Dagur - 02.08.1945, Blaðsíða 8
8
□ RÚN.: 5945856.: Afmælisf.:
Messað sunnudaginn 5. ágúst:
Akureyri kl. 11 f. h. — Lög-
mannshlíð kl. 1 e. h.
Gullbrúökaup eiga á morgun þau
hjónin frú Gerða og Otto Tulinius.
Fertuéur varð síðastliðinn sunnu-
dag Sigurður Jónsson prentari.
Stíéandi, 2. hefti, 3. árg., er nýkom
ið út, fjölbreytt og læsilegt að vanda,
Efni ritsins er: Morgunblær (kvæði)
Sigurjón Friðjónsson. , Hugr einn það
veit“, Jakob Kristinsson. — Indriði
Einarsson, Brynleifur Tobiasson. Ol-
afur i Kálfagerði, Kristín Sigfúsdótt
ir. Brynjan (kvæði), Sigurður á Am-
arvatni. Myndir, Örlygur Sigurðsson
Búendatal Sands í Aðaldal, I. Þor-
kelsson. Kannske breytt? (kvæði)
Grímur Sigurðsson. Veðmálið, Sig,
Róbertsson. Þitt skóhljóð hverfur
(kvæði), Sv. Áskelsson. Æskuminn-
ingar, Sigurjón Friðjónsson. Molar
um málið, Björn Sigfússon. Fyrstu
göngurnar mínar, Þormóður Sveins-
son. Vegir örlaganna O’ Henry. Um
bækur, Bragi Sigurjónsson.
-
JL
AGUR
Ryskingar og íkveikjur á Raufarhöfn
Setuliðsskálar brenndir - skemmdir unnar á miðunarstöðinni
r
Attræðisafmæli
átti sl. þriðjudag Júlíus Gunn-
laugsson að Hvassafelli í Eyja-
firði. Bjó hann, svo sem kunn-
ugt er, með mikilli rausn og
myndarbrag á því forna og nýja
eyfirzka höfuðbóli frá því laust
eftir aldamótin og allt fram að
þeim tíma, að Benedikt sonur
hans tók þar við búsforráðum nú
fyrir nokkrum árum. Hefir
gamli maðurinn dvalið síðan á
hinu ágæta heimili sonar síns og
tengdadóttur, frú Rósu Jóns-
dóttur frá Öxnafelli í Eyjafirði
— Mikill fjöldi vina og vanda
manna Júlíusar, víðs vegar að úr
héraðinu og frá Akureyri, heim
sótti hann þennan dag. Sátu gest
irnir hina ágætustu veizlu með
afmælisbarninu þá um daginn
og var þar veitt af hinni mestu
rausn og höfðingsskap. Margar
ræður voru fluttar fyrir minni
Júlíusar undir borðum um
kvöldið. Afhentu • sveitungar
hans honum við það tækifæri
hægindastól að gjöf til merkis
um vináttu sína og virðingu.
Fleiri góðar gjafir og fjöldi
heillaskeyta og vináttukveðja
bárust afihælisbarninu víðs veg-
ar að í tilefni dagsins, enda hefir
Júlíus ávallt verið sérlega vin-
sæll og vel virtur af öllum þeim
mörgu mönnum, sem hann hefir
komizt í kynni við á hinni löngu
lífsleið sinni. Er hann enn sér-
lega ern'og fylgist af áhuga með
öllum tíðindum, enda hefir
hann alltaf verið mikill fjör- og
áhugamaður og búmaður ágæt-
ur. Eyfirzkar húsmæður notuðu
tækifærið, er svo margar þeirra
voru samankomnar að Hvassa-
felli, og afhentu húsfreyjunni
þar, frú Rósu Jónsdóttur, fagra
mynd úr héraðinu sem vináttu-
og þakkarvott fyrir ágætt og
auðnuríkt starf hennar sem ljós-
móður í Saurbæjar- og Hrafna-
gilshreppum undanfarin ár, en
frú Rósa lætur nú af því starfi
sökum mikilla anna við húsmóð-
urstörfin á hinu stóra heimili.
Raufarhöfn í gær.
