Dagur - 02.08.1945, Síða 7
Fimmtudaginn 2. ágúst 1945
DAGUR
7
| Tilkynning
I um framlengingu gjaldeyris og
1 innflutningsleyfa.
Viðskiptaráðið vekur athygli á því, að innflutnings og
gjaldeyrisleyfi, sem gefyn hafa verið út fyrir s.l. áramót,
en eru nú fallin úr gildi eða falla úr gildi á þessu ári,
verða ekki framlengd nema lögð séu fram skilríki fyrir
því, að búið sé að greiða vöruna, eða aðra álíka bind-
andi ráðstafanir til vörukaupa hat'i verið gerðar áður
en leyfið féll úr gildi.
Beiðnir um framlengingu slíkra leyfa verða að vera |
skriflegar og'fylgi þeim sönnunargögn um, hvenær I
varan sé pöntuð, hvenær hún hafi verið eða verði af- [
greidd frá seljanda og hvort útflutningsleyfi sé fyrir |
hendi.
| 16. júlí 1945.
r :
VIÐSKIPTARÁÐIÐ
rni»»mm»MM»mmimiimuMii»imM»»mMiMiiiinuuiiiim»iMiiimH»miiimmmiiiiiiiiiiiiiiminMmin»iiiimMiiiim»iiiiim»»
••M»M»MM»»iiiMmm»»nimMi»i»»»M»»»,»»»i»»»«»»im»miMM*»ímm»m»»»»»»»»»»»M»*,,»,»,*,,,,,»»,,*,»i*»,,»»,Mmm»M»»»»mM»»m»m»,2
Herranærf öt:
Bolir og stuttar buxur
á aðeins 6 kr. pr. st.
Enn fremur:
Sundskyrtur á karlmenn.
I * j
Kaupfjelag Eyfirðinga |
1 . Vefnaðarvörudeild.
2 =■
Í||IIMMÍI(IIIIIIIIIIIIMIMIIIII»»íIMIIIIIMIIIIIIIIIIIMMIIIMMíIMIIIIIIIÍIIIIIMMMIIIIIMMIIIIIIIIMIIIIII||||||||||||||||||IIIIIIM»MIMMMIII>
HVERSVEGNA
þykir IÐUNNAR-skófatnaður, bezti skófatnaðurinn,
sem nú er fáanlegur í landinu?
• Af því að Iðunnar-skófatnaður er unninn af vönu
starfsfólki, undir eftirliti erlends sérfræðings, og
aðeins úr fyrsta flokks bezta efni. —
9 Kjörorðið í þessum iðnaði er — vöruvöndun.
• IÐUNNAR-skór eru sterkir, smekklegir, verðið
sanngjarnt. —
• Fást hjá öllum kaupfélögum landsins og víðar. —
r
Skinnaverksmiðjan Iðunn
Skinn jakkar,
nýkomnir!
Kaupfélag EyfirÖinga
Vefnaðarvörudeild.
Evers harp
SJÁLFBLEKUNGAR OG BLÝANTARl
eru komnir í miklu ún'ali.
Þar á meðal hinn eftirsótti og margþráði:
FIFTH AVENUE
eða Eversharp nr. 21, sjálfblekungurinn með inni-
lokaða pennanum, sem gefur þurrskrift með votu
bleki, „Quink“, hefir margbreytilega snápa, hár-
fína og breiða.
S. 1. 3 ár hefir verksmiðjan framleitt þessa
penna, en vegna takmarkalausrar eftir
spurnar í heimalandinu, Ameríku, hefir
ekki verið hægt að fá þá hingað fyrr en nú.
Munið þetta.
EVERSHARP er tryggður ævarandi.
EVERSHARP er við allra hæfi.
EVERSHARP er með hinu rétta verði.
Gangið úr skugga um þetta með því að
reyna hann.
Veljið EVERSHARP til gjafa og eignar.
Nafn yðar grafið kostnaðarlaust á hvern
penna, sem keyptur er í verzlun minni.
ÞORST. THORLACIUS
Einkaumboðsmaður fyrir ísland.
BJÖRN Á GRUND sextugur
(Framhald af 2. síðu).
aðardal, enda óspart til hans leit-
að, þá upplýsinga er þörf í
þeim efnum. Svo kjarnyrt, hreint
og sérkennilegt fslenzkt mál
skrifar Björn að furðu gegnir af
óskólagengnum manni. Ýmislegt
mun Björn hafa skrifað, er varð-
ar Svarfdælska sögu, en fátt eða
ekkert mun hann hafa sett á
prent af því. Hins vegar hefir
eigi ósjaldan birzt eftir hann
eftirmæli dáinna Svarfdælinga
og nægir að vísa til þeirra um
það, hversu góður stílisti hann
er, og hvernig hann fer með ís-
lenzkt mál. Málsmekkurinn er
honum í blóð borinn.
Björn er hreinræktaður
Svarfdælingur, með kosti þeirra
og galla, þrek- og starfsmaður,
dulur í skapi og skapþungur, ef
því er að skipta. Hlédrægur svo
mein er að eins starfhæfur og
maðurinn er. Eigi hefir hann þó
með öllu komizt hjá vafstri í
sveitamálum. Hefir átt sæti í
sveitastjórn, og reyndist þar sem
vitað var hinn liðgengasti, at-
hugull og tillagnagóður.
Björn er giftur Stefaníu Stef-
ánsdóttur frá Sandá hér í hreppi,
prýðilegri konu, tryggri og
traustri. Eiga þau einn son, Stef-
án, er nú býr að Grund, og hjá
þeim dveljast þau hjónin nú.
Um Björn mætti skrifa langt
mál, en hér skal þó staðar num-
ið, því vel má og búast við því,
að æskuvinur minn og ferming-
arbróðir kunni mér litlar þakkir
fy.rir að hafa hann á milli tann-
anna. Mundi sennilega kunna
þögninni bezt. Ef svo er, þá bið
eg hann afsökunar á framhleypn-
inni. En eg vildi nota þetta tæki-
færi og þakka honum gamla og
nýja, vináttu og marga skemmti-
stund. Jafnframt vil.eg óska hon-
um tiyiamingju með liðin 60 ár
og biðja þess, hvort sem hann nú
á ólifað lengra eða skemmra, að
ókomnir æfidagar verði honum
ljúfir, og hann megi njóta þeirra
við sín hugðarefni, sjálfum sér
til yndisauka og framtíðinni til
gagns.
Þór. Kr. Eldjárn.
NOTIÐ SJAFNAR-VÖRUR
Staflalamir
14—22”
fyrir hlið- og skúrhurðir
Kaupf. Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
F. H. Cumberworth