Dagur - 26.09.1946, Síða 5
Fimmtudagur 26. september 1946
D A G U R
5
Samningurinn sem deilt er um
Erindi sendiherra Bandaríkjanna til 01-
afs Thors, utanríkisráðherra, um brottf ör
herliðsins, afhendingu Keflavíkurflug-
vallarins og lendingarréttindi fyrir
flugvélar Bandaríkjanna
Hél' fer á eftir Ol'ðrétt er- samnings þessa mun hún smátt
1 og smátt flytja á brott allt annað
jherlið og sjólið Bandaríkjanna,
sem nú er á íslandi.
Flugförum þeim, sem rekin
indi ameríska sendiherrans
í Reykjavík til OlafsThors,
forsætis- og utanríkisráð-
herra, dags. 19. þ. m., þar
sem sencliherrann leggur
til Bandarikin Og ísiand j framkvæmd þeinar skyldu, er
geri rneð sér samnrng um j Bandaríkin hafa tekizt á hendur,
afhendingu Keflavíkurflug að hafa á hendi herstjórn og eft-
vallarins, brottför setuliðs-1irlit 1 Þýzkalandi, skulu áfram
ins og lendingarréttindi
eru af
hennar
Bandaríkjastjórn eða á
í sambandi við
amerískra flugvéla. Ólafur
Thors flytur í sameinuðu
Alþingi þingsályktunartil-
lögu þess efnis, að ríkis-
stjórn íslands sé heimilt að
gera samning við Bandarík-
in, samhljóða þessu erindi.
Nánar er rætt um þessi mál
annars staðar í blaðinu.
Herra forsætis- og utanríkis-
ráðherra.
Árið 1941 fól ríkisstjórn ís-
lands Bandaríkjunum hervernd
landsins. Sú hætta, sem þá steðj-
aði að íslandi og meginlandi
Ameríku, er 'nú hjá liðin með
hernaðaruppgjöf möndulveld-
anna. En þó eru enn við lýði
skuldbindingar sem styrjöldin
hafði í för með sér.
Með tilliti til breyttra aðstæðna
og samkvæmt viðræðum, sem ný-
lega hafa fram farið milli yðar
liæstvirti ráðherra, og fulltrúa
minnar eigin ríkisstjómar, leyfi
og mér að leggja til að svohljóð-
andi samningur verði gerður
milli ríkisstjórnar Bandaríkj-
anna og ríkisstjórnar íslands:
1. Ríkisstjórn Bandaríkjanna
og ríkisstjórn íslands fallast á að
herverndarsamningurinn, sem
gerður var 1. júlí 1941, skuli nið-
ur falla, og falli hann úr gildi
með gildistöku samni’ngs þessa.
2. Flugvallarhverfið við Kefla-
vík og flugvellirnir, sem hér eftir
nefnast flugvöllurinn, ásamt öll-
um óhreyfanlegum mannvirkj-
um, er Bandaríkin hafa reist þar
og talin verða upp í sameigin-
legri skrá, er bandarísk og ís-
lenzk yfirvöld skulu gera sam-
tímis afhendingu flugvallarins,
skulu afhent íslenzku stjórninni.
Skal flugvöllurinn þá verða ský-
laus eign íslenzka ríkisins, sam-
kvæmt þeim skuldbindingum, er
Bandaríkin hafa áður tekizt á
hendur þar að lútandi.
3. Umferðaréttindi og réttindi
til lendingar og nauðsynlegrar
viðdvalar skal veita flugförum,
öðrum en hervélum, allra þjóða
er fá slík réttindi hjá ríkisstjórn
íslands.
' 4. Stjórn Bandaríkjanna mun
svo fljótt sem auðið er flytja á
brott það herlið og sjólið Banda-
ríkjanna, sem nú er í Reykjavík,
og innan 180 daga frá gildistöku
afnot af Keflavíkurflug-
skal
heimil
vellinum. í þessu skýni
stjórn Bandaríkjanna heimilt að
halda uppi á eigin kostnað, bein-
línis eða á sína ábyrgð, þeirri
heimilt að flytja af flugvellinum
öll hreyfanleg mannvirki og út-
búnað, sem þau eða umboðs-
menn Jreirra hafa látið gera eða
lagt til eftir gildistöku samnings
þessa, nema svo semjist að ríkis-
stjórn íslands kaupi mannvirki
þessi eða útbúnað.
12. Samningur þessi skal gilda
á meðan á stjórn Bandaríkjanna
hvílir sú skuldbinding að halda
uppi herstjórn og eftirliti í
Þýzkalandi; þó má hvor stjórnin
um sig hvenær sem er, eftir að
fimm ár eru liðin frá gildistöku
samnings þessa, fara fram á end-
urskoðun hans. Skulu Jrá stjórn-
irnar hefja viðræður svo fljótt
sem auðið er. Leiði slíkar \ iðr,- ð-
ur til samkomulags innan sex
mánaða frá því að fyrst l,om
beiðni um endurskoðun. er
hvcrri stjórninni um sig he.imilt
hvenær sem er að þeim tíma liðn-
um, að tilkynna skriflega Jrá fyr-
irætlun sína að segja upp sarnn-
starfsemi, sem þeim tækjum og mgnum. Skal samningurinn þá
því starfsliði, sem nauðsynlegt
kann að vera til slíkra afnota.
Taka skal sérstakt tillit til sér-
stöðu slíkra flugfara og áhafna
þeirra, hvað snertir tolla, land-
vistarleyfi og önnur formsatriði.
Engin lendingargjöld skal greiða
af slíkum flugförum.
6. í sambandi við rekstur flug-
vallarins munu Bandaríkin, að
svo miklu leyti sem kringum-
stæður leyfa, þjálfa íslenzka
starfsmenn í tækni flugvallar-
rekstrar, svo að ísland geti í vax-
andi mæli tekið að sér rekstur
flugvallarins að svo miklu leyti
sem frekast er unnt.
7. Stjórnir Bandaríkjanna og
íslands skulu í samráði setja
reglugerðir um rekstur, öryggi
og önnur mál, er varða afnot
allra flugfara af flugvellinum.
Slík ákvæði raska þó ekki úrslita-
yfirráðum ríkisstjórnar íslands,
hvað umráð og rekstur flugvall-
arins snertir.
8. Stjórnir Bandaríkjanna og
Islands koma sér saman um
grundvöll, er báðar geta við un-
að, að sanngjarnri skiptingu sín
á milli á kostnaði þeim, er af við-
haldi og rekstri flugvallarins
stafar, þó þannig að hvorugri rík-
isstjórninni skuli skylt að leggja
í nokkurn þann kostnað af við^
haldi eða rekstri flugvallarins,
sem hún telur sér ekki nauðsyn-
legan vegna eigin þarfa.
9. Eigi skal leggja neina tolla
eða önnur' gjöld á efni Jrað, út-
búnað, nauðsynjar eða vörur,
sem inn er flutt til afnota fyrir
stjórn Bandaríkjanna eða um-
boðsmenn hennar samkvæmt
þessum samningi eða til afnota
fyrir starfslið Jxið, sem dvelur á
íslandi vegna starfa, er leiðir af
framkvæmd samnings þessa. Út-
flutningsgjald skal heldur eigi
krefjast af útflutningi téðra vara.
10. Eigi skal leggja tekjuskatt
á þær tekjur þess starfsliðs
Bandaríkjanna, sem á íslandi
dvelur við störf er leiðir af fram-
kvæmd samnings þessa, er koma
frá aðiljum utan íslands.
11. Þegar samningi þessum
lýkur skal stjórn Bandaríkjanna
falla úr gildi tólf mánuðum eftir
dagsetningu slíkrar uppsagnar.
Ef ríkisstjórn íslands skvldi
vilja fallast á þær tillögur, sem
settar eru fram hér að framan,
bið eg yður, herra ráðherra, að
senda mér staðfestingu á því í er-
indi, sem ásamt þessu erindi
verður þá samningur beggja rík-
isstjórnanna um þessi efni.
(19/9. 1946).
HSSKBKBKHKHKBKBKBKBKBKBKBKBKHKBKHKBKBKHKBKhKBKBKBKHKH*
INNILEGAR hjartans þakkir iærum við hjónirt öllum
ættingjum og vinum, nær og fjær, sem glöddu okkur á silí-
urbrúðkaupsdegi okkar, 17. þ. m., með heimsóknum, blóm-
um, heillaskeytum og höíðinglegum gjöíum.
Guð blessi ykkur öll.
SIGURBJÖRG PÉTURSDÓTTIR,
PÉTUR B. JÓNSSON,
Gleráreyri 2, Akureyri.
^wKBKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKBKHKHKHKBKHKBKHK
Sextugur:
Þorsteinn Thorlacius
kaupmaður
Síðastliðinn mánudag varð
einn af mætustu borgurum bæj
arins, Þorsteinn Thorlacius,
kaupm., sextugur að aldri. Þor-
steinn er fæddur að Hólum í
Eyjafirði, sonur merkishjónanna
Þórarins Jónassonar og Ólafar
Þorsteinsdóttur, 'hreppstjóra í
Oxnafelli Einarssonar, prests í
Saurbæ Thorlacius. Er Þorsteinn
því albróðir Jónasar Þór verk
smiðjustjóra, Vilhjálms Þór for
stjóra og þeirra systkina.
Þorsteinn nam ungur prent
araiðn og stundaði Jíau störf hér
í bænum og í Reykjavík árin
1906—1917, en þá gerðist hann
skrifstofumaður hjá Klæðaverk
smiðjunni Gefjun, unz hann
keypti bókaverzlun Þorsteins M.
Jónssonar árið 1935 og hana hef-
ir hann starfrækt síðan, undir
eigin nafni.
Þorsteinn tók mikinn þátt
ýmsum félagsmálum bæjarins
yngri árum, var meðal annars
einn af stofnendur Skákfélags
Akureyrar og söngfélagsins Geys
is. Hann var ritstj. íslenzks skák
blaðs um hríð og tók á þeim ár
um Jrátt í mörgum kappteflum
Bókaverzlun sína hefir Þorsteinn
rekið af miklum myndarskap og
hefir hún unnið sér ágætt orð
víða um land.
Þorsteinn er maður kurteis og
ástúðlegur í framgöngu. Hann
nýtur almennra vinsælda sam
borgara sinna, enda bárust hon
Gagnfræðaskóli
Akureyrar
Skólinn verður settur þriðjudaginn 1. október, kl.
4 síðdegis.
Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri.
Aðvörun
Að gefnu tilefni skal vakin athygli á, að ef vatn
kemst að raflögnum, getur það orsakað íkviknun. —
Er því mjög áríðandi, ef vart verður við vatnsleka í
húsum, að fá tafarlaust löggiltan rafvirkja til að at-
huga lögn hússins; eða ef ekki næst til rafvirkja, þá
að gera rafveitunni aðvart J>egar í stað, svo gerðar
verði nauðsynlegar ráðstafanir til að fyrirbyggja
brunahættu af þessum sökum.
_____ RAFVEITA AKUREYRAR.
^^^^^WítaíHKHKHKHKHKHKHKtntKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKHKri
■HWKHKKhKhKhKhKHKHKBKHKhKBKBKHKhKhKBKHKbKhKhKhKBKBKhK
IJtliliitiiri
skömmtunarseðla
fyrir tímabilið 1. okt. til 31. desember þ. á., fer fram
fram á Úthlutunarskrifstofunni dagana 27., 28. og
30. þ. m. — Fólk er áminnt um að sækja seðlana
þessa tilteknu daga og hafa stofnana áritaða.
ÚTHLUTUNARSKRIFSTOFAN.
WKBKHKHKBKBKHKHKHKHKBKHKHKBKHKHKBKH>0Ö<HKBKHKBKHKH>ÍHK
heldur mánaSar bókbandsnámsskeið í Brekkugötu 3B, ef nægileg þátt-
taka verður. — Námsskeiðið byrjar 4. október. — Kennari: Jón Þor-
láksson. — Umsóknum veitt viðtaka í síma 488.
Nokkrir piltar geta fengið skólavist á Hólum í Hjaltadal
næstk. vetur. — Einsvetrar bændadeild starfar við skólann fyr-
ir nemendur, er lilotið hafa nokkra undirbúningsmenntun.
Verklegt nám að vorinu og þar kennt meðferð og notkun
dráttarvéla og jarðýtna, ennfremur bifreiðaakstur.
Umsóknir sendist sem fyrst til undirritaðs, sem gefur allar
nánari upplýsingar.
KRISTJÁN KARLSSON.
Ritvél
nýja eða notaða, vil ég kaupa
nú þegar. — A. v. á.
Atvinnyreltendiir athuoiði
Buick
bílatæki er til sölu í Munka-
þverárstræti 9.
um margar hlýjar kveðjur á af-
mælisdaginn.
Þorsteinn er kvæntur Þor-
björgu Þorleifsdóttur Jónssonar
bónda og fyrrv. alþingismanns í
Hólum í Hornafirði.
Ungan og reglusaman mann,
með gagnfræðamenntun og
bílprófi, vantar atvinnu 1.
okt. eða síðar eftir samkomu-
lagi. Margs konar atvinna
kemur til greina. — Tiiboð
merkt: „Góð staða — 600 —
151“, leggist inn á afgreiðslu
blaðsins fyrir hádegi á laug-
ardag.