Dagur - 29.06.1944, Síða 8
8
DAGUR
Fimmtudagur 29. júní 1944
ÚB BÆ OG BYGGÐ
KIRKJAN. Messað í Akureyrar-
kirkju kl. 11 árdegis nk. sunnudag.
Gjöí til Akureyrarkirkju: Kr. 100
frá N. N. — Þakkir. Á. R.
Stúkurnar á Akureyri, „ísafold" og
„Brynja“, halda þingfulltrúumoggest-
um samsæti í Samkomuhúsi bæjarins
föstudaginn 30. júní (á morgun) k. 8
e. h.---Stúkufélagar á Akureyri til-
kynni þátttöku sína nú þegar til skrif-
stofunnar í Skjaldborg (sími 124) og
vitji aðgöngumiða í síðasta lagi í
kvöld.
Leiðrétting. í síðustu málsgrein í
grein Jónasar Baldurssonar á 3. síðu
þessa tbl. hefir misprentazt: í hinni
nóttlausu veröld DAGSINS í stað
VORSINS. Leiðréttist þetta hér með,
og er höfundurinn beðinn velvirðing-
ar á mistökum. Þá hefir og orðið sú
misprentun á sömu síðu 4. dálki 14. 1.
a. n. ;— í grein um Hótel Kea — að
þar stendur: í sambandi við herberg-
ið; á auðvitað að vera: í sambandi
við hótelið, o. s. fr.
fyrrum bóndi á Grýtubakka,
er nýlátinn, rúmlega áttræður
að aldri. Hann var fæddur 14.
febr. 1864 í Víðigerði í Eyja-
firði, þar sem foreldrar hans, Ari
Jónsson skáld og kona hans,
Rósa Bjarnadóttir, bjuggu þá.
Nokkru síðar fluttust þau hjón
að Þverá á Staðarbyggð, bjuggu
þar lengi og farnaðist vel, og þar
óx Bjarni upp til fullorðinsald-
urs. Hann kvæntist Snjólaugu
Sigfúsdóttur frá Varðgjá, —
bjuggu þau fyrst á Svalbarði og
síðan á Grýtubakka um fjölda
ára og komust í góð efni. Hætti
Bjarni búskap fyrir nokkrum
árum og hrörnaði mjög síðustu
árin, sem hann lifði. Hann var
mikill túnræktarmaður og bætti
jörð sína mikið. Hann starfaði
mikið að bindindismálum, eins
og faðir hans hafði gert, og
sýndi mikinn áhuga í þeim efn-
um. — Hann var gleðimaður og
tíðum hrókur alls fagnaðar á
mannfundum og í samkvæm-
um, góður söngmaður og að öllu
drengur góður og vinsæll.
Annáll Dags.
(Framhald af 1. síðu).
og smáa. í fararbroddi var bor-
inn stór íslenzkur fáni af Frið-
þjófi Pálssyni símstjóra. — 5—6
hundruð manns tók þátt í skrúð-
göngunni. Gengið var suður að-
algötu bæjarins og að Barnaskól-
anum, eða að „Garðarsbæ“. Er
talið, að þar hafi bær Garðars
Svavarssonar landnámsmanns
staðið. — Flutti Júlíus Havsteen
sýslumaður þar ræðu og karla-
kórinn „Þrymur“ söng ættjarðar-
ljóð. — Að því búnu var gengið
í kirkju og hlýtt á messu hjá séra
Friðrik A. Friðrikssyni. Kl. 16.30
var aftur gengið í kirkju og þar
lilýtt á söng og ræðuhöld. — Karl
Kristjánsson oddviti talaði fyrir
minni íslands og las upp tvö
kvæði: Hátíðarljóð Huldu skáld-
konu og kvæði eftir Steingrím
Baldvinsson, bónda í Nesi, ort í
tilefni dagsins. Axel Benedikts-
son kennari talaði fyrir minni
Orðsending frá slysavarna
deildunum á Akureyri
Vikuna sem leið var hér í
bænum fulltrúi Slysavarnafél.
ísl., herra Jón Oddgeir Jónson,
er hann á ferðalagi á vegum
slysavarnadeildanna og heim-
sækir verksmiðjur, ýmsa vinnu-
staði, lögreglu, brunalið o. m. fl.
lítur eftir öryggi á hverjum stað
og leiðbeinir um það sem ábóta-
vant er.
Hefur hann hvarvetna feng-
ið hinar ágætustu viðtökur og
notið skilnings viðkomandi að-
ila.
Slysavarnadeildirnar á Akur-
eyri hafa ákveðið að halda nám-
skeið í slysavörnum og hjálp í
viðlögum. Námskeiðin munu
fara fram á kvöldin og hefjast
4. júlí n. k. í Samkomuhúsi bæj-
arins. Sérstök kennsla verður
fyrir verkstjóra og verksmiðju-
fólk, um slysavamir á vinnu-
stöðvum og hvað beri að gera
til bráðabirgða ef slys ber að
höndum. Þá verða og sérstök
námskeið fyrir lögregluþjóna,
skáta og slökkviliðsmenn. Enn-
fremur er í ráði, að hafa nám-
skeið fyrir húsmæður og svo
fyrir almenning.
Á námskeiðunum verður
lögð sérstök áhersla á slysavarn-
ir á vinnustöðvum og í heima-
húsum, ennfremur lífgun
drukknaðra og hjálp í viðlögum.
Námskeiðin eru ókeypis og ætl-
uð öllum, jafnt hvort fólk er í
slysavarnadeildunum eða ekki.
Á námskeiðunum verður bókin
„Hjálp í viðlögum" eftir J. O. J.
notuð við kennsluna og fæst sú
bók hér hjá bóksölum. -
Þeir, sem hafa í hyggju að
taka þátt í námskeiðium þess-
um, og þeir verða eflaust marg-
ir, eftir því sem undirtektir hafa
verið, eru beðnir að. láta skrá-
setja sig hjá frk. Sesselju Eld-
járn, formanni Slysavamafél.
kvenna, sími 247, eða hjá Helga
Pálssyni, sími 38 og 438.
Fulltrúi Slysavarnafélags ís-
lands, herra Jón Oddgeir Jóns-
son, er nú á námskeiðsferðalagi
og mun kenna á Dalvík, Hrísey,
Árskógsströnd og Hjalteyri. —
Síðan mun hann hefja kennslu
hér á Akureyri þ. 4. júlí næstk.,
eins og áður segir, og jafnframt
eiga tal við ýmsa um öryggis-
mál.
Þingeyjarsýslu og flutti fmmort
kvæði. Njáll Bjarnason kennari
las kvæði Jóhannesar úr Kötlum,
sem verðlaun hlaut ásamt ljóð-
um Huldu. Kristján Ólason
skrifstofumaður las upp kvæði
eftir frú Björgu Pétursdóttur,
Húsavík, nefndi liún kvæðið: 20.
maí 1944. Júlíus Havsteen las
kvæði eftir Sigurð Jónsson skáld
á Arnarvatni. Var Björgvin Guð-
mundsson tónskáld rétt búinn að
semja lag við það. Einar J. Reyn-
is talaði fyrir minni Norður-
landa og stjórnaði einnig sam-
komunni. — Milli erinda söng
karlakórinn „Þrymur“ og kirkju-
kór Húsavíkur.
Var dagur þessi hinn ánægju-
legasti, enda var veður eitt hið
bezta, sem komið hefir á þessu
vori.
100 ára minning
samvinnuhreyfingarinnar
(Framhald af 1. síðu).
með 21457 félagsmönnum og
hafði þeim fjölgað um 1268
menn. Á fundinum gengu í Sam-
bandið tvö félög: Kaupfélagið
„Dagsbrún" í Ölafsvík og Slát-
urfélagið „Örlygur“, Gjögrum
við Patreksfjörð. Eru því sam-
bandsfélögin nú 52.
Samkv. tillögu Gunnars Gunn-
arssonar skálds á Skriðuklaustri,
— en hann var meðal fulltrúa á
fundinum — var samþykkt að
gefa kr. 20 þús. af ársarði Sam-
bandsins til hjálpar nauðstödd-
um Dönum, en áður hefir S. í. S.
gefið svipaða upphæð til Noregs-
söfnunarinnar. Fjársöfnun með-
al ísl .samivnnumanna til endur-
reisnar samvinnufélaganna í her-
numdu löndunum eftir stríðið
fer nú fram á vegurn S. í. S. —
Þá samþykkti fundurinn ein-
róma að skora á Alþingi að veita
Gunnari skáldi Gunnarssyni
föst, árleg heiðurslaun til æfi-
loka.
Samvinnuhátíðin að Hrafnagili.
Kl. 2 á laugardaginn hófust
svo hátíðarhöld þau að Hrafna-
gili, er Kaupfélag Eyfirðinga og
Samband ísl. samvinnufélaga
beittu sér fyrir og kostuðu til
minningar um 100 ára afmæli
samvinnuhreyfingarinnar í heim-
inum. Veður var ekki gott, en
mikill mannfjöldi streymdi þó
að Hrafhagili þennan dag, enda
gátu hátíðahöldin fariðfram inn-
anhúss í tveim geysistórum skál-
um — auk aðstöðu til veitinga —
og hrukku þeir þó naumast til
að rúrna allan mannfjöldann. —
Gjallarhornum hafði verið kom-
ið fyrir svo, að allir gátu fylgzt
gjörla með því, sem fram fór. —
Formaður S. I. S., Einar Árnason
fyrrv. alþm., setti samkomuna
með ræðu og stjórnaði henni. —
Jónas Jónsson alþm. flutti aðal-
ræðuna í tilefni dagsins, en aðrir
ræðumenn voru: Hermann Jón
asson fyrrv. forsætisráðherra, Vil-
hjálmur* Þór atvinnumálaráð
herra, dr. Richard Beck prófess
or, er flutti kveðjur frá Vestur-
íslendingum, Gunnar Gunnars-
son skáld, Hólmgeir Þorsteins
son bóndi að Hrafnagili, Ingi'
mar Eydal ritstjóri og Bernharð
Stefánsson alþm. \7oru ræðurnar
hinar snjöllustu, og hlýddi
mannfjöldinn á þær með athygli
og þakkaði ræðumönnum með
dynjandi lófataki. Mátti glöggt
á því marka.m. a., hve sterk ítök
málstaður samvinnunnar á í hér
aðsbúum. Karlakórinn Geysir,
undir stjórn Ingimundar Árna-
sonar, skemmti með söng milli
ávarpanna, kvikmynd var sýnc
lengi dags og fleira um hönd
haft skemmtunar. Loks var dans
stiginn , í veizluskálunum um
kvöldið.
Hátíðarhöld þessi fóru öl
fram með miklum menningar-
og myndarbrag, svo sem bezt
hæfði tilefni þeirra, og voru öll-
um hlutaðeigendum til verð-
skuldaðs sóma.
Gúmmístakkar
koma með ,,Selfossi“
Vöruhús Akureyrar
XILIFERÐALAGA;
Rykfrakkar, vatnsheldir,
Gúmmíkápur, Olíukápur,
Stormtreyjur, Stormblússur,
Bakpokar, Svefnpokar,
Ullarteppi, Vattteppi,
Kventöskur með axlaról, mjög hentugar.
BRAUNS VERZLUN
Páll Sigurgeirsson
L
Ný verzlun, ÁSBYRG
var opnuð síðastliðinn laugardag í Skipagötu 2.
Mikið úrval af alls konar smávöru, svo sem:
V ef naðarvörum,
Sportvörum,
Snyrtivörum,
Músíkvörum,
Tóbaks- og sælgætisvörum.
Komið og reynið viðskiptin, — það mun borga sig.
Virðingarfyllst.
LOFTUR EINARSSON.
KHKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKKhKhKhKhK
Barnavagn
óskast keyptur, afgr. vísar á.
PRJÓNAVÉL
160 nála, með tilheyrandi
áhöldum, til sölu. Upplýsingar
hjá Halldóri Jónssyni Oddag. 7
Akureyri og undirrituðum.
Jón Halldórsson,
Grímsnesi, Dalvík.
STÓRSTÚKUÞINGIÐ.
(Framhald af 1. síðu).
ur-íslendinga. — Stigveitingar
hafa farið fram á þinginu, og var
24 templurum veitt stórstúku-
stigið.
Reykvískir templarar hafa gef-
ið 3 þús. kr., er varið skal til þess
að reisa minnisvarað til heiðurs
Friðbirni Steinssyni bóksala, en
hann var einn af fyrstu og
fremstu brautryðjendum Good-
templarareglunnar hér í bænum
og landinu. Á mánudagskvöldið
héldu templarar kynningarkvöld
í Samkomuhúsi bæjarins, og er
þess getið á öðrum stað hér í
blaðinu. Flutti stórtemplar þar
ávarp til gestanna, en forseti
bæjarstjórnar Akureyrar, Ámi
Jóhannsson, þakkaði fyrir hönd
þeirra.
Silkisokkar
Verð frá 5 kr. parið.
Hannyrðaverzlun
Ragnh. O. Bjömsson.
HROSS ASÝNIN G AR
verða haldnar 11. júlí n. k.
kl. 13 að Reistará og 12. júlí
á sama tíma að Grund í
Eyjafirði
BÚNAÐARSAMBAND
EYJAFJARÐAR.
KARLMANNS-ARMBANDS-
ÚR tapaðst frá Hafnarstræti 37
á leiðinni út í bæ, miðvikudag-
inn 21. þ. m. Finnandi vinsam-
lega beðinn að skila því í Hafn-
arstræti 37, niðri, gegn fundar-
launum.
HEFI TVO
2 Vá tonns vörubíla til
sölu, með vökvasturtum
og í góðu lagi. Einnig 1V2
tonns vörubíl og óuppsett-
an 8 sylindra „Ford“- mó-
tor.
GUÐM. BENEDIKTSSON
fré Moldhaugum.
Amerísk Magazín,
leynilögreglu- og
glæpasögur o. fl. —
Áður kr. 2.00 og kr.
3.00. — Nú kr. 1.00
og kr. 1.50.
Tilvalin lesning
í sumarfríið.
Lítið í austasta
gluggann í
Bókaverzlun
ÞORST. THORUQUS
*$******