Dagur - 07.06.1945, Page 5
Fimmtudaginn 7. júní 1945.
5
Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
ið af fiskskemmdum í Lagarfossi um
400 þús. kr. í einni ferð. Af farmi e/s.
Lyru varð að fleygja um 1541 vætt
af fiskinum og lætur þá nærri, að
tjónið á þeim farmi einum nemi á
annað hundrað þús. kr. Tilfinnanleg-
ast hefir þó tjónið orðið af fisk-
skemmdum hjá ýmsum færeysku
leiguskipunum. Hefir sumum förmun-
um verið algerlega hent sem gerónýt-
um, en aðrir hafa verið svo skemmd-
ir, að söluverð þeirra hefir verið
hreinasta smáræði. Einn var t. d. seld-
ur á 98 sterl.pd., annar á 108, þriðji á
420 sterl.pd. o. s. frv. Fullyrt er eftir
áreiðanlegum heimildum, að alls
nemitjónið af fiskskemmdum þessum
mörgum miljónum króna. Enska mat-
vælaráðuneytið hefir birt aðvörun
vegna skemmdanna og hótað að
banna algerlega löndun úr þeim skip-
um, sem endurtaka flutning á
skemmdum fiski. í>ví hefir verið
haldið fram með gildum rökum, að
handvömm ríkisstjórnarinnar og
dráttur í sambandi við leigusamninga
hinna erlendu skipa eigi verulegan
þátt x þessum óhöppum. Hafi fleiri og
fleiri lélegri skip verið ráðin til þess-
ara flutninga en þörf var á, ef samið
hefði verið í tæka tíð, eins og ríkis-
stjórninni hafði þó verið rækilega
bent á. Ekki er rúm til að fara hér
lengra út í þá sálma að sinni, enda
enginn endanlegur dómur á það lagð-
ur, að hve miklu leyti þessi ásökun
hefir við rök að styðjast En á það
skal hins vegar bent, að furðu hljótt
hefir verið um þetta merkilega mál í
öllum málgögnum ríkisstjórnarinnar,
eða réttara sagt: næstum ekkert hefir
verið þar á það drepið. Stingur það
undarlega í stúf við þau óskaplegu
ramakvein, sem þessi sömu blöð rákú
upp hér um veturinn, þegar kunnugt
varð um skemmdir á frosnu kjöti í
nokkrum frystihúsum í landinu. Þær
skemmdir voru að vísu alvarlegar —
eins og matarskemmdir verða alltaf
að teljast — en þó hreinasta smáræði
í samanburði við verðmæti þau, sem
að undanförnu hafa farið forgörðum
í skemmdum fiski. En nú eru það
heldur ekki bændur eða afurðasölu-
félög þeirra, sem koma hér við sögu,
heldur allt aðrir og miklu rétthærri
aðiljar, að því er þessi blöð og flokk-
ar þeir, sem að þeim standa, munu
álíta. Enda er nú þagað svo vand-
lega, að almenningur fengi sennilega
næstum ekkert um þetta að vita, ef
blöð stjórnarandstöðunnar hefðu ekki
talið óþarft að stinga svo þýðingar-
miklum upplýsingum algerlega undir
stól. — ÞaS skyldi þó aldrei standa
eitthvað í sambandi við þetta mál m.
a., að stjórnarblöðin gerast nú svo
geysihávær í kröfum sínum um rit-
skoðun eða jafnvel algert bann á mál-
gögnum stjórnarandstæðinga, sbr.
til dæmis tal Morgunblaðsins um
skemmdastarfsemi" þeirra og „við-
eigandi gagnráðstafanir" gegn „spell-
virkjunum“ — én allrar viðkvæmni
og velluskapar", eins og Kengálu-
riddarinn með „niðurfelldu andlits-
grímuna" orðar það í anda hinna
þýzku sálufélaga sinna, sem virðast
hafa kennt honum og fleiri rithöfund-
um sjálfstæðisblaðanna rithátt sinn
og bardagaaðferðir á sínum tíma, þeg-
arar kjörorðið um hið „skefjalausa
ofstæki“ var fínt og í heiðri haft í
vissum deildum Sjálfstæðisflokksins.
