Dagur - 07.06.1945, Blaðsíða 4

Dagur - 07.06.1945, Blaðsíða 4
4 BA6UR Fimmtudaginn 7. júní 1945. DAGUR Rltstjóri: Haukur Snorrason. Afgreiðslu og innheimtu annast: Marinó H. Pétursson. Skrifstofa í Hafnarstræti 87. — Sími 166. Blaðið kemur út á hverjum fimmtudegi. Árgangurinn kostar kr. 15.00. Prentverk Odds Björnssonar. „Hafðu, bóndi minn, hægt um þig!46 jyjORGUNBLAÐINU" er bersýnilega ekki rótt innan brjósts yfir öllum þeim fjöl- mörgu samróma ályktunum, er að undanförnu liafa verið gerðar víðs vegar um land allt á fund- um búnaðarsambanda, kaupfélaga og „annarra samkunda bænda“, eins og „Mogginn" orðar þetta svo einkar virðulega í forustugrein 30. f. mán.! Bera ályktanir þessar það með sér, að bændur hafa nú, allir sem einn maður, risið upp og mótmælt því gjörræði meirihluta síðasta Al- þingis að taka með lagasetningu ráðstöfunarrétt yfir sameiginlegum sjóði bændastéttarinnar allr- ar, búnaðarmálasjóði, úr höndum bænda sjálfra og fela hann landbúnaðarráðherra. Er þó þeirra tekna sjóðsins, sem hér um ræðir, einvörðungu aflað með sérstökum veltuskatti, sem lagður er á afurðir bænda, enda upphaflega svo til ætlazt, að fénu skyldi eingöngu varið til stuðnings og efl- ingar sameiginlegum nauðsynjamálum) bænda- stéttarinnar samkvæmt ákvörðun búnaðarþings. í nefndri forystugrein Morgunblaðsins segir — án nokkurra tilraunar til frekari rökstuðnings — að „allir sjái þó, að þetta (þ. e. að landbúnaðarráðh. er falin stjórn sjóðsins í stað búnaðarþings) er að- eins sjálfsagt öryggi bændum sjálfum tdl handa. Búnaðarþing er vissulega ekki þcim mönnum skápað nú, að það veiti bændum minnstu trygg- ingu fyrir réttlátri og viturlegri meðferð fjárins". JJUNDAÞÚFU-RITHÖFUNDUM Sjálfstæðis- flokksins virðist bersýnilega seint nóg komiðaf svívirðingunum og digurmælunum. í garð þeirra, er í sveitunum búa. Þessi ummæli blaðsins verða ekki skilin nema annað hvort þannig, að „Mogg- inn“ telji bændur alls ekki til manna, og „allir“ þýði í hans munni aðeins hinar handmjúku og innifölu leyniskyttur stjórnarblaðanna og þeirra nótar, er gera nú hverja herferðina annarri hat- ursfyllri og illvígari „und.ir niðurfelldum and- litshlífum", gegn sveitamönnum og félagssamtök- um þeirra. Eða þá hitt, að tilfærð ummæii blaðs-, ins beri að skilja á þá leið, að bændur Iandsins séu nú orðnir svo volaðir andlegir afturúrkreist- ingar, að þeir geri — þúsundum saman og um allt land — samþykktir, er stríði beint gegn betir vit- und þeirra sjálfra um það, hvað sé þeim og stétt þeirra fyrir beztu. Og búnaðarþing — sem skipað er fulltrúum, er kosnir eru með algerlega lýðræð- islegum hætti af búnaðarsamtökunum um land allt — er, að dómi blaðsins, svo hraklega statt um mannaval, að það veitir enga „minnstu trygg- ingu fyrir réttlátri og viturlegri meðferð" þeirra málefna, sem því er trúað fyrir! Ótíndum banka- stjóra í Reykjavík, sem ekki þekkir þó sprengi- efni frá tilbúnum áburði (!), er stórum betur treystandi til þess að sjá, hvað bændastéttinni er fyrir beztu um meðferð sinna eigin fjármuna en fulltrúum bændanna sjálfra! ■þÁ ÞYKIR MORGUNBLAÐINU ekki dælla að fást við allar þær einróma kröfur, er hinar fjölmörgu „samkundur bænda víðs vegar um land“ hafa að undanförnu gert þess efnis, að ekki verði vikið frá þeirri stefnu í áburðarverksmiðju- málinu, er mörkuð var í frumvarpi Vilhjálms Þór, sem lagt var fyrir síðasta Alþingi. Sárast þyk- ir blaðinu, að vonum, að sunnlenzkir bændur skuli nú einnig hafa tekið kröftuglega í þennan sama streng. „Hver trúir því“, segir í áðurnefndri forustugrein, „að sunnlenzkir bændur krefjist þess í alvöru (sic!), að áburðarverksmiðjan verði reist norður við Eyjafjörð. .. .?