Dagur - 23.08.1945, Blaðsíða 1
-r\
r
Ur bæ og byggð
Messur í Möðruvallakl.prestakalli.
Að Bægisó sunnudaginn 26. ágúst og
ó Möðruvöllum sunnudaginn '2. sept.
kl. 1 e. h. Safnaðarfundur á báðum
stöðum að lokinni guðsþjónustu.
Dánarfreén. Aðfaranótt 13. ágúst
lézt að heimili sínu, Möðruvöllum í
Hörgárdal, Sigríður Valg. Sigurðar-
dóttir, kona Davíðs bónda Eggerts-
sonar. Hún var fædd í Ytra-Krossa-
nesi 2. okt 1887 og voru foreldrar
hennar Sig. Sigurðsson, sem enn er á
lífi, háaldraður, í Holti í Glerárþorpi,
og Ragnheiður Hólfdónardóttir, dáin
fyrir allmörgum árum.
Vorið 1911 fluttist Sigríður með
manni sínum að Möðruvöllum og
tóku þau þar síðar við búi af foreldr-
um hans, og hafa rekið það af miklum
myndarskap hátt á þriðja tug ára.
Eignuðust þau sex börn og eru fimm
þeirra á lífi, flest uppkomin.
Sigríður var einkar vel gefin kona
og dugandi húsmóðir, félagslynd og
með afbrigðum vinsæl. Bar andlát
hennar snöggt að og óvænt, en van-
heilsu hafði hún þó kennt um nokk-
urt skeið.
Lík hennar var borið til grafar á
Möðruvöllum sl. þriðjudag, 21. þ. m.,
að viðstöddu óvenju miklu fjölmenni.
Höfðu kvenfélagskonur sveitarinnar
skreyta látið kirkjuna fagurlega, og
söngmenn fró Akureyri, undir stjórn
Jóhanns Ó. Haraldssonar, sungu, en
Kristinn Þorsteinsson söng einsöng.
Var útförin með miklum hátíðablæ og
sýndi glöggt þann innilega söknuð,
sem er að fráfalli þessarar mætu
konu.
Bágir póstflutningar. Lagarfoss
kom til Reykjavíkur sl. fimmtudags-
kvöld. Með honum kom Norðurlanda-
póstur. Norðurlandablöðin, í pósti til
einstaklinga, hafa ennþá ekki borizt
til Akureyrar. Síðan á fimmtudags-
kvöld hafa verið margar bílferðir
norður og a. m. k. þrjár flugferðir. •
Pósthúsið í Reykjavík liggur með
póstinn og kemur honum ekki frá sér.
Hvers konar þjónusta er þetta? Það
virðist vera sama hvernig deilt er á
fyrirkomulag póstflutninga og sleifar-
lag á pósthúsum. Frá æðsta ráði póst-
málanna er ekkert að hafa nema
þögnina og sjálfsónægjuna.
, Stefan Islandi óperusöngvari hélt
glæsilega hljómleika í Nýja-Bíó sl.
mónudagskvöld. Söngvaranum var
forkunnar vel fagnað og bórust hon-
um .blómvendir. Vegna þrengsla í
blaðinu í dag bíður nánari frósögn af
hljómleikum söngvarans næsta tbl.
Vegna þrenésla í blaðinu í dag bíð-
ur mikið efni næsta blaðs, m. a. grein
um störf Búnaðarþings, frásögn af
fundi presta og kennara að Hólum
o. fl.
Slysfarir. Það hörmulega slys varð
í Siglufirði sl. sunnudag, að Magnús
Blöndal, framkvæmdastjóri Síldar'
verksmiðja ríkisins, féll af hestbaki
og lézt skömmu síðar af afleiðingum
byltunnar.
Dánardæéur. — Nýlega er látinn
Karl Sigurðsson fyrrum bóndi
á Draflastöðum í Fnjóskadal. Hann
er jarðsunginn að Draflastöðum í dag,
Bernharð Stefánsson alþm., sem
var einn af íslenzku fulltrúunum á
fundi noarrænna þingmanna í Kaup-
mannahöfn nú fyrir skemmstu, kom
hingað til bæjarins í gærkvöldi. Bern-
harð kom loftleiðis frá Stokkhólmi til
Reykjayíkur í fyrradag. Þannig er
orðið að ferðast nú á dögum,
Stokkhólmi á þriðjudag — á Akur-
eyri á miðvikudag! Vonandi fá lesend-
ur Dags að frétta af ferðum Bern-
harðs og störfum þingmannafundanna
í næsta blaði.
