16. september 1943.
DAGUR
3
Norðmerm og Dani og aðrar
kúgaðar þjóðir undan oki Þjóð-
verja. Brezka afturhaldið mun
draga að gera innrás 't stórum
stíl eins lengi og það sér sér fært.
Til frekari skýringar á þátt-
töku Bandamanna í styrjöldinni.
má geta þess, að herir hinna
tveggja stórvelda, Stóra-Bret-
lands og Bandaríkjanna, áttu i
höggi við aðeins 2 þýzk herfylki
á Sikiley, meðan Rauði herirtn
barðist við 210 þýzk hertylki á
austurvígstöðvunum. (Leturbr.
hér).
Soyétvinurinn, ritstjóri „Verka-
mannsins", er víst með þessari klausu
að kvitta fyrir hergögnin og matvæl-
in, sem Bandamenn hafa undanfarin
ár flutt í stríðum straumum til Rússa,
svo að þetta víðlendasta og frá nátt-
úrunnar hendi eitthvert auðugasta og
fjölmennasta stórveldi heimsins gæti
staðist fjandmönnum, sem þegar
höfðu ruðzt langt inn í landið, snún-
ing og varið sitt eigið föðurland um
stund. Meira var aldrei af þeim kraf-
izt. Hann er að kvitta fyrir líf brezku
og amerísku sjómannanna, sem farizt
hafa í tugþúsundatali við þá flutn-
inga og annars staðar í baráttunni við
Möndulveldin á höfum heimsins;
— hann er að kvitta fyrir skipin og
vörurnar, sem sökkt hefir verið í
þeirri styrjöld í miljón smálesta tali
— allt til þess, „að Rússum blæði
sem mest“. — Það er víst „óskapleét
leyndarmál" hvar brezki herinn hefir
verið niðurkominn í þessum ófriði.
Það eru víst Rússar, sem barizt hafa
í Sómalílandi, Abessiníu, Libyu, Mar-
okkó, Algíer og Túnis. — Það eru víst
Rússar, sem háð hafa þunga og oft
á tíðum að því er virtist vonlausa —
baráttu við sterkustu herveldi jarðar-
innar á ótal vígstöðvum í fimm
heimsálfum oé veraldarhöfunum öll-
um. Það eru víst Rússar, sem knúð
hafa fyrsta stórveldi Möndulveldanna
þriggja til skilyrðislausrar uppgjafar
og velt fyrsta einræðisherranum úr
stóli. Það eru víst Rússum, sem er að
„blæða út“ í ógurlegri baráttu við
Japani — einhverju öflugasta her-
veldi á sjó og landi, sem um getur í
hernaðarsögu allra alda. Það var víst
rússneskum hermönnum sem „blæddi
út“ á fjörunum við Dunkerque, meðan
blekið á vináttusamningi þeirra Hitl-
ers og Stalins var að þorna austur í
Moskvu!
„Hið ógurlega leyndarmál“.
G SÍÐAST en ekki sízt: Með
svona skrifum er „Verkamaður-
inn“ hér — í anda og krafti þeirra al-
þekktu baráttuaðferða og vinnu-
bragða, sem kommúnistar hafa æfin-
lega tamið sér, alls staðar í heimin-
um og í öllum málum, þar sem þeir
hafa komið við sögu — að leggja sitt
lóð á metaskálarnar til þess að
tryggja nauðsynlega samheldni, vin-
áttu og skilning meðal Bandamanna,
meðan þeir eru sameiéinleéa að
leggja höfuðóvin menningarinnar í
heiminum, Nazistastórveldin þrjú, að
velli. Hvað mundu Rússar og fylgis-
menn þeirra í öllum löndum heims
segja, ef blöð Englendinga, Banda-
ríkjannna og annarra bandamanna
þeirra, túlkuðu hinn rússneska mál-
stað í þessum anda? Hvernig mundi
þeim líka það, ef þessi blöð ræddu
um þa& „óskaplega leyndarmál" hvar
„rauði herinn ósigrandi", sem búið
var að marglofa, að aldrei léti
„nokkra tommu af rússneskri jörð úr
greipum sér ganga“, hafi verið niður
kominn, þegar þýzki herinn flæddi
óstöðvandi yfir land „öreiganna" —
eitthvert auðugasta land heimsins frá
náttúrunnar hendi — allt austur að
Volgu og suður að Kákasusfjöllum?
