Dagur - 21.02.1946, Page 8
8
D AGUR
Fimmtud. 21. febr. 1946
Leikfélag Akureyrar:
□ RÚN 59462227 = 2.:
I O. O. R 1272228 1/2
KIRKJAN. Messað a Akur-
eyi i næstk. sunntidag kl. 2 e .h.
Áheit á Akureyrarkirkju. Kr. 25.00
frá N. N. — Kr. 100.00 frá N. N. —
Þakkir Á. R.
Kveniélaé Akureyrarkirkju heldur
aðalfund 22. þ .m. kl. 4 e. h. í kirkju-
kapellunni. Venjuleg aðalfundarstörf.
„Biblían oé nokkrar kenningar
hennar" verður uinræðuefnið á sam-
komu Sæmundar G. Jóhannessonar í
Sjónarhæðarsal næstk. laugardags-
kvöld kl. 8.30. Ungu fólki sérstaklega
boðið.
Heimilisiðnaöarfétaé Noröurlands
liefir sníðanámsskeið í Brekkugötu 3.
— Bókbandsnámsskeið'ið byjar um
næstu helgi.
Hestamannaiélaéið Léttir hefir
ákveðið að efna til útiskemmtunar á
Gleráreyrum sunnudaginn 10. marz
næstk. til ágóða fyrir sjúkrahússbygg-
inguna. Þar verður „kötturinn sleginn
úr tunnunni" af hestbaki. Knapar,
sem vilja taka þátt í leiknum, gefi sig
fram við form. skemmtinefndarinnar,
Þorl. Þorleifsson, eða á B. S. O.,
fyrir 25. þ. m.
Zíon. Sunnudaginn 24. þ. m. Sunnu-
dagaskóli kl. 10.30 f. h. Almenn sam-
koma kl. 8.30 e. h. Allir velkomnir.
Fimmtuéur varö P. Chr. Lihn, skó-
gerðarmeistari á Iðunn sl. mánudag.
Lihn er danskur maður, kom hingað
til lands árið 1938 og tók þá við verk-
stjórn í Skógerð Iðunnar. Hefir hann
dvalið hér óslitið síðan. Lihn er hinn
mésti hagleiksmaður í starfsgrein
sinni og hefir framleiðsla verksmiðj-
unnar borið þess órækt vitni. Lihn er
einkar vel kynntur meðal starfs-
bræðra sinna. Á afmælisdaginn bár-
ust honum margar hlýjar kveðjur frá
þeim og öðrutn vinum hér i bænum
og viðar. Dagur árnar honum allra
heilla á þessum tímamótum.
Dregið var í happdrætti Vinnu-
heimilis S. í. B. S. í Reykjavík 15. þ.
m., og upp komu þessir vinningar:
Flugvél 121477, skemmtisnekkja
107453, bíll 12074, málverk 35225,
píanó 96524, radiógrammófórin
102143, flugferð til New York 70586,
skrifborð 85537, ferð til Norðurlanda
9124 og golfáhöld 12104. Tíu vinn-
ingar á kr. 1000.00 hver: 32172,
36541, 71454, 22307, 101023, 5657,
43827, 89561, 89415 og 91512. —
Birt án ábirgðar.
Sameiginlegan fund halda kvenfé-
lögin Hlíf og Framtíðin að Hótel
KEA miðvikudaginn 27. jan. næstk.
kl. 8.30 e. h.
Bræðrakvöld stúkunnar „Brynju"
verður í Skjaldborg næstkomandi
laugardagskvöld kl. 8.30. Systurnar
boðnar velkomnar. Veitingar annast
bræðurnir. Til skemmtunar: Píanó-
leikur (fjórhent), tvísöngur, nýjar
gamanvísur. Dans. Bræðurnir tilkynni
þátttöku í síma 150 — 342 — 51.
Barnastúkan Samúö heldur fund
næstk. sunnudag kl. 10 árd. Fundar-
efni: Skýrslur embættismanna. Inn-
taka nýrra félaga. Smáleikir. Upplest-
ur o. fl. Börnin eru beðin að fjöl-
menna á fundinn og koma stundvís-
lega.
Ve£na árshátíðar Bílstjórafélags
Akureyrar verða stöðvarnar lokaðar
frá kl. 6 e. h. næstk. laugardag. B. S.
A. — B. S. O.
Strandarkirkja. Gamalt áheit kr.
20.00.
Dánardægur. 4. þ. m. andaðist í
Osló Jóhann Guðjónsson, Manases-
sonar. Jóhann fór utan fyrir styrjöld-
ina til að fullnuma sig í list sinni —
harmonikuleik — og dvaldi í Noregi
stríðsárin — sjúklingur nokkuð af
þeim tíma. Hann var kvæntur og átti
einn son barna. — Aðfaranótt 8. þ. m.
andaðist að Ægisgötu 1 hér í bænum
Sigurjón Þorkelsson, faðir Magnúsar
eiganda og forstjóra Dívanavinnustofu
Akureyrar, og þeirra bræðra. Sigurjón
var 89 ára að aldri er hann dó.
„Allt í lagi, lagsiu
Leikfélag Akureyrar hel'ir nú
sýnt revýuna, „Allt í lagi lagsi“,
nokkrum sinnum við húsfyllir
og ágætar viðtökur áhorfenda.
Revýa þessi var samin og leikin
í Reykjavík í fyrra og er nú sýnd
hér með smávægilegum breyt-
ingum. Meginefni hennar er að
skopast að stríðsgróðaölvímunni,
m jólkursölumálunum syðra og
ýtnsum öðrum atburðum, sem
mjög komu við sögu á árinu
1944. Revýan er víða bráðfyndin
og yfirlcitt má segja áð frammi-
staða leikaranna sé góð, enda
virðast áhorfendur skemmta sér
mjög vel.
Helztu hlutverkin eru þessi:
Jón Span forstjóri hlutafélagsins
Hibó, utangátta manntegund,
sem þó getur grætt þeninga í
Gósen íslands á því herrans ári
1944, leikinn af Jóni Kristins-
syni, yfirleitt mjög snoturlega.
F.sekíel Kvist, skrifstofustjóri hjá
Hibó, gleiðgosi og oflátungur,
leikinn af Sigmundi Björnssyni,
svo sem hæfir slíkri persónu,
Hálfdan Theódórs, miðstöðvar-
kyndari, sem verður skrifstofu-
stjóri og villueigandi upp úr við-
skiptum ríkisvaldsins við bók-
haldið hjá hlutafélaginu, leikinn
af 1‘óri Guðjónssyni. Þórir leik-
ur ágætlega og er persónan öll
mjög spaugileg og vekur margan
hressandi hlátur. ísak Hólmfast,
hreppstjóra í Klaufarhöfn, skip-
aðan ríkisendurskoðanda á
svindlið hjá Hibó, formann
mjólkursölunefndar, leikur
Hólmgeir Pálmason. Þetta er
einhver skemmtilegasta persóna
revýunnar og leikurinn sam-
felldur og broslegur. Kálínu,
konu Hálfdáns skrifstofustjóra,
SKÓGRÆKT RÍKISINS
KAUPIR ÞÓRÐARSTAÐA-
SKÓG
(Framhald af 1. síðu).
Islands nánast verið skógræktar-
félag Reykvíkinga, þótt ýmsif
aðrir landsmenn hafi verið í fé-
laginu. Á sxðari árum hafa risið
upp skógræktarfélög í ýmsum
byggðarlögum víðs vegar um
landið, og hefir því ýrrysum þótt
heppilegra og vænlegra fyrir
starfsemina alla, að breyta um
skipulag og efla samband félag-
anna. Fulltrúar allra skógræktar-
félaga landsins koma saman ti)
fundar, einhvers staðar sunnan-
lands, á næstkomandi sumri og
verða þessi mál rædd þar.
Sitka-grenið.
Skógræktarstjórinn skýrði enn-
fremur svo frá, að eitthvað af
sitka-greniplöntum frá uppeldis-
stöðvum skógræktarinnar mundi
koma á markað hér vorið 1947.
Verður það m jög lítið til að
byrja með, en mun aukast smátt
og smátt. Sitka-fræ, eða önnur
fræ trjátegunda, sem íeynd verða
hér, m. a. frá Alaska, verður ekki
látið til einstaklinga, heldur
munu tilraunir með það ein-
skorðaðar við skógræktarstöðvar
íkisins. Þær plöntur, sem góða
raun gefa, verða síðan settar á
rnarkað, er tími þykir til kominn.
ex miðstöðvarkyndara, leikur
frú Jónína Þorsteinsdóttur. Tals-
vert sópar að frúnni á senunni,
sérstaklega í fyrsta þætti; henni
tekst þó tæplega að gera nógu
mikinn mat úr efninu, þegar í
villuna er komið og „garden-
partíin" hefjast. Ýsu Ýsax, hrepp-
stjóradótturina frá Klaufarhöfn
og kvennasíðuritstjóra í höfuð-
staðnum, sýnir frk, Jenny Jóns-
dóttir. Hún er sjaldséður gestur
á „fjölunum", en hefir ótvíræða
leikarahæfileika og skilar hlut-
verki sínu með mestu prýði. Af
smærri hlutverkunum vekur Óli
í Fitjakoti, gamall kunningi úr
útvarpinu, einna mesta kátínu,
Éggert Ólafsson leikur hann og
syngur skemmtilegan brag
með ágætum. — Ennfremur
syngja þau frk. íngibjörg Ólafs-
dóttir og Jóhann Ögmundsson í
grímuballssenunni, mjög smekk-
lega. Með önnur smærri hlut-
verk fara þessir leikarar: Kristín
Þór, Björg Baldvinsdóttir, Ragn-
heiður Bjarman, Kristín Kon-
ráðsdÖttir, Ingóllur Kristinsson,
fúlíus Oddsson, Jón Ingimars-
son og Tryggvi Kristjánsson. —
Leikstjórn önnuðust Júlíus
Oddsson og Hólmgeir Pálmason,
leiktjölclin málaði Haukur Stel'-
ánsson. Árni Ingiinundai'son
annaðist píanóundirleik. —
Búningar eru lánaðir frá Fjala-
kettinum í Reykjavík.
Eg sendi hinum rnörgu vinum minum, er glöddu
mig d fimmtugsáfmæli minu með skeylum, blómum
oggjöfum, rnínar innilegustu þakkif. Alveg sérstaklega
þakka ég stjórn verksmiðja S.Í.S. hér og starfsfólki
Iðunnar fyrir þeirru þdtt i nð gleðja mig þennan dag.
Sd hlýhugur og veldvild, sem ég varð aðnjótandi
þennan dag, mun rnér aldrei úr minni liða.
P. Chr. Lihn.
WKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKléHKKHKHKHKHímHKHKHKHKHKHKHMW
Til sölu:
Trillubáturinn „Gyllir“
EA 64o, er til sölu. Báturinn
er 2 smálestir með 6 ha.
,,Sleipnis“-vél. Veiðarfæri
geta fylgt, ef þess er óskað.
Semja ber við eigendur
bátsins:
Aðc'slein Einarsson og i
(i esar HalIgrims'son,
Fróðasundi I0B.
Grár hestur,
lítið eitt dökkur á fax og tagl,
mark: blaðstýft fr, v., er í óskil-
um í Skriðu í Mörgárdal. Eig-
andi vitji hans sem allra fyrst.
liickory-skíði
til sölu fyrir lágt verð.
Afgr. vísar á.
Ráðskona
óskast nú þegar á fámennt
heimili í nánd við Akureyri.
Má hafa með sér stálpað
barn. Talið strax við
Vinnumiðlunarskrifstofuna.
GOÐ STULKA
óskast, þarf að vera vön heimilis-
störfum. SÉRHERBERGI. ■ HÁTT
KAUP. — Upplýsingar ó af-
greiðslu Dags eða í síma 445.
GÓÐUR BIFVÉLAVIRKI
óskast. Framtíðaratvinna.
Vélsmiðjan Oddi h. f.
AKUREYRARBÆR.
TILKYNNING
Ár 1946, þann 14. febrúar, framkvæmdi notarius publicus
í Akureyrarkaupstað hinn árlega útdrátt á skuldabréflim bæj-
arsjóðs Akureyrar fyrir 6% láni til raforkuveitu frá Laxár-
virkjun.
Þessi bréf voru dregin út:
LITRA A. Nr. 19 - 27 - 39 - 74 - 98 - 106 - 130 - 134.
LITRA B. Nr/ 64 - 73 — 74 — 82 — 127 — 139 - 146 - 157.
LITRA C. Nr. 38 — 40 — 44 — 46 — 61 — 62 — 70 — 82 — 92
311 - 312 - 315 - 320 - 323 - 324 - 344 -
353 - 359 - 369 - 379 - 386 - 390 - 397 -
400-408->-411 -412-418-451 -452.
Skuldabréf þessi verða greidd á skrifstofu bæjargjaldkera
Akureyrar þann 1. júlí 1946, ásamt hálfum vöxtum fyrir yfir-
standandi ár.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 15. febrúar 1946.
Steinn Steinsen.
FERMINGARKAPUR|
ávallt fyrirliggjandi. -
Unnar úr einlitum og köfl- I
óttum, fallegum ullarefn- |
um. — Verð kr. 280.00 og
310.00.
Komið — skoðið — kaupið.
Saumastofa Gefjunar |
Húsi KEA, 3. hæð.
HÓFUM FYRIRLIGGIANDI:
Nokkur stykki af vönduðum
reiðhjólum fyrir dömur. — Einn-
ig dynamosett, bjöllur, böggla-
grindur o. fl.
BRYNJ. SVEINSSON h.f.
Sími 129
Aðallundur Kvennadeildar Slysa-
varnafélags Islands, Akureyri, verður
haldinn að Hótel KEA mánudaginn
25. þ. m. kl. 8.30 e. h. Eftir fundinn
verður sameiginleg kaffidrykkja og
skemmtiatriði: Gamanvísur, hljóm-
leikar og upplestur.
Hús til sölu
Nýtt tveggja hæða steinhús, Hólo
braut 20, Akureyri, er til sölu. TiJ
boð óskast í húsið. Tilboðunum si
skilað fyrir 10. marz n. k. til
Samúels Kristbjarnarsonar,
rafvirkjameistara.
Réttur áskilinn til að taka hvaði
tilboði sem er, eða hafna öllunc
HALLUR HELGASON.
Hafnargjöld hækka
Leyfi fyrir hækkun á hafnargjöl
um hér á Akureyri er nú loksins fen
ið frá ríkisstjórninni. Hafnargjöld
hér hafa setið í sama fari og fy
stríð og hefur það mjög háð nauðsv
legum endurbótum á hafnarman:
virkjum. Samkvæmt auglýsingu f
bæjarstjóranum, á öðrum stað í bla
inu í dag, hækka gjöldin nema lesta
gjöld af standferðaskipum, um 100(
frá 1. febrúar að telja.