Dagur - 11.12.1946, Blaðsíða 8

Dagur - 11.12.1946, Blaðsíða 8
8 DAGUR Miðvikudagur 11. desembcr 1946 Úr bæ ocf byggð 1111111111111111111111111111"* □ Rún.: 594612117 - Frl. Athv. I. O. O. F. - 128121381/2. - KIRKJAN. Messað á Akureyri n.k. sunnudag, 15. des., kl. 5 e. h. Zíon. Sunudaginn 15. þ. m.: Sunnu- dagaskóli kl. 10.30 f. h. — Almenn samkoma kl. 8.30 e. h. — Allir vel- komnir. Kvenskátabazarinn verður næstk. sunnudag og hefst kl. 2 e. h. í Bama- skólanum (uppi). Kaffisala á staðn- um. o. s. 'frv. Hjúskapur. Sveinn Reynir Vilhelihs- son, bifreiðastjóri og Hólmfríður Ey- steinsdóttir. — Friðrik Baldvinsson og Dýrleif Jónsdóttir. Sextugur varð sl. mánudag, Karl Sigfússon, trésmiður, Helga-Magra- stræti 46 hér í bænum, kunnur borg- ari og einkar vinsæll og velmetinn. — Fjölmenni heimsótti hann á afmælis- daginn og honum bárust margar gjafir frá vinum og ættmennum og fjöldi skeyta og blóma. / Fyrsta heíti af hinu vinsæla og og ágæta lagasafni Þórðar söngkenn- ara Kristleifssonar á Laugarvatni, „Ljóð og lög“, hefir nú verið endur- prentað og er komið á markaðinn. — Mun það verða mörgum kærkomið, því að heftið hefir lengi verið upp- selt og ófáanlegt. — Fimmta hefti „Ljóða og laga“ mun væntanlegt á bókamarkaðinn um nýársleytið í vet- ur. Verða í því hefti 50 úrvalssöngvar. Skautafélag Akureyrar heldur aðal- fund sinn næstk. mánudagskvöld að Hótel KEA. Fundurinn hefst kl. 8 e. h. Tekið verður á móti nýjum félög- um. Skautasvell er nú sunnan við bæinn hjá Krókeyri. LeiSrétting. í afmælisgrein um Guðmund Pétursson, útgerðarmann, hér í blaðinu fyrir skemmstu, varð ein meinleg prentvilla: Segir svo ílokann- arrar málsgreinar, 1. dálki: Kona Stef- áns á Nolli.... var Lilja Ólafsdótt- ir. . . . Rétt er: Lilja Oddsdóttir Gott- skálkssonar bónda á Dagverðareyri — Akureyri fær 1 milj. kr. lán. (Framhald af 1. síðu). í löndunartæki, nýjar vélar og endurbætur, til þess auka afköst verksmiðjunnar í 4000 mál á sól- arhring. Verða þau gögn nú tek- in fyrir í verksmiðjustjórninni og er þess að vænta að hún skili ákveðnum tillögum um endur- bætur og fyrirkomulag reksturs til bæjarstjórnarinnar innan skamms. Danskt Mariekex Danskar Iskökur Hafnarbúðin Skipagötu 4. — Sími 94. Sófahillur hentugar til jólagjafa Haf narbúðin Skipagötu 4 — Sími 94 NÝJA BÍÓ Miðvikudagsköld kl. 9 og Föstudagskvöld kl. 9: Sjöundi krossinn í Aðalhlutvet'kunum: S'pencer Tracy, Signe Hasso og Hume Cronyn. (Bönnuð börnum innan 16 ára.) Skjaldborgar-Bíó Miðvikudagskvöld kl. 9: Bleikir akrar Fimmtudagskvöld kl. 9: Bleikir akrar Föstudag kl. 9: Og dagar koma Laugardag kl. 5: Kátt er um jólin Laugardag kl. 9: Og dagar koma í síðasta sinn Ávaxtasett Vínsett Vínglös Vatnsglös (fl. gerðir) j M j ólkurkönnur Tekatlar Þvottaföt Vatnsfötur o. fl o. fl. PÖNTUNARFÉLAGIÐ Allt í JÓLABAKSTURINN Pöntunarfélagið. Höfum ennþá ofurlítið af sælgætis- vörum í jólapokana. Ennfremur kerti, stór og smá. Pöntunarfélagið Kaupum góða leista og sjóvettlinga Verzl. Björns Grímssonar Sími 256. Til sölu: 2 nýir armstólar, rúmfata- skápur og borð. Einnig Buick-bílaviðtæki. A. v. á. | Værðarvoðir fallegar og góðar. i [ Tilvaldar jólagjafir. [ | VÖRUHÚSIÐ h.f. | Leikföng