“ Það er raunar óþarft að taka það fram, að Eyjafjörður — né Gullforði þriðja ríkisins / apríl sl. náðu Bandaríkjamenn saltnámu nokkurrí íMerkers íBæjaralandi á vald sitt. Við athugun kom í ljós, að náman var hálftull aí gulli og banka- seðlum. Var þarna um að ræða 100 tonn í gulli og ógrynni fjár í ýmissi mynt og haíði verið flutt þan&að úr þýzka ríkisbankanum í febrúar 1945. Annars staðar í námunni fundu Bandarikjamertn listaverk eftir Raphael, Rembrandt og fleiri heimsfræga málara er nazistar höfðu rænt í Frakklandi oé komið fyrir þarna til öryééis. „Pjakkarnir við búðarborðin" og „riddarar einkaframtaksins“. AÐ ER SVO SEM öldungis sjélf- sagt að „Morgunblaðið“ og aft- aníossar þess, „íslendingur" og önnur slík blöð, eru hinir einu sönnu og réttu málsvarar verzlunarstéttarinnar, „einkaframtaksins' og „hinnar frjálsu verzlunar". (!) Þessi virðulegu málgögn vita líka full vel, hvað”þau mega bjóða skjólstaeðingum sínum, verzlun- armönnunum, áður en nokkur hætta er á því, að þeir hrökkvi við eða stökkvi upp á nef sér. Það má nefni- lega enginn ætlast til þess, að bless- aður „Mogginn“ láti sína sól renna jafnt upp bæði yfir vondum og góð- um, eða geri engan greinarmun á æðri og lægri starfsmönnum hinnar frjálsu verzlunar og einkaframtaksins! Þar er nefnilega ákaflega mikill mun- ur á. Kengáluriddarinn, sem ritstjórar nefndra blaða dást svo ákaft að, hefir nýlega skilgreint þennan mikla eðlis- mun svo greinilega, að nú verður ekki framar um villzt: „Hver og einn heldur aðrir tilteknir „útskækl- ar“ — er alls ekki nefndur í frum- v. V. Þór, heldur aðeins gengið út frá því, að áburðarverksmiðj- an verði reist þar á landinu, sem hlutlaus, fræðileg athugun leiði í ljós, að hún sé bezt sett, með fullu tilliti bæði til framleiðslu- kostnaðar og dreifingu áburðar- ins til neytenda. En Morgun- blaðið virðist, eftir þessu að dæma, ganga út frá því sem al- gerlega. gefnu, að slík athugun hljóti að leiða það í Ijós, að Eyja- fjörður sé einmitt eini rétti stað- urinn fyrir slíkan rekstur og framleiðslu! Á annan hátt verða þessi ummæli blaðsins urn al- vöruleysi sunnlenzkra bænda (!) alls ekki skilin. Því að væntan- lega dregur „Mogginn" þó ekki þá staðreynd í efa, að slíkar sam- þykktir hafi raunverulega verið' gerðar á þingi Búnaðarsambands Suðurlands og öðrum „samkund- um bænda" suður þar, heldur slær blaðið því aðeins föstu, að samþykktirnar hafi ekki verið gerðar í „alvöru“ en aðeins af leikaraskap eða venjulegri heimsku og þvermóðsku „mann- •anna með mosann í skegginu". pjakkur getur rétt aðkeyptar vörur út fyrir búðarborðið“, stendur þar, „en sköpun markaðs fyrir afurðir — og hagkvæm umsetning þeirra í seljan- legu formi kostar bæði tíma og fyrir- höfn, en auk þess skipulags gáfu og hugkvæmni“. þAÐ MUN EINMITT hafa verið slík skipulagsgáfa og hugkvæmni, sem ríkisstjórnin var að verðlauna nú á dögunum, þegar hún féllst á að „semja“ við fyrirtækícS S. Amason & Co. í Reykjavík — en sjálfur formað- ur Nýbyggingaráðs, herra alþingis- maður Jóhann úr Eyjum, mun vera einn aðaleigandi þess— og sleppa því með „réttarsætt", 10 þús. kr. sekt og 30 þús. kr. endurgreiðslu af óleyfileg- um verzlunarhagnaði, í stað þess að láta dóm ganga í þessu stórfellda svika- og afbrotamáli gegn flestum ákvæðum gjaldeyris- og verðlagslag- anna. Mun algert einsdæmi, að nokk- ur rikisstjórn leyfi sér að fallast á „sættir“ og „samninga" í slíku máli, hvað þá heldur að fela manni, sem við það er bendlaður, að ráðstafa fyr- ir hönd ríkisins innflutningsleyfum fyrir stórkostlegar fjárfúlgur, er num- ið geta hundruðum miljóna króna. En Kengáluriddarinn tekur það hins veg- ar greinilega fram, að hann viður- kenni alls ekki „rétt búðarmanna" til þess að kaupa dýra stóla „undir rass- inn á sér“, eins og hann kemst svo einkar sniðuglega að orði í grein sinni, og mun hann þá eiga við „pjakkana við búðarborðin", en ekki sjálfan formann nýsköpunarráðsins eða eðra slíka „riddara einkafram- taksins“! — Það er sannarlega engin furða, þótt ýmsir hinna’ ráðvöndu „pjakka“ sjálfstæðisliðsins hér í bæ gefi sér alls ekki tíma til að komast heim til sín á kvöldin, eftir að hafa hremmt „Moggann" glóðvolgan úr áætlunarbílunum, áður en þeir fletta honum upp og taka að