Dagur - 26.04.1945, Page 10

Dagur - 26.04.1945, Page 10
10 ÐA6UR Fimmtudagínn 26. apríl 1945 Ef Eimskipafélag íslands sér ekki fært að hefja siglingar milli Norður- og Austur- lands að ófriðnum loknmu. verða Norð- lendingar og Austfirðingar að stofna sitt eigið skipafélas: Verzlunarsamband okkar Austfirðinga og Norðlendinga við önnur lönd, með umhleðslu á vörum í Reykjavík er óþarft og of dýrt fyrirkomulag. — Norðanlands og austan býr hér ttm bil 1/3 hluti þjóðarinn- ar. Sunnanlands og vestan býr og 1/3 hluti landsmanna og í Reykjavík þriðj i þriðjungurinn. Ef Eimskipafélag Jslands vill halda heiðursnafni, sínu „óska- barn þjóðarinnar“, eins og það hefir gei|t, verður stjórn þess að minnast þess, að þjóðin er dreifð um þetta land og mun verða það framvegis. Ástæðurnar til þess að þjóðin dreifir sér.um landið eru margar, en fyrst og fremst þær, að auðsuppspretturnar eru dreifðar, meðfram ströndum landsins á landi og sjó. Hafi Eimskipafélag íslands ráð á sex skipum eiga Itvö af þeim að sigla eingöngu milli hafnanna á Austur- og Norðurlandi og er- lendra hafna, ef miðað er við fólksskiptinguna. Þegar framleiðslumagn lands- ins er athugað og siglingaþörfin vegna þess, getur hlutfall þetta breytzt. Eg hefi að vísu ekki við hendina skýrslu um skiptingu þess. F.n þó langar mig itil að vekja athygli á nokkrum stað- staðreyndum. Geta þeir, sem vilja, svo kynnt sér nánar það, sem hér er um að ræða. 1. Framleiðsla landbúnaðaraf- urða mun vera eins mikil á Norður- og Austurlandi eins og Suður- og Vesturlandi, nema mjólkurframleiðslan vegna Reykjavíkurmarkaðs- ins. 2. Framleiðsla á síld og síldar- afurðum er nærri öll á Norð- ur- og Austurlandi og lang- samlega mest á Norðurlandi. 3. Framleiðsla á þorski er dreifð umhverfis allt landið, en er langsamlega mesit við Suður- og Vesturlandið. Eg hefi hér í stórum dráttum leitast við að benda á, hvernig háttað er framleiðslu lands- manna, og vil með því vekja at- hygli á þessum höfuðundrstöð- um millilandaviðskipltanna. Mér er kunnugt um, að Eim- skipafélag íslands hefir flutt síld- arafurðir frá Norðurlandi með skipum sínum vestur fyrir land til Norðurálfuhafna. Slíkt at- ferli er bersýnilega sóun á tíma og Um leið skiprúmi. Þá leið virðist aðeins eiga að sigla þegar halda skal til Veslturheims. Að svo stöddu skal ekki frekar farið út í þessa hlið málsins. Aðeins skal eg láta þá skoðun mína í ljósi, að mér þykir það furðu djarflt af forráðamönnum Eim- skipafélagsins, er þeir þola ekki ,,kritik“ á meðferð þeirra á sgil- ingum félagsins, þ. e. a. s. ef þeir vilja að félagið sé sú alþjóð- ar stofnun, sem þeir láta í veðri vaka. Eg lít svo á, að æskilegasta lausnin á þessu máli væri sú, að Eimskipafélagið itæki að nýju upp siglingar milli Norður- og Austurlandsins og útlanda. At- hugað væri hvort ekki væri heppilegri önnur stærð og gerð skipa, en félagið hefir átt fram að þessu. Sjái Eimskipafélagið sér ekki fært að sinna þörfum þessara umræddu landshluta á eðlilegan og hagkvæman hátt sé eg ekki betur en Norðlendingar og Aust- firðingar verði að stofna sitt eig- ið félag til þess að halda uppi þessum samgöngum. Væri þá eðlilegast, að Sam- band ísl. samvinnufélaga yrði þáttltakandi í því félagi, eða fyr- irætlanir þess um skiparekstur styrktar af alefli úr þessum hér- uðum. Hánefsstöðum 5. apríl 1945. Sig. Vilhjálmsson. Iðnskólanum slitið 13 iðnnemar brottskráðir. Iðnskólanum á Akureyri var slitið 18. þ. mán. — síðasta vetr- ardag. — Hélt Jóhann Frímann skólastjóri ræðu við tækifæri, af- henti einstökum nemendum verðlaun fyrir námsafrek og brottskráðum iðnnemum próf- skírteini þeirra. 