— „Mennirnir með hreinu hugsanim-
ar“ virðast engu hafa gleymt — og
ekkert lært — síðan einn helzti for-
ráðamaður flokksins gaf órólegu
deildinni þá virðulegu einkunn og
nafngift hér á árum áður.
Sundnámskeið
hefst n. k. mánudag, 11. júní,
í sundlauginni við Hrafnagil.
Þátttakendur gefi sig fram við
Pál Rist, Litla-Hóli eða Hir-
ald Hannesson, Víðigerði.
Stjóm UMF. FRAMTÍÐ
D AG UR
Viðtal við Harald Kröyer.
(Framhald af 1. síðu).
raunar segja að þörf sé á slíkum
leiðbeiningum enn.
— Hvernig er náminu hagað?
Yfirleitt mun það vera svipað
því, sem gerizt í Evrópu, en þó
varð sú breyting á, af stríðsvöld-
um, að skólaárinu er nú skipt í
þrjú tímabil, eða semester, í stað
tveggja áður, og sumarfríin af-
numin að mestu leyti. Þetta var
vitaskuld óhagkvæmt fyrir okk-
ur, íslendinga, sem höfum ætlað
okkur að vinna í sumarfríinu.
Við lok hvers tímabils var háð
próf og síðar var örfárra daga
leyfi unz nýtt semester hófst.
Námið varð því all erfitt með
þessu fyrirkomulagi.
— Eru margir íslendingar í
Kaliforníu?
Mér er ekki kunnugt um hve
margir þeir eru, en í Berkeley,
Oakland og San Fransisco munu
vera um 100 manns. Þeir höfðu
lauslegan félagsskap með sér og
komu saman á fund ekki sjaldn-
ar en einu sinni á ári. Þessir
Vestur-íslendingar reyndust okk-
ur sérlega vel, voru gestrisnir og
hjálpsamár.
— Heldur þú, að námsferðir
til Ameríku hverfi í framtíð-
inni?
Það er vitaskuld undir viðhorfi
menntaskólanemenda á hverjum
tíma komið, hvort þeir leita aust-
ur eða vestur um haf til fram-
haldsnáms. En ólíklegt þykir
mér, að námsferðirnar falli alveg
niður, þrátt fyrir breyttar að-
stæður. Það má gera ráð fyrir, að
styrkir þeir, sem amerískir há-
skólar veita íslenzkum náms-
mönnum haldi áfram og auk
þess er völ á ýmsum góðurn
styrkjum við flesta háskóla, sem
góðir námsmenn geta keppt um.
Nokkrir íslendingar hafa hlotið
slíka styrki. Það er því á engan
hátt óglæsilegt fyrir unga íslend-
inga að hugsa til náms í Amer-
íku. Námskostnaðurinn er e. t.
v. meiri þar en í Evrópu, en eg
efast um, að hann sé nú orðið
meiri, en kostnaður við náms-
dvöl í Reykjavík. Verðlag hefir
ekki hækkað eíns mikið fyrir
vestan á síðustu árum og hér.
— Og hvað hyggst þú sjálfur
fyrir nú að námi loknu?
Eg vona að eg fái starf hér í
samræmi við það nám, sem eg
valdi mér, en get ekki sagt meira
um það að sinni.
Dagur þakkar Haraldi Kröyer
greiðar upplýsingar og býður
hinn glæsilega, unga námsmann
velkominn heim.
Skipsijórar og
útgerSarmenn
Eins og að undan-
íörnu höfum vér
fyrirliggjandi flest-
ar útgerðarvörur,
svo sem:
Fiskilínur
■ ■
Ongla
Tauma
ManiSla
Sfálvíra
Grasfóg
Nefagarn
Trawlgarn
Lóðabelgi
Skrúflása
Keðjulása
Kósa
Vantaþvingur
Tréblakkir
Skipamálningu
Segldúk
Blýþynnu
Tvisf og fleira
Kaupfélag Eyfirðinga
Jám- og glervörudeild.
