Dagur - 23.08.1945, Page 8
8
\ri]D
Islendingar og Danir
8
Skömmtun kaupgjalds
(Framhald af 1. síðu).
þau, að gera tillögur til ráðherra
um setningu reglna um gæða-
flokkun og verðflokkun land-
búnaðarafurða, ákveða verðjöfn-
unarsvæði, ákveða verðjöfnunar-
gjald og stuðla að hagnýtri verk-
un landbúnaðarafurða. Verðlags-
nefndin á að ákveða verðlag á
landbúnaðarafurðum og annast
þær framkvæmdir, sem hingað
til hafa verið í höndum mjólk-
ur-, kjöt- og garðávaxtanefnd.
anna. Verðlagsnefndin á að ráða
sér framkvæmdastjóra og annað
starfsfólk og greiðist allur kostn-
aður úr ríkissjóði.
Rúmsins vegna er ekki tæki-
færi til þess að ræða þessi bráða-
birgðalög ítarlega að sinni, enda
verður það gert sfðar. En rétt er
að benda á eftirfarandi atriði:
Með lögum þessum eru fram-
leiðendur raunverulega sviptir
yfirráðum yfir verðlagningu á af-
urðum sínum, með því að þeir
geta nú ekki tilnefnt fulltrúa
sína í verðlagsnefndir, svo sem
áður var, heldur hefir ráðherra
einn vald til þess að ákveða
hverjir skuli um þessi mál fjalla.
Það er því algert ranghermi, sem
Morgunbl. heldur fram, að yfir-
stjóm verðlagsmálanna sé nú fal-
in framleiðendum sjálfum. Yfir-
stjórnin er í höndum ráðherra,
sem hefir það á valdi sínu að
skipa menn á borð við Jón
Pálmason í hinn væntanlega
gerðardóm, og þannig tryggja sér
algjört einræði um verðlagningu
afurðanna og kaupgjald bænda.
Þetta skipulag hefir í för með
sér stór aukin útgjöld fyrir ríkis-
sjóð. Af nefndum þeim, sem
starfandi voru, var sáralítill
kostnaður, en nú er gert ráð fyr-
ir skrifstofu- og starfsmanna-
háldi allt árið.
Ef stjórnin væri sjálfri sér sam-
kvæm í verðlags- og kaupgjalds-
málum, mundi hún hafa gefið
út önnur bráðabirgðalög um
„verkamálaráð", þar sem stjórn-
skipaðri nefnd væri falið að
ákveða allt kaupgjald í landinu.
Stjórnin hefir vitanlega ekki
gert þetta og mun ekki gera,
beldur hefir bændastéttin ein
verið tekin til þessarar meðferð-
ar. Þarf raunar engan að undra
það, sem þekkir til siðferðisins í
herbúðum stjórn'arliðsins.
ólíklegt verður að telja, að
bændur sjái ekki í gegnum þær
blekkingar, sem hafðar eru í
frammi þessa dagana til þess að
villa þeim sýn á því, hvað hér er
raunverulega að gerast. Er þó
ekkert til sparað, t. d. var Jón
Pálmason tilbúinn með lofgrein
um bráðabirgðalögin, í Morgun-
blaðinu, sama daginn og þau
voru gefin út. Víst verður að
telja, að þessi kúgunartilraun
stjórnarliðsins verði til þess að
hraða enn meir undirbúningi
stéttarsamtaka bænda, sem Bún-
aðarþing ákvað að beita sér fyrir,
og efla eininguna innan bænda-
stéttarinnar. Sýnist þeirra sam-
taka nú meiri þörf en nokkru
sinni fyrr.
Kalda
PERMANENTIÐ
er komið aftur.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
BYLGJA.
Framhald af 1. síðu
þegar. Jafnframt hef ég orðið
þess var, að dönsk fyrirtæki álíta,
að allsherjar verzlunar- og við-
skiptasamningar milli landanna
þurfi fyrst að koma og má segja,
að eðlilegt væri og æskilegt, að
það gæti orðið sem fyrst.
— Gerir SÍS., ráð fyrir, að taka
upp sín görnlu sambönd á Norð-
urlöndum sem fyrst?
— Svo er ráð fyrir gert, að eg
hverfi til Kaupmannahafnar nú
um mánaðamótin og mun skrif-
stofa SÍS. þá byrja að starfa að
viðskiptum, svo sem áður var.
— Hvað er að segja um verð-
lag á dönskum vörum?
— Verðlag hefur yfirleytt ekki
hækkað verulega og ég álít, að
danskar vörur verði ekki dýrar,
þótt það fari vitaskuld mikið
eftir því hvernig þeim gengur að
útvega sér hráefni til iðnaðar
síns og með hvaða kjörum þeir
fá þau. Danir hafa áhuga fyrir
að kaupa íslenzkar framleiðslu-
vörur, t. d. landbúnaðarvörur,
en líklegt þykir mér, að fram-
lfeiðsluverð hér verði þar nokkur
Jrrándur í götu. Danir hafa t. d.
viljað kaupa ull, en verðið mun
þykja nokkuð hátt.