lesa Kengálu- greinarnar og aðrar slíkar lofgerðir um starf sitt og stétt, af mikilli and- akt og aðdáun, frammi fyrir sauð- svörtum almúganum, sem aldrei hefir inn fyrir búðarborð komið á æfi sinni, og telur „pjakkana“ þar „frið- helga og . hátt hafna yfir alla gagn- rýni“, að því er margreyndur merar- kóngur segir! Miljónatöp vegna £iskskemmda. J^ÝLEGA HEFIR VERIÐ upplýst, að stórkostlegar skemmdir hafa orðið að undanförnu á fiski, sem flutt- ur hefir verið til Englands og ætlaður til sölu á markaði þar. T. d. nam tjón- (Framhald á 5. síðu). Nýjasta nýtt! Það er oft talað um, að eitthvað sé gamalt og got't. Ekki þarf þó svo að vera ávallt, því að ýrnsir hlutir gamlir reynast á vissum tíma úreltir og verða að víkja fyrir því nýja. Þar með er ekki sagt, að allt nýtt sé betra en hið gamla. Stundum er það meira að segja þveröfugt. En við viljum sanrt gjarnan fylgjast með og frétta af nýmælum þeim, sem koma á rúarkaðinn í liin- um ýmsu greinum, í trausti þess að þar sé sett fram það, sem sannast sé og bezt vitað á hverjum tíma. Eg þykist þess fullviss, að margar mæður muni verða harla fegnar, þegar þær heyra, að ungbarn- inu sé engin haétta búin á neinn hátt, þótt það totti þumalfingurinn, heldur sé þetta eðlilegt og algerlega heilbrigð hegðun. Eflaust kannist þið miargar við þennan ávana barna, og e. t. v. hafa einhverjar ykka^r kallað þetta 1 jótan sið og haft áhyggjur út af þessu fram- ferði barnsins. Nú segja vísindin okkur þetta: Það er hvorki ljótur siður né hættulegur, þegar barn sýgur þumalfingurinn, heldur þvert á móti heilbrigt og afar eðlilegt, og það getur haft skaðleg áhrif á barnið, ef reynt er að sporna við þessu og koma í veg fyrir að barnið stingi upp í sig fingrinum. Til skamms tíma hefir því verið haldið fram, að barn, sem tottar fingurinn, eða sýgur mikið, muni verða frammynnt og það átti, meira að segja að geta haft áhrif á tennurnarl Nú segja vísindin, að þetta sé gömul bábilja, slíkt hafi ekki hin minnstu áhrif á lögun tann- garðsins né tannanna. Þau segja einnig: Það má aldrei banna barni að sjúga fingurinn né koma í veg fyrir það á annan hátt. Þetta er eðlileg-hegð- un allra barna — þó að þau geri það ekki ævin- lega öll — og stafar meðal annars af því, að fyrsta snerting þess við umheiminn er með munninum, þegar það er lagt á brjóst. Á þann hátt fær það næringu og huggun. Hendurnar og munnurinn eru fyrstu líkamshlutar, sem barnið lærir að stjórna. Það er því hið eðlilegasta sem barn getur gert, er það stingur upp í sig fingri og sýgur hann. Það er mjög misjafnt, hve lengi börn gera þetta. Sum hætta 4—5 mán., en það er alveg eðli- legt og skaðlaust, þó að það haldist til þriggja ára aldurs og jafnvel lengur. Þegar þau eru orðin svo görpul, er þó rétt að fará að venja þau af þessu, en gera það á þann hátt, að barnið verði þess sem minnst vart. Ef það tottar fingurinn, lielzt þegar það er háttað, þá láttu það hafa bangsa með sér í rúmið eða annað leikfang til þess að beina athyglinni í aðra farvegi — og um leið frá hinu. Gefið því lúður eða eitthvert slíkt leikfang, sem það getur haldið um og stungið í munninn. — Munið að slá aldrei á hendi barns, þó að það stingi upp í sig fingri. Slíkt getur haft skaðleg áhrif á sálarlíf þess og alla vellíðan. Þetta er það nýjasta um þessi mál, og er frá Vesturheimi komið eins og margur okkar fróð- leikur nú á tímum. Ameríkurríenn eru mjög framarlega í ýmsum vísindagreinum og koma óð- um fram með margar nýjar kenningar. Þær gömlu verða að þoka og margar þeirra munu sennilega ekki láta sjá sig framar. „Puella“. ★ MINNSTU ÞESS! Það er óhollt að vera ávallt í sömu fötunum, heldur á að klæða sig eftir kringumstæðum. ★ Hlýindi fatnaðar er komið undir því: 1) Hve fötin eru „þykk“. 2) Hve lögin eru mörg. 3) Hve loftmagnið er mikið innan í þráðunum, milli þeirra og í dúkamillibilunum. Miklu minna máli skiptir það, hver dúkefni eru notuð.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.