Dagur - 31.05.1945, Síða 1

Dagur - 31.05.1945, Síða 1
10 SÍÐUR ANNALL DAGS ■= éú—........ 24. MAÍ. Tiilkynnt, að brezka þingið verði rofið 15. júní n.k. og þingkosningar fari fram 15. júlí n. k. Churchill hefur sagt af sér en konungur falið honum að mynda nýtt bráðabirgðaráðu- neyti. Heinrich Himmler, yfir- maður þýzku Gestapolögregl- unnar fremur sjálfmorð í aðal- stöðvum 2. brezka hersins. Mesta loftárás styrjaldarinnar á\Tokyo, 750 þús. eldsprengjum varpað á borgina, tjón gífurlegt. 25. MAÍ. Enn gerð stórárás á Tokyo. Okyrrð í Sýrlandi og Lebanon vegna aukningar á herstyrk Frakka í þessum lönd- um. 26. MAÍ. Tai'ið að 1/5 hluti Tokyo sé í rústum eftir loftá- rásirnar að undanfömu. Mála- ferlin gegn Vidkum Quisling hefjast. Sænskt flugfélag ráðgerir flugferðir tíil Bandaríkjanna með viiðkomu á íslandi. 27. MAÍ. Arabaríkin ákveða ráðstefnu 5. júní um málefni Sýrlands og Lebanon. Talið að þau muni styðja þessi ríki í deil- unni við Frakka. Kínverjar í sókn, taka Nanning. Ýmsir hátt- settir nazistar enn handteknir, þ. á. m. Forster, naaistaforingi .í Danzig. íþróttafélagið Þór 30 ára. íþróttafélagið Þór er stofnað 6. júní 1915 og verður því 30 ára í næstu viku. í maí 1915 ákváðu unglingar á Oddeyri að mynda með sér fé- lagsskap um sín áhugamál, og þá fyrst og fremst íþróttir. Stofndag- urinn var ákveðinn 6. júní. Stofnendur voru milli 20 og 30. Allt frá þessum degi hefir íþróttafélagið Þór starfað að margs konar íþróttum hér á Ak- ureyri, oft af lífi og fjöri, þótt á stundum væri dauft yfir — sér- staklega á árunum 1924—1930. Félagið hefir keppt við aðra l^æði hér heima og annars staðar og hefir þar, eins og gengur, ým- ist verið skin. eða skúr, sigrað eða tapað sigri í leik og keppni. Félagar í Þór eru nú nokkuð á 4. hundrað. í tilefni af þessu afmæli félags- ins hefst íþróttamót hér á Akur- eyri miðvikudaginn 6. júní n.k. og stendur til 10. júní. Þátt taka í mótinu 4 íþróttafélög bæjarins og má búast við margs konar keppni og ýmsum skemmtiatrið- um. M. a. íþrótta þar er svokall- að Oddey^ar-boðhlaup og eru þar 20 menn í hverri sveit og hlaupa þeir 100—400 m. hver. Þá eru knattleikar bæði fyrir -pilta og stúlkur, sund, fimleika- sýningar og frjálsar íþróttir. — Allt verður þetta nánar auglýst síðar. Mótinu á að ljúka sunnudags- kvöldið 10. júní með samkomu að Hótel Norðurland og verður þar skilað verðlaunum. Stjórn félagsins skipa nú: Jónas Jónsson, formaður. Sverrir Magnússon, ritari. Sigmundur Björnsson, gjaldkeri. Gunnar Óskarsson varaform. Jón Kristinsson, spjaldskrárritari XXVIII. árg. Akureyri, — fimmtudaginn 31. maí 1945. 22. tbl. Eyfirðingar minnazt aldarártíðar Jónasar Hallgrímssonar Virðuleg minningarháfíð í fæð- ingarsveit hans. Fjölbreytt hátíðahöld sjómanna um næsfkomandi helgi Síðastliðinn laugardag voru 100 ár liðin síðan Jónas Hallgrímsson lézt, einmana og yfirgefinn, í sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn. Víða um land hefir aldarártíðar „listaskáldsins góða“ verið minnzt, m. a. á Listamanna- þinginu, sem nú stendur yfir í Reykjavík og helgað er minningu hans. — Hér í Eyjafirði, heimasveit Jónasar, hefir hans verið minnzt með ýmsu móti. Aðalhátíðin var í Öxnadal, þar sem Jónas fæddist og ólst upp að mestu leyti. Ungmennafélag Öxndæia gekkst fyrir há- tíðinni. Hófst hún með guðsþjónustu í Bakkakirkju kl. 2 