Dagur - 26.09.1946, Qupperneq 1
10 SÍÐUR
„Pólitisk nauðsyn44 réði
staðsetningu lýsis-
herzlustöðvarinnar
Nefnd sú, er atvinnumála-
ráðherra skipaði til þess að
ákveða stað fyrir væntanlega
týsisherzluverksmiðju, hefir
nú lagt til, að verksmiðjan
verði reist í Siglufirði, og hef-
ir atvinnumálaráðherra ákveð-
ið staðinn samkvæmt þessari
tillögu. Engin skýrsla um að-
draganda þessarar niðurstöðu,
hefir verið birt, en allar líkur
benda til, að það hafi verið
pólitísk n'auðsyn fyrir ráðherr-
ann og kommúnistalflokkinn,
að velja verksmiðjunni stað í
Siglufirði, og hafi það ráðið
úrslitum. Heyrzt hefir t. d,, að
nefndin geri ráð fyrir þeim
möguleika, að nauðsynlegt
reynist, að leiða rafmagn frá
Laxárvirkjun til Siglufjarðar,
til þess að tryggja verksmiðj-
unni nægilega rafmagnsorku.
Þá er og sennilegt, að búa
þurfi til land fyrir verksmiðj-
una í Siglufirði og mun það
kosta mikið fé. Fleiri atriði
benda til þess, að þessi ákvörð-
un atvinnumálaráðherra um
itaðsetningu verksmiðjunnar,
ié í fyllsta máta vafasöm, frá
þjóðhagslegu sjónarmiði.
Uppkastið
að s'amningi við Bandaríkin.
er birt í heild sinni á 5. bls.
„Hvassaf elF4 kemur
á morgun
Hið nýja skip Sís, „Hvassafell“,
er væntanlegt hingað á morgun.
Skipið varð síðbúnara frá Fal-
mouth í Englandi, en ráðgert
hafði verið.. Eins og skýrt var fiá
í síðasta blaði, var ætlast til að
það legði af stað þaðan fyrra mið-
vikudag, en brottförin dróst til
sl. laugardags.
Skipskoman mun vekja mikla
athygli hér og víða um land.
Handsamaði tófu
í göngum!
Göngur áttu að verða í Svarfað-
ardal sl. nránudag, en var frestað
til þriðjudags, vegna illviðra. —
Snjór var mjög mikill á fjöllun-
um og færi erfitt. Það bar til tíð-
inda á þriðjudaginn, er Hjörtur
Eldjárn frá Tjörn gekk fjallið of-
an við Sveinsstaði í Skíðadal, að
hann sá tófu skammt frá. Sigaði
hann þegar hundi sínum á tóf-
una og sló þá í bardaga þeirra í
milli. Hjörtur hraðaði sér þang-
að, sem viðureignin stóð, og brátt
hafði hann náð tófunni bráðlif-
andi og ómeiddri í jakka sinn.
Bara hann hana síðan til byggða
og hafði til sýnis í réttunum, við
almennan fögnuð gangnamanna.
Refur þessi var stór og föngu-
legur, og í alla staði hinn falleg-
asti.
GUR
XXIX. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 26. september 1946.
45. tbl.
Kommúnistar opinbera starfaðferðir sínar:
Efna til óspekta og æsingar berjasf gegn tilbúnu fherstöðva-
Epli í garði á Akureyri
Ljósmynd: E. Sigurgeirsson.
Myndin er af fullþroskuöum eplum í garði hér í bænuml Ótrúlegt
en satt. Jónas Þór, verksmiðjustjóri, gróðursetti fyrir 10 árum
nokkur eplatré út við Gefjuni, en vorið 1945 flutti harm þau heim
i garð sinn. Tréð hér áð ofan bar ávöxt í fyrsta sinn í sumar. Eplin
eru falleg og nú um það bil fullþroskuð.
Stórviðri geisaði hér
um helgina
Skriðuföll valda stórtjóni í Höfðahverfi
Fólk flýði fjóra bæi síðastliðið sunnudagskvöld
Norðan stormur með aftaka
rigningu geisaði hér um sl. helgi.
Urðu víða skemmdir í kjöllurum
hér í bænum af völdum vatns-
rennslis og sumar götur allt að
því ófærar. Skriður féllu úr höfð-
anum ofan við Aðalstræti 70, allt
fram á götu, sömuleiðis féll
skriða úr höfðanum, sem kirkjan
stendur á, allt fram á götu, gegnt
Verzl. Eyjafjörður. Ekki varð til-
finnanlegt tjón af þessumsökum.
Lækir allir voru í miklum
vexti og varð þjóðvegurinn yfir
Vaðlaheiði ófær á sunnudaginn,
neðan við Leifsstaði. Þá féll
skriða úr fjallinu milli Bjarga og
Möðruvalla í Hörgárdal og inn
á túnið á Möðruvöllum skammt
frá Nunnuhóli. Munu nokkrar
skemmdir hafa orðið á túninu.
Einnig urðu skemmdir á tún-
inu í Vatnsenda í Eyjafirði.
í Ólafsfirði var aftaka brim,
en hafnarmannvirki Ólafsfirð-
inga urðu þó ekki fyrir neinum
skemmdum. Reyndist hafnar-
garðurinn nægilega traustur. Á
Kleifum munu hafa orðið tals-
verðar skemmdir á heyjum.
málí
Meirihluti þjóðarinnar
vill semja við Bandaríkin,
en án réttindaafsals
Framkoma utanríkisráð-
herrans hefur torveldað
lausn málsins
Konungkjörnir
kenna sláturmeðferð!
Óveðrið, sem hér geysaði um
sl. helgi, olli stórtjóni á nokkrum
bæjum í Höfðalrverfi, einkum í
Dalsmynni. Féllu miklar skriður
úr fjöllunum háðum megin
Fnjóskár, eyðilögðu tún og engi
og sópuðu burtu skógi á stóru
svæði. Á ströndinni innan við
Laufás varð einnig mikið tjón á
nýja akveginum og í Fagrabæ.
Aðalskemmdirnar hafa orðið í
Litlagerði, Miðgerði og Árttini.
Fólk af þessum bæjum og Páls-
gerði flýði til Laufáss og Lórna1
tjarnar í aftakaveðrinu á sunnu-
dagskvöldið. Skriða féll á nýbýl-
ið Ártún og eyðilagði 1 /3 af
landi býlisins, en túnið sjálft
slapp að mestu leyti. í Litlagerði
eyðilagðist mest allt túnið, nema
hóll í kringum íbúðarhúsið. Er
jörðin talin óbyggileg. Á Mið-
gerði féllu tvær skriður, önnur
olli talsverðum skemmdum á
túriinu, en hin sópaði burtu raf-
stöð. Skriða féll einnig á nýrækt
í Pálsgerðislandi og stórskemmdi
hana.
Vestan Fnjóskár, í Dalsmynni,
féllu skriður á svonefndan Gæsa-
skóg, sem var fallegur og þrótt-
mikill, og eyðilögðu hann að
mestu.
Vegurinn urn Dalsmynni er
víða á kafi og ófær með öllu. Inn-
(Framhald á 8. síðu).'
Hin „konungkjörna" verðlags-
nefnd landbúnaðarafurða hefir
látið boð út ganga til sláturleyfis-
hafa, þess efnis, að þeir skuli
hirða slátur og bendir í því sam-
bandi á að hægt sé að geyma þau
fryst! Jafnframt lætur nefndin
þess getið, að hún muni senda
þeim leiðbeiningar um slátur-
meðferð.
Þessi tíðindi voru birt öllum
(Framhald á 8. síSu).
Adolf Busch og Rudolf Serkin halda
hljómleika hér í næstu viku
Þeir munu leika klassisk tónverk í Nýja Bíó
Hinir heimslfrægu hljómlistarmenn, Adolf Busch fiðluleik-
ari og Rudoll’ Serkin píanóleikari, komu hingað til lands í sl.
viku og ltafa þeir haldið nokkra hljómleika í ReykjaVík. Hafa
þeir leikið sónötur Beethovens og fleiri klassisk verk. Fyrir at-
beina Tónlistarfélags Akureyrar munu þeir koma hingað
norður um miðja næstu viku og halda hér eina hljómleika. —
Gekk formaður Tónlistarfé-
lagsins frá samningum þar að
lútandi í sl. viku. Tónlistarfélag-
ið greiðir listamönnununr vissa
fjárupphæð fyrir komuna og
kostar ferð þeirra og uppihald. í
förinni norður verður einnig
kona Serkins, en hún er dóttir
Busch, og Björn Ólafsson, fiðlu-
leikari.
Listamennirnir hafa hér aðeins
eina hljómleika, í Nýja-Bíó, en
ekki er fullráðið hvaða daga í
(Framhald á 8. síðu).
Alþingi vai’ kvatt saman til
funda sl. fimmtudag. Ekkert var
látið uj)]jskátt um ástæðuna, en í
ljós kom, iið þinginu var ekki
ætlað að Ifjalla um hin torleystu
fjárhags- og viðskiptamál, sem
komin eru í sjálfheldu undir
handleiðslu stjórnarinnar, held-
ur um samningsuppkást, er Ól-
afur Thors forsætis- og utanríkis-
ráðherra hafði upp á eigin spýt-
ur fjallað um við sendiherTa
Bandaríkjastjórnar um niðurfell-
ing herverndarsáttmálans frá
1941, afhendingu Keflavíkur-
flugvallarins o. fl. Var samnings-
uppkast þetta lagt fyrir Samein-
að Alþingi, þegar er þing kom
saman.
Jafnskjótt og opinbert varð
um mál þetta, hófu kommúnist-
ar á ný að kyrja sönginn um
„herstöðvar" og „réttindaafsal“,
sent hæst lét fyrir sumarkosning-
arnar og er ennþá ekkert lát á
æsingunt og fundahöldum á
þeirra vegunt í tilefni samnings-
uppkastsins, en Alþingi hefir
ennþá ekki afgreitt málið. Meðal
annars stofnuðu kommúnistar til
götuóspekta í Reykjavík sl.
sunnudag og gerðu sig líklega til
þess að beita líkamlegu ofbeldi
við forsætisráðherrann og borg-
arstjórann í Reykjavík, sem urðu
að forða sér út um bakdyr, með
aðstoð lögreglunnar. — Mælist
þessi skrílslega framkoma komm-
únista hvarvetna illa fyrir. Þá eru
öll þau óp og háreysti, sem þeir
viðhafa í sambandi við málið,
stjórnarflokki lítt til sóma, því að
„herstöðvar" þær, er þeir saka
aðra landsmenn um að vilja láta
Bandaríkjamönnum í té, eru
hvergi til nerna í heilabúum
þeirra sjálfra. Hitt er augljóst, að
kommúnistar hafa þarna fengið
kærkomið tækifæri til þess að
framfylgja gildandi línu frá
Moskvu, um að ala á tortryggni
og fjandskap í garð lýðræðisþjóð-
anna og svífast þeir nú einskis í
blekkingum og áróðri til þess að
gróðursetja slíkt hugarfar hjá ís-
lendingum.
(Framh. á 8. síðu.)