Dagur - 26.09.1946, Síða 8

Dagur - 26.09.1946, Síða 8
8 D A G U R Fimmtudagur 26. september 1946 Úr bæ og byggð v — .. I.O.O.F. — 1289278y2. — KIRKJAN. Messað í Glerárþorpi næstk. sunnudag kl. 1 e. h. Akur- eyri kl. 5 e. h. Guðsþjónustur í Grundarþingapr.- kalli: Grund, sunnudaginn 29. sept. kl. 1 e .h. — Kaupangi, sunnudaginn 6. okt. kl. 2 e. h. — Munkaþverá, sunnu- daginn 13. okt. kl. 1 e. h. — Möðru- völlum, sunnudaginn 20. okt. kl. 1 e. h. — Hólum, sunnudaginn 27. okt. kl. 1 e. h. — Saurbæ, sama dag, kl. 3 e. h. Hjálpræðisherinn. Sunnud. kl. 11: Helgunarsamkoma. Kl. 8.30: Hjálp- ræðissambkoma. Kl. 2: Sunnudaga- skóli. Blindrafélagið í Reykjavík hefir fengið leyfi til að selja merki til á- góða fyrir hússjóð sinn á sunnudaginn kemur. Munu merkin verða borin hér um bæinn í trausti þess, að bæjarbú- ar taki jafn V2l og 2 síðustu ár á móti stúlkunum sem selja merkin. Með þvx er áreiðanlega stutt að góðu málefni. Kristniboðsfélag kvenna, Akureyri, hefir kaffisölu í Zion á morgun, föstu- daginn 27. september, kl. 3 e. h. Einn- ig verður þar útsala ýmissa muna. At- hugið, hvað er á boðstólum. Berkíavörn á Akureyri heldur fund í Rotary-sal Hótel KEA mánudaginn 30. september n.k., kl. 8.30 e.h. Fund- arefni: Berklavarnardagurinn, Fréttir frá 5. þingi SÍBS. Sjötué verður á morgun frú Asta Þorvaldsdóttir, fyrrum húsfreyja á Krossum, nú til heimilis í Norðurgötu 16 hér í bænum. Hjúskapur. Nýlega voru gefin sam- an í hjónaband af sóknarprestinum, sr. Friðrik J. Rafnar, vígslubiskupi: Ungfrú Elín Davíðsson, Hafnarfirði og Guðmundur Þórðarson, bryti, e.s. Lagarfossi. Ungfrú Kristjana Ólafs- dóttir, Akureyri, og Víkingur Guð- mundsson, frá Akurseli í Axarfirði.^ Kvennadeild Slysavarnafélags Is- lands, Akureyri, heldur fund og kveðjusamsæti að Hótel KEA annað kvöld kl. 9, í tilefni af brottför for- manns félagsins, frk. Sesselju Eldjárn. Félagskonur! Mætið allar. Aðalfundur Kennarafélags Eyja- fjarðar verður settur í barnaskólahús- inu hér laugardaginn 28. þ. m. kl. 4 síðdegis. Gagnfræðaskóli Akureyrar verður settur þriðjudaginn 1. okt. næstk. kl. 4 síðdegis. í vetur verða meira en 300 nemendur í skólanum og er húsrúmið því þegar fullskipað. Horfur eru á mjög aukinni aðsókn að skólanum næsta ár og því sýnilegt að húsið er þegar orðið of lítið. Karlakór Akureyrar óskar eftir söng- mönnum til viðbótar — fyrst og fremst tenorröddum. — Nýir liðs- menn snúi sér til söngstjórans Askels Jónssonar Gagnfræðaskólanum sem gefur nánari upplýsingar. Söngæfing er í kvöld kl. 8.30 í Verklýðshúsinu. Stjórnin. Árni Björnsson kennari sagði í sum- ar lausri skólastjórastöðu sinni í Arn- arneshreppi en þar hefir hann verið starfandi kennari um aldarfjórðungs skeið við frábærar vinsældir nemenda sinna og annarra hreppsbúa. — Hefir Arni tekizt kennslu á hendur í Barna- skóla Akureyrar. — Á fundi 15. sept. sl. samþykkti skólanefnd Arnames- skólahverfis einum rómi að senda þessum fyrrverandi kennara sveitar- innar hugheilar þakkir fyrir ógleym- anlega vel rækt störf og góða sam- vinnu á liðnum árum. Biður nefndin „Dag“ að koma þess- ari þakkarkveðju sinni áleiðis til Arna, ásamt einlægri ósk um giftu- ríka og farsæla framtíð á nýjum starfsvettvangi. F. h. sóknarnefndar. Sig. Stefánsson. Næsta föstudaé mun frú Guðrún Brunborg endurtaka fyrirlestur sinn um Noreg á hernámsárunum og sýna kvikmyndir í því sambandi. Einnig mjög skemmtilega kvikmynd frá skíðamóti við Holmenkollen 1946.— Frú Guðrún er alíslenzk, dóttir Bóas- ar Bóassonar að Stuðlum við Reyðar- fjörð, en hefir nú dvalið 28 ár í Nor- egi og á þar mann og þrjú börn upp- Sláturmeðferð kennd (Framhald a£ 1. síðu). landslýðnum í útvarpi nú fyrir skemmstu. Hætt er við að Ey- firðingar hafi brosað að þessari kennslu. Sláturhús og frystihús hafa verið starfrækt hér um ára- 1 tugi. Slátursala og sláturfrysting hafa jafnan farið fram þar og æv- inlega verið lögð áherzla á, að nýta slátrin sem bezt og koma þeim í verð. Ef verðlagsnefndin vill láta skína í það með tilkynn- ingu sinni, að engir hafi haft sinnu á þessu, fyrr en henni datt snjallræðið í hug, þá er hætt við að árangurinn af þeirri auglýs- ingastarfsemi verði heldur rýr. Skriðuföll valda tjóni (Framhald af 1. síðu). an Laufáss féllu skriður á nýja akveginn út ströndina, og er hann á kafi víða á svæðinu frá Saurbrúargerði að Fagrabæ. Skriða féll og á túnið í Fagi'abæ og olli talsverðum skemmdum og eyðilagði 20 tunna kartöflugarð. Þetta er talið eitt hið versta veður, sem komið hefir i Höfða- hverfi. Busch og Serkin (Framhald af 1. síðu). næstu viku það verður. Mun það auglýst síðar. Styrktarfélagar Tónlistarfélagsins sitja fyrir að- göngumiðum og fá þá fyrir mun lægra verð en aðrir. Afgreiðsla miðanna fer fram í verzl. Ás- byrgi í Skipagötu 2, í kvöld og annað kvöld kl. 6—7, og á laug- ardag kl. 5—7. Verði miðar styrktarfélaga ekki ekki sóttir í tíma, verða þeir seldir öðrum. — Tekið verður á móti nýjum styrktarfélögum á sama stað. Listamennirnir munu hafa hér skamma viðdvöl. Þessir tónleikar munu án efa verða ennn hinn merkasti við- burður í tónlistarlífi bæjarins. — Treystir Tónlistarfélagið því, að ekkert sæti í húsinu verði autt og hefir miðað verð aðgöngumið- anna við það. komin. Hún talar svo góða íslenzku að margir tala ekki hreinna mál, sem dvalið hafa hér heima allan sinn ald- ur. — Dugnaður og viljaþrek þessarar konu er með eindæmum, og munuð þið sannfærast um það, þegar þið sjálf hafið heyrt sögu hennar. — Nú ferðast hún hér um sitt elskaða fóst- urland og heldur fyrirlestra. Tilgang- ur hennar er ekki einungis, að fræða landa sína um ástandið í heimalandi sínu á hernámsárunum, sem er þó mikils virði, þar sem við skiljum það ekki til hlítar, nema við heyrum það af vörum þeirra, sem sjálfir hafa reynt, heldur og aðallega til þess að mynda sjóð við Oslóar-háskóla til styrktar efnalitlum stúdentum, norsk- um og xslenzk'im, sem við hann lesa. Á sjóður þessi að bera nafn elzta son- ar hennar, Olafs Brunborg, sem naz- istar kvöldu til dauða í fangabúðum sínum. Frú Guðrún elskar bæði lönd- in, Island og Noreg, jafn heitt, og er því einn sterkur hlekkur í þeirri keðju sem tengir þessar frændþjóðir órjúf- andi böndum. — Er nú vonandi. að Akureyringar sýni skilning og bræðra- hug og fylli Nýja-Bíó á föstudags- kvöldið kl. 9. Engan mun iðra þess, sem kemur þangað og hlustar á frú Guðrúnu Brúnborg. S. Skemmtisamkoma verður næstk. laugardagskvöld að Þverá. Hefst kl. 10 e. h. Sýnd verður hin undurfagra kvikmynd af hreindýrunum í Kringils- árrana. Á eftir verður dansleikur. — Veitingar seldar á staðnum. Drengjafö! á 3 til 10 ára Drengjanærföt margar stærðir Drengjamilliskyrtur Drengjahúfur o. m. 11. á drengi Rrauns verzlun Páll Sigurgeirsson. Regnhlífar og göngustafir Stórt úrval. Rrauns verzlun Páll Sigurgeirsson. Regnkápur á telpur og drengi Rrauns verzlun Páll Sigurgeirsson. Hvít ullarsjöl ljómandi falleg, nýkomin Rrauns verzlun Páll Sigurgeirsson. Hálsbindi Gott úrval Rrauns verzlun Páll Sigurgeirsson. SILKI undirföt °g náttkjólar í góðu úrvali Rrauns verzlun Páll Sigurgeirsson. Vinnuvettlingar Verð frá kr. 2.60 BRAUNS VERZLUN PÁLL SIGURGEIRSSON Tvöföld rúmslæði með stoppdýnum og gorm- botnum vil eg selja. Kristján Sigurðsson, kennari. Hugðnæm og fögur bók eftir sjúka stúlku: Hvítir vængir eftir Evu Hjálmarsdóttur frá Stakkahlíð. Eva Hjálmarsdóttir hefir verið >j úk frá því að hún var 9 áva gömul. Næstum óslitið síðan. hefir hún dvalið í sjúkrahiis- um hér og erlendis og langtímum bundin við rúmið. — En á hvítum vængjum