Dagur - 17.10.1946, Blaðsíða 1

Dagur - 17.10.1946, Blaðsíða 1
Dómsmálaráðherrann víkur sakadómaranum í Reykjavík frá embætti Fyrir að „viðhafa ósæmi- legt orðbragð“ í síma! í fyrradag sendi dómsmála- ráðuneytið blöðunum í Rvík fréttatilkynningu þess efnis, að dómsmálaráðherra hefði þá um daginn vikið Bergi Jóns- syni, sakadómara, frá embætti „um stundarsakir“, fyrir að viðhafa ósæmilegt orðbragð við ráðherrann í síma! Jafn- framt var tilkynnt, að Valde- mai’ Stefánsson hefði verið settur til að gegna embættinu fyrst um sinn, en Gunnar A. Pálsson skip'aður til að rann- saka mál Bergs. Ekki er upplýst, hvað „orð- bragð“ það var, sem svo mjög saknæmt reyndist, en augljóst er, að þessi embættisathöfn dómsmálaráðherrans á síðustu !; hérvistardögum ríkisstjórnar- innar hefir orðið með skjótum og all-óvenjulegum hætti. Austfirðingar fagna „Hvassafelli“ Fyrra sunnudag kom m. s. ,.HvassafeU“ til Reyðarfjarðar og losaði þar og á fleiri höfnum 500 tonn af salti. Skipskoman vakti mikla athygli þar eystra og fögn- uðu Austfirðingar skipinu vel. — Kaupfélagið á Reyðarfirði bauð skipshöfnina í skemmtiferð upp á Fljótsdalshérað. Var ferðin hin ánægjulegasta í alla staði. Skip- stjóri hefir beðið blaðið að færa Þorsteini J ónssyni, kaupfélags- stjóra, alúðarþakkir sínar og skipshafnarinnar fyrir hinar rausnarlegu móttökur. Ennfrem- ur þakkar skipshöfnin afgreiðslu manni. skipsins á Reyðarfirði, Thulin Johansen, lipurð hans og fyrirgreiðslu alla. „Hvassafell" hleður nú síld á Steingrímsfirði og Siglufirði. Mun það sigla með farminn til Gautaborgar og Stokkhólms, en fara þaðan til Finnlands og lesta timbur. 1 Skjaldborgar-Bíó igrún á Sunnuhvoli verður sýnd fimmtudag, föstu- dag og laugardag kl. 9. Hvítkálshöfuð dönsk framleiðsla, á kr. 2.50 pr. kg. Pöntunarfélagið Þrjár bifrejðar Ein fólksbifreið, ein vöru- bifreið og ein sendilsbif- reið eru til sölu nú þegar. Upplýsingar í benzínafgr. KEA og Geislagötu 37. IF* GUR XXIX. árg. Akureyri, fimmtudaginn 17. október 1946 48. tbl. r I Bakkakirkju || Alþjóððþing sðmvinnumanna í Zurich 8.-10. október fyrra sunnudag || Vilhíálmur Þór ocr Trrlroh Prímrrnnccnn Vilhjálmur Þór og Jakob Frímannsson sátu þingið af íslands hálfu Altaristafla. Þing Alþjóðasambands samvinnumanna var háð í Zuricþ í Sviss dagana 8.—10. þ. m. Tveir fulltrúar sátu þingið af hálfu íslenzkra samvinnumanna. Voru það þeir Vilhjálmur Þór, forstjóri Sís, og Jakob Frímannsson, forstjóri KEA. Alls sátu þingið 330 fulltrúar frá 22 þjóðum, auk miðstjórnar Sambandsins, en hana skipa 50 nrenn. Auk þess fjöldi gesta og l ulltrúar frá ýmsu,m alþjóðlegum stofnunum, svo sem Sameinuðu þjóðunum, Efnahags- og öryggis- stofnun UNO, Landbúnaðar- og matvælastofnun UNO og alþjóð- legu verkamálaskrifstofunni. Síðasta þing Alþjóðasambands Bærinn kaupir uppmokstursvél Kista Jónasar Hallgrímssonar. Þessar myndir tók Edvard Sigurgeirsson, íjósmyndari, í Bakkakirkju, iyrra surmudaé, skömmu eftir a8 Sifjurjón Pétursson hafSi faliö baendum í Öxna- dal varðveizlu kistu Jónasar Hallgrímssonar. Efri myndin sýnir aftaristöflu i Bakkakirkju, sem er iögur og allmerk, geirð 1702, mun hafa verið i Bakka- kirkju síöan fyrir daga Jónasar. Neöri myndin sýnir kistu skáldsins á kirkju- éólfinu í Bakka, eins og Sigurjón Pétursson skildi við hana, að því undan- teknu, aö íslenzki fáninn skýlir ekki kistunni. Á irtnri gsfli kistunnar er lítill silfurskjöldur, er ber þessa áletrun: Jónas Hallérímsson, skáld. Fluttur heim frá Danmörku 4/10 1946. Kveöja frá vinum. — Frásögn um hrottílutniné kistunnar frá Bakka er á 5. blaðsíðu. S t j órnarmálgagn ræðir ástandið: Fiskveiðiflotinn stöðvað- ur, 3-4 þúsund sjómenn atvinnulausir Þjóðviljinn í gær ræðir ástand- ið í þjóðmálunum, tæpri viku eftir málamyndabrottför