Aðfaranótt sl. þriðjudags voru
mörg skip á Raufarhöfn og við-
skipti sjÖmanna og þorpsbúa
mikil um daginn. Talsvert bar á
ölvun er leið á kvöldið og um
nóttina urðu nokkrar ryskingar
við brauðgerðarliús staðarins, ei
aðkomumenn heimtuðu öl og
drykki þar, sem ekki voru fáan
legir. Grn kiukkan 2,30 um nótt-
ina urðu heimamenn varir við
það, að mikinn reyk lagði upp a;:
braggahverfi, sem stendur á hæð
skammt frá þo.rpinu. Varð brátt
Ijóst, að eldur var laus þar og
þykir víst, að kveikt hafi verið í
skálunum. Brunnu 12 þeirra til
ösku og einhverjar skemmdir
munu hafa orðið á fleiri. Þá var
brotist inn í áhaldageynrslu nrið-
unarstöðvarinnar á Raufarhöfn
Fimmtugsafmæli
átti Kristinn Jónsson, bóndi
Möðrufelli, 23. f. m. Heimsóttu
hann þá fáeinir kunningjar hans
og vinir til að árna honum og
fjölskyldu hans allra heilla á
þessum tímamótum í æfi hans
var þeim tekið með hinni mestu
alúð og gestrisni eins og jafnan,
er gesti ber þar að garði.
Kristinn er jafnan hress í anda
og glaður í lund, aðsópsmikill og
afkastamaður við bústörfin,
enda ber bújörð hans þess merki,
að hann hefir ekki legið á liði
sínu um ræktun landsins og
aðrar framkvæmdir, og er þv
ekki að undra, þó að á honum
sjáist dálítil þreytumerki eftir
daglegt strit margra ára, en þó
minna en vænta mætti. Áhug
inn og lundgleðin hafa komið
lionum þar til hjálpar. Hann er
samgróinn landbúnaðinum og
ann honum af heilum hug.
Kristinn er kvæntur Jónu
Þorsteinsdóttur frá Upsum,
hinni ágætustu konu. Eru þau
hjón bæði vinsæl og vel metin.
Þau eiga allstóran hóp efnilegra
barna, sem að sjálfsögðu er for-
eldranna dýrmætasta eign. Þau
elztu eru að komast á fullorðins
aldur og hafa verið sett til
mennta, en halda þó fullri
tryggð við heimili sitt.
Kristinn í Möðrufelli tók sér
að mestu frí frá störfum á fimrn-
tugsafmælinu fyrir áeggjan konu
sinnar og barna, og mun það
nokkuð einstæður atburður í
starfssögu hans.
Vinur.
)Ivun á almannafæri
Framhald af 1. síðu
staði í Reykjavík. Þykir nú
miklu máli skipta að selja þjóð-
inni sem mest af áfengi til þess
að afla tekna í ríkissjóðinn.
Áfengissala og bílabrask eru
helztu tekjuöflunarleiðir stjórn-
arinnar um þessar mundir.
þessa sömu nótt og teknir þaðan mikil vinna hafði verið lögð í að
ýmsir verðmætir munir. Bretar ' ganga á rekann og bjarga honum
létu reisa miðunarstöð þessa en undan sjó.
Vitamálastjórnin hafði fyrir
skömmu tekið við henni. Þá bar
það ennfremur til tíðinda, að að-
komumenn tóku sér fyrir hend-
ur að bera rekavið bóndans á
Raufarhöfn í sjó fram. Varð
hann fyrir miklu tjóni, því að
Sýslumaður Þingeyinga kom
til Raufarhafnar í gær og munu i
réttarhöld í málum þessum hafa
hafizt þá.
Heilclsalamálið
(Framhald af 1. síðu).
brot og hneykslismál heildsal
anna, sem bezt þau mega. Ríkis-
stjórnin leggur auk þess-Iykkju
leið sína til þess að verðlauna
þá menn, sem eru við riðnir hin
brotlegu fyrirtæki. Einn af aðal-
eigendum O. Johnson & Kaaber
var í vetur sendur í erindum rík-
isins til Svíþjóðar, skömmu eftir
að fyrirtækið hafði verið kært
fyrir verðlagsbrot. Og litlu eftir
að réttarsættin furðulega var
gerð í málum fyrirtækjanna S.
Árnason &: Co. og Brynju, gerði
íkisstjórnin Gunnar Guðjóns-
son, skipamiðlara, annan af aðal-
eigendum þessara fyrirtækja, út
til Svíþjóðar í opinberum erind-
um. Jóhann Jósefsson, hinn að-
aleigandinn, situr í Nýbygging-
arráði og var ekki talin ástæða
til, að hann viki þaðan á meðan
rannsókn fór fram í málum
hinna brotlegu fyrirtækja lians.