XXVIII. árg.
Catafina-fluébátur Flugfélags ís
lands flaug til Skotlands í gær með
farþega. Þaðan verður haldið í dag til
Kaupmannahafnar. Þetta er lengsta
farþegaflug, sem íslenzk flugvél hefir
farið. Flugstjóri er Jóhannes Snorra-
son, aðstoðarflugmaður Magnús Guð-
mundsson. Ahöfnin er alls fipim
menn.
Flugféíagið hefir nú fengið tvær
nýjar flugvélar til innanlandsferða
Eru það Grumman-flugbótur og
fíors«m«n-iandfiugvél.
HAlEftlR
Akureyri, fimmtudaginn 23. ágúst 1945.
33. tbl.
Bráðabirgðalög um verðlagningu landbúnaðarafurðra:
Stj órnskipaður gerðardómur á að skammta
bændum kaupgjald
Síldveiðin hefur brugðizt í sumar.
Sjómenn-telja líklegt, að straumar í haf-
inu norðan íslands liggi öðruvísi en áður
Eins og málum er nú komið, eru sænsku síldar-
sölusamningarnir útgerðinni þungir í skauti. Rek-
netaveiðin er innifalin í þeim. Á frjálsum markaði
fengju sjómenri miklu hærra verð en þar er áskilið.
Síldveiðin í sumar hefir bAigðizt. Vonlaust má
telja, að nokkur veruleg veiðihrota gangi yfir héðan af,
enda eru nú sum skipanna að hætta veiðum, en önnur
að búa sig út með reknet. Reknetaveiði hefir oftast ver-
ið allgóð í sumar, en mjög fá skip hafa stundað hana.
Samkvæmt upplýsingum Fiskifélags íslands nam síldar-
aflinn á öllu landinu 451 þúsund hektólítrum um síð-
ustu helgi, og er það ekki nema röskur þriðjungur þess
magns, er komið var á land í fyrra á sama tíma. Sumarið
1945 verður, eftir öllum líkum að dæma, eitt hið mesta
síldarleysistímahil í sögu íslenzkra síldveiða. Næsta
aflaleysistímabil þar á undan var árið 1935, og þar áður
árin 1924,1925 og 1926.
Svonefnt „búnaðarráð46, skipað af land-
búnaðarráðherra, án tilnefningar, verður
hæsta ráð í afurðasölumálunum
Því skipar stjórnin eltki
,verkamálaráð“ til þess að
ákveða kaupgjald annarra
stétta á sama hátt?
Héraðshátíð Framsókn-
armanna n.k. sunnudag
Héraðshátíð Framsóknar-
manna í Eyjafirði og á Akur-
eyri, verður haldin að Hrafna-
gili nk. sunnudag og liefst kl.
2 e. h. Þar fer fram söngur,
hornablástur, ræðuhöld o. fl.
Síðan verður dansað í hinum
rúmgóðu salarkynnum Fram-
sóknarmanna þar á staðnum.
Veitingar verða seldar í skál-
unum. — Ferðir verða frá bif-
reiðastöðvunum.
u
Flugmenn sjá síldina.
Dagur átti stutt samtal við
Hrein Pálsson, útgerðarmann
frá Hrísey, nú fyrir skömmu, en
hann hefir haft aðsetur á Siglu-
firði í sumar og haft umsjón með
síldarleit flugvélanna. Samkv.
frásögn lians hafa flugvélarnar
leitað tvisvar á dag í sumar, þeg-
ar gefið hefir, önnur á svæðinu
frá Siglufirði til Bjarnareyjar
undan Vopnafirði, en hin á
svæðinu frá Siglufirði til Horns.
Flugmennirnir hafa jafnan séð
talsvert af síld, en hún hefir ver-
ið svo dreifð og vöðurnar svo
þunnar, að skipin hafa nær ekk-
ert fengið, þó kastað hafi verið.
Mikill sjávarhiti —
breyttir straumar?
Yfirleitt er álit sjómanna, að
sjávarhitinn í sumar sé 2 tik 3
gráðum meiri en eðlilegt og
æskilegt er. Síldin liefir varla sézt
uppi við land, heldur hefir hún
vaðið óvenjulega djúpt, t. d.
norður af Grímsey. Rauðáta hef-
ir varla sézt og er líklegt, að sjáv-
arhitinn valdi nokkru um það.