komm- únista úr ríkisstjórninni. Blaðið segir, að nú sé svo komið, að all- ur fiskveiðaflotinn sé stöðvaður, vélbátar hafi naumast farið á sjó síðan síldarvertíð lauk, og togar- arnir séu sem óðast að hætta veið- um. Þetta segir blaðið stafa af því, að enginri vilji kaupa aflann fyrir það verð, sem þarf að fást fyrir hann og bankarnir neiti að 'lána. Þetta stjórnarmálgagn telur Aukabæjarstjórnarfundurinn á föstudaginn ákvað að taka til- boði frá fyrirtækinu Vélar og Skip h.f. í Reykjavík, um upp- mokstursvél frá Englandi. Mun vélin verða afgreidd á þessu ári. Verð hennar er 75—80 þús. kr. »Einn Helsingi« „Einn Helsinéirit Steindórs Sig- urðssonar, rithöf., er nýkomið út. Rit- ið flytur hugvekjur og greinar. Af efni þess má nefna: Forspjallsorð, Úr heið- ríkju draumsins, Málslok, Svá es þat, Sakborningar þjóðfélagsins, Leik eg mér að ljóðabrotum. Ritið er 50 bls., prentað með smáu letri, í „Digest“ formi. samvinnumanna var háð í París 1937. Þetta þing mun einkum hafa haft það verkefni að tengja á ný þá þræði samstarfs og sam- skipta í milli samvinnufélaga hinna ýmsu landa, er slitnuðu á stríðsárunum. Hefir einkum ver- ið rætt um aukin samskipti kaup- félaganna og hafði hinn kunni, sænski samvinnumaður Anders Örne, framsögu í því máli. Af öðrum málum má nefna: skýrslu um störf Sambandsins síðan 1937, og horfur í samvinnumál- um þjóðanna. Svissnesk blöð hafa skýrt ýtar- lega frá þinghaldinu. Var á allan hátt búið veglega að fulltrúun- um í Sviss. Þingið var háð í Kon- gresshaus í Zurich, sem er ný bygging, geysi stór og vönduð. Verður væntanlega hægt að skýra nánar frá störfum þingsins síðar, er nánari fregnir hafa bor- izt. Þröngt fyrir dyrum. Þröngt fyrir dyrum, nefnist bækl- ingur, er blaðinu hefir borizt. Höfund- ur er Matthías Þórðarson ritstj. í Charlottenlund í Danmörku. Fjallar bæklingurinn um landhelgismál ís- lands og nauðsyn þess, að færa land- helgislínuna út. Er rit þetta hið at- hyglisverðasta og verður þess getið nánar síðar hér í blaðjnu. Aðalútsölu ritlingsins hefir Leiftur h.f., Reykja- vík. bjargráðið fyrir sjávarútveginn vera: Knýja bankana til að lána frystiliúsum og útgerðarmönn- um meira fé. Láta ríkissjóð ábyrgjast nauðsynlegt lágmarksverð á aflanum. Með þessum aðgerðum telur blaðið útveginum borgið! Þannig er fjármála- speki kommúnista og þannig er ástandið orðið í þjóðmálunum, eftir tveggja ára samfylkingu þeirra og auðkónganna. Nýkomið! Herra ullarvesti og Ullarleistar kvenf. ekta ensk ull Pöntunarfélagið i; Vrl Olafur Thors filkynnir uppgjöf Óvissa ríkir nú um framtíðina 1 fyn'adag tilkynnti Ólafur Thors forseta íslands, að hann hefði að sinni hætt við að reyna að mynda stjórn, en þann vanda hafði hann tekizt á hendur, fyrir tilmæli forsetans, í sl. viku. Lagði Ólafur til að forseti hefði tal af formönnum hinna flokkanna um viðhorfið. Sá fundur mun hafa verið haldinn í gær, en án mikils ára'n.a.nrs. — Flokkarnir & munu þó hafa skipað rnenn í nefnd til þ.ess að ræða möguleika á stjórnarmyndun, en yfirleitt mun álitið, að Iiorf- ur um samkomulag séu óglæsilegar. Tilkynning Ólafs Thors um að hann hafi gefist upp við stjórnarmyndun, er jafnframt "jj yfirlýsing um uppgjöf „nýsköpunarstefnunnar.“, því að Sjálf- stæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn hafa þingmeirihluta í báðum deildum og geta þess vegna haldið stjórnarstefnunni áfram, þrátt fyrir brotthlaup kommúnista. Augljóst er nú,'' að ,,nýsköpunar“stefnan hefir beðið algjört skipbrot, enda lýsa nú stjórnarblöðin ástandinu þannig, að hrun og atvinnuleysi sé á næstu grösum. Hafa orðið snögg umskipti í augum þeirra manna, er hæst töluðu um ,,nýsköpun“, framfarir og fjárhags- öryggi fyrir sumarkosningarnar. Aö nefnd

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.