Dagur - 26.09.1946, Qupperneq 6
6
DAGUR
Fimmtudagur 26. september 1946
CLAUDIA
SAGA HJÓNABANDS
EFTIR
ROSE FRANKEN
. r ------iTr-r-^ 17. dagur —^
Framhald
ÞRIÐJI KAFLI
Saltkassinn frá 1760.
Þegar drengurinn var sex mánaða gamall kom Davíð heim, seint
u<m kvöld, frá ferðalagi til Connecticut-lylkis, en þar hafði hann
verið að líta eftir byggingu, sent hann hafði teiknað og fyrirtækið
hafði umsjá með. Hann hafði fréttir að færa, sem gerðu Glaudíu
svo æsta í skapi, að hún mátti naumast mæla. „Auðvitað gerurn við
það,“ hrópaði hún. „Það er dásamlegt. Hvers vegna ertu svona
hikandi?“
„Vegna þess“, svaraði Davíð, „að þetta er örlagaríkt spor fyrir
okkur.“
Hún kinkaði kolli. „Eins og að giftast, eða eiga Bobby?“
Davíð svaraði, að eiginlega væri þetta miklu stórfenglegra, því
að alltaf væri hægt að fá hjónaskilnað eða koma drengnum fyrir á
barnaheimili, en það væri ekki ævinlega hægt að losna við heila
jörð og áhöfn, þótt mikið lægi við. „Og svo heldur grasið ævinlega
áfram að vaxa, hvort sem manni líkar betur eða ver“, bætti hann
við.
„Ekki ef við verðum þar og sláum það jafnótt."
„En ef við erum þar ekki?“
„En það kemur ekki til mála. Við verðunr Jrar auðvitað.“
„Vertu ekki svo viss um það. Trúir þú Jrví, að Jrú munir una þér
úti á landi — allt árið um kring?“
Claudía rétti upp þrjá fingur, hátíðleg á svip. „Víst trúi eg því.
Hvort sem mér kemur til með að líða betur eða verr Jrar, þrátt fyr-
ir fjós og illgresi — hvað fleira fylgir því að eiga jörð?“
„Skuldir og veðbönd."
Hún var hugsi um stund.
„Veðbönd? Mig langar ekkert í þau. En hvers vegna þurfa þau
að fylgja?"
„Þau eru víst í tízku nú, „sagði Davíð glettnislega. „En við skul-
um tala alvarlega um þetta. Ekki dugar að rjúka í neitt vanhugs-
að fyrirtæki.“ „En mér finnst svo skemmtiiegt að rjúka í það, sem
eg ætla að gera, eins og þú segir, — eg hugsaði mig ekki lengi um
áður en eg giftist þér, og þú sérð hvernig það hefur gefizt.“
„Já, en þú vissir hvernig eg leit út, en þú hefir enga hugmynd
um hvernig þetta bóndabýli er, flónið þitt.“
„Já, en góði Davíð, eg trúi öllu sem þú segir mér. Og svo höfum
við nákvæmlega sama smekk.“
„Jæja, býlið er ákaflega álitlegt. Hreinasta heppni að rekast á
slíkt til sölu. Góður jarðvegur, ágætt beitiland og lítill lækur.“
„Sem hoppar og skoppar?“
„Já, a. m. k. bæði vor og haust. Þornar kannske á sumrin. En það
er enginn bílskúr. Hann verðurn við að byggja, en hlaðan er hrein-
asta gersemi."
„Það er dásamlegt. Getum við haft kýr?“
„Auðvitað hefir maður kýr uppi í sveit. Þarna er pláss fyrir alla
hluti, svínastía, hænsnastía, hesthús og margt margt fleira."
„Og hvenær flytjum við?“ spurði Claudía og klappaði saman lóf-
unum af einskærri gleði.
„Kannske einhvern tíma í júní.“
„Júní, en það eru margir mánuðir Jrangað til. Hvers vegna ekki
núna?“
„Það þarf að lagfæra ýmislegt áður, góða mín. Þig langar ekki til
þess að setjast að innan um alls kyns rusl.“
„Eg hélt að allt væri í fullkomnu lagi, biði bara eftir okkur.
Sagðirðu ekki, að húsið sjálft væri eitthvert fallegasta einbýlishús,
sem þú hefðir séð?“
„Víst sagði eg það. Ekta landnemastíll, byggt árið 1760. Þeir
kalla þessi hús saltkassa, af því að þau eru eins og gamal dags salt-
ker.“
„En hvað það er skemmtilegt."
„Það er ekkert skemmtilegt. Það er bara náfn á sérstakri tegund
byggingal istar.“
„Jæja, þá er það ákaflega merkilegt. En lialtu áfram með lýsing-
una og vertu ekki að rífast um smáatriði. Eg er alveg að deyja úr
forvitni. Segðu mér eitthvað fleira. Byrjaðu á upphafinu. Hvernig
lítur íbúðarhæðin út? Er stiginn upp á loftið fallegur?“
„Fallegur? Já, það má nú segja. Hreinasta gersemi. Alveg etns og
hann var fyrir 150 árum síðan.“
„Og er það kostur?“
„Auðvitað," svaraði Davíð. „Húsið er allt saman alveg óskemmt,
F r a m h a 1 d
HJARTKÆRUSTU ÞAKKIR til allra, sem auðsýndu
mér vinarhug meö heimsóknum, heillaskeytum og gjöfum á
sjötugsafmæli mínu þann 15. sept. sl.
Guð blessi framtíð ykkar allra.
ÞORSTEINN ÞORKELSSON frá Ósbrekku.
OfiHl<Hl<Hl<H><HÍ<Hl<Bl<HS<Hl<HS<H><H><H><Hl<HKH><Hl<H><HKHS<H><Ha<HKHl<Hl(M
KHS<HKHKHS<HKHKHKHKHKHS<HKHS<HKHS<HKHKHKhKHKHS<HKS<HKHKHKHK
Mínar hugheilustu þakkir sendi eg öllum þeim, sem
glöddu mig með heillaóskum og gjöfum á fimmtugsafmæl-
inu. Sérstaklega þakka eg herra Árna Pálssyni, verkfr., fyr-
ir hans miklu nærgætni við mig og fjölskyldu mína. — Guð
blessi ykkur öll.
ZOPHONÍAS M. JÓNASSON.
IÖ<hs<hs<bs<hs<hs<bs<hs<hs<hs<hs<hs<hs<bs<hs<hSíS<bs<bs<bs<bs<bS<bs<hs<hs<hs<h:*
NYKOMIÐ:
SÍRÓP í glösum. - Einnig MALTSÍRÓP,
danskt.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild og útibú.
’tHS<BS<HS<HS<HS<BS<BS<BS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<BS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<BS<HS<HS.
tiluggatjaldaefni
n ý k o m i ð
Iíaupfélag Eyfirðinga |
Vefnaðarvörudeild
F^4^*S*$*S*í>4><S^><$*$>SK$KSKSx$>3xex$K$x$xS>%*$>3x$>3x$KSKeKjx$x$x$><$x$>3xS><$KS><Sx^^
^HSfiHSíSfiHSíSfiHStSfiHSfiHSfiHSíSfiHSfiHSfiHSfiHSfiHSfiBSfiHSfiHSfiHSíSfiHSíSfiHSfiHSfiHSfiHStSiSfiHS
Kerru pokar
nýkoninir
Kanpfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild
:t<t<f<1<f<H><HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<BS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<BS<HS<t<
<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<S<HS<HS<HS<HS<HSIS<HS<HS<BS<HS<HS<H3
Húsmæður!
DURA-GLIT-FÆGIULL hreinsar alla xnálma og
gei ir sem nýja. — Fæst í
Nýlenduvörudeild KEA og úfibú
Ú<H3<HS<HS<BS<HS<HS<HS<BS<HS<HS<HS<h:<BS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<BS<BS<HS<H><S0
SXS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<HS<BS<HS<BS<KS<BS<HS<BS<HS<
ORÐSENDING
til útvarpsnoténda á Akureyri og nágrenni. — Vegna flutnings x
á Viðgerðarstofu Útvarpsins á Akureyri í nýtt húsnæði, um t
mánaðamótin sept.—okt., eru þeir, sem eiga viðgerð eða ónýt f
viðtæki hjá Viðgerðarstofunni, beðnir að vitja þeirra hið allra 1
fyi'sta. Viðtæki, sem hal'a verið lengur en 6 mánuði hjá Við- <|
gerðarstofunni, og ekki er vitjað fyrir I. október, veiða seld
fyrir viðgerðarkostnaði.
RÍKISÚTVARPIÐ.
SíXHSfiHSfiHSfiHSfiHSfiHSfiHSfiHKHSfiHSfiHSfiHSfiHSfiHSfiHSfiHSfiHSfiHSXSfiHSfiHSfiHSfiHSfiHSfiHSfiW
iiii
Mát í 9. leik!
Það vakti mikla athygli á norræna
skákmótinu í Kaupmannahöfn í sum-
ar, að Baldur Möller mátaði Svíann
Jonsson í 9. leik. Jonsson er þó talinn
einn af beztu skákmönnum Svía. Þessi
fræga skák er þannig:
Hvítt: Svart:
Baldur Möller. E. Jonsson.
d4 Rfó
c4 g6
Rf3 Bg7
Rc3 d5
Db3 có
Bf4 dxc4
Dxc4 Rbd7
Rfe5 \ Rdb6
Dxf7 mát!
vantar á landsímastöðina
nú þegar. HÁTT KAUP.
Upplýsingar á skrifstofu síma-
stjórans kl. 10—12 og 13—16
Stúdent
tekur að sér kennslu í
vetur gegn leigu á góðu
herbergi á góðum stað í
bænum.
A. v. á.
Reiðhjólaluktir
Hölum fengið vandaðar,
hollenzkar dynamoluktir
fyrir reiðhjól.
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
Til sölu:
klæðaskápur með tækifæris-
veiði.
Ranv~ °ig Bjarnardóttir,
Hafnarstræti 83.
Frá
Indlandi
höfum við fengið vandaða
fótknetti nr. 3—4 og 5. —
Sendum gegn póstkröfu.
Brynjólfur Sveinsson, h.f.
''ími 129. - Pósthólf 125.
2 sfúlkur
geta fengið atvinnu á
saumastofu vorri nú þeg-
ar eða síðai'. Upplýs. hjá
klæðskeranum.
VERKSMIÐJAN
DRAUPNIR h. f.
Skipagötu 6.