hugans hefir hún flogið inn í draumalönd sagna og ljóða, sem eru óvenjuleg að fegurð og innileik. — Með veikri hendi he'fir hún skrifað — og stundum les- ið fyrir vinum sínum. Og nú eru sögur hennar, ævintýri og Ijóð komin út í fallegri bók. Bókin helfir inni að halda 18 sög- ur og ævintýri og um 100 ljóð og lausavísur. Allt andar þetta fegurð og hlýju og jafnvel fögnuði yfir lífinu, þó ótrúlegt sé. í formála fyrir bókinni segir séra Sveinn Víkingur, frændi skáldkonunnar, meðal annars: „Hún hefir sjálf Valið bókinni heitið Hvítir vængir. Og víst hefir ljóðagáfan orðið þessu fjötraða þjáningabarni bjartir og kærir vængir, — vængir, sem hafa lyft henni liátt yfir ömurleika dagsins, opnað henni hall- ir hugljúlfra ævintýra og drauma, og borið sál hennar úr for- sælu og skugga veruleikans út í sólskinið til „blómanna í birtu og yl“. Bókin HVÍTI RVÆNGIR er komin í bóka- búðir. Hún mun liverjum og einum kær- komin. Efni hennar bætir og fegrar líf allra, $ sem kynnast því. KHKHKHKHKHKHKHKBKHKHKHKHKHKHKHKHKHKBKHKKHKHKHKHKBKHK Bandaríkin (Framhald af 1. síðu). Um samningaumleitanirBanda- ríkjamanna er það í styztu máli að segja, að þær fjalla ekki um „herstöðvar", eins og er þeir báðu um afnot Hvalfjarðar, Foss- vogs og Keflavíkurflugvallar til langs tíma, heldur aðeins um leyfi til þess að hafa takmörkuð afnot Keflavíkurflugyallarins á meðan þeir þurfa að gegna her- stjórnarskyldum í Þýzkalandi og hafa flugvélar í förum milli Bandaríkjanna og Þýzkalands, en á þeirri leið er Keflavík mik- ilvæg millistöð. Að öðru leyti er samningsuppkastið miðað við brottflutning alls herafla héðan og yfirráð íslands á flugvellin- um. Fullvíst má telja, að mikill meirihluti þjóðarinnar vilji verða við óskum Bandaríkja- manna um nauðsynleg afnot á Keflavíkurflugvellinum, en þó ekki á þann hátt, að því fylgi neitt réttindaafsal eða þvingaðar skuldbindingar. Samningsupp- kast það, er nú liggur fyrir þing- ingu (birt á bls. 5) miðar að þessu, en þó er augljóst, að nauð- synlegt er að gera nokkrar breyt- ingar á uppkastinu, ef vel á að fara. Að því munu Framsóknar- menn vinna. Ástæða er þó til að óttast, að málinu sé svo komið í höndum utanríkisráðherrans, að ekki si annars úrkosta en segja já eða nei, við uppkastinu, eins cg það íeggur fyrir. Ef svo reyn- ist, hefir Ólafur Thors staðið slaklega á verðinum og spillt því, að málið verði leyst á farsællegan hátt. Það er ekki hollt fordæmi í lýðræðisríki, að utanríkisráð- herra, fjalli einn og óstuddur um slík mál, upp á væntanlegt sam- þykki löggjafarþingsins, án sam- ráðs við alla stjórnnrálaflokka og utanríkismálanefnd þingsins. — Þetta hefir Ólafur Thors gert í þetta sinn og þannig lagr stein i gotu málsins og létt undir með kommúnistum í skrílupphlaup- um þeirra og loddaraskap. Þessi síðasta stjórnarathöfn ráðherrans mun því, er öll kurt koma til grafar, sízt verða til þess að auka trú hans eigin fylgis- manna á foringjahæfileikum hans í lýðræðisþjóðfélagi. Alla-r horfur eru á því, að rík- isstjórnin splundrist á þessu máli, því að kommúnistar hafa boðað brottför sína, ef samið verði við Bandaríkin. Er þá svo komið, að þegar stjórnarstefnan í innanlandsmálunum er búin að koma öllu atvinnu- og fjárhags- lífi þjóðarinnar á kaldan klaka og þurrausa sjóði þjóðarinnar, er hlaupist frá ábyrgðinni á gerfi- máli. Hafa Framsóknarmenn einnig að þessu leyti reynst sann- spáir um endalok ,,nýsköpunar“- stjórnarinnar. Gullkeðja, karlmanns (armband) hefir tapazt, sennilega á leiðinni Hríseyjargata—Nýja Bíó. Finn andi vinsaml. skili henni gegn fundarlaunum, á afgr. Dags. STÚLKA óskast í vist, frá 1. október, fyrri hluta dags eða til morgunhrein- gerninga. Þrennt í heimili. — A. v. á.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.