e. h. sl. laug- ardag. Sóknarpresturinn, séra Sigurður Stefánsson, prédikaði. Að því búnu var haldið að þing- ofif skólahúsi sveitarinnar að Þverá og hófst þar f jölmenn sam- koma. Kári Þorsteinsson á Þverá, formaður framkvæmdanefndar, setti hátíðina, en að því búnu flutti Bernharð Stefánsson alþm. ræðu um skáldið og æskustöðv- arnar. Steindór Steindórsson, menntaskólakennari, talaði um náttúrufræðinginn Jónas Hall- grímsson, en Ágúst Kvaran, for- stjóri, las upp úr ljóðum Jónasar og ljóð um hann. Söngflokkur, undir stjórn Jóhanns Ó. Har- aldssonar, söng lög við ljóð eftir skáldið og loks söng Hreinn Pálsson einsöng. Samkomunni var slitið með því, að þjóðsöng- urinn var sunginn. Hátíðin fór sérlega vel og virðulega fram. í ræðu sinni komst Bernharð Stefánsson m. a. svo að orði: — í dag minnumst við þess, að rétt 100 ár eru liðin frá andláti „listaskáldsins góða“, Jónasar Hallgrímssonar — þess manns, sem langsamlega mestum ljóma hefir varpað á sveitina ok-kar, því að hér var hann borinn og barn- fæddur og hér var æskuheimili hans. Hann dó fjarri átthögum sínum og ástvinum, á spítala suð- ur í Kaupmannahöfn. . . . Hann var þá aðeins 37 ára gamall. Fá- tækur var hann og umkomulít- ill, því að þó hann ætti alúðar- vini meðal hins fámenna hóps íslendinga í Kaupmannahöfn, þá^voru þeir ekki mikils meg- andi. . . . En þó Jónas Hall- grímsson dæi ungur og þó hann væri fátækur að veraldarauði, þá hafði hann þó af gnógt anda síns gefið íslenzku þjóðinni meira en flestir aðrir. Hann hafði vakið þjóðina til nýs lífs af margra alda sinnuleysi og móki. Hann hafði opnað augu hennar fyrir fegurð og tign landsins og kennt henni að þekkja það betur en áður, Hann hafði gefið þjóðinni nýja trú á sjálfa sig, á framtíð sína og á land sitt. En einkum og alveg sérstaklega, hafði hann endurreist sjálfa tungu þjóðar- innar, „ástkæra, ylhýra málið, allri rödd fegri“, og gefið henni nýja fegurð og þrótt. . . . (Framhald á 4. síðu). N orðurllandasöf nunin: 195 þús. krónur hafa safnazt 1 Eyjafirði og á Akureyri Skyndifjársöfnuninni um land allt til hjálpar bágstöddu fólki í Danmörku og Noregi er nú Iokið og mun láta nærri að íöfnunin á öllu landinu nemi 3 millj. kr. Hér á Akureyri og í Eyjafjarð- arsýslu söfnuðust alls um 195 þús. kr., þar af 159 þús. í pening- um, en rösk 35 þús. í vörugjöf- um, og er þá ekki meðtalið neitt af fatnaði þeim, sem einstakling- ar gáfu, heldur aðeins vörugjafir verzlana. Helztu upphæðirnar eru þessar: Akureyrarkaupstaður 25 þús„ Eyjafjarðarsýsla 10 þús„ Kaupfélag Eyfirðinga 20 þús. (í varningi), starfsfólk Iðunnar kr. 2400, Atli h.f. og starfsmenn 2500, Hótel Norðurland 2000, vegamenn í Öxnadal 1275., Verzl. Eyjafjörður 1000, Kristján Kristjánsson 5000, starfsfólk K. E. A. 8500, Saurbæjarhreppur 5635, Arnarneshreppur 5407, Öngulstaðahreppur 2805, Ár- skógshreppur 3500, Hrafnagils- hreppur 7575, Öxnadalshreppur 940, Hríseyjarhreppur 3320, Skriðuhreppur 2025, starfsfólk Prentverks Odds Björnssonar 1000, skólastj. og kennarar barnaskólans 1020, Útgerðarfé- lag K. E. A. 5000, Njörður h.f. 1000, Vélabókbandið h.f. 1000, Prentverk Odds Björnssonar (Framhald á 8. síðu). KAPPRÓÐRAR Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ AÐALHÁTÍÐIN Á SUNNUDAGINN Sjómannadagurinn er á sunnu- daginn kemur. Eins og venja er, halda sjómenn daginn hátíðleg- an um land allt. Hér