Dagur - 23.08.1945, Qupperneq 4
4
B AÖUR
Fimmtudaginn 23. águst 1945
DAGUR
Ritstjóri: Haukur Snorrason.
Afgreiðslu og innheimtu ctnnast:
Marinó H. Pétursson.
Skrifstofa í Hafnarstræti 87. — Sími 166.
Blaðið kemur út á hverjum fimmtudegi.
Árgangurinn kostar kr. 15.00.
Prentverk Odds Björnssonar.
'Milli pistils og guðspjalls.
J^ÉTT ER OG SKYLT, að blöð þau, sem víða
eru lesin út um landsbyggðina, gefi lesendum
sínum öðru hvoru tækifæri til að fylgjast nokkuð
með því, hvað minnstu bæjarblöðin, sem aðeins
eru ætluð fáeinum flokksmönnum í bæjunum til
andlegrar leiðsagnar og sálubóta, láta sér sæma að
segja, er ýmis þýðingarmikil þjóðmál ber þar á
góma. Það mun t. d. ekki alls ófróðlegt fyrir
bændur að kynna sér túlkun stjórnarblaðanna
hér á Akureyri á hinni nýju verðlagningu kjöts
og kartaflna nú þessa dagana. ,,Alþýðumaðurinn“
— málgagn Alþýðuflokksbrotsins hér — reið þar
fyrstur á vaðið og viðhafði þá aðferð, að innan í
blaðinu birtist æðilöng grein um hinn báglega
efnahag bænda og alla þá eymd, sem af honum
stafar í sveitum landsins. Ungum bónda eru þar
lögð þessi orð í munn m. a.: „Við skömmumst
okkar fyrir f jósin okkar, ófullgerðu húsin okkar,
fátækt híbýla okkar, órækt og smæð túna okkar,
verkfæraleysi okkar, — skömmumst okkar fyrir,
hve lítið af því kemst í framkvæmd, sem okkur
langar til að gera“. — Ja, mikið mega aumingja
bændurnir skammast sín, eftir þessum blöðum að
dæma! Og hverju myndi svo um að kenna alla
þessa fátækt og ræíildóm bændanna? Jú, blaðið er
svo sem ekki í neinum vandræðum með skýring-
una: Bændurnir hafa „veðjað á skakkan hest“ í
pólitíkinni, stendur þar. Alþýðuflokkurinn hefði
verið svo miklu betri við þá en Framsóknarflokk-
urinn hefir verið. Og það sem á hefir vantað til
þess að fullkomna bölvunina, hafa kaupfélögin
lagt góðfúsléga af mörkum! Þau hafa selt óflokk-
aða tómata við okurverði og spilað alls konar aðra
lönguvitleysu í þeim dúr við bændagarmana fram
á rauðar nætur! Margt fleira skrítið og skemmti-
legt um eymd og vesaldóm sveitafólksins gefur
þar að lesa innan í blaðinu, ásamt nokkrum hús-
ráðum, er duga myndu til þess að koma öllum
máleinum sveitanna í himnalag. Bændurnir
verða bara að gerast leiguliðar ríkisins, auka
ræktunina, kaupa vélar og njóta sömu þæginda
og skemmtana eins og bæjarbúar. Þá er allt í lagi!
En utan á blaðinu er svo háðgrein um verðlag
landbúnaðarafurða, er nefnist, „Ódýrt kjöt!“
Bæjarbúum mun ætlað að lesa fyrirsagnirnar á
forsíðunni, en sveitafólkinu er treyst til að til-
einka sér innihald blaðsins að öðru leyti. „Mjög
vísdómslega fyrirkomið," eins og blaðið kemst að
orði um verðhækkun kjötsins og áhrif hennar á
vísitölunal,
gVO VÍKUR SÖGUNNI til „málgagns öreig-
anna“ — sjálfs „Verkamannsins". — Blaðið er
ekkert að gera að gamni sínu út af þessu, eins og
„A!þýðum.“. Til þess er ástandið vissulega of al-
varlegt: „Þessi gífurlega hækkun á kjötverðinu
hefir vakið í senn furðu og gremju meðal neyt-
enda,“ stendur þar. En fulltrúar bænda eru svo
sem ekki alveg ráðalausir, þótt kjötið seljist ekki:
„Þeir grafa það þá bara með kurt og pí í Hafnar-
f jarðarhrauni eða sökkva því við Oddeyrartanga,
syngjandi hósíanna og kenna ríkisstjórninni um
allt saman — og heimta svo enn nokkra tugi mil-
jóna kr. í uppbætur á kjötið.“ Málið er ósköp ein-
falt, að dómi blaðsins: Framsóknarflokkurinn á
einn sök á þessu öllu saman. Fulltrúar flokksins
í Kjötverðlagsnefnd liafa samþykkt hækkunina,
ásamt. „fóstbróður sínum“ Ingólfi á Hellu!! —
„Verkamaðurinn“ gleymir því auðvitað alveg í
þessu sambandi, að öl! verðlagning landbún-
aðarafurða hér á landi hefir að undanförnu
farið eftir ákvörðun sexmannanefndarinnar,
og „Verkamaðurinn" hefir áður — að dæmi ann-
Endurreisnin er hafin.
Strax eftir stríðslokin hófust Belgiumenn handa um endurreisn
þeirra borga og bæja, sem harðast, höfðu orðið úti i bardögum.
Myndin er frá borginni Bastogne i Ardennafjöllum. Vinna er
hafin við endurbygging husa.
B. J. B. skriíar blaðinu eftirfarandi:
Hugleiðirigar um kirkjusókn
á Akureyri.
CUNNUDAGINN 19. þ. m. fyrir-
^ skipaði biskup landsins almennan
þakkar- og bænardag í kirkjum lands-
ins í tilefni af stríðslokum og stofnun
friðarríkis á jörðu hér. Eg fór í kirkju
þennan dag og bjóst við að hún yrði
fullskipuð, en er til kom voru þar að-
eins nokkrir tugir kirkjugesta, sem
fundið höfðu ástæðu til að þakka fyr-
ir hina dásamlegu vernd þessa bæjar
á stríðsárunum eða bera fram bænir
um að friðarríkið verði meir en orðin
tóm. Ein stétt manna í bænum var að
visu forfölluð frá að sækja kirkjuna á
þessum tíma, klukkan 11, það fólk,
sem sér um tilbúning og framreiðslu
hádegisverðar, getur ekki sótt kirkju
á þessum tíma, klukkan tvö eða fimm
er milcið heppilegri tími fyrir flesta
TTVER er orsök til þessa tómlætis
fólksins? Ekki þarf að fráfælast
hin ytri skilyrði, kirkjan fögur og til-
komumikil, þó rétt sé að taka það
fram, að hún hafi einn minniháttar
galla, sem eg tel auðvelt að bæta úr,
hann er sá, að vegna bergmáls í kirkj-
unni, hafa þeir sem sitja fyrir aftan
miðja kirkju og ekki heyra því betur
varla fullt gagn af prédikun prestsins,
tel eg hægt úr þessu að bæta með
arra stjórnarblaða — hælt sér af
því, að Framsóknarflokkurinn
hafi aðeins einn fulltrúa í þeirri
nefnd, en stjórnarflokkarnir
hina fimm, þar af Sósíalistaflokk-
urinn eina tvo. En á þetta hefir
auðvitað aldrei verið minnzt,
nema rétt fyrir kosningar í sveita-
kjördæmunum, þegar mikið lá
við að sanna bændum sem ræki-
legast, hvað Framsóknarmenn
séu linir í kröfum fyrir þeirra
hönd, og hversu miklu betur só-
síalistum og öðrum „nýsköpun-
armönnum" væri trúandi til að
sjá þeim fyrir sæmilegu kaupi og
kjörum með því að skera ekki
verðlagningu landbúnaðarafurð-
anna alltof mikið við nögl, eins
og bölvaðir Framsóknarmenn-
irnir hefðu alltaf gert!
gVONA hljóða þá ritningar
stjórnarblaðanna hér um
málefni ykkar, bændur góðir!
Nú getið þið brotið heilann um
merkingu þeirra og útleggingu,
meðan tóm er til — milli pistils
i og guðspjalls þeirrar sálumessu,
sem yfir ykkur er hér sungin.
hæfilega sterkum hátalara, væri aíS
minnsta kosti þess vert að gera til-
raun með það.
Ekki þarf að fráfælast prestinn,
sem mér virðist mjög frjálslyndur í
prédikunum sínum ,og heldur fremur
stuttar og gagnorðar ræður; tel eg það
kost, því að langar ræður eru þreyt-
andi. Hann tónar ágætlega og hefir
engar óþarfa tafir og snúninga fyrir
altari, klykkt út um leið og síðasti
tónn útgöngusálmsins er dáinn út,
sem sagt engum tíma til ónýtis aytt,
eins og vera ber.
Á ER söngurinn sæmilega góður og
nýtur sin vel í hinni . háreistu
kirkju, þó hefði eg óskað að meiri
hrifning hefði verið við þessa um-
ræddu messu, þá hinn yndisfagri
sálmur „Sigurhæðaskáldsins": „Lát
þitt ríki ljóssins tærra“, sem var svo
vel valinn í tilefni dagsins, var sung-
inn. Hann hefði átt að syngjast af
.þéttskipaðri kirkju standandi með há-
tíðleik og hrifningu, en tómir kirkju-
bekkir taka ekki undir.
Er þetta gott og blessað éstand?
Síður en svo. Til þess höfum við
presta og kirkjur, að reyna að hafa
áhrif á breytni fólksins, og þá er
fyrsta skilyrðið að fólkið fáist til að
koma og hlusta hvað presturinn hefir
að segja, og eg tel engan efa á, að hver
sem í kirkju fer komi þaðan betri
maður en ella, það er hugsvölun fyrir
sálina að vera þar og heyra helgar
tíðir. En hvað er þá til ráða, að auka
kirkjusókn? Hér skal minnst á eina
tillögu, sem eg tel vert að sé vel at-
huguð.
Nokkuð hefir í seinni tíð verið tal-
að um samstarf presta og kennara, ef
nokkur alvara fylgir þessum umræð-
um, þá tel eg að kennarar hafi gott
tækifæri að sýna það í verki með því
að ganga fylktu liði til prestsins í
kirkjunni, hver með sinn nemenda-
hóp, ekki aðeins barnakennarar, held-
ur kennarar við alla aðra skóla undan-
tekningarlaust.
Fjöldi vitrustu manna telja að þetta
fyrirhugaða friðarríki verði aldrei var-
anlegt hér á jörð nema það sé grund-
vallað á kenningu Krists, og sé svo,
þá er öllu ungu fólki, hvaða nám og
lífsskoðun sem það velur sér, hollt að
kynnast vel hver eru grundvallarat-
riði hennar, það er að vísu nauðsyn-
legt að byrja þessa fræðslu strax á
börnunum, en það dugir ekki að
sleppa af þeim hendinni við hinn
venjulega fermingaraldur, þess vegna
þurfa allir unglingakennarar og for-
stöðumenn hinna æðri skóla að halda
þeirri fræðslu áfram í samstarfi við
prestinn og kirkjuna. Gangið þangað
í skrúðgöngu, það mundi veita öðrum
fordæmi að slást í förina. Það er enn
í góðu gildi spakmælið forna: „Það
ungur nemur, gamall temur“.
B. J. B.
Þegar börnin koma heim.
Nú fer sá tími að nálgast, að börnin fara að
koma heim aftur úr sveitardvölinni. — Að vísu
munu mörg þeirra, einkanlega þau eldri, dvelja
lengur, en þó hugsa eg að stærri verði sá hópur,
sem heldur heim nú um mánaðamótin.
Hversu gott,
sem barnið hefir
liaft það í sveit-
inni, og Iiversu
vel, sem það hefir
unað hag sínum,
mun því samt
finnast dásamlegt
að koma heim.
Heim til pabba
og mömmu og
annarra vanda-
manna.
Nú ríður á að
gera heimkom-
una eins
skemmtilega og
frekast er unnt.
Barnið þarf að
finna, að það sé
velkomið heim.
Það þarf að fagna
því af innileik og
ástúð.
Eg held að
þennan heim-
komutíma mætti
nota til þess að
lagfæra ýmislegt í
fari barnsins, sem
verið hefir ábóta-
vant, nota hann
þannig í þágu
uppeldisins. — Eg
veit ekki hvort
þið skiljið hvað
eg á við.
Þegar barnið
kemur heim er það glatt og ánægt, a. m. k. er svo
í flestum tilfellum. Það vill vera með mömmu og
pabba, segja þeirn frá svo ótal mörgu, sem það sá
og heyrði í sveitinni. Það vill ræða ýmislegt, sem
það skildi ekki áður, en hefir nú öðlazt skilning
á, heyra álit pabba um þetta eða hitt o. s. frv. —
Þá þarf að sinna barninu vel og gefa sér tíma til
þess að spjalla við það. Það þarf að hrósa því fyrir
það, sem það hefir lært, og láta það finna, að það
liafi vaxið og þroskast.
Á slíkum stundum er tilvalið að taka eitthvað
af kerijum barnsins ti! meðferðar og reyna að lag-
færa. Um leið og dáðst er, hve vel hafi tekizt að
læra þetta eða hitt, er þessu vandamáli skotið
með án þess þó að gera það að aðalefni: „Og þá
ertu auðvitað alveg steinhætt að hafa á móti því
að fara í sendiferðir — eg er viss um að það kem-
ur aldrei fyrir oftar, þú ert orðin svo myndarleg
og þekk stúlka“.
Fátt mun barninu þykja vænna um en slík orð
og traust það, sem á bak við þarf að liggja.
Reynið að gera heimkomu litlu anganna ykkar
að yndislegum tíma endurfunda og vitið, hvort
það er ekki einmitt tími til þess að lagfæra margt
í fari þeirra, kenna þeim og kynnast ýmsum eig-
inleikum þeirra.
Látið börnin finna, að heim eiga þau vígi, sem
aldrei hrynur. Gerið heimkomuna þannig, að
þau geti með sanni sagt: „Gaman var í sveitinni,
en allra bezt er heima“.
PueUa.
Ef þú giftir þig, þá iðrastu þess
•^-stundum, en giftir þú þig ekki,
þá iðrastu þe§s alltaf.
Unga stúíkan á myndinni er í
hentugum eftirmiödagskjól úr
Ijósdrap ulíarcrepe, skreyttum
meö ýrænni blúndu é kraga, erm-
um o& vasaíokum. Um hériS hef-
ir hún grænt net.