Hafið þér athugað ódýru leikföngin, sem fást í Vöruhúsinu h.f. Leðurvörur margs konar, svo sem: Töskur, veski, skirfmöppur, buddur, o. fl. af fallgeum leðurvörum hentugum til jólagjafa VÖRUHÚSIÐ H.F. Prjónakonur Vanar prjónakonur, sem óska að prjóna heima, geta fengið atvinnu frá næstu áramótum. Kem- ur til mála að við leggj- um til prjónavélar. Prjónastofa Ásgríms Stefánssonar h.f. Prjónavél óskast til kaups. Ásgeir Haldórsson, KEA Nokkrar vanar saumakonur óskast frá næstu áramótum Prjónastofa Ásgríms Stefánssonar h.f. Góð, tvíhólfa RAFPLATA til til sölu. — A. v. á. Útför Jóns Benjamínssonar, bónda á Hóli, sem andaðist 8. þ. m., Ifer fram að Munkaþverá mánudaginn 16. desember næstk., og hefst kl. 1 e. h. Vandamenn. Minningarathöfn mannsins míns, JÓNASAR GUÐ- MUNDSSONAR frá Þórshöfn, fer fram í Akureyrarkirkju laugardaginn 14. þ. m. kl. 4 e. h. Líkið verður flutt til Þórs- hafnar. Guðrún Jóhannsdóttiir. ^S>3*í*$«SK®«íx$xSx$x$x$x$K$xSx$x$xSx$x$x$x$xSx$KSx®xex$xSx$xSx$x$x$x$xíx$K$xSx$x$x$xS>^$x^<^<»^ Vinum mínum og venzlafólki, er glöddu mig með gjöfum, f skeytum, heimsóknum og hlýjum kveðjum, á 60 ára afmæli mínu, 9. þ. m., sendi eg mitt innilegasta þakklæti. Karl Sigfússon. Mið-Evrópu- og Finnlands-söfnunin Með tilvísun til áður auglýstrar landssöfnunar hefir Rauða- krossdeild Akureyrar ákveðið að gangast fyrir peninga- og fatasöfnun handa nauðstöddu fólki í Mið-Evrópu og Finn- landi. — Sendimenn Rauðakrossins fara í hvert hús á lausar- dag og sunnudag næstkomandi og eru menn þá vinsamlega beðnir að hafa gjafir sínar tilbúnar. — Serstaklega er óskað eft- ir peningum og hlýjum ullarfatnaði. — Fatnaður má vera not- aður en heilí og hreinn. — Gefendum gefst kostur á að ákveða til hvaða lands gjör jreirra fari. Fjársöfnunarlistar liggja frammi í bókabúðum bæjarins. Gefið jólagjafir yðar að þessu sinni þeim, sem þjást af hungri og klæðleysi. Akureyrardeild heldur samkomu í Nýja-Bíó fimmtudag kl. 9 e. h. ÞAR FER FRAM: 1. Kvikmyndasýning. 2. Stutt erindi: Jakob Frímannsson, framkv.stjóri. 3. Erindi: Baldvin Þ. Kristjánsson, erindreki SÍS. 4. Kvikmyndasýning. | Aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn KEA og konur þeirra. — Deildarstjórnin. Hafið þið lésið bókina: ”Fyrir karlmenn44? Fæst í öllum bókabúðum | I Höfum flutt vinnustofu okkar í hús Nýju Bílstöðvar- innar við Strandgötu. m Victor & Snorri, rafvirkjar. '®K^x$x?x$x$>^x$><$>^x$xíx$x®x$x$x$xí>^x$><$>^xíxSx$x$>^xSx$>^x$>^>^x$>^xS>^><J^x$x$^x$x$xJx$^^i Stúkan Isafold-F jallkonan nr. 1 h^ldur fund næstk. mánudag, 16. þ. m., kl. 8.30 e. h. í Skjaldborg. Fundar- efni: Venjuleg fundarstörf. — Inntaka taka nýrra félaga o. fl. — Hagnefndin býður upp á jóladagskrá, sem auglýst verður nánar í auglýsingakössum Skjaldborgarbíós. — Vér óskum eftir nýjum félögum, ungum og gömlum. Stycfjið baráttu bindindismanna með því að gerast félagar í Reglunni. Þér foreldrar, sem eigið börn á unglings- aldri, komið með þeim í Regluna. ><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><{><H><H><H><H><H><H>i CH><H><H><H><H><H><H>í><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><H><í

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.