Dagur - 25.11.1943, Blaðsíða 4

Dagur - 25.11.1943, Blaðsíða 4
DAGUR Fimmtudaginn 25. nóvember 1943 4 (JR BÆ OG BYGGÐ I.O. O.F. = 12511268 */a = Kirkjan. Messað í Glerérþorpi n.k. 'íunnudag kl. 1 e. h. Dánardæéur. Frú Jónína Guð- mundsdóttir, ekkja Jónatans Jós- efssonar, múrara, móðir Tryggva byggingameistara, lézt að heimili son- ar síns hér i baenum s.l. manudag, tæplega níræð að aldri. Zíon. Athygli skal vakin á því, að samkomur eru haldnar 1 Zion mið- vikud., föstud. og sunnudag., kl. 8.30 síðdegis. Að 1. des. er allt trúað fólk boðið og velkomið á sameiginlega bæna- samkomu i Zíon, kl. 8.30 e. h. Sam- einumst nú einu sinni öll þennan dag, í bæn fyrir landi okkar og þjóð. Að 5. des. er söfnunardagur kristni- boðsins. Frjálsum framlögum til starfsins verður veitt mottaka a sam- komunni um kvöldið. Að 10. des verður 10 ára afmælis hússins minnzt með hátíðlegri sam- komu um kvöldið, og hefst hún kl. 8.30. Verða þar vejtingar, ræðuhöld og söngur. Ólafur Ólafsson segir frá þriégja mánaða dvöl í Japan. Allir velkomnir. Sjötuésaímæli átti Tryggvi Kon- ráðsson bóndi í Bragholti og oddviti Arnamesshrepps í gær. Tryggvi er framúrskarandi vinsæll maður og vel metinn. Ávarp til bæjarbúa frá Blindra- vinafélagi íslands hefir blaðinu bor- izt Verður birt í næsta tbl. Hjúskapur. Nýlega voru gefin sam- an í hjónaband af sóknarprestinum, »r. Fr. J. Rafnar, vígslubiskupi, ung- frú Úndína Ámadóttir og Sveinn Kristjánsson verzlunarm. í K. E. A. Ungfrú Hulda Sigurjónsdóttir og Arthur Benediktsson Steingrímssonar hafnarvarðar. Ungfrú Jóna G. Aðal- bjömsdóttir og Sigurliði Jónasson, bifreiðarstjóri hér í bænum. Dánardæéur. Þann 16. þ. m. lézt að elliheimilinu í Syðri-Skjaldarvík Jón Magnússon frá Staðartungu, níræður að aldri. Jón var forsöngvari í Myrk- árkirkju um 20 ára skeið fyrir alda- mótin og var vel kynntur maður í hvívetna. Hann var fyrsti vistmaður elliheimilisins. Útíör Stefáns óðalsbónda Jónsson- ar á Munkaþverá fór fram frá Munka- þverá s.l. laugardag að viðstöddu miklu fjölmenni. Sr. Benjamín Krist- jánsson flutti líkræðuna í kirkjunni, en Davíð Jónsson á Kroppi snjallt kvæði. Stjórn K. E. A. bar kistuna úr kirkju, en frímúrarar til grafar. — Kaupfélag Eyfirðinga bar kostnað allan af útförinni í virðingarskyni við hinn látna, sem var heiðursfélagi þess. Greinargerð frá Bókasafni Krist- neshælis, um bókagjafir til hælisins, hefir blaðinu borizt, en vegna þrengsla verður hún að bíða næsta blaðs. Leiðréttiné- Þórey heitir sú dóttir Stefáns heitins á Munkaþverá, sem dvelur heima í föðurgarði, en ekki Laufey eins og misprentast hofir í síðasta blaði. Kveniélaéið Hlit heldur fund n.k. föstud., 26. nóv., kl. 8.30 e. h. í Skjaldborg (kaffidrykkja). Barnastúkan Bernskar. beldur fund í Skjaldborg najstíc. sunnudag kl. 10 f. m. — B-flokker fræðir og skemmtir Byrjað verður á Iestri framhaldssögu. Framsóknarfélaé Akureyrar hefir umræðufund í Skjaldborg næstk. mánudagskvöld kl. 8.30 e. h., sbr. auglýsingu í blaðinu í dag. Til um- ræðu er atvinnumál bæjarfélagsins. Stúkan Brynja nr. 99 heldur fræðslu- og skemmtih.nd í Skjald- borg þriðjudaginn 30. nóv. kl. 8 30 e. h. — Ávarp. — E.indi (Egill Þór- láksson). — Kvikmvndasýning. — ? — Dans. — Stúkunni Ísafold-Fjall- konunni nr. 1 er boðið á fundinn. Samkomu hefir kvenfélagið Hjálp- in í Saurbæjarhreppi í samkomuhúsi hreppsins 1. des. n.k. Til skemmtun- ar verður: Hlutavelta, dans. Veiting- ar seldar á staðnum. Húsið opnað kl. 9,30 e, h, Ölvuðum mönnum bannað- 1»? íðgsngur. Hér er í óskilum RAUÐJÖRP HRYSSA, veturgömul, ómörkuð, með stand- fax og stýfðan stall í miðju tagli. Hross þetta verður selt að þrem vikum liðnum, ef enginn eigandi gefur sig fram innan þess tíma. Hreppstjórinn í Skriðuhreppi, 24. nóv. 1943. Eiður Guðmundsson. Glímumenn. (Framhald af 1. síðu) ur og annað af því tagi og veiti jafnvel greiðan gang að vafa- sömum drykkjarföngum. Og svo eru búðar-holustöður og buxna- vasar alls staðar, sem vanskapa oft góða sál og glæstan líkama. Meðan ekki er meira aðgert til að bæta úr þessum annmörkum — af verkalýðsfélögunum og öðrum — berast okkur fregnir héðan og handan um óknytti og afbrot, um drykkjuslark, uppþot og ógnarótta á skemmtisamkom- um. Nýlega bárust mér fregnir af þessu frá Húsavík — fallegasta sjávarþorpi landsins — að margra dómi. Eg hlustaði skelfd- ur á fregn þessa, og spurði sjálf- an mig, hvort nú væri svo kom- ið menningu JÞingeyinga, að hún liði þetta og fengi ekki hrundið þeim ófögnuði af höndum sér. — Vantaði verkefni hæfilegt og drengilegra fyrir þá orku, sem þannig birtist oft í krepptum hnefurn, æði í augum og heift í orðum, gagnvart frændum og fé- lögum? Síðar barst mér önnur fregn frá Húsavík, allt annars eðlis: Karlakórinn „Þrymur" ætlaði að koma til Akureyrar og syngja. Og í dag var „Þrymur" hér. Breyttir tímar gera fært að fara nú á einum degi, sem áður tók viku: fara frá Húsavík að morgni skammdegis, moka sér færa leið gegnum fannir Vaðla- heiðar, syngja fyrir hundruð manna á Akureyri á nóni og að kvöldi fyrir fólk í Laugaskóla. Ná svo að lokum heim án hvíld- ar. Þar er góðu dagsverki lokið. Þar, og til undirbúnings þessa, er aukaórku vel varið. Eg fæ ekki lýst gleði minni yfir því af- reki nánar en með því að viður- kenna, að hún hefir gert mig að betri manni, styrkt trú mína á hið betra í manneðlinu og auk- ið mér hæfni að leysa mín störf af hendi. Og viðtökur þær, sem karla- kórinn „Þrymur" fékk hjá áheyrendum í dag, sanna mér, að fleiri hafa þar hlotið svipaðar gjafir. Því að, þegar söngur vek- ur slíka öldu fagnaðar, þarf ekki að efa, að áhrifin eru mannbæt- andi. Svo gott er söngsins eðli. Mér dettur ekki í hug að telja sönginn gallalausan eða með sérstökum ágætum. En áhrif hans voru augljós, og það er mest um vert í þessu sambandi. En t. d. í laginu „Brimrof" kom greinilega í ljós, að karla- kórinn „Þrymur" á yfir góðum söngkröftum að ráða, býr við góða stjórn, þar sem séra Friðrik er, og nýtur ágætrar aðstoðar hjá frú Gertrud (Geirþrúði). Eg vil ekki hér ræffs um ein- , „ GUPUPftessm [pí í!h!:421 KEMISK FATAHREINSUN 0G LITUN — Fljót afgreiðsla. Vönduð vinna. PRESTON-FROSTLÖGURINN er kominn KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA Véla- og varahlutadeild. »♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Hagkvæm eldivi -KOKS- á kr. 180.00 smálestin RAGNAR ÓLAFSSON H.F. stök lög og meðferð þeirra, en eg hlakka til að heyra aftur ým- is þeirra — eins og t. d. áður nefnt lag, „Brimrof", „Akurstef", „Blunda barn í ró“,„hvergengur þar aleinn" og .Napolinætur". Séra Friðrik A. Friðriksson gefur fyrirmynd lærðum og leik- um í þessu menningarstarfi — og er vonandi vel þakkað þar heima. Hann þreytir af dreng- skap glímuna. Eg vil þakka karlakórnum „Þrymi" innilega fyrir þá gleði, sem hann veitti mér með söng sínum og óska honum af alhug heilla f framtíðinni. Akureyri, 14. nóv. 1943. Jónas Jónsson frá Brekknakoti. Borðstofuborð til sölu. — Upplýsingar í Síma 460. Góð kýr óskast til kaups nú þegar Afgr. vísar á. OlVírlKl til sölu. — Upplýs- ingar í síma 203. Tilboð óskast um mjólkurflutning frá SvalharSs- eyri með tilheyrandi viðkomustöð- um, til Mjólkursamlags K. E. A. á Akureyri, yfir tímabilið frá 1. april 1944 til 1. apríl 1945. í tilboðunum só fram tekið hvaða eða hvernig bát hlutaðeigandi hyggst að nota til flutninganna og með hvaða kjörum hann vill taka þá að sór. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. — Tilboðum só skilað til undirritaðs fyrir 1. janúar 1944. Efri-Dálksstöðum, 23. nóv. 1943. Ben. Baldvinsson. VETRARFRAKKAR RYKFRAKKAR (dömu og herra) JAKKAFÖT NÆRFÖT MANCHETSKYRTUR VINNUSKYRTUR MORGUNSLOPPAR SILKISOKKAR ULLARSOKKAR HANZKAR (dömu og herra) fóðraðir og ófóðraðir ULLARVETTLINGAR o. m. fl. Verzlunin Vísir Sími 421. Guðm. H. Arnórsson. NÝJA Bió sýnir i kvöld kl. 9: KRÓKUR Á MÓTI BRAGÐI Föstudag kl. 9: ENGINN KANN TVEIMUR UNNA Laugardaginn kl. 6: ENGINN KANN TVEIMUR UNNA Laugardag Jfl. 9: KRÓKUR Á MÓTI BRAGÐI Sunnudag kl. 3 og 5: KRÓKUR Á MÓTI BRAGÐI Kl. 9: ENGINN KANN TVEIMUR UNNA Auglýsing Þjóðjörðin Neðribær f Flatey á Skjálfanda er laus úr ábúð í fardögum 1944, Jörðin hefir 5 hektara tún f góðri rækt, liefir tilkall til 14 af dúntekju og trjáreka í Flatey. Á jörðinni er íbúðarhús úr steín- steypu með miðstöð, vatns- og skólpleiðslu, fjós fyrir 6 gripi, fjárhús fyrir 50 kindur, hlöður með jámþaki fyrir heyfeng jarð- arinnar, stór kartöflugarður, er vel sprettur í, sjóhús fyrir 1 vél- bát á góðum stað rétt við Flat- eyjarbryggju getur væntanlegur ábúandi haft forkaupsrétt að. --r Lysthafendur snúi sér fyrir jan- úarlok 1944 til hreppstjórans f Flateyjarhreppi, sem gefur allar nánari upplýsingar. Karlmannapeysur Drengjapeysur Vettlingar Leistar Kuldahúfur fyrirliggjandi — Ií. E. A. Vefnaðarvörudeild. Hið ódauðlega listaverk Þúsund og ein nótt kemur út innan skamms, prýdd 400 myndum, í 3 stórurn bind- um. Fyrst^ bindið kemur út fyr- ir jólin og verður safnað áskrif- endum að því. Geta þeirr sem vilja, snúið sér til Bókaverzlur\- arinnar Eddu á Akureyri, scm tekur á móti áskrifendum, Vel unnir leistar keyptir í Skipagötu 4, efstu hæð. NÝKOMIÐ FJÖLNIR, 2. og 3. hefti, og Timarit Þjóðrœknisfé- lagsins 1943. Áskrifendur vitji bókanna sem fyrst. Bókaverzlunin EDDA Akureyri. Þar sem engar fjaðrir eru fáanlegar, bý ég nú til fjaðralausa svefnbekki (dívana). JÓN HALLUR FÓÐURBLANDA fyrirliggjandi. VERZLUNIN L0ND0N Fyþór Tótnaiwop.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.