Sumir sjómenn telja, að straum-
ar í hafinu hér norðan við ís-
land liggi öðruvísi í sumar en
áður. Virðist þeim bera meira á
þeirri álmu Golfstraumsins, sem
Eðlileg verzlunarviðskipti milli Dan-
r
merkur og Islands geta væntanlega
. hafizst bráðlega.
Danskar iðnaðarvörur fást með litlum fyrirvara - en
Danir vil ja að löndin geri með sér allsher jarsamninga.
Samtal við Óla Vilhjálmsson, forstjóra skrifstofu
S. í. S. í Kaupmannahöfn.
Óli Vilhjálmsson, forstjóri
Sambandsskrifstofunnar í Kaup-
mannahöfn kom heim til Islands
nú fyrir skömmu, loftleiðis frá
Svíþjóð, eftir margra ára útivist.
Óli hefur dvalið á Norðurlönd-
-um öll stríðsárin. Dagur kom að
máli við hann og ræddi við hann
um sambúð Dana og íslendinga,
viðskipti landanna og fleira.
— Já, eg dvaldi í Dan-
mörku og Svíþjóð öll stríðs-
árin, sagði Óli, — og má segja
að vistin hafi að sumu leyti ver-
ið heldur dauf. Skrifstofa SÍS.
liggur með Austurlandi og fyrir
Langanes, vestur með Norður- °Pin len&st af-en ^unar var
landi, en hinni, sem gengur fyrir | næsta lítlð að Sera' *kkert san>
Horn austur með landi. Telja ! band heim °S við hofum vita-
(Framhald á 8. síðu). shuld engin mök vlð ÞJððverja.
— En hvernig eru horfur á
þvÍ7 að viðskipti takist á nýjan
leik nú?
Ég tel líklegt, að eðlileg við-
skipti milli Danmerkur og ís-
lands geti hafizt mjög bráðlega.
Danskar iðnaðarvörur munu
vera fáanlegar með litlum fyrir-
vara. Danski iðnaðurinn hefur
sloppið að mestu leyti við eyði-
leggingar stríðsins og mun fær
um að framleiða, t. d. vélar o. þ.
h., að svo miklu leyti, sem hrá-
efnainnflutningur leyfir. Vita-
skuld verður það eitthvað tak-
markað, en þó hafa ýmsar stórar
verksmiðjur látið í ljósi ósk um
að hefja viðskipti við ísland nú
(Framhald á á. síðu).
Fulltrúar bændastéttar-
innar, er sátu Búnaðarþing
í Reykjavík fyrir skemmstu
voru ekki fyrr komnir
heim til búa sinna, að þing-
störfum loknum, en ríkis-
stjórnin hófst handa um
„nýsköpun“ í afskiptum
ríkisvaldsins af verðlagi
landbúnaðarvara og kaup-
gjaldi bænda. Búnaðar-
þingið hafði svo sem kunn-
ugt er, ákveðið að beita
sér fyrirstofnunstéttarsam-
taka bænda, sem eiga m. a.
að hafa það hlutverk, að
„vera fulltrúi bændastétt-
arinnar um verðlag og
verðskráningu landbúnað-
arafurða gagnvart Alþingi
og ríkisstjóm". „Nýsköp-
unin“ er í formi bráða-
birgðalaga, sem gefin hafa
verið út að tilhlutan land-
búnaðarráðherra, og er þar
ákveðið, að leggja niður
verðlagsnefndir landbún-
aðarafurða, mjólkursölu-
nefnd, kjötverðlagsnefnd
og verðlagsnefnd garðá-
vaxta, sem skipaðar eru m.
a. fulltrúum framleiðenda
skv. tilnefningu.
í stað þeirra skal ráðherra
skipa 25 manna búnaðarráð, án
tilnefningar og er borgaraleg
skylda að taka sæti í ráðinu. Ráð-
stjórn þessi kýs síðan 4 manna
verðlagsnefnd, en formaður Bún-
aðarráðs er jafnframt formaður
verðlagsnefndarinnar, og skipar
landbúnaðrráðhena hann eins
og alla hina án tilnefningar.
Gert er ráð fyrir, að ráð þetta
verði skipað bændum eða mönn-
um, sem á einn eða annan hátt
starfa í þágu landbúnaðarins.
Verkefni búnaðarráðsins eru
(Framhald á 8. síðu).