Dagur - 11.04.1946, Síða 8
8
DAGUR
Fimmtudagur 11. auríl 1946
Sextíu og fimm ára
Þann 5. apríl síðastliðinn átti
frú Guðrún Bergsdóttir, Sælu í
Skíðadal, sextíu og fimm ára af-
mæli. Guðrún er fædd í Skíðadal
árið 1881 (sá bær er nú eyði).
Móðir hennar, Ólöf Magnús-
dóttir ,er dáin fyrir löngu, en
laðir hennar, Bergur Jónsson, er
enn á lífi, og dvelzt á Hofsá hjá
syni sínum.
Guðrún dvaldist hjá foreldr-
um sínum í bernsku, en fór ung
til vandalausra. Var hún vinnu-
kona á ýmsum heimilum í Svarf-
aðardal. Árið 1917 giftist Guð-
rún Ingólfi Jóhannssyni, vönd-
uðum gáfumanni. Fyrstu hjú-
skaparárin voru Jrau hjónin í
húsmennsku, en árið 1920 flutt-
ust þau búferlum að Hólarkoti
(jrá var Jrað fremsti byggði bær-
inn í Skíðadal, en er nú í eyði).
Þar bjuggu Jrau, Guðrún og
Ingólfur, í 2 ár, en fluttust síðan
að Hnjúki. Þar dvÖldust Jrau til
vorsins 1926, en fluttust það ár
að Sælu í sama dal og hafa búið
Jrar síðan, eða í tuttugu ár.
Eins og sjá má af framan-
skráðu hefir ævi Guðrúnar ekki
verið viðburðarík. Langur og
erfiður vinnudagur og oft lítið
um hvíld. Hún hefir alla ævi
jifað í skjóli svarídælskra fjalla
og oft í mikilli nálægð við þau.
Gljúfurárkot, bær, sem nú er í
eyði, var um skeið heimili henn-
ar. Sá bær stóð á milli tveggja
áa. Heiðinnamannaá var að
norðan, en Gljúfurá að sunnan,
en hún fellur í djúpu og hrika-
legu gljúfri. í botni Gljúfur-
dalsins er fannhvítur jökull, en
há fjöll rísa báðum megin hans.
í þessu umhverfi lifði Guðrún
nokkur ár. Ekki er ólíklegt, að
hún hafi orðið fyrir nokkrum
áhrifum frá dásemdum hinnar
lifandi náttúru, sem hún hafði
svo góð skilyrði til að skynja.
En Guðrún hvarf burt úr
skugga afdalanna frá hinum ná-
læga. klið vatnanna og hlaut
harðan, en á vissan hátt, hollan
lífsreynsluskóla. Sá skóli er
byggður upp af vinnu fyrst og
fremst. Eg efast ekki um, að
Guðrún hefir unnið störf sín
trúlega, því að hún hefir til að
bera þá kosti, sem svo margt ís-
lenzkt alþýðufólk er gætt, }). e.
trúmennsku. Kynni mín af Guð-
rúnu hafa fært mér heim sann-
inn um þetta.
Bú þeirra Guðrúnar og Ing-
ólfs Jóhannessonar er og hefir
ekki verið stórt, en mjög snyrti-
legt og vel uim gengið. Eg veit að
þáttur Ingólfs hefir verið drjúg-
ur, í þá átt að skapa hið þriflega
búskaparlag, en húsfreyjan mun
þó eiga þar margan stein í vörðu.
Þau hjónin eru samanvalin til
þess starfs, sem þau stunda, og
hafa með sþynsamlegri sparsemi
tekizt að sigrast á þeim mörgu
erfiðleikum, sem sveitafólkið
þarf að stríða við, og búa þau nú
við all-sæmileg efni. Eitt af þeim
mörgu störfum, sem Guðrún
þarf að annast, er að hugsa um
hina fjörgömlu tengdamóður
sína Kristínu Gísladóttur. Krist-
ín er nú á 97. aldursári, og mun
hún vera elzta, kona í Eyjafjarð-
arsýslu. Hin síðari ár hefir lífs-
þróttur hennar mjög þorrið og
er hún nú blind orðin. Það er
mjög erfitt að hugsa um slík,
ósjálfbjarga gamalmenni, en
Guðrún hefir reynzt þessu starfi
vaxin og stundað það af sömu
trúrækni og öll önnur. Tvær
dætur eiga Jrau, Guðrún og Ing-
ólfur, Kristínu og Ingunni. Þær
eru báðar vel gefnar og efnileg-
ar. Kristín hefir stundað nám í
Kvennaskóla Akureyrar' í vetur.
Eg vil í lok þessara fáu og fátæk-
legu orða, þakka Guðrúnu hlýju
þá, sem hún hefir sýnt mér, og
óska henni alls hins bezta á
ókomnum ævidögum.
Kunningi.
Listi yfir gjafir til nauðstaddra
barrta í Mið-Evrópu. (Safnað af
Kaupfélagi Eyfirðinga).
(Niðurlag).
Ólína Gunnl. kr. 10. Pólmi Ingólfs-
son kr. 10. Hólmfríður Eysteinsdóttir
kr. 10. S. M. kr. 10. M. M. kr. 10.
Guðmundur Guðmundsson kr. 100. Ól.
Ág. kr. 500. N. N. kr. 50. Jón Sig. kr.
10. Sigurlaug og Sigrún Jónsd. kr. 50.
Alfa, Bára og Freyja kr. 65. Sigur-
björg Helgadóttir kr. 33. Skarphéðinn
Jónsson kr. 25. Indriði ísfeld kr. 20.
N. N. kr. 10. N. N. kr. 50. Þ. Bjömss.
kr. 50. N. N. kr. 100. Guðný Egils kr.
10. Bergh. Bemharðsd. kr. 25. Símon
Símonarson kr. 50. N. N. kr. 20.
Aðalsteinn Jónsson kr. 100. N. N. kr.
20. B. B. kr. 10. N. N. kr. 10. Þór
Bjamason kr. 50. Áslaug kr. 20. Ása
og Ragna kr. 50. T. K. kr. 50. Kári
Baldursson kr. 200. Jónas Stefánsson
kr. 20. Sigurlaug Ingólfs kr. 25.
Marseline kr. 50. G. J. kr. 20. S. P. kr.
25. A. A. kr. 20. Stefanía kr. 15.
Snorri Sig. kr. 20. Axel Jóhannesson
kr. 50. Ol. kr. 10. Auður Jónasdóttir
kr .20. F. Guðmundsson kr. 25. N. N.
kr. 20. Marinó Baldvinsson kr. 10.
Jóhannes Jakobsson kr. 15. Árni Jón-
asson kr. 10. Sigrún Ingimarsdóttir
kr. 10. Brynjólfur Jóhannesson kr. 15.
Birgir Valdimarsson kr. 25. Helgi
Schiöth kr. 100. Fró verkamanni kr.
100. Greta Halldórs kr. 50. Sigrún
Snjólaug Þórhallsd. kr. 10. Páll Þór
Þórhallss. kr. 10. Ólafur Sölvason kr.
30. N. N. kr. 10. Vilborg Pálsdóttir
kr. 25. Baldvin Ólafsson kr. 25. Birgir
Helgason kr. 20. Ásta Jónsd. kr. 20.
Sigurlína Eyfjörð kr. 20. Þorgeir
Halldórsson kr. 20. Jón óg Ulfar kr.
10. Guðrún og Nanna Bjarnad. kr. 40.
Kristín Sigfúsdóttir kr. 50. Jónasina
Sigurðardóttir kr. 25. Sigvaldi Sig-
valdason kr. 10. Karl Óskar Tómass.
kr. 10. Guðrún Jóhannsd. kr. 50. Frú
Larsen kr. 10. Helgi Sigvaldason kr.
Mandlige og kvindelige
Plejeelever
samt Piger til Kökken
Vaskeri og Afdelingstje-
neste kan antages. Nær-
mere Oplysninger ved
Henvendelse til Hospital-
forvalteren.
Sindssygehospitalet i Nyköbing,
Sjælland, Danmark.
Látið blómin tala!
Blóm í fjölbreyttu úrvali
við allra hcefi
Blómabúð KEA
DAGUR
fæst keyptur í
Verzl. Baldurshaga,
Bókabúð Akureyrar
Bókaverzl. Eddu og
Verzl. Hrísey
20. N. N. kr. 10. N. N. kr. 128. Pálmi
Friðriksson kr. 10. Geirþrúður Frí-
mannsd. kr. 10. Steingerður Pálmad.
kr. 10. Vilborg Pólmad. kr. 10. S. S.
kr. 25. Veturliði Sigurðsson kr. 100.
Jóhanna Sigurðar kr. 50. Jón, Siggi,
Ransi kr. 75. Þrjú systkini kr. 20.
Þórður Aðalsteinsson kr. 100. Björg
Ólafsdóttir kr. 20. Ræsa og Sigrún kr.
20. Finnur Eydal kr. 10. Guðrún
Dóra kr. 20. G. J. Ó. kr. 50.
Hvað koslar dilkakjötið?
í búðinni:
pr. kg.
í 1/1 kroppum 9.80
Súpukjöt .... 10.85
Læri.......... 12.00
Kótelettur .... 13.00
K^rbonade . . , 12.50
Sendum heim!
Eftir niðurgreiðslu
kostar dilkakjötið:
pr. kg.
í 1/1 kroppum 5.45
Súpukjöt .... 6.50
Læri.......... . 7.65
Kótelettur .... 8.65
Karbonade ... 8.15
Kjötbúð KEA
Jafnvel húsbóndinn
er liðtækur við matreiðsluna,
þegar þér notið
Gula bandið og Flóru!
Gula bandið steikir bezt — brúnar bezt