Dagur - 17.05.1945, Page 6
ð
DA6UR
Fimmtudaginn 17. maí 1945
- Mig langar til þín -
Saga eftir
ALLENE CORLISS
r$;$$$W:5v;$vv,íí:$v:ííív!í
(Framhald).
Hann stóð við orð sín. Og þannig atvikaðist það, að Ginny átti
víst starf þegar hún kom til New York í september.
Já, það var septembermánuður. Hún hafði hæt't að starfa hjá
Dorcas March í september til þess að gifta sig, og nú var hún aftur
komin að starfi á hennar vegum í sama mánuði. Henni flaug þetta
í hug dag nokkurn. Þau sátu við lítið borð í matsöluhúsi, hún,
Dorcas, Shannon MacKaye og Charles BuUton. „Eftir níu ár,“ sagði
hún, „er eg nákvæmlega á sama stað og eg byrjaði. Eg hefi meira
að segja fengið íbúð í sömu götu og þá.“ w
„Hvað var það, sem fór út um þúfur?“ spurði Charlie Burton.
Hann var rithöfundur og alltaf á snöpum eftir efnivið. „Vonbrigði
með manninn?" Gínny brosti. „Ónei, ekki get eg sagt það. Mér
þóitti alltaf mjög vænt um hann. En eg þurfti að dvelja að heiman
um tíma og þá kynntist hann annarri stúlku.“
„Nú, svoleiðis," sagði Charlie Burton. „Það efni er nánast út-
rætt. Dugar ekki í. smásögu, — Hollywood lítur ekki við því leng-
ur.“
„Það var leiðinlegt,“ sagði Ginny. „En svona var það. Þér spurð'
uð mig, og eg sagði eins og var.“
„Heyrðu, Charlie," sagði Dorcas. „Geturðu ekki gleymt því eitt
einasta augnablik, að þú ert atvinnurithöfundur."
„Já, og lélegur í þokkabót,“ bætti Shannon við.
Shannon var grannleitur og skolhærður, líkléga nær fertugu. En
þegar hann brosti varð hann nær unglingslegur á svipinn og Ginny
leizt vel á hann frá fyrstu sýn.
,-Nokkrum dögum seinna sátu þær Dorcas við hádegisverð. Ginny
sagði: „Það var fallega gert af ykkur Shannon urn daginn, að koma
mér til hjálpar og leiða talið frá hjónaskilnaðinum að sögunum
hans Charlie. Það var heimskulegt af mér að koma honum á
sporið.“
í tíu ár hafði Dorcas March tekizt að vera fremsti tízkuritstjóri í
allri borginni og Ginny fannst hún vatla hafa elzt um ár síðan hún
sá hana fyrst.
„Charlie meinti þetta vel,“ sagði Dorcas, „en hann er ekki alltaf
heppinn í efnisvalinu. — Eg fékk bréf frá vini þínum í dag — frá
Bill Sabins. Hann vildi fá að vita, hvernig þér gengi. — Hann hefir
augsýnilega áhyggjur af líðan þin.ni."
„Frá Bill,“ sagði Ginny, og var ekki alveg eins undrandi og hún
lézt vera. „Þetta fer nú að verða talsvert skrítið. — Eg skrifa honum
af því að eg hefi áhyggjur út af börnunum, en hann skrifar þér af
því að hann áhyggjur mín vegna."
(Framhald).
Þurrkað grænmeti
H V í T K Á L kr. 22 pr. kg.
GULRÆTUR - 17 - -
SPÍNAT - 32 - -
| ATHUGIÐ: 1 kg. þurrkað samsvarar 10-12 kg. |
af nýju káli.
Kaupfélag Eyfirðinga 1
******
Nýlenduvörudeild og útibú.
Húsmæður!
