Dagur - 23.11.1944, Page 8
8
Fimmtudaginn 23. nóvember 1944
ÚR RÆ OC BYGGÐ
I. O. O. F. 126241181/2.
KIRKJAN. Messað á Akureyri n.
k. sunnudag kl. 2 e. h. (Fermingar-
börn beðin að mæta).
Messur í Möðruvallakl.prestakalli.
Á Möðruvöllum sunnudaginn 26. nóv.
og í Glæsibæ sunnudaginn 3. desem-
ber (aðventa).
Áheit á Akureyrarkirkju. Kr. .50.00
frá N. N. Þakkir. — Á. R.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin sam-
an í hjónaband af sóknarprestinum,
sr. Friðrik J. Rafnar, vígslubikupi,
ungfrú Sigurbjörg Guðmundsdóttir
frá Stokkseyri og Brynleifur Jónsson,
Sigurðssonar litara hér í bænum, til
heimilis að Selfossi. Ungfrú Frey-
gerður Bergsdóttir, Sæborg, Glerár-
þorpi og Finnur Sigurðsson, Sval-
barði, Gelrárþorpi. Ungfrú Sigríður
Bjarnveig Guðmundsdóttir frá Olafs-
firði og Garðar Björnsson, bakari,
Akureyri.
Látin er hér í bænum ekkjan Helga
Sigfúsdóttir, gift Kristjáni Markús-
syni, smið, hér í bænum, sem látinn
er fyrir nokkrum árum. Helga var 67
ára gömul.
Kveníélaé Akureyrarkirkju biður
blaðið að færa beztu þakkir öllum
þeim, sem aðstoðuðu við kirkjukvöld-
ið 17. þ. m.
Fimmtuésafmæli átti Benedikt
Baldvinsson, bóndi á Dálksstöðum á
Svalbarðsströnd, sl. sunnudag.
Stúkan Ísaíold-Fjallkonan rtr. 1
heldur fund í Skjaldborg næstk.
þriðjuddag kl. 8.30 síðd. Fundarefni:
Ólokin mál frá síðasta fúndi. —
Framhaldssagan. — Tvö stutt erindi.
— Hagnefnd skemmtir. — Söngur.
Barnastúkan Samúð heldur fund í
Skjaldborag næstk. sunnudag kl. 10
árd. — Fundarefni: Inntaka nýrra fé-
laga. — Sögð saga. — Leikrit. — A-
flokkur skemmtir og fræðir.
Húsmæðraskólafélaé Akureyrar
hefir kaffisölu til ágóða fyrir hús-
munakaupasjóð húsmæðraskólans að
Hótel Akureyri næstk. sunnudag, frá
kl. 2 e. h. — Ennfremur verða seld
merki á sunnudaginn til ágóða fyrir
þetta mál. Bæjarbúar munu enn sýna
góðvild sína til þessa máls með því
að sækja kaffisöluna og kaupa merk-
in.
Hjúskapúr. Sunnudaginn 19. þ. m.
voru gefin saman í hjónaband á
Möðruvöllum i Hörgárdal ungfrú
Þórgunnur Jóhannsdóttir og Jónas
Hermannsson, sjómaður, bæði til
heimilis í Hrísey.
Sleifarlag á póstflutningum
frá Reykjavík.
(Framhald af 1. síðu).
látin ónotuð. Því fremur er
ástæða til óánægju út af þessu,
að póstmálastjórinn lýsti því eitt
sinn yfir í viðtali við Dag, að
póststjórnin gerði allt sem í
hennar valdi stæði til að greiða
fyrir póstfiutningum og notaði
flugvélarnar hvenær sem það
væri hægt. Virðist talsvert ósam-
rærni í þessari yfirlýsingu póst-
málastjórans og framkvæmdum
undirmanna hans, sem afgreiða
póstinn frá Reykjavík og væri
þörf skýringa.
Dansleik
heldur Umf. Ársól að
Munkaþverá laugard.
25. nóv. og hefst hann
kl. 10 e. h.
Veitingar á staðnum
Kerrupoki til sölu.
til sölu.
Uppl. í síma 264
ANNÁLL DAGS.
(Framhald af 1. síðu).
tryggir bátaflotanum örugga
höfn. í sumar var aðallega unnið
að því að brjóta skarð í Höfð-
ann hér norðan við bæinn og
koma akfærum vegi þar upp;
einnig tekið upp grjót og lagðir
vegir að því. ■
Vann þarna stór flokkur
manna fram í október. Virðist
þessu verki hafa miðað vel áfram
í sumar.
★
Fyrsta þ. m. var settur hér í
Húsavík Iðnskóli. Starfar hann í
vetur í fundarsal Kaupf. Þing-
eyinga. Skólastjóri er séra Frið-
rik A. Friðriksson.
Laugardaginn 4. þ. m. var hér
til moldar borin Björg Sigur-
pálsdóttir, fyrrum húsfreyja á
Kvíslarhóli á Tjörnesi, hin
mesta sæmdarkona. — Nýlega er
látinn á Ha 11 dórsstöðurn í Laxár-
dal Baldvin Jónatansson skáld, í
hárri elli. — Baldvin var víða
kunnur fyrir ljóðagerð sína, og
munu vísur hans og ljóð lengi
lifa hjá þeim, sem ljóðum unna.
Margt er nú skrafað liér um
hina nýju ríkisstjórn, og mun
svo víðar vera á landinu. Enda
engin furða, þó að svo sé, þar
sem þeir hafa nú gengið í sömu
sæng Korpúlfsstaðadrengurinn
og kommúnistaforinginn. F.n
framkvæmi þeir öll Iiin mörgu
gefnu loforð, þá er vel.
ERLEND TÍÐINDI.
(Framhald af 1. síðu).
í aukana, sérstaklega á vígsvæð-
inu fyrir norðan og austan
Aachen og allt til Metz og Bel-
fort ,en báðar þær borgir liafa
verið leystar úr ánauð. Herir
Banadamanna eru komnir inn í
Elsas og Saar.
•
Þjóðverjar halda áfram að
beita hinu nýja vopni sínu, V-2,
gegn London. Bretar nefna vopn
þetta „símastaurinn f]júgandi“.
Er því líklega skotið frá stöðvum
í Hollandi, fer allt að 100 km. í
loft upp og fer hraðar en hljóð-
ið, svo að enginn verður þess
var, fyrr en sprengingin verður.
Mun vopn þetta vera skætt eign-
um og lífi Lundúnabúa, þótt
Bretar sjálfir hafi verið fátalaðir
um slíkt. Engan veginn mun
Þjóðverjum þó takast, að breyta
gangi styrjaldarinnar með vopni
þessu, því að því að því er ekki
beitt gegn herjum á víostöðvun
um, heldur borgúrúm og borg-
aralegum eignum'. Nefna Þjóð-
verjar vopnið sjálfir „hefndar-
vopn“.
•
Eftir að rússneskir herir brút-
ust inn á sléttur Ungverjalajads
og nálguðust Budapest hafa
ekki orðið miklar breytingar á
þeim slóðum, né heldur nálægt
landamærum Austur-Prússlands,
þótt orrustur hafi víða verið
harðar. — Þrengja þó Rússar æ
meir að Þjóðverjum í Ungverja:
landi og í Kúrlandi.
•
Á Balkanskaga er Grikkland
allt laust úr þýzkri ánauð og
mikill hluti Jugoslafíu og Al-
baníu. Þjóðverjar hörfa sem þeir
mega í átt til Ungverjalands.
•
DAGUR
DÝRTÍÐ OG AFLALEYSI.
(Framhald af 1. síðu). !
af þeim þáttum, sem afkorna ^
sjávarþorpanna hér byggðist á. 1
Það er þess vegna engan veginn
lítilsvert frá þeirra sjónarhóli
séð, ef ekki verður hægt að
stunda þennan atvinnuveg áfram
með lífvænlegu móti. Að vísu er
nú mikið talað um „nýsköpun"
í útgerðarmálum, nýjar skipa-
byggingar o. s. frv. Er raunar allt
gott um það að segja, en slík
plön réttlæta á engan liátt, að
horft verði aðgerðarlaust á það, |
að þessi sjálfstæði atvinnurekst-
ur ieggist niður. Eftir sl. surnar
erú þessir menn svo illa leiknir,
að ef þeir fá ekki aðstoð, er
óhugsandi að þeir geti hafið út-
gerð að sumri. Til þess að gera
þeim það kleift þyrftu þeir að £á
upjrbót, sem svaraði a. m. k. 10
aurum á hvert fiskkg., eða ca.
4000 krónur á bát, sem aflað
liejði svipað og bátur sá, sem
getið er um hér að framan.
Ríkisvaldið verður að taka
þetta mál til athugunar. Hér
hefir verið nefnt eitt dæmi, en
af nógu er að taka. Afkoma
hlutasjómannanna um land allt
er svo bágborin nú, að nærri
stappar að útgerð stöðvist víðast
livar. Ef slíkt verður að nokkru
ráði, sjá allir hverjar afleiðingar
Jrað hefir fyrir afkomu og fram-
tíð þjóðarinnar. Dýrtíðin er hér,
sem víðar, meginbölið. Þessi mál
verða aldrei leyst á rneðan glím-
an við haiia takist vel. Ekki horf-
ir ]>ó vel í þeirri viðureign sem
stendur, en á meðan svo er verð-
iir ríkisvaldið að reyna að fleyta
atvinnuvegunum áfram, svo að
allt komizt ekki í þrot.
Uppbótargreiðsla til hlutasjó-
mannanna væri til þess gerð og
ekki síður réttlætanleg en marg-
ar aðrar ríkisgreiðslur, þótt hitt
sé og rétt, að ríkissjóður hefir í
mörg horn að líta og er þess ekki
megnugur, sem ekki er vonlegt,
að standa til lengdar undir at-
vinnuvegum, sem ekki bera sig
af völdum dýrtíðar.
Gufupressun Akureyrar
Skipagötu 12
Kemisk fatahreinsun
Litun
Ein fullkomnasta fata-
hreinsun landsins
Reynið viðskiptin!
Fljót afgreiðsla!
’ Gufupressun Akureyrar
Pepsi-Cola — Póló
Appelsín — Kist
Öl- og
Gosdryklcir h. f.
Sími 337.
Á Filijrpseyjum eru harðar
orrustur háðar á Leyte-ey og
þjarma Bandaríkjamenn að Jap-
önum, sem verjast af miklum
móði og grimmd.
HJARTANS ÞAKKIR öllum þeim, er auðsýndu okkur
| vinarhug á silfurbrúðkaupsdag okkar.
MAGNÚSÍNA KRISTINSDÓTTIR. JÓN SIGURÐSSON.
Silkiléreft ★
ljósblátt, ljósgrænt, ljósgult
nýkomið
BRAUNS VERZLUN
Páll Sigurgeirsson
Sulta, Hunang, Syróp,
Saft, Súpur, Soupmix,
Kakaó/ Krydd
Kjólföt
á meðalmann til sölu
Gufupressun Akureyrar
Skipagötu 12
Verzlun Jóns Egils.
Tannburstar, Tannkrem,
Krem, Talcum, Kinnalitur
Púður, Hair Tonic,
Hárolía, Brylcreme,
Hárkrem, Shampo, Sápur
i
Verzlun Jóns Egils.
Dömurykfrakkar
Herrarykfrakkar
Skíðastakkar
Hanzkar
Verzlun Jóns Egils.
Hver hefir efni á að sleppa hag-
kvæmum kaupum í dýrtíðinni?
Allur kornmatur
með gamla verðinu
Verzlun Jóns Egils.
Sími 475.
AUGLÝSING
FRÍMERKI ERU
VERÐMÆTI. KASTIÐ
EKKI VERÐMÆTUM
Á GLÆ.
Bollapör, aðeins kr. 3.00.
Vatnsglös, sykurkör,
og rjómakönnur,
sérstaklega ódýr en smekkleg.
Hnífapör og skeiðar
(silfurplett)
Margt fleira nýkomið.
Söluturninn
við Hamcirstía
sýnir í kvöld kl. 9:
Kvenmaður í kröggum
Föstudaginn kl. 9:
Listamannalíf
Laugardaginn kl. 6:
Sunnudaginn kl. 3:
Stjörnurevýan
Laugardaginn kl. 9:
Kvenmaður í kröggum
Sunnudaginn kl. 5
Hetjur á heljarslóð
Kl. 9:
Listamannalíf
MRNASTAKKAR
2ja til 14 ára.
Kaupi íslenzk frímerki hæsta
verði eftir innkaupslista, sem
sendur er hvert á land sem er, ef
óskað er. Leitið tilboða. — Upp-
lýsingar greiðlega látnar í té. —
Duglegir umboðsmenn óskast
víðs vegar um land.
ÓMAKSLAUN!
SIG. HELGASON,
P. O. Box 121. -
Reykjavík.
Verzlun Jóns Egils.
Fimmtudag kl. 9,
Föstudag kl. 9,
Laugardag kl. 9,
Sunnudag kl. 9:
Góður gestur
Sunnudag kl. 5:
Sá hlær bezt,
sem síðast hlær