Dagur - 29.11.1945, Blaðsíða 1
Sjómannadeilan leyst?
Sl. föstudag náðist sam-
komulag í sjómannaverkíall-
inu, sem staðið hefir síðan 1.
október. Leystist deilan á
grundvelli tillagna, er sátta-
nefnd gerði, en þó ekki fyrr
en ríkisstjórnin hafði gengið í
málið og kúgað Eimskipafé-
lagið til þess að ganga að til-
lögunum. Aðalbreytingarnar
á kjörum háseta eru þær,
að áhættuþóknunin lækkar
talsvert, en grunnkaup hækk-
ar aftur á móti verulega. Há-
setar í Englandssiglingum fá
nú tæplega 4000 kr. í áhættu-
þóknun í stað tæpl. 20.000 kr.
áður á ári. í Ameríkusigling-
um verður áhættuþóknunin
hin sama og í Englandssigl-
ingunum en var áður um 25
þús. kr. Grunnkaup háseta
hækkar aftur á móti um 42—
43%. Niðurstaðan er sú, að
kaup háseta í Englandssigl-
ingum, að meðtaldri yfir-
vinnu og orlofsfé, verður um
32 þús. kr. á ári og lækkar um
nálega 8 þús kr. í Ameríku-
siglingum verður árskaupið
um 30 þús. kr. og lækkar um
13 þús. kr. Enn hefir hins
vegar ekki verið gengið frá
samningum við yfirmenn,
matsveina og þjóna, og voru
siglingar því ekki hafnar á ný
er síðast fréttist.
- — =—v
Vilhjálmur Þór
verður forstjóri S.I. S.
Síðastliðinn þriðjudag til-
kynnti sljórn Sambands ísl. sam-
vinnufélaga, að hún hefði ráðið
Vilhjálm Þór bankastjóra til
jjess að vera forstjóra Sambands
ísl. samvinnufélaga frá næstu
áramótum að telja, en Sigurður
Kristinsson, forstjóri, sagði af
sér starfinu frá þeiín tíma. Sama
dag tilkynnti bankaráð Lands-
bankans, að Jón Árnason, fram-
kvæmdastjóri, hefði verið ráðinn
bankastjóri í stað Vilhjálms Þór.
Stórmerkt og sígilt rit-
verk í viðhafnarútgáfu
Fyrsta heildarútgáfa af
hinu mikla þjóðsagna-
safni Ólafs Davíðssonar
nýkomið út.
Bókaforlag Þorsteins M. Jóns-
sonar sendir þessa dagana á
markaðinn glæsilega heildarút-
gáfu af hinu mikla og merka
þjóðsagnasafni Ólafs Davíðsson-
ar. Er bók þessi í þremur gríðar-
miklum bindum, alls um 1400
bls. í stóru broti. Guðmundur
Frímann rithöfundur og
Tryggvi Magnússon listmálari
hafa skreytt bókina með ágætum
teikningum, bókahnútum og
skrautstöfum, og er útgáfan öll
einhver sú vandaðasta og glæsi-
legasta, sem sést nú á markaðin-
um, svo sem vel sómir svo merku
riti og sígildu þjóðsagnasafni. —
Prentverk Odds Björnssonar
hefir pretnað bókina með mik-
illi prýði. Bókar þessarar verður
nánar getið hér í blaðinu innan
skamms.
Dagur flytur hér mynd af fyrirhug-
uðu skipulagi nýja spítalahverfisins
á Eyrarlandstúni, sem nú hefir verið
samþykkt í bæjarstjórninni. Það
var fyrir að beita sér fyrir að fé þetta
skipulag samþykkt, sem Svavar Guð-
mundsson réðist á Jakob Frímanns-
son og Stefán Arnason í síðasta tbl.
ísl. Mega nú allir sjá, hvort fjórð-
ungssjúkrahúsi Norðurlands muni
ekki betur borgið á þessumstað,held-
ur en ef því hefði verið holað niður á
allt of litlu landrými sunnan við
gamla spítalann (merktur með töl-
unni 3 á myndinni). Það er vitaskuld
rangt hjá Svavari að telja þá Jakob
og Stefán eina bera ábyrgð á því, að
breytt var um til bóta. Að því unnu
miklu fleiri, þar á meðal þaer mætu
konur, sem sæti eiga í spítalanefnd-
inni.
Á fundi bæjarstjórnar í fyrra-
dag lá fyrir yfirlýsing Útgerðar-
félags Akureyringa, að félagið
vilji kaupa einn af togurunum,
sem ríkið lætur smíða, og var
samþykkt, að endurnýja umsókn
bæjarins til Nýbyggingarráðs
um þann togara, og fjárhags-
nefndinni falið að leita nauð-
synlegra bankatrygginga til þess
Skýrirtgar á myndinni: — 1. Torg-
ið, sem myndast við uppfyllingu við
Spítalaveg. 2. Nýi vegurinn,semnúer
að nokkru leyti kominn, frá Spítala-
vegi að nýja sjúkrahússtæðinu. 3.
Gamli spítalinn. 4. Birgða-innkeyrsla
spítalans og bílastæði. 5. Sjúkrahús-
byggingarnar nýju. 6. Opið svæði,
prýtt trjá- og blómagróðri. 7. Vegur-
inn, sem afmarkar spítalahverfið að
austan. 8. Núv. Spítalavegur. 9. Stæði
fyrir sérbyggingu, sem e. t. v. yrði
reist í sambandi við sjúkrahúsið í
framtíðinni. 10. Sama. 11. Takmörk
spítalahverfisins að vestan. Þar ofan
við verða byggðahverfi, sem ennþá
eru óskipulögð, mætti hugsa sér þar
læknabústaði, starfsmannahús o. fl.
12. Núv. Eyrarlandsstofa. 13. Bíla-
torg fyrir framan aðalbygginguna.
íð ganga frá kaupunum. Hins
vegar var upplýst, að útgerðar-
menn þeir, sem áhuga höfðu fyr-
ir kaupum á öðrum togara í
viðbót, hafi dregið sig til baka.
Þar sem bæjarstjórnin hafði áð-
ur samþykkt, að ráðast ekki í út-
gerð, umfram þátttöku í Útgerð-
arfélaginu, var ekki endurnýjuð
umsókn um fleiri skip.
Með öðrum orðum ætti stjórn-
in að vera búin að samþykkja að
baki þjóðarinnar, að veita mörg-
urn þjóðum aðstöðu til eftirlits
og herstöðva. Þessi fregn stjórn-
arblaðsins og rússneska útvarps-
ins hefir ekki verið borin til
baka af íslenzkum stjórnarvöld-
um. Á meðan þessi þögn ríkir og
íslendingar fá ekkert áreiðan-
legt að vita um þetta örlagaríka
mál eða tækifæri til þess að láta
skoðun sína í ljós, er enginn
hörgull á umræðum erlendra
manna og blaða um þessi efni.
Nýjasta dæmið, sem Degi hefir
Athugið, að búðum er lokað laugar-
daginn 1. des. Brauð- og mjólkurbúð-
ir opnar eins og venjul. á sunnudög-
um.
borizt í hendur, er grein í stór-
blaðinu New York Times hinn
20. þ. m. Er hún rituð af frétta-
ritara blaðsins í Osló og dagsett
þar 17. nóv. Nefnist greinin
Norðurlönd líta á kröfurnar um
herstöðvar. í undirfyrirsögn er
sagt, að nokkurs óróleika verði
vart í sambandi við fyrirætlanir
Bandaríkjanna og Rússlands á
íslandi og Spitzbergen. Síðan
segir, hér lausl. þýtt:
„Nokkurs konar reiptog stór-
veldastjórnmála virðist fara fram
á bak við tjöldin milli Banda-
(Framhald á 8. síðu).
DAGLIR
XXVIII. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 29. nóvember 1945
47. tbl.
Hið nýja, glæsilega spifalahverfi á Eyrarlandsfúni
Uppdráttur skipulagsstjórans, sem sam-
þykktur liefir verið af bæiarstjórninni
ALMENNUR FUNDUR
UM ÁFENGISMÁL
verður haldinn í Sam-
komuhúsi bæjarins mánu-
daginn 3. des. n. k. kl. 8.30.
Fyrir nokkru komu saman til
fundar fulltrúar frá skólum, lé-
lögum og félagasamböndum í
bænurn og ræddu um áfengis-
málin og hið ískyggilega ástand
í þeim efnurn. Var síðan ákvqð-
ið að boða til almenns borgara-
fundar í bænum um þessi mál,
og verður sá fundur hldinn n. k.
mánudag kl. hálf níu í Sam-
komuhúsinu.
Þessir fulltrúar hafa undirbú-
ið fundinn þannig, að lagðar
munu fram fjórar tillögur til
umræðu og ályktunar/
Verða framsögumenn fjórir,
einn með hverja tillögu. Þess er
og einnig að sjálfsögðu vænst,
að fleiri taki til máls á fundin-
um.
Það á ekki að þurfa að fjöl-
yrða um tilgang þessa fundar.
Hann er í stuttu máli sá, að fá
menn til að hugleiða það ástand,
sem ríkir í áfengismálum lands-
ins, ræða um hvað gera skuli til
úrbóta í þeim málum, og hvern-
ig vinna megi að því að slíkt tak-
ist.
Útgerðarfélag Akureyringa kaupir
einn nýju togaranna
mkeppni lússa og Bandaríkjanna
um herstöðvar í Norður-Evrópu
New York Times segir Rússa hafa látið í liós áhnga
fyrir Spitzbergen, eftir að Bandaríkjamenn sendu
r
Islendingum orðsendingu sína
Ennþá ríkir sama dauðaþögnin í herbúðum ríkisstjórnarinnar um
herverndarmálið svokallaða og þjóðin fær ekki að vita hvað er að
gerast á bak við tjöldin. Verða menn að búa við erlendar fregnir
um þau efni og sögusagnir kommúnistablaðanna, sem láta sér mjög
tíðrætt um þessi efni. Samkvæmt frásögn Þjóðviljans 21. þ. m. hef-
ur rússneska útvarpið flutt þá fregn, að íslenzka stjórnin væri búin
að neita Bandaríkjunum um herstöðvar hér á landi, en hin vegar
hafi „hún boðizt til að láta Öryggisstofnun hinna sameinuðu þjóða
stöðvar í té.“