Athugið, að brauð- og mjólkurbúðir vorar verða lokaðar
allan hvítasunnudag. — Munið því að kaupa brauð- og
mjólkurvörur fyrir kl 4 e. h. á LAUGARDAGINN kemur,
en þá verður búðunum lokað.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Gefið börnunum hinar hollu
Clapp’s niöursuðuvörur
Alls konar grænmeti
og ávextir
Mjög holl barnafæða
Kaupfjelag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild og útibú.
Minningarliatíð
í tilefni af 100 ára dánarafmæli
Jónasar Haligrímssonar
verður haldin í Öxnadal, laugardaginn 26. þ. m. Hefst
hún með guðsþjónustu í Bakkakirkju kl. 2 e. m., þar sem
sóknarpresturinn, sr. Sigurður Stefánsson, prédikar, en
verður síðan fram haldið í þinghúsi Öxnadalshrepps, að
Þverá, kl. 4 s.d. Ræðumenn verða þar: Bernharð Stefáns-
son, alþingismaður og Steindór Steindórsson, Mennta-
skólakennari.
Ágúst Kvaran, forstjóri, les upp og ennfremur verður
söngur.
Veitingar og merki dagsins fást á staðnum.
UNGMENNAFÉLAG ÖXNDÆLA
höfum við ávalt
fyrirliggjandi.
Kaupf elag EyfirÖinga
V ef naðar vörudeild
!*$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$
Tilkynning
Vegna hækkunar á ökutaxta verður ekki komizt hjá
framvegis, að taka gjald fyrir sérstakar heimsend-
ingar á sunnudögum.
Lágmarksgjald er 4 krónur.
Brauðgerð K.E.A.
Píanó
til sölu
Afgreiðslan vísar á.
TIL SÖLU:
nýlegur rúmfata-
og geymsluskápur.
Upplýsingar hjá
Ben. J. Ólafs, málara,
Skipagötu 5.
Tilboð óskast í árabát.
Björgvin Elíasson,
Aðalstræti 13.
Til sölu:
traktor ásamt
jarðvinnslutækjum
Upplýsingar á Bílaverk-
stæðinu Lykillinn eða á
herbergi nr. 3. Hótel Ak-
ureyri.
Saumastofa
í fullum gangi til sölu, að
nokkru eða öllu leyti. —
Upplýsingar gefur
BÁRÐUR JAKOBSSON,
Akureyri, sími 354.
Nýr dívan
til sölu.
STEFÁN JÓNSSON,
Mjölnir.
Gagnfræðaskóla Ak. sagt upp
(Framhald af 1. síðu).
í skólanum voru 200 nemend-
ur og luku 49 gagnfræðaprófi.
Eru það fleiri en nokkru sinni
fyrr í sögu skólans.
í ávarpi sínu til gagnfræðinga
lagði skólastj. út af orðum Jó-
han nesarguðspjal ls: Sannleikur-
inn mun gera yður frjálsa. —
Hvatti hann nemendur til sjálf-
stæðis og rökvísi í hugsun og at-
höfn og benti á, að þótt skipulag
þjóðfélagsins veitti mönnum
tækifæri til ríkulegs frelsis, væri
enn ástæða til að óttast ófrelsið,
því að enginn væri frjáls, sem
ekki rökhugsaði sjálfur viðfangs-
efni sín í lífinu og ekki léti leið-
ast af eigin ályktunum eða þyrði
ekki að breyta rétt. Múghugsun-
inu mætti aldrei ná að magnast
svo, að hún bældi niður sjálf-
stæða hugsun og skoðun. Ræða
skólastj. vakti hrifningu áheyr-
enda og var ágætlega fagnað.
Eftir skólaslit skoðuðu gestir
handavinnusýningu skólans. Var
þar margt haglegra og smekklega
gerðra muna. Er þetta þó fyrsti
veturinn, sem skólinn hefir tök á
að kenna handavinnu. Síðan fór
fram fimleikasýning undir stjórn
frk. Þórhöllu Þorsteinsdóttur,
fimleikakennara, og er þeirrar
sýningar nánar getið í íþrótta-
þætti blaðsins í dag.