Dagur - 17.04.1946, Qupperneq 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 17. apríl 1946
Stjórnaraðstaðan íer fram á að stjórn-
arandsfaðan hjálpi sér fil að vinna
kosningasigur
Fyrir bæjarstjórnarkosning'-
arnar í vetur fóru fram útvarps-
nmræður um kosninguna í
Reykjavík. Stjórnarflokkarnir
þrír sóttust þar á af miklum á-
kafa og spöruðu ekki skammir
og svívirðingar hver í annars
garð. Eitt kom þó fulltrúum
þessara flokka saman um: Það
var botnlaus fjarstæða og
heimska að láta sér detta í hug,
að Framsóknarflokkurinn kæmi
nokkrum manni að við kosnins:-
una. Fylgi flokksins væri svo
nauðalítið, að það væri langt fyr-
ir neðan þau takmörk, sem til
þess þyrfti að fá einn mann kos-
inn í bæjarstjórnina.
Ful Itrúar stjórnarflokkanna
við útvarpsumræður þessar
kepptust hver við annan um að
iýsa yfir því með hinum sterk-
ustu orðum, að öll þau atkvæði,
sem féllu á lista Framsóknar-
rnanna, hlytu að verða ónýt af
fyrrgreindunr ástæðum.
Allir vita, hvernig þessir spá-
dómar stjórnarsinna reyndust.
Framsóknarmenn í Reykjavík
létu óp andstæðinganna eins og
vind um eyrun þjóta, kusu iista
sinn og sigruðu. Atkvæði þeirra
urðu ekki ónýt, eins og stjórnar-
sinnar höfðu staðhæft.
Við kosningaundirbúrtinginn
hér á Akureyri lét eitt af full-
trúaefnum Alþýðuflokksins sér
þau orð um munn fara á fjöl-
mennum fundi, að innan viku
yrði flokkur sinn kominn í
hreinan meirihluta í bæjarstjórn
Akureyrar, en til þess þurfti
hann að fá minnst 6 fulltrúa
kosna. Þeir urðu nú að vísu að-
eins tveir.
Þetta sýnir, hve mikið mark
er takandi á orðaskvaldri stjórn-
arsinna á undan kosningum.
í ,,Alþýðumanninum“, er út
kom 9. þ. m., er því spáð að svo
kunni að fara, að Alþýðuflokk-
urinn vinni þingsætið á Akur-
eyri í alþnigiskosningunum í
sumar. Reyndar lætur blaðið í
Jrað skína, að Alþýðuflokkurinn
liafi ekki atkvæðamagn til að
vinna þenna sigur, en þá sé ekki
annað en fá svo sem helminginn
af atkvæðamagni Framsóknar-
flokksins í lið með sér, þá sé spil-
ið unnið! Og blaðinu finnst
þetta mjög sanngjörn og eðlileg
krafa, því að Framsóknarflokk-
urinn komi hvort sem er ekki
sínum frambjóðanda á Jring, og
Jrá sé honum útlátalaust að lána
Alþýðuflokknum þessi atkvæði,
ella verði þau ónýt.
Það er ástæðulaust að fjölyrða
um spádóma Alþm. um úrslit
kosninganna í sumar og ónýt at-
kvæði Framsóknarmanna. Alþm.
hefir hingað til ekki reynzt
þeirri spádómsgáfu gæddur, að
ástæða sé til að taka mark á
henni. Og ekki reyndist spá-
dómsgáfan haldbetri í Reykja-
vík, þó að allir stjórnarflokkarn-
ir legðu þar vit sitt saman. Við,
Framsóknarmenn, erum Jrví
staðráðnir í að liafa spádóma
þeirra og fullyrðingar að engu.
En hvernig ætlar svo Alþýðu-
flokkurinn að haga sér gagnvart
ónýtum atkvæðum sínum? Lík-
lega liefur flokkurinn eitthvert
strjálingsfylgi í flestum kjör-
dæmum landsins, en enga vön
^ um að vinna þar þingsæti að
undanskildum tveimur eða
þremur kaupstaðakjördæmum.
Hvernig ætlar Alþfl. að ráðstafa
þessum ,,ónýtu“ atkvæðum sín-
um að lians eigin dómi? Ætlar
hann að færa þau yfir á einhvern
hinna flokkanna, svo að þau
verði ekki áhrifalaus, komi að
einhverju gagni? Alþm. ætti að
gear grein fyrir þessu.
Það er ógnar auðvelt að snúa
málaleitun Alþm. að honum
sjálfum eða flokki hans. Þá lítur
málið þannig úút:
Alþýðuflokkurinn hefir enga
von um að vinna þingsæti á Ak-
ureyri. Atkvæði hans verða því
ónýt. Þess vegna á hann að færa
þau yfir á frambjóðanda Fram-
sóknarflokksins, svo að þau komi
að notum.
Þetta er rökfærsla Alþm. og
ætti blaðinu ekki að vera á rnóti
skapi, að Framsóknarmenn haldi
iienni á lofti og beiti henni fyrir
sig, ef það hefir nokkra trú á
henni sjálft.
Það er líka aðgætandi ,að
Framsóknarflbkkurinn á Akur-
eyri er stærri en Alþýðuflokkur-
inn Jrar. Það er sjaldgæft í stjórn-
málalífi okkar, að stærri aðili
fórni sér fyrir þann minni. Það
eru ekki allir eins fórnfúsir og
Ólafur Thors og aðrir ráðamenn
Sjálfstæðisflokksins, þegar
kommúnistar eiga í hliit! (Sbr.
kosningu í bankaráð).
Þó er nresta undrið ónefnt enn.
Stjórnaraðstaðali fer fram á,
að stjórnarandstæðingar hjálpi
sér til að vinna kosingasigur.
F.r líklegt, að stjórnarandstað-
an verði við þessari hjálparbeiðni
,,Alþýðumannsins“ eftir allt, sem
á undan er gengið, og eftir það
að foringjar Alþýðuflpkksins
lrafa verið í pólitiskum faðmlög-
um við stríðsgróðavaldið og
þjóna erlendu stórveldi í hálft
annað ár?
Gamalt máltæki segir: Segðu
mér hverja þú umgengst, og ég
skal segja þér, liver þú ert.
Veit ekki Alþm., að stefna nú-
verandi stjórnar er orðin illræmd
og vekur mengt ógeð, ekki að-
eins meðal allra Framsóknar-
manna í landinu, heldur og í
hugum fjölmargra annarra, ekki
sízt Alþýðuflokksmanna? Stjórn-
arandstæðingum fer því stöðugt
fjölgandi. Þetta er að vonum, því
að menn þola ekki til lengdar
svik á svik ofan. En Jrað er engu
líkara en stjórnin hafi verið að
leika sér að því að bregðast flest-
um sínum loforðum allan þann
tíma, er hún hefir setið að völd-
um.
Stjórnfn lofaði að nýskapa at-
vinnuvegina. Landsamband út-
vegsmanna hefir lýst því opin-
berlega yfir, að hagur útgerðar-
innar hafi sífellt farið hnignandi
síðari 1942. Sömu söguna er að
segja frá landbúnaðinum og iðn-
aðinum.
Stjórnin lofaði vinnufriði og
bættum kjörum til handa verka-
mönnum. Vinnudeilur og kaup-
‘kröfur hafa aldrei verið magn-
aðri en síðan, og verkamenn liafa
lýst Jrví yfir, að aldrei hafi verið
erfiðara fyrir þá að lifa en nú,
því að dýrtíðar- og verðbólgu-
stefna stjórnarinnar og flokka
hennar éti upp allar kjarabætur
og meira til.
Þegar svo Framsóknarmenn
á yfirstandandi þingi bera fram
tillögu um að nefnd verði skip-
uð til Jress að athuga um niður-
færslu dýrtíðarinnar, Jrá er sú til-
laga drepin af stjórnarflokkun-
um. Það má ekki einu sinni at-
huga Jretta.
Stjórnin lofaði að bæta vinnu-
brögð þingsins og rétta við virð-
ingu Jress. Aldrei liefir fyr ríkt
annað eins sleifarlag og fornstu-
leysi á Alþingi og einmitt nú.
Kemur Jretta en nr. a. fram í Jrví,
að þinginu 1945 en enn ekki lok-
ið. Málin ljúkast oft ekki vegna
slóðaháttar stjórnarliðsins um að
sækja þingfundi, svo að atkvæða-
greiðslur geta ekki farið fram.
Þegar að Jressu er fundið af Franr-
sóknarmönnum, afsakar Jón
Pálmason forseti það nreð því, að
stjórnarflokkarnir séu svo kvef-
aðii!
Stjórnarforustan lofaði, að
stríðsgróðinn skyldi verða sóttur
inn í ,,rottuholurnar“ og honunr
varið til nýsköpunar. Þetta hefir
verið efnt á þá leið, að stjórnar-
liðið hefir hlaðið múrvegg um
stríðsgróðann.
Stjórnarflokkarnir lofuðu því
og lögðu þar við drengskap sinn,
að frumvarp að nýrri stjórnar-
skrá skyldi lagt fyrir Jringið 1945,
sem nú er að ljúka störfum á vor-
dögum 1946. Þetta loforð hafa
stjórnarflokkarnir svikið svo
greinilega, að nýlega hefir því að
gefnu tilefni verið yfirlýst, að
málið steinsvæfii. Nú hefir Her-
mann Jónasson reynt að vekja
jjað af svefni, en ef dæma má elt-
ir ummælum Mbl. mun það
reynast miklum erfiðleikum
bundið.
Herstöðvamálið er orðið að
hneýkslismáli í augum flestallra
landsmanna fyrir atbeina ríkis-
stjórnarinnar.
Þrátt fyrir allt þetta óg margt
fleira af svipnðn tagi, gerir Aljrm
ráð fyrir, að svo og svo margir
Framsóknarmenn á Akureyri
gangi í þjónustu stjórnarliðsins í
næstu kosningum. Það er bezt að
Alþm. viti Jrað strax að af þessu
getur ekki orðið. A meðan for-
ustumenn Alþýðuflokksins una
sér í flatsænginni hjá stríðsgróða-
valdinu og kommúnistum, þurfa
þeir einskis stuðnings að vænta
frá Framsóknarmönnum og það
engu fremur, þó að ritarar Al-
þýðum. skammi Rósberg skinn-
ið. Á meðan. skriffinnar Alþýðu-
flokksins vega kommúnista með
orðum einum, en sýna ekki and-
úð sína og andspyrnu á virkan
hátt, ])á verður sá vopnaburður
ekki tekinn alvarlega. Hitt væri
ráð, að forusta Alþýðufl. athugi
sína eigin jörð, að hún villist
ekki út af stjórnarlínunni, því að
Maðurinn, sem vill verða forseti
Líklegt er, að naln Harold E. Stassen verði oft nefnt í fréttum
áður en langt um líður. Þetta er hár og spengilegur Bandaríkja-
maður, bláéygur og glaðlegúr í viðmóti. Hann er nú nýlega kom-
inn heirn eftir langa Jjjónustu í flotanum og helur tekið til við
stjórnmálin, Jiar sem frá var horfið.
Fyrir átta árum var mikið talað um „undradrenginn Irá Minne-
sota“. Þá var hann kjörinn fylkisstjóri þar og hlaut mesta fylgi, sem
um getur í sögu fylkisins í slíkum kosningum. Nú er hann 39 ára
að aldri og talinn líklegasti maðurinn til þess að verða næsti forseti
Bandaríkjanna.
Tvö ár eru ennjrá til næstu forsetakosninga, en þessi ungi bónda-
sonur er þegar tekinn að vinna að |)vi, að fá útnefningu Repúblik-
anaflokksins til þess að verða í kjöri. Hann telur sér vissan stuðn-
ing mikils hluta yngri kynslóðarinnar, m. a. af Jrví, að hann er eini
hermaðurinn, sem til greina kemur.
Stassen er uppalinn í sveit og hann Jrekkir landbúnaðinn í mið-
vesturríkjunum eins vel og Trurnan. Báðir hafa brotizt áfram
úr umkomuleysi og fátækt. ^tassen Joekkir hlutverk erfiðismanns-
ins. Hann vann algeng sveitastörf á unga aldri, síðan vann hann í
brauðgerð, afgreiddi í búð og stjórnaði járnbrautarlest. En hann
áflaði sér menntunar, þrátt fyrir erfiðar aðstæður, og lauk háskóla-
prófi. Tuttugu og þriggja ára gamall varð hann opinber ákærandi
í fylkinu og vann mikið starf við að hreinsa til í opinberum fyrir-
tækjurn og stofnunum. Ýmsir höfðu komið auga á hann þegar árið
1940, er Wendell Willkie var tefl't fram gegn Roosevelt. En þá
var Stassen of ungur. Nú situr hann að pólitískum arfi Willkies.
Stassen hefur alla tíð verið andvígur einangrunarsinnum og
hann trúir á ldutverk hins nýja þjóðabandalags. Hann vann sér
álit á San Fransisco ráðstefnunni, en hann fékk |)á orlof úr her-
þjónustu til þess að mæta þar sem fulltrúi. Hann er einarður og
einlægur og hefur góðan skilning á þeim vandamálum, sem nú eru
efst á baugi í skiptum þjóðanna.
Hann er frábrugðinn ýmsum löndum sínum að þvx leyti, að
hann talar ekki um máíin, nema hann hafi kynnt sér þau rækilega
fyrst. Nii er hann á ferð um Bandaríkin til Jxess að kynna sér ástand
og horfur, eftiv langa fjarveru. Aðalmarkmið hans nú, er að úti-
loka einangrunarstefnuna úr Repúblikanaflokknum.
Hann skipuleggur félög flokksmanna, þar sem rætt er um ástand
og framtíðarhorfur og liann vinnur að því, að flokkurinn gefi út
fræðandi bæklinga um liorfur í aljxjóðamálum og nauðsyn þess,
að Bandaríkin fylgi fast frarn sáttmála Sameinðu þjóðanna. Á
þennan hátt hyggst hann láta flokksmennina sjálfa skapa stefnu
flokksins. Hann v.ill hverfa frá þeirri skipan, að nokkrir flokks-
foringjar leggi jxar línurnar. Ef lxann sigrar, verður Jretta gjör-
bi'eyting á starfsháttum flokksins.
Stassen er að vinna sér fylgi til þess að verða í kjöri við forseta-
kosningarnar. Horfur eru á að honum muni takast það. Hans
verður áreiðanlega getið æ oftar í fréttum blaða og útvarps á Hsestu
mánuðum.
Maðurinn, sem er að draga sig til
baka úr sfjórnmálunum
Horfur eru á því, að hlutskipti Churchills, í stjórnmálunum,
verði alveg öfugt við Stassen. Hans mun veiða getið æ sjaldnar í
daglegum fréttum. Ýmsir hyggja ,að hann ætli nú að draga sig til
baka úr stjórnmálabaráttunni heima fyrir.
Meðan Churchill var í Bandaríkjunum átti hann til við ýmsa
stjórnmálaleiðtoga’, þ. á. m. Stassen, og ýmsumskildist.aðhinnaldni
skörungur ætli nú hverfa frá þingstörfum að mestu leyti. Ætlun
lrans er að skrásetja minningar sínar og skoðanir um aðdi'aganda
heimsstyrjaldarinnar, sögur hennar og endalok. Líklega gerir hann
meira en skrásetja þær. í Ameríku keypti Ghurchill talupptöku-
tæki í því augnamiði, að flytja minningar sínar í ræðuformi. —
I-íeyrzt hefir að ætlunin sé, að jafnframt því, sem bækur hans komi
út, verði einnig hægt að fá þær keyptar á grammófónplötum, þár
sem hann sjálfur flytur textann. Marga Inun fýsa að gera hvorl
tveggja, lesa og hlusta. Churchill verður ekki á flæðiskeri staddur
f járhagslega, þegar þessar fyrirætlanir eru orðnar að veruleika.
(Að niest ueftir Daily Herald, London).
víst er úm það, að margir eru
Jxar óánægðir.
Við þurfum að fá ríkisstjórn
og ráðandi vald á Aljxingi, sem
miðar störf sín og stefnu við ís-
lenzka Jxjóðarhagsmuni, en starf-
ar ekki í þjónustu stórgróða-
manna eða rússneskra stórveldis-
drauma. Að því eiga allir ærleg-
ir drengir að vinna, í hvaða
flokki sem þeir eru.
Framsóknarmaður.
Bíla-viðtæki,
(Buick) lítið notað, til sölu. —
Afgr. vísar á.
Kaupum háu verði:
Velprjónaða skíðaleista. —
Tökum einnig næstu daga
unglinga- og barnaleista.
Prjónstofa
Ásgríms Stefánssonar