112 nemendur hafa stundað nám í skólanum í vetur og 12 kennarar störfuðu þar auk skólastjórans. Hæstu einkunn við vorprófið hlaut Reynir Ragnarsson húsgagna- smiður, nemandi í 2. bekk I. ág. 9,17. Viðurkenningu fyrir beztu iðnteikningu skólans að þessu sinni hlaut Jón Karlsson hús- gagnasmiður í 4. bekk, en fyrir bezta fríhendisteikningu Ragnar Magni Magnússon klæðskeri í 3. bekk skólans. 13 iðnnemar stóðust burtfar- arprófið að þessu sinni. Far nöfn þeirra og aðaleinkunnir hér á eftir: Agnar Tómasson, klæðskeri III. 5.10 Árni Magnússon, járnsmiður II. 6.50 Ásgeir Kristjánss., bifvélav. I. 7.77 Ásgrímur Stefánss., húsasm. II. 7.23 Gunnar Bjarnason, bifvélav. I. 7.70 Héðinn Friðrikss., húsg.sm. II. 6.36 Ingvi Hjörleifsson, rafvirki II. 7.30 ívar Ólafsson, járnsmiður II. 7.13 Jón Karlsson, húsgagnasm. I. 8.50 Karl K. Bárðarson, bólstrari I. 8.50 Steindór R. Jónss., bifvélav. II. 7.38 Svava J. Þorsteinsd. hárgr. II. 6.92 Þórir T. Sæmundss., múrari II. 7.00 Sýning á teikningum* allra bekkja skólans — flatar- og rúm- teikningum, fríhendisteikning- um og fagteikningum hinna ýmsu iðngreina — var opin fyrir almenning í skólahúsinu 15. þ. mán. Var hún mjög fjölsótt, enda margt þar að sjá haglega gerðra og kunnáttusamlegra teikninga. Skíðamót Akureyrar endaði sl. sunnudag Á Skíðamóti Akureyrar, sem eftir nokkurt hlé var haldið áfram með sunnudaginn 22. apr- íl, var keppt í bruni og stökki. Eór keppnin fram í Reithólum í Hlíðarfjalli í grennd við skála, sem Gagnfræðaskóli Akureyrar er að reisa sér þar. Brunbrautin var brött og færi mjög erfitt, með 500 metra falli og 2.8 km. lengd í A- og B-flokki, en 400 metra fall og 1,8 km. lengd í C- flokki. Úrslit urðu þessi: A-flokkur: 1. Guðmundur Guðmundsson, K. A., 2 mín, 11 sek. 2. Magnús Brynjólfsson, K. A., 3 mín. 40 sek. 3. Hreinn Ólafsson, Þór, 4 mín. 35 sek. B-flokkur: 1. Finnur Bjömsson, Þór, 3 mín. 36 sek. 2. Sigurður Samúelsson, Þór, 3 mín. 45 sek. 3. Páll Línberg, K. A., 5 mín. 19 sek. C-flokkur: 1. Júlíus B. Jóhannesson, M. A., 2 mín. 26 sek. 2. Jóhann Indriðason, Þór, 2 mín. 53 sek. 3. Sveinbjörn Guðmundsson, K. A., 3 mín. 38 sek. í skíðastökki var bæði einstakl- ingskeppni og sveitarkeppni um Stökkbikar Akureyrar, sem Morgunblaðið hefir gefið. Var fyrst keppt um bikarinn vetur- inn _ 1943 og vann hann þá Iþróttafélag Menntaskólans. Þar næst vann hann sveit Knatt- spyrnufélags Akureyrar. Crslit urðu sem hér segir: A- oé B-flokkur: 1. Guðmundur Guðmundsson, K. A., stökk 31 og 32 metra. 2. Páll Línberg, K. A. 3. Magnús Brynjólfsson, K. A. í yrtgri ffokki: 1. Finnur Bjömsson, Þór, stökk 29 og 29,5 metra. 2. Vignir Guðmundsson, Þór. 3. Pétur Þorgeirsson, K. A. í sveitarkeppni sigraði sveit Knattspyrnufélags Akureyrar, og er það því öðru sinni, semisveit K. A. vinnur bikarinn. í sveitinni voru: 1. Guðmundur Guðmundsson. 2. Páll Línberg. 3. Magnús Brynjólfsson. Amerískar Khakiskyrtur Kosta aðeins 14 kr. Verzl. Eyjafjörður h.f. Silkiljereft nýkomln Verzl. Eyjaf jörður h.f, ♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦4 Til hreingerniDga: Gólfklútar Quillayabörkur Sódi Blautasápa Stangasápa Opal ræstiduft Vim Húsagagnaáburður m. teg. Bon Ami gluggasápa Bon Ami duft Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeild og útibú. Kjólatau einlitt og m islitt í mjög fjölbreyttu úrvali KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA V ef naðarvörudeild I Gefjunardúkar m I Ullarteppi I Kambgarnsband Lopi <> er meira og minna notað á hverju heimili á landinu. Gefjunar-ullarvörur eru þjóðkunnar fyrir gæði. Gefjunar-vörur fást hjá öllum kaupfélögum J landsins og víðar. Ullarverksmiðjan GEFJUN *&$>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.