Dagur - 18.12.1946, Blaðsíða 1

Dagur - 18.12.1946, Blaðsíða 1
12 SÍÐUR Yngsta dóttir Churchills opinberar MARY CHURCHILL, yngsta dóttir hins heimsfræga brezka stjórnmálamaruis, opinber- aði nýlega trúlofun sína. Hún er 24 ára gömul, var í kvensveitum brezka hersins og oft í fylgd með föðut sínum á stríðsárunum, er harm flaug heimsálfanna í milli á mikilvægar ráðsteínur. — Hinn tit- vonartdi tengdasonur gamla Churc- hills heitir CHRISTOPHER SOAMES, og er 26 ára gamall. Hann var höf- uðsmaður í einu frægasta herfylki Breta, Coldstreams Guards, á stríðsárunum. Nú er hann hermála- fulltrúi Breta við sendiráðið í París. 7 ! F ramsóknarf lokkurinn 30 ára Framsóknarflokkurínn er 30 ára um þessar mundir. Harin var formlega stofnaður af 8 þingmönnum 16. des. 1916, í Reykjavík, en nokkur undir- búningur var gerður áður, m. a. á Seyðisfirði. Þessara tímamóta í sögu flokksins verður minnzt í af- mælisgrein hér í blaðinu eftir áramótin. Næsta myndasaga: Eftir skáldkonuna heimsfrægu Daphne du Maurier ! næst síðasta bl. 'lauik mynda- sögunni „Systurnar í Höfrunga- stræti“. Sagan hefur hlotið mikl- ar vinsældir lesenda, og liefur blaðinu bætzt fjöldi nýrra áskrif- enda. Ákveðið er að halda þessu söguformi áfram. Verða birtar myndasögur, gerðar eftir nýjum, frægum skáldsögum, sem mikla athygli vekja um þessar mundir. Næsta saga mun hefjast um ára- fnótin. Er hún eftir hina heims- frægu skáldkonu Daphne du Maurier, Hljómleikar Karlakórs Akureyrar 15. þ. m. voru vel sóttir og það að verðugu. Hér hefur dvalið um skeið á vegum Sambands ís- lenzkra karlakóra sænski söng- kennarinn Gösta Myrgart ög ork- ar það ekki tvímælis að hann hef- ur þjálfað báða karlakórana hér, Geýsi og Karlakór Akureýrar með miklum ágætum. Á liann því stóra þökk skylda, svo og þeir aðilar, sem beitt hafa sér fyrir dvöl hans hér. Konsert sá er hér um ræðir heppnaðist í alla staði prýðilega, og var annars talsvert sérkennilegur um sumt, og þó einkum að því leyti að þar kom fram kvennakór með Sankti Luciu í gerfi Guðrúnar Tómas- dóttur Menntaskólanema og skil- aði hún sínu hlutverki vel, hefur prýðilega rödd og er auk þess, — og það skiptir mestu, — músík- ölsk með ágætum. Þá söng og hr. Gösta Myrgart nokkur lög og var söngur hans kærkomið og vel þegið nýnæmi. En annars var perlán í þessum hljómleikum tvímælalaust söngur Jóhanns Konráðssonar. Síðan ég heyrði hann fyrst hefi ég jafnan veitt honum sérstaka athygli og nú er svo komið, að mér er ekki sárs- aukalaust að minnast hans. Eg harma það mjög að hvorki hann eða aðrir hafa ekki í tæka tíð fundið, og tekið alvarlega, það geysilega söngvaraefni, sem hér er um að ræðá. Eg ýki það ekki að þessi maður er fullkom'lega í- gildi Stefanó Islandi hvað rödd og hæfileika snertir, og ég vildