Dagur - 26.04.1945, Qupperneq 2
2
» AGU R
Fimmtudaginn 26. apríl 1945
„Hundaþúfan hreykli kamb"
Mér datt þessi vísa Steingríms
í hug, þegar ég lauk lestri grein-
arinnar „Hólastóll og hunda-
þúfa“, er birtist í Morgunblað-
inu 6. þ. m., undirrituð „Norð-
lendingur".
Hundaþúfur eru þær þúfur
nefndar, sem viss dýrategund
notar til þarfinda sinna. Þetta
hlutskipti þeirra hefir jafnan
þótt fremur óveglegt.
Mbl. hefir lengi gerzt hunda-
þúfa þeirra manna, sem fýsir að
svívirða íslenzku bændastéttina
og samtök hennar. „Norðlend-
ingur" notar sér kostulega þessa
aðstöðu. Hann segir, að bænda-
stéttin sé rislág og kotungslegri
í hugsun en aðrar stéttir. Þegar
aðrar stéttir tali um nýsköpun
þeirra Ólafs og Brynjólfs, þá sé
hún svo syfjuð, að þetta hrífi
hana elcki!
Bændur eru nú samt ekki syfj-
aðri en það, að hvergi nærri er
hægt að fullnægja eftirspurn
þeirra um kaup á jarðvinnslu-
vélum. „Nl.“ getur ekki um
þetta, þó að hann að sjálfsögðu
viti það vel, því að það hefði
dregið úr syfjubrigzlunum til
bænda.
Bændur eru heldur ekki svefn-
ugri en það, að meðal þeirra er
nú að rísa alda í þá átt að setja
sjálfir á fót áburðarverksmiðju,
sem þeir ólafur og Brynjólfur
og þeirra nýsköpunarlið ætlar að
svíkjast um að koma í fram-
kvæmd. „Gáinn“ segir líka í
Mbl. 14. þ. m„ að ódýr og auð-
fenginn áburður sé frumskilyrði
þess, að sú hugsjón bænda verði
að veruleika að geta aflað allra
heyja á ræktuðu landi, en jafn-
framt eys hann skömmum yfir
Vilhjálm Þór og Framsóknar-
flokkinn fyrir að beita sér fyrir
framgangi þessa hugsjónamáls
bænda! Samræmið er stundum
ekki á marga fiska meðal þessara
Mbl.sauða.
Bændur eru ekki síður vak-
andi en aðrar stéttir og hafa ekki
minni framfaraáhuga. Hitt mun
sönnu nær, að þeir séu öllu trú-
ardaufari á nýsköpunarhjal
stjórnarinnar en sumir aðrir, en
þó er sú tni líka óðum að
slokkna meðal annara stétta og
það af gildum ástæðum.
Að clómi Mbl.„Norðlendings“
tekur það þó út yfir allan þjófa-
bálk, er eyfirzkir bændur gerast
þeir dauðans ræflar að láta
Kaupfélag Eyfirðinga nota spari-
skildinga sína til að reisa hótel-
byggingu á Akureyri. Nær hefði
verið að verja þeim peningum,
er fóru í gistihúsið, til að rækta
jörðina heima fyrir og fjölga
skepnum og afla sér auk þess
ýmsra þeirra þæginda, sem van-
hagar um í sveitinni. Ef þessi
leið hefði verið farin, mundi
fólksstraumurinn úr sveitunum
til kaupstaðanna hafa stöðvast.
Öxnadalurinn m. a. risið úr
rústum.
Samkvæmt þessum kenning-
um „Norðlendings" í Mbl.grein-
inni er gistihússbyggingu K. E.
A. reglulegt niðurdrep fyrir bú-
skapinn í sveitum Eyjafjarðar,
þar sem peningarnir til bygging-
arinnar hafi verið teknir af spari-
fé bændanna, sem þeir hafi trú-
að félaginu fyrir til geymslu.
Látum okkur nú athuga þetta
allt dálítið nánar.
í K. E. A. eru bændur, sjó-
menn og útgerðarmenn, verka-
nrenn, iðnaðar- og verksmiðju-
fólk, verzlunar- og skrifstofufólk
og embættismenn. Alls um 4000
manns, þar af um 17 hundruð
bændur.
Flest af þessu fólki hefir nú á
stríðsárunum aurað saman
meira og minna af sparifé, sein
það bað K. E. A. að ávaxta fyrir
sig, eftir því sem föng væru til;
sagði sem var, að ekki væri í
annað hús að venda, þar eð ríkis-
stjórnin gerði ekkert til hjálpar
í því efni t. d. með útgáfu og
sölu ríkisskuldabréfa. K. E. A.
vékst vel undir þetta, þó að erf-
itt væri um vik með ávöxtun
peninga. Voru þá tveir kostir
fyrir höndum: annar sá að láta
peningana liggja nær vaxtalausa
í lánsstofnunum, hinn sá að ráð-
ast í eitthvert arðbært fyrirtæki
og leggja sparifé í það. Síðara
ráðið var valið. Þá varð hið
margumrædda gistihús til, en á
því var mikill skortur í höfuð-
stað Norðurlands. Jafnframt því
að verða félagsmönnum að liði
með ávöxtun sparifjár þeirra,
eins og þeir höfðu óskað, var
bætt úr brýnni þörf í sambandi
við gistihússleysið.
Sú fjárhæð, sem í gistihúsið
fór, er vísu ekki nema nokkur
hluti þess sparifjár, sem K. E. A.
hefir tekið á móti frá félags-
mönnum sínum. Hótel K. E. A.
mun hafa kostað rúmlega hálfa
milljón kr. Af þessari upphæð er
líklegt að bændur eigi náiægt
1/3, segjum allt að 200 þús. kr.
Nú eru bændur í félaginu fuil
1700. Það eru til jafnaðar ná-
lægt 100 kr. frá hverjum. Mbl.-
„Norðlendingur" heldur því
fram, að þessar 100 kr. hefðu get-
að gert kraftaverk heima fyrir,
með þeim hefði mátí rækta
jörðina, stækka búin og jafnvel
reisa við hrunda bæi í Öxnadal!
Nú vill svo vel til, að Mbl.-
„Norðlendingur“ upplýsir, að
ærskjátan kosti 200 kr„ kýrin
1700 kr„ trippið 500 kr. og rækt-
un á dagsláttu í túni um 1200
kr. Og nú getum við, Norðlend-
ingur góður, reiknað út frá þessu
verðlagi.
. Fyrir spariféð, sem bóndinn
lagði í Hótel K. E. A., hefði
hann getað keypt V£ ærskjátu,
eða 1/17 úr kú, eða 1/5 úr
trippi, eða ef hann hefði heldur
viljað leggja það í ræktun, þá
hefði hann getað stækkað tún
sitt um 1/12 úr dagsláttu = 75
ferfaðma!
Nú er loku fyrir það skotið,
að bændur geti neytt þessara
bjargráða! Kaupfél. Eyf. hefir
séð fyrir því með þeim yfirgangi
og frekju að taka hálft ærverð
eða 17. part ar kýrverði af spari-
fé bóndans og leggja það í hótel-
byggingu, þar sem það mun gefa
góða vexti, ella enga.
Það er ekki að furða, þó að
Norðl. heiti á bændur að „hrista
þenna ófögnuð af sér.“
En það, sem „Norðl.“ svíður
mest, er þó, að Hótel K, E. A.
skuli vera myndarlegt og vel úr
garði gert. Ef það hefði verið lít-
ilfjörlegur kumbaldi, hefði
hann ef til vill látið það kyrrt
liggja. En að byggja hótel, sem
kaupstaðabúar gætu verið þekkt-
ir fyrir að koma inn í — það var
hneyksli.
Eins og fyrr er sagt birtist
grein „Norðlendings" 6. þ. m.
Þann 14. s. m. hreykti hunda-
þúfa Ólafs Thors kamb. Mbl.
réð sér ekki fyrir drambi út af
þessari makalausu grein, Um
hana segir blaðið m. a.:
„Greinin „Hólastóll og
hundaþúfa“, sem birtist í Morg-
unblaðinu 6. apríl, vakti meiri
athygli en nokkur önnur grein,
sem komið hefir í blöðum lands-
ins síðustu mánuðina svo eigi sé
lengri tími til tekinn. Greinin er
skrifuð af þeirri list, sem hittir
í mark.“
Síðan lýsir Mbl. landbúnaðar-
ástandinu í sveitunum á hinn
hörmulegasta hátt, en nefnir þó
sérstaklega eyfirzka bændur í því
sambandi. „Sumir þeirra hafi
látið ginnast og gerst böðlar á
sinni eigin stétt 'og sínum at-
vinnuvegi.“ Svo bætir blaðið því
við, að það bæti ekki úr, þó að
K. E. A. byggi fyrir peninga
bænda „luxushótel".
Með hólinu um grein „Norð-
lendings“ og snoppungunum til
eyfirzkra bænda stefnir blað Ól-
afs Thors markvisst að því að
rægja K. E. A. Kaupfélagið á að
hafa ginnt bændur í Eyjafirði til
að gerast eigin böðlar. Þeir hafa
verið ginntir til að velja Einar
Árnason og Bernharð Stefánsson
fyrir þingfulltrúa. En nú hafa
Sjálfstæðismenn frelsað eyfirzka
bændur frá Einari og gefið þeim
í staðinn dánumanninn Garðar.
Á sínum tíma svara eyfirzkir
bændur og stéttarbræður þeirra
um land allt Mbl.,,Norðlend-
ingi“ og hundaþúfunni með
sinn hreykta kamb. Má þá svo
fara að bæði setji niður.
Gamall sveitakarl.
Perluli
I I
Kalt II
I I
(Casco)
Kaupfélag
Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild
Ford
vörubifreið
til sölu. Upplýsingar gefur
Sigurjón Rist, bílaverkstæð-
inu Mjölni.
Þegar sýslumannssonurinn hyggst
ræða landbúnaðarmál!
,,J. H.“ fullu nafni Jóhann
Hafstein, sýslumannssonur frá ^
Húsavík, nú framkvæmdarstjóri ^
Sjálfstæðisflokksins gerir tilraun
til þess í lítilli grein í Morgun-
blaðinu frá 14. marz s. 1. — sem
þó er að mestu fengin að láni
frá öðrum, að svara og lirekja
grein eftir mig, Afneitun ung-
mennafélaganna, sem birtist í
Tímanum 6. marz s. 1.
Reyndar er það helzr mikið
sagt, að kalla samseining J. H.
svar, þar sem hann hliðrar sér
algjörlega hjá því, að t.ika til
meðferðar málið sem fyrir bgg-
ur: uppruna ungmennaféíag-
anrta og félagsstafrsemina á
þeirra öndverðum áruiri við þ ið,
að glæða þjóðmálahugsun og
þegnlegan þroska meðlimanna
og svo starfsleysi þeirra nú í
þeim efnum. Ekki sniðgengur
J. H. málefnið vegna viijaleysis
á því að ræða það, heldur sýni-
lega vegna fullkomins getuleysis.
í stað Jress að hrekja það, að
það hafi verið samvinnnfólkið í
landinu og æska þess, setn hóf
ungmennfélagshreyfinguna, tal-
ar hann um það, að „Framsókn-
arnepjan" frysti „dómgreind"
mína. — Það ber víst að taka
þetta sem fyndni, enda þótt höf-
undi gangi illa að dylja hina á-
berandi fátækt fyndnigáfu sinn-
ar.
í stað þess að afsanna það að
þjóðskóli ungmennafélaganna
æfði nemendur sína í því að rök-
hugsa og rökræða þjóðfélags-
málin frá sjónarmiði jafnréttis
hugsjóna og einstaklingsfrelsis
samvinnustefnunnar, talar liann
um, að ég láti stjórnast af „hé- 1
gómlegum barnaskap," sem á
víst að skilja svo, að leysi hann
frá þeim vanda að finna orðum
sínum stað.
Þegar þar kemur máli J. H.
að hann ætlar að ómerkja um-
mælin um afstöðu núveiandi
ríkisstjórnar til íslenzku sveita-
byggðanna, hyggst hann að grípa
til þungra raka, enda ekki van-
þörf á því að sjálfs hans dómi,
þar sem „barnaskapurinn" er
horfinn en ógnandi alvara kom-
in í staðinn. Vitnar hann því í
stjórnarsáttmálann máli sínu ril
sönnunar, sáttmálann, sem al-
mennt er kallaður „plötuslátt-
urinn hans Ólafs Thors“ sá, sem
misheppnaðist í fyrstu tilraun að
festa á gúmí og margir freistuð-
ust til þess að líta á sem lákn-
rænan fyrirburð stjórnarörlag-
anna.
Upp úr „plötusáttmálanum"
tekur J. H. sem sönnunargögn
fyrir hjartahreinni og þökkva-
lausri umhyggju ríkisstjórnar-
innar fyrir velferð sveitanna
það, að hún ætlar að verja „af er-
lendum gjaldeyrir bankanna í
Bretlandi og Bandaríkjunum
.... eigi minna en 50 millj. kr.
til kaupa á vélum og þess háttar
til áburðarverksmiðju, vinnslu
og hagnýtingu landbúnaðaraf-
urða og jarðyrkjuvéla og efnis til
rafvirkjana".
Var það til staðfestingar þess-
um ummælum og til framgangs
þessum áformum, sem stjórnar-
i flokkarnir vísuðu áburðarverk-
smiðjufrumvarpinu og jarðrækt-
arlagafrumvarpinu frá og svæfðu
frumvarpið um rafvirkjanir í
sveitum á Alþingi í vetur?
J. H. vill gera nafn Péturs
Magnússonar í ríkisstjórninni að
öruggri líftryggingu fyrir sveit-
irnar. Pétur Magnússon hefir
sagt að núverandi ríkisstjórn
muni ekki koma sér saman um
fleiri fjárlög. Er ekki hans góða
mannorð næg sönnun fyrir því
að þetta sé satt? En hver verður
þá minnisvarðinn um sveitaum-
hyggju ríkisstjórnarinnar að
entu hennar lokadægri annar en
vitnisburðujr þingsögunnar um
meðferðina á landbúnaðarfrum-
vörpunum þremur á Alþingi
veturinn 1945?
Fyrst og síðar í Morgunblaðs-
greinni notar svo J. H. þá gamal-
frægu íhaldsaðferð að.brigsla
andstæðingi sínum tim „geð-
bilun“.
Þegar á allt er litið, þá er þess
kannske ekki að vænta að tillegg
sýslumannssonarins, sem orðinn
er framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins reynist öllu drýgra en
þetta, þegar hann hyggst ræða
eðli og áhrif ungmennafélags-
skaparins og afstöðu hans til
þjóðmálanna í dag. Engan veg-
inn getur það þó talist þungt í
vigtinni.
27. marz 1945.
Jónas Baldursson,
Lundarbrekku.
i »<»<»»<»<»»»»»<»»»»»<>»»»»»»»4
Kaupum egg
alla daga
nema laugardaga.
Pakkið eggin ekki í hey!
Brauðgerð K.E.A.
DAGUR
fast keyptur i
Verzl. Baldurshaga,
Bókabúð Akureyrar
Bókaverzl. Eddu og
Verzl. Hrisey