Rannsókninni var síðan rubbað
af og furðuleg réttarsætt gerð!
Til viðbótar halda kommúnistar
stöðugt áfram að krefjast þess, að
Viðskiptaráð verði afnumið, en
völd þess fengin í hendur Ný-
byggingaráði, undir formennsku
Jóhanns Jósefssonar. Þannig
virðist siðgæðið vera á æðstu
stöðum á heimili stjórnarflokk-
anna.
En hvað segir hinn almenni
borgari við þessari spillingu? Er
vitund þjóðarinnar fyrir heiðar-
egum erindsrekstri í opinberu
lífi orðinn svo dauf og dofin, að
hún láti sig engu skipta slíkar
aðfarir?
I’eirri spurningu skal látið
ósvarað að sinni, en hitt er víst,
að hún er ekki sérlega viðbragðs-
gjörn, ef stjórnarflokkunum
tekst að þagga þessi mál niður á
rann hátt einan, að Jrykjast ekk-
ert vita og ekkert hafa heyrt.
Eitt af gt'undvallarskily'rðum
reilbrigðs lýðræðis er samvisku-
semi og réttsýni í opinberum er-
indisrekstri og vakandi áhugi al-
mennings fyrir öllum stjórnmál-
um og traust aðhald við þá
rnenn, sem fara með umboð
yjóðarinnar í hvert sinn. Ef slík
tíðindi, sem hér hefir verið lýst,
geta gerzt án þess að kjósendur
re-irra flokka, er ábyrgðina bera,
láti sig þau nokkru skipta, þá
rorfir ekki vel um lýðræðið, þeg-
ar á öðru ári hins endurheimta
þjóðfrelsis.
Dökkbrúnt seðlaveski
með 320 kr. í hefir tapast í
Vaglaskógi. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að skila
því á símastöðina á Dag-
verðareyri, gegn fundar-
launum.
Ung kýr,
til sölu. — Afgr. vísar á.
3 góð reiðhross
til Sölu. — Upplýsingar hjá
Pai í Kollugerði.
Riffill til sölu.
Afgr. vísar á.
Ný sláttuvél
til sölu. — Semja ber við
Jón Ólafsson, Gilsá.
Fimmtud. 2. ágúst 1945
ANNÁLL.
(Framhald af 1. síðu).
19^-25. JÚLÍ. 600 risaflug-
virki ráðast á iðnaðarborgir Jap-
ana. Potsdam-ráðstefnan heldur
álram. Deilur í Belgíska þinginu
um Leopold konung. Þingið
samþykkir, að konungur megi
ekki taka við völdum á ný nema
með samþykki þingsins. Banda-
ríkjaþing samþykkir ályktanir
Bretton Woods-ráðstefnunnar frá
í fyrra. Bretar halda mikla her-
sýningu í Berlín. Ástralíumenn
ganga á^ land á nýjum stað á
Borneo. Réttarhöldin yfir Petáin
marskálki hefjast. König hers-
höfðingi skipaður yfirmaður
franska hernámsliðsins í Þýzka-
landi. Þiiðjudaginn 24. júlí
gerðu flotallugvélar og herskip
stórskostlegar árásir á Japana.
Mótspyrna var lítil.
Gefið börnunum
hina hollu
Clapp’s
Barnafæðu
Alls konar
niðursoðið
grænmeti
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
INGIMAR JÓNSSON,
andaðist í Sjúkrahúsi Akureyrar þriðjudaginn 31. júlí. -
Jarðarförin er ákveðin þriðjudaginn 7. ágúst og hefst með
kveðjuathöfn í Akureyrarkirkju kl. 1 e. h. — Jarðsett verður
að Munkaþverá.
María Kristjánsdót(ir, börn og tengdabörn.
Almennar Tryggingar h. I.
r
I hvert sinn, er eldsvoða ber að hönd-
um, kemur í Ijós, að fjöldi fólks hefir
orðið fyrir eignatjóni af því, að annað
hvort gleymdist að vátryggja, eða of
lágt var tryggt.
Látið yður þessi víti að varnaði verða.
Vátryggið eigur yðar í dag, á morgun
getur það verið of seint!
i Talið við
Vátryggingadeild K. E. A.
;HKKKHKHKHKHKHKHKHKHKHKH»0<HMHMHKHWHX»9OÍH6lttO8HQHSH6»«6HWW5
/