FILMUR!
NÝKOMNAR
Mikið lækkað verð.
kr.
Verichrome 6x9: 120: 2,85
Verichrome 6 x 9: 620: 2,85
Verichrome 4 x 6i/!>: 127: 2,40
Framköllun, copiering, stækkanir. .
GÓÐ VINNA
Brynjólfur Sveinsson, h.f.
Stod 129. AKUREYRI Pésth. 125
Ensku
Fðtaelnin
komin
VERKSMIÐJAN
DRAUPNIR h. f.
Skipagötu 6
Maðurinn minn, faðir okkar og bróðir minn,
‘ JÓN STEFÁNSSON,
fyrrv. ritstjóri,
andaðist föstudaginn 1. þ. m. Lík hans verð-
ur jarðsett í kirkjugarði Akureyrar, fimmtu-
daginn 7. júní, og hefst athöfnin í kirkjunni
kl. 2 e. h.
Akureyri, 4. júní 1945.
Gerda Stefánsson, börn hins látna og
Eggert Stefánsson.
Lítill trillubátur
til sölu með tækifærisverði.
AFGR. vísar á.
Öllum þeim, nær og fjær, sem á einn eða annan hátt auð-
sýndu mér vináttu á sextugsafmæli mínu, 30. í. m., votta ég
mínar alúðarfyllstu þakkir.
Þrastarhóli, 2. júní.
SÓLVEIG SIGURJÓNSDÓTTIR
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiumiiii
iimiiiiimiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiimiimmmmiiiiiiiiiiiiiimiMmii.
FUNDARBOÐ
Vegna ályktunar frá síðasta aðalfundi Kaupfélags Ey-
firðinga, eru húsmæður (konur félagsmanna) og aðrar
félagskonur í Akureyrardeild K. E. A. boðaðar á fund - |
í fundarsal bæjarstjórnarinnar, mi??vikudaginn 13.
þ. m. kl. 8.30 s. d. — Gert er ráð fyrir, að á þessum
fundi yrðu tekin fyrir þau félagsmál, er sérstaklega
varða húsmæður, og jafniramt kosnir fulltrúar til að
mæta á sameiginlegum fundi, sem haldinn yrði á Akur-
eyri seint í þessum mánuð.
Akureyri, 5. júní 1945.
DEILDARSTJ ÓRINN.
iiiiiiiitiiiiiiiiiiimimimmmmmmmmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmimiimmmmiiiiimiiiiliiiliiiiiiiii*
Sjóhús mitt í Hrísey e r til sölu!
Mjög hentugt fyrir útgerð. Einnig 'er hér tækifæri fyrir þá,
sem nú eru að byggja og vantar uppslátt, þar sem þetta
er svo til nýlegt hús. Þeir/ sem kynnu að vilja sinna
þessu, gjöri svo vel og snúi sér til undirritaðs, sem gefur
allar nánari upplýsingar.
ÁSKELL ÞORKELSSON
Hrísey.
Mimiimmmmiimmmmmmmmmmmimmmimmiimmiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiimimmmmmmimim
Gii'ðingarstaurar
mjög sterkir, nýkomnir
Kaupfélag Eyfirðinga
Byggingavörudeildin.
HERAÐSmðT Unomennasamðands Euialjarðar
verður haldið að Hrafnagili sunnudaginn 10. júní næstkomandi
og hefst kl. 2 e. h..
SKEMMTIATRIÐI: '
1. Mótið sett: Guðmundur Benediktsson.
2. Ræða: Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi.
3. Einsöngur: Kristinn Þorsteinsson frá Akureyri.
4. íþróttakeppni: Frjálsar íþróttir, glíma og sund.
5. Handknattleikur kvenna.
6. Dans. Hljómsveit leikur. — Afhending verðlauna.
Veitingar seldar á staðnum.
Ölvuðum mönnum bannaður aðgangur.
Sætaferðir verða frá B.S.A. írá kl. 1 e. h.
NEFNDIN