— Hvað er að segja um sigl-
ingar Dana til íslands?
Um þær veit ég ekkert að svo
stöddu, en talað var um það í
Kaupmannahöfn, að Sameinaða
gufuskipafélagið mundi hefja
siglingar hingað aftur, en ekki
veit ég sönnur á því. Þá mun
almennt gert ráð fyrir því, að
íslendingar taki upp siglingar til
Norðurlanda í ekki minni mæli
en var fyrir stríð.
— Hvernig er annars afstaða
Dana til íslendinga eftir sam-
bandsslitin?
— Meðan landið var hernumið
bar ekki mikið á kala Dana í
garð íslendinga, menn ræddu
um sambandsslitin, en oftast í
hóflegum tón. En eftir að Þjóð-
verjar voru á brott og blöðin
voru orðin frjáls á ný, fór að
bera meira á gremju og sárind-
um og sum dönsk blöð hafa birt
óvingjarnlegar greinar um ís-
land. Þess ber einnig að geta, að
ýmsir Danir hafa orðið til þess að
svara drengilega þeim árásum.
Mér þykir líklegt, að yfir þennan
misskilning fyrnist bráðlega,
enda er hann ekki djúptækur,
a. m. k. ekki hjá ábyrgum
aðilum.
EITT OPIÐ BRÉF.
(Framh. af 6. síðu).
reidd verður af vorum líkömum, og
sem yður mun smakkast betur, ef vel
er um oss hirt, nema því aðeins, að
þér séuð orðnir barnsvanir því kryddi
af hverju aðeins örfóar tegundir hafa
nefndar verið. En þá biðjum vér yð-
ur afsökunar og viljum viðurkenna að
yðar sé sá réttur sem hið forna spak-
mæli greinir: „Hver maöur eftir sín-
um smekk".
Hinn máttugi N'eptún sé yður góð-
ur ef þér gimist réttlætið og hrein-
lætið; framur ef þér fyrrist það.
Fiskar sjávmm
( — Hvað er að segja um líðan
íslendinga í Danmörku á stríðs-
árunum?
— Hún hefur yfirleitt verið
góð. Sendiráðið hefur styrkt Jrá,
sem styrks þurftu við, og víst er,
að stundum voru erfiðari tímar
fyrir ýmsa á dögum valútuvand-
ræðanna. Annars var engin neyð
í Danmörku á stríðsárunum.
Matur var alla jafna nægilegur.
Að vísu voru ýmis gerviefni á
boðstólum, svo sem gérvi-kaffi
úr gulrótum og te úr eplahýði.
En þetta var raunar ekkert veru-
legt neyðarbrauð. Helzt bar á
Síldveiðin í sumar.
*
(Framhald af 1. síðu).
}>eir, að Jrað hafi t. d. verið á-
berandi í síðasta stórstreymi, hve
austanfall hafi verið mikið hér
út af. í þessu kann skýringin á
sjávarhitanum í sumár að vera
fólgin.
Mikið tjón sumra
skipa.
Hæst skip nú um helgina voru
með um 6000 mál. Eru það
Freyja úr Reykjavík, Narfi úr
Hrísey, Dagný og Snæfell, Akur-
eyri. Önnur skip hafa mun
minna, sum lítinn sem engan
afla. Tap á útgerð sumra þessara
skipa hlýtur því að vera mjög
mikið. Þar við bætist, að erfitt
hefir verið að stunda þá veiði,
sem fáanleg hefir verið. Minnstu
bátarnir hafa t. d. elt síldina
langt norður í haf við mjög erf-
iða aðstöðu, því að þeir þurfa að
hafa snurpubátana í eftirdragi.
Einn bátur varð t. d. fyrir því ó-
happi nú fyrir skemmstu, að
annar snurpunótabátur hans
sökk langt norður í hafi í sjó-
gangi og stormi. Fóru snurpu-
nótin og báturinn í hafið, en
tjón útgerðarinnar nemur tug-
um þúsunda króna.
Reknetaveiðin —
sænsku samningarnir.
Eins og fyrr segir, hefir rek-
netaveiði gengið mjög sæmilega
og eru sum skipin nú að hætta
snurpunótaveiði og búa sig út
með reknet. Útgerðarmenn telja,
að hag þeirrá hafi verið illa borg-
ið með sænsku síldarsölusamn-
ingunum. í þeirn mun svo ráð
fyrir gert, að reknetaveiði sé
innifalin og er svo að sjá, sem
ekki hafi verið hugsað fyrir þeim
möguleika, að síldarlaust yrði í
sumar eða því sem næst, og engin
klausa mun vera þar til varúðar
um aflaleysi. Þar sem telja má
víst, að skortur verði á síld í
liaust í öllum helztu markaðs-
löndum er augljóst, að rekneta-
bátarnir gætu fengið miklu
hærra verð fyrir tunnuna á frjáls-
um markaði, en áskilið er í
sænsku samningunum. Una út-
gerðarmennirnir því illa að von-
um, að vera bundnir við það
fatnaðarskorti en þó mun hafa
bjargazt sæmilega. Danir voru
mjög vel birgir af öllum vörum
þegar stríðið hófst. Þótt taka
muni nokkurn tíma að reisa at-
vinnuvegina við t. d. landbúnað-
inn, sem missti mikið af búfjár-
stofninum, þá mun það sarnt tak-
ast og e. t. v. fyrr en nú virðist
líklegt í fljótu bragði.
verð, eftir slíkt sumar, sem þetta.
Engir af þeim útgerðarmönnum,
sem blaðið hefir átt tal við, hefir
séð sænsku samningana, enda
hafa þeir hvergi verið birtir, en
augljóst þykir, að í þeim sé stórt
,,gat“, hverjir, sem kunna að
bera ábyrgð á því.
Treg veiði hjá Norð-
mönnum.
Allmörg norsk og sænsk síld-
veiðiskip stunda veiði hér fyrir
Norðurlandi í sumar. Nýlega
Fimmtud. 23. águst 1945
Fyrirliggjandi:
Kúafóðurblanda
Hænsnafóður
Maismjöl
VERZLUNIN LONDON
Simi 359.
Verzlunarstúlka
óskast í byrjun næsta mánaðar.
komu þrjú norsk skip hingað til
Akureyrar. — Norðmennirnir
sögðu veiðina mjög trega hjá
flota sínum yfirleitt, en þó hafa
reknetabátar þeirra aflað sæmi-
lega og eru nú sumir hverjir að
halda heim. Eitt skipið, sem
hingað kom, hafði aflað
450 tunnur í snurpunót eftir
þriggja vikna útilegu hér fyrir
norðan. Skipið hafði 2000 tunn-
ur meðferðis og bjuggust skips-
menn við að verða hér fyrir
Norðurlandi 3—4 vikur enn.
Uppl. á afgr. blaðsins.
Hjartanlega pakka ég sveitungum minum og öðrum, fjœr ;!
!! og nœr, sem sýndu mér vinarhug með heimsóknum, stórgjöf- !
!| um og heillaskeytum, á sjötiu ára afmœli minu, þann 15. 1;
!; ágúst siðastliðinn. ;;
Samkomugerði, 22. ágúst 1945. <!
<! 4 i1
!; Kristinn Jóhannesson.
Skrifstofustúlka
1 óskast á skrifstofu Rafveitu Akureyrar í septembermánuði i
| næstkomandi. Gagnfræða- eða verzlunarskólapróf æskilegt. É
i Laun samkvæmt launasamþykkt kaupstaðarins, 10. flokki.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu mína fyrir 1. september i
i næstkomandi.
Rafveitustjórinn á Akureyri, 22. ágúst 1945.
Knut Otterstedt.
álllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIMIIIIIlMllUIIIIIIIIIIMIMIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIMIIMIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIMIIIIIIIIMII*
•IIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIMMIIIIIIIIU|lllllMMMIMIIIIIMIIMIIIMIIIMIMIMmMIIIUÍMMIMMIimilllllllllllMIMIIIIIMmmilllMllllmiMIIM»
I NOKKRARSTÚLKUR
i vantar í eldhúsið í Kristneshæli 1. október næstkomandi.
IJnnH'sinsar gefa skrifstofá hælisins og frk. Guðrún Pálma- \
i dóttir, Munkaþverárstræti 3, Akureyri. i
Ennfremur vantar 3 stúlkur til annarra starfa í hælinu.
i Upplýsingar gefa yfirhjúkrunarkonan og skrifstofan.
I Athugið, að hælið greiðir hæsta kaup. I
= a :
*ll|MIMMIIIIIIIIMMIIIIII|IIIIIIIIIHIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIMMIIIIIIIIIIMIIIIIHMMMMIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIMMimiMIIIMI*
■IIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMMIIIIIIIIIIIMIIIIIIMIIIIIIIIMMIIIMIIIIIIIIIIIIIMIIIMIIIIIIIIIMJIIIIIMMInt
iNýttkjöt
af tryppum og fullorðnu, seljum við alla daga.
Nýreykta sperðla.
Nýsaltað hrossakjöt.
Reykhúsið, Norðurgötu 2.
| Sími 297. |
: i
; x
'HiiiiitiiiHiiiiMiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiMiiiiiMiiiimiimtiiiiiMiiiiiMMiiMmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiMH*