Dagur - 28.03.1946, Blaðsíða 7
I
Fimmtudaginn 28. marz 1946
D AG U R
W^)*f$WW*)WW*W*W*?*f0*ty*f&*{*/*f)í>*fÍ**í>*f&*ty*f&*f&*ty*T&*W*Wty*f&** KKBKBKBKBKBKBKBKBKBKBKBKKtKBKBKHKBKK-tKBKBKBKBKBKBKBK KHKHKHKHKHKBKHKBKHKHJ-íKHKKi
o
CLAPP’S
FERMINGARKAPUR|
ávallt íyrirliggjandi. -
Unnar úr einlitum og köfl- I
óttum, fallegum ullarefn- |
um. — Verð kr. 280.00 og
310,00.
Komið — skoðið — kaupið.
Saumastofa Gefjunar
Húsi KEA, 3. hæð.
N.iðursoðin Barnafæða
Eplasósa
Fíkju- og rúsínubúðingur
Sveskjubúðingur
B1 a n <1 a ð g r æ n ni e t i
Gulrætur o. fl.
HOLL FÆÐA OG GÓÐ!
Nýlenduvörudeiid KEA og útibú
CHKHKHKHKHKHKBKHKHKHKHKHKHKBKBKBKBKHKJlKHKHKHKHKHKHKHK
KKbKHKhKbKhKHKhKhKhKhKhKbKjKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhKhK
Frá Húsmæðraskóla Akureyrar
Námskeið verða haldin í húsmæðraskólanúm í vor í
matreiðslu, saumum og vefnaði. Námskeiðin hefjast
að öllu forfallalausu 3. júní og standa í fjórar vikur.
Umsóknir skulu sendar til undirritaðrar fyrir 15. maí.
Nánari upplýsingar í sáma 199 eftir hádegi á mánu-
dögum.
Helga Kristjánsdóttir.
!>5KhKhKhKbK<KhKhKhKbkhkhKhkhkbkhKhkhkhKhKhkhkhKhKbKhK
Notið Sjafnarvörur
Frá Baldvin á SvalbarSi.
. .Baldvin Jónsson fyrrum bóndi á
Svalbarði, sem margir eldri menn i
Eyjafirði og Þingeyjarsýslu munu
hafa heyrt getið, var fœddur 14. apríl
1831. Faðir hans var fátækur bóndi
á Skeiði i Fljótum, en móðir hans hét
Guðrún Magnúsdóttir, og var hún
systir maddömu Ólafar í Höfða, konu
síra Gunnars Ólafssonar.
Kona Baldvins var Elín Guðmunds-
dóttir, bónda á Svertingsstöðum, Jó-
hannessonar, bónda í Grenivík, er
góðar ættir eru frá komnar, Árnason-
ar hreppstjóra á Halldórsstöðum i
Laxárdal, Gíslasortar.
Baldvin flutti að Svaíbarði írá
Grund í Höfðahverfi, og hóf þar bú-
skap vorið 1875, en bjó þar siðan 19
ár. Að Svalbarði kom hartn með all-
vænt landbú, og auk þess tvö hákarla-
skip, er hann átti mtira part í, oý var
sjálfur skipstjóri á öðru. Skip hans
öfluðu vanalega vel, og sóttust margir
mjög ettir skiprúmi á þeim. Bændur
á Svalbarðsströnd tóku vel á„ móti
Baldvin og töldu sig fá með honum
trausta stoð undir hreppsbúið. Og það
sá sá, er þetta ritar, að þegar Baldvin
kom í fyrsta sinni í Svalbarðskirkju,
leiddi Benedikt hreppstjóri Árnason
á Gautastöðum hann til sætis hjá alt-
arinu og var það þá .talið virðingar-
merki.
Á manntalsþingi að Svalbarði vorið
1876 vildi svo til, að Baldvin var fyr-
ir skömmu kominn að Iandi með fullt
skip af lifur og var nú þar á þinginu.
Er þeim það minnisstætt, er þetta
ritar, að þegar að honum kom um
þinggjaldsgreiðsluna, tók hann upp
óvanalega gildan sjóð og greiddi fljótt
af höndum gjald sitt. A þingi þessu
voru einkum tveir efnalitlir bændur,
sem ekki höfðu gjald fyrir hendi til
greiðslunnar. Baldvin hélt bezt, að
hann borgaði fyrir þessa granna sína,
og var það þakksamlega þegið.
Baldvin var til mikillar fyrirmynd-
ar um meðferð húsdýra sinna, og ól
hann jafnan allar sínar skepnur.
Um Baldvin kvað Bjarni Gíslason
í Meðalheimi, hagyrðingur góður, eft-
irfarandi vísur i bændarimu:
Geðs í stæði gáfaður,
gautar klæði tala,
Baldvin gæða búhöldur
barði ræður Svala.
I
Að happi á byrðing hafs umver
hönd óstirða rétti.
Auð og virðing aflar sér,
ýmsra byrði létti.
Þegar í mæðu þurftu lið,
það skal kvæðið sýna, —
vel sjálfstæður studdi við
stéttarbræður sína.
Þessi voru börn Baldvins og Elínar
1.. Anna, (f. 9/8 1872), gift Páli
Jónatanssyni járnsmið á Akureyri.
2. Jón, (f. 10/12 1874), er lengi hef-
ur stundað jarðyrkju og sauðfjár-
rækt á Akureyri. Ókvæntuí\.
3. Baldvin, (f. 21/5 1876), sjómaðut
ókvæntur á Akureyri.
4. Steinþór, trésmiður, nú til heimilis
í Höfn á Svalbarðsströnd.
5. Sigríður, (f. 9/12 1881), kona
Hallgríms Jónssonar járnsmiðs
Akureyri. Dáin fyrir nokkrum ár-
um.
6. Laufey, f. 12/11 1881, d. 1882 úr
mislingum.)
Baldvin dvaldi síðast hjá börnum
sínum á Akureyri og andaðist þar
13/10 1907.
M. S.
'lEVERSHARP
OG ÞÉR GEFIÐ
HIÐ BEZTA/
KBKhKbKhKHKhKbkbKhkhkbkhK
Látið blómin tala!
Blóm í fjölbreyttu úrxxali
við allra hæfi
Blómabúð KEA
Góð rúmstæði
vil eg selja.
I'orvalilur, Aðalstræli 10, Akureyri.
Ungur maður
óskar að komast að senr nemi í
trésmfði.
Afgr. vfsar á.
Hér með banna eg öllum
malar- óg sandiöku í landareign
minni.
Melgerði, 25. marz 19-16.
Olafur Jóhannesson.
1 tunna af útsæði
(Gullauga) er til sölu.
Sigurður Stefánsson, Aðalstræti 17. Ak.
Brúkuð prjónavél
til söln og sýnis í Aðalstræti 1
Akureyri.
Athugið!
Lyklarnir að nýju matvæla-
hólfunum í frystihúsinu, eru
nú komnir. Leigjendur eru
vinsamlega beðnir að sækja
þá sem fyrst.
Frystihús Oddeyri