Hversu hlýlega skyldi þeim finnast
anda í sinn garð, ef „blöð auðvalds-
ins“ væru stöðugt að glíma við þá
gátu, hvar þessi ógurlegri miljónaher
hefði geymt hreystina og karlmennsk-
una, þegar honum var að „blæða út“
í viðskiptunum við næstu nágranna
sína, smáþjóðina finnsku? Myndi ekki
skýringin sú, að hinn óbreytti rúss-
neski hermaður, sem að eðlisfari er
góðviljaður og meinhægur, hafi hlýtt
þeirri skipan foringja sinna með hang-
andi hendi, að ráðast tilefnislaust á
friðsama smáþjóð? — Og væri það
ekki tilvalið umhugsunarefni fyrir þá
góðu menn, sem sífellt eru að brjóta
heilann um þann „óttalega leyndar-
dóm“, hversu duglegir Rússar séu í
þessu stríði, en aðrir Bandamenn lé-
legir samherjar, að ráða næst þá gátu,
hvers vegna Rússar neita Banda-
mönnum sínum stöðugt um hernaðar-
legar bækistöðvar í Austur-Síberíu
En þeir eru þéttir fyrir, ef á þá er leitað. Ég hefi, síðan kommún-
istar fóru að sýna sinn innra mann, þráfaldlega heyrt merka bænd-
ur fullyrða, að ef byltingamenn dragi saman lið til að stöðva að-
flutning til landsins, útflutning gjaldeyrisvöru, eða grípa með
ofbeldi framleiðsluvörur sveitanna, þá sé sjálfsagt að láta hart
mæta hörðu. Ef kommúnistar vilja Iiindra innflutning á korn-
vörum, kolum eða olíu til landsins, í því skyni að svelta lands-
menn til undirgefni, þá verði bændastéttin að láta vera að flytja
neyzluvörur úr sveitunum til þeirra, sem standa fyrir ofbeldis-
aðgerðum gegn framleiðslu landsmanna. Sveitafólkið ann óðulum
sínum og er farið að sjá, að ef stefnt er að því að gera þau að
eyðikofum og byggðina að eyðimörk, með liðsafnaði undir for-
ustu kommúnista, þá séu bændur fullkomlega menn til að fylkja
liði á móti og verja heimili sín, atvinnu sína og framtíð barna
sinna.
Munurinn á varnaraðstöðu bænda og ásóknar kommúnista
liggur í því, að kommúnistar hefja sókn með ofbeldi á hendur
friðsömum samlöndum sínum og þjóðskipulagi, sem þjóðin
hefir reist með margra alda vinnu. Bændur búast til andstöðu,
af því að þeir eiga liendur sínar að verja, og ganga ekki lengra en
löghelgaður sjálfsvarnarréttur leyfir. Bændur mynda ekki sam-
tök til að sækja á verkamenn til að hneppa þá í kúgun. Þvert á
móti hefir bændastétt landsins innt af hendi stórvirki til að greiða
götu efnaminni stéttanna í þéttbýlinu til meiri velgengni og
menningar.
Á þennan liátt liggur leið bændastéttarinnar í fótspor Ófeigs
í Skörðum. Hann hóf ekki ójöfnuð. En hann þoldi ekki ofríki
og yfirgang annarra. Það gera bændur heldur ekki á 20. öldinni.
Samstaða bænda á búnaðarþingi í vetur var þýðingarmikið
spor. Þar sást bændastéttin í fyrsta sinn sameinuð. í sumar hefir
Dagur leitazt við að túlka sömu hugsanir, og fengið hinar beztu
undirtektir um land allt. Bændastéttin þráir sameiningu um eigin
mál. Ekki til að gera öðrum lífið leitt, heldur til að halda virðingu
sinni og rétti. Árangurinn kom í ljós í sex manna nefndinni, sem
rannsakaði framleiðslukostnað bænda. Sú staðreynd, að fulltrúi
komnninista skar sig ekki úr leik, þá eins og endranær, var ein-
göngu að þakka vaxandi samhug bændastéttarinnar. Konnnún-
istar vildu ekki á því stigi málsins láta fyllilega koma í Ijós hið
sanna innræti til byggðanna. Þeir _\'ita, að bændastéttin býr sig
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að maðurinn minn,
faðir okkar og tengdafaðir,
BOGI DANÍELSSON, trésmiður,
andaðist að heimili sínu 10. þ. m. — Jarðaríörin fer fram laugardag-
inn 18. þ. m. og hefst með húskveðju frá heimili hins látna kl. 1 e.h.
Elín Friðriksdóttir. Börn og tengdabörn.
Innilegustu þakkir til hinna mörgu, góðu og gömlu Akureyr-
inga og allra annana, sem auðsýndu samúð og hluttekningu við
andlát og jarðarför OLGEIRS JÚLÍUSSONAR.
Aðstandendur.
til þess að ráðast þaðan á Japni, sem
lang skemmst og auðveldast er að
sækja þá heim. Hvað skyldi „Verka-
maðurinn“ og hinn mikli hernaðarsér-
fræðingur hans annars hafa að segja
um það mál?
Citrine um „hinn óttalega
] eyndardóm".
AÐ er annars býsna fróðlegt í
þessu sambandi að bera saman
annars vegar þann tón, sem ábyrgir
forvígismenn vetkalýðsins í öðrum
löndum heims leyfa sér að viðhafa í
Dessu efni og hins vegar hið ósvífna
og framúrskarandi heimskulega og
hættulega tal, sem þeir ábyrgðalaus-
ir fleiprar, sem leyfa sér að tala í
nafni verkalýðsins hér, dirfast að
bjóða almenningi um þessi viðkvæm-
ustu og merkilegustu vandamál nú-
tímans.
Walter Citrine aðalritari brezka
verkalýðsfélagasambandsins og einn
af kunnustu forvígismönnum alþýðu-
samtaka verkalýðsins flutti ræðu á
þingi brezku verkalýðsfélaganna í
Southport nú á dögunum.
Citrine gerði meðal annars að um-
talsefni hinar sífelldu kröfur Rússa
um nýjar vígstöðvar og sagði, að
óneitanleéa virtist svo sem Rússar
vissu ekki af því, að Bretar og Banda-
ríkjamenn ættu einum óvini fleira að
mæta en þeir sjálfir — Japönum, og
það væri ekki smár óvinur, sem þýddi
að ganga fram hjá.
Hann minntist á það, að Banda-
menn hefðu farið fram á það að fá
bækistöðvar hjá Rússum til að geta
ráðizt á Japana, en ekki fenéið. Það
væri óhjákvæmilegt að minna á það,
að Bretar og Bandaríkjamenn hefðu
nú um langa hríð barizt að minnsta
kosti á tveimur vígstöðvum, eða þó
raunar möréum.
Þá sagði hann, að svo virtist, sem
Rússar legðu ekkert upp úr því, sem
væri að gerast við Miðjarðarhaf, eða
að minnsta kosti töluðu þeir ekki um
þá atburði, eins og þeir ættu skilið.
„Það er nauðsynleét að sameina
allan verkalýð heimsins“, sagði
Citrine, „en það er ekki hægt, ef
éaénkvæmur skilninéur er ekki fyrir
hendi, oé ef við dyljum hver annan
skoðunum okkar“.
Þriðja leiðin.
(Framhald af 2. síðu).
lausnin til frambúðar. Þess
vegna verða allir umbótamenn,
hvar í flokki sem jreir eru, að
taka höndum saman og \ inna að
því, að samkomulag náist um
þessa lausn.
Ein stétt, eða fulltrúar hentrar
fyrir hennar hönd, hefir tjáð sig
reiðubúna að fara þessa leið fyr-
ir sitt leyti. Það er bændastéttin.
Fulltrúar bænda á síðasta Bún-
aðarþingi skáru upp úr með
þetta. Fulltrúar annarra stétta
sneru upp á sig út af þessu til-
boði og vildu ekki við því líta.
Sumir þeirra komu aftur á rnóti
fram með þá hugmynd, að dýr-
tíðina skyldi lækka með einhliða
lækkun á verðlagi landbúnaðar-
vara, en kaupgjaldið skyldi hald-
ast óbreytt. Þetta var ósanngirni
og ofbeldistilraun gagnvart
bændastéttinni, en ef til vill má
afsaka ósanngirnina með jtví, að
jrá voru ekki kunnar niðurstöð-
ur landbúnaðarvísitölunefndar,
sem úrskurðaði hækkun verðs
landbúnaðarvara, ef bændur
ættu að bera úr býtum eins og
aðrar vinnandi stéttir.
En ekki fellur tré við fyrsta
í högg. Halda verður áfram sam-
I komulagstilraunum í þessu efni,
jrar til allir skilja, að dýrtíðin
verður ekki læknuð með ein-
hliða niðurfærslu á verðlagi eða
kaupgjaldi, heldur með hlut-
fallslegri niðurfærslu á hvoru-
tveggja.
ATVINNA
Nokkrar stúlkur vanar karl-
mannafata- eða kápusaum,
eða sem vildu læra slíkan
saum, geta fengið atvinnu
nú þegar eða síðar eftir sam-
komulagi. — Nánari upp-
lýsingar hjá Ólafi Daníels-
syni klæðskerameistara.
Saumastofa
GEFJUNAR
húsi K. E. A. III. hæð.
UNGUR REGLUSAMUR
með liægð undir að leggja hnefa sinn á borðið í sjálfsvarnarskyni.
Þegar Jón heitinn Magnússon vildi 1925 konia upp liði í kaup-
stöðunum til að halda verkamönnum niðri nreð vopna- og stétta-
valdi, beitti Framsoknarflokkurinn sér einhuga gegn þeirri fram-
kvæmd. Samvinnubændur landsins voru þar að verki. Þeir vildu
ekki þá og vilja ekki enn brjóta samlanda sína undir húsbónda-
vald manna, sem alltaf hafa þá að féþúfu. Framsóknarmenn vilja
hins vegar hafa lögreglu, sem heldur í skefjum mönnum, sem
vilja fótum troða lög og rétt í þjóðfélaginu. Þess vegna hafa Fram-
sóknarmenn beitt sér fyrir þeim umbótum, sem gerðar hafa verið
á lögreglu landsins.
Því iniður hafa ýmsir af leiðtogum verkamanna ekki þolað
1 >essar aðgerðir, og Jiað er áhrifum þessara manna að kenna, að
ríkisvaldið er enn svo veikt, að svo að segja hvaða dag sein er,
gæti lítill hópur vopnaðra bófa tekið ráðherra landsins, banka-
stjóra þjóðbankans, dómarana í hæstarétti og fleiri af mestu
trúnaðarmönnum jrjóðfélagsins og farið með þá upp í Surtshelli,
eða til annars þvílíks verustaðar.
Þetta ástand er óhafandi. Innan skamms verður ísland raun-
verulega sjálfstætt ríki, þegar þjóðin hefir endurreist þjóðveldi
fornaldarinnar. Þá hæfir ekki að brenna sig í sanra eldi og fyrr,
að hafa ekkert framkvæmdavald. Þjóðfélagið verður að geta fram-
fylgt lögurn þeirn, sem dómstólarnir dærna eftir. Það má ekki
jrola neinum flokki eða neinni stétt að forða slíkum mönnum frá
hegningu með ofbeldishótunum. Hið nýja lýðveldi verður að
liafa nógu sterkt lögregluvald til að geta varið stofnanir sínar og
jDjóna þeirra móti óvæntum árásum óaldarmanna, sem fótum
troða lög landsins í skjóli við ofbeldishótanir múgæsingamanna.
Aukið samstarf bænda landsins í sjálfsvarnarskyni hefir sörnu
áhrif á ofbeldismenn upplausnarhreyfingarinnar, eins og hnefi
Ófeigs í Skörðum hafði á Guðmund á Möðruvöllum. Nálega
allir, sem sækja á aðra með ofbeldi, eru sjálfir bleyður. Þegar þeir
mæta harðri sjálfsvörn, hætta þeir að hafa trú á ofbeldinu. Við
það verða þeir betri og þjóðnýtari menn.
En bak við hnefa Ofeigs í Skörðum er hin mikla lausn íslenzkr-
ar stéttabaráttu: Allir taki Jiátt í framleiðslunni. Allir njóti ávaxt-
anna af erfiði sínu í réttu hlutfajli \ ið afköst vinnunnar. Það er
gleðiboðskapur samvinnuhreyfingarinnar, sem hefir verið boð-
aður hér á landi í sextfu ár.
maður óskar eftir góðu herbergi,
helzt í miðbænum eða á brekk-
unni. — Afgr. vísar á.
TAKIÐ EFTIR!
Get bætt nokkrum við í
fæði, en sel einnig lausar
máltíðir.
VEITING AS AL AN
SVANURINN,
Fróðasund 4, Akureyri.
STÚLKUR
vantar nú þegar og síðar í
vetrarvistir hér í bænurn og
víðar, á sjúkrahús, veitinga-
hús og við iðnaðarstörf.
Talið við.
VINNUMIÐLUNAR-
SKRIFSTOFUNA.
HROSSAKJÖT
verður selt í reykhúsinu
Norðurgötu 2, á föstudag
og laugardag. — Verð: Úr^
frampörtum kr. 3.00 kg„
úr afturpörtum kr. 4.00
kg. Ekki selt minna en
5-10 kg.
JÓNAS JÓHANNSSON.