á Akureyri- verða margbreytffieg hátíðahöld. Hefjast þau á laugardagskvöldið kl. 8.30 með kappróðri sjómanna á Pollinum. Keppa þá sex skips- hafnir í 1000 metra róðri, frá Höepfnersbryggju og að Ytri- T orf unef sbryggju. Á sunnudaginn hefjast hátíða- höldin kl. 10 f. h. með hópgöngu sjómanna frá hafnarbryggjunni. Verður farið um bæinn og til kirkju. Þar hefst sjómannamessa klukan 11 f. h. Sr. Friðrik J. Rafnar, vígslubiskup, prédikar. Kl. 1.30 fer fram nýstárleg sýning hér á Pollinum. Skotið verður björgunarlínu út í skip á höfninni og sýnd björgun úr því. Verða skipsmenn dregnir í land í björgunarstól. Klukkan 2.30 hefst sundsýn- ing við sundlaug bæjarins. Þar verða sýnd björgunarsund og stakkasund. Klukkan 5 hefjast íþróttaleikir á Þórsvellinum. Verður þar háður knattspyrnu- kappleikur milli Vélstjórafélags Akureyrar og Sjómannafélagsins. Ennfremur keppa þessi félög, á- Frá Tónlistarfélagi Akureyrar Strengjasveit Tónlistar- félagsins í Reykjavík kemur hingað 8. júní n.k. fí Strengjasveit þessi var stofnuð sl. haust og telur 12 menn. — Stjórnandi er Dr. V. Urbant- shitsch, en konsertmeistari Björn Ólafsson fiðluleikari. Sveit þessi er orðin mjög vinsæl meðal höfuðstaðarbúa, þó ung sé hún hvað sjálfstæða starfsemi snertir, enda eru meðlimir hennar allir hinir efnilegustu hver á sínu sviði og sumir þeirra, svo sem stjórnandinn, konsertmeistarinn, Dr. H. Edelstein og Fritz Weiszhappel, löngu þjóðkunnir listamenn. Sveitin kemur hingað hinn 8. júní næstk., á vegum Tónlistar- félags Akuryrar og mun halda hér að minnsta kosti 2 hljóm- Framhald á 8, síðu samt Skipstjórafélaginu, í reip togi. Klukkan 10 um kvöldið hefj- ast dansleikir sjómanna að Hótel Norðurland og Samkomuhúsinu. Merki sjómannadagsins og Sjó- mannadagsblaðið verða seld á götunum allan daginn. Enn- fremur munu skátastúlkur selja happdrættismliða fyrir björgun- arskútu Norðurlands. Vinning- urinn er, svo sem kunnugt er, forkunnarvandaður bókaskápur með 300 úrvalsbókum í skraut- bandi. Dregið verður 15. júlí. Ættu bæjarbúar að hylla sjó- mannastéttina og styðja gott málefni með því að kaupa happ- drættismiðana. KEA ætlar að reisa nýtt verzlunarhús í Grímsey og kjöt- og mjólkursölubúð í Ólafsfirði Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga og framkvæindastj. þess fóru til Grímseyjar sl. fimmtudag til þess að athuga um stað fyrir verzlunarhús, er félagið hyggst reisa þar. Kaupfélagið hefir starf- rækt útibú í Grímsey úndanfar- in ár. Hefir það verið til húsa í leiguhúsnæði, semnúverðurekki fáanlegt lengur. Var því ekki um annað að velja en byggja yfir út- búið, sem er eina verzlunin á eyjunni. Húsinu var valinn stað- ur í Sandvík, uppi á bakkanum, en vörugeymsluhús verður byggt niður við sjóinn. Er þegar byrjað að vinna við þessar fram- kvæmdir. Gestirnir gengu um eyjuna og skoðuðu hana. Grímseyingar voru að síga í bjarg þennan dag og þótti komumönnum það ný- stárleg sjón. Eggjataka hefir minnkað mjög mikið frá því sem áður var. Er talið, að néi fáist ekki nema tæplega 10% af því magni, sem algengt var að fá á árum áður. Á heimleiðinni var komið við í Ólafsfirði til þess að athuga um lóð fyrir vænn,anlega kjöt- og mjólkursölubúð þar. Ólafsfirð- ingar hafa óskað þess, að félagið léti reisa slíka búð í sambandi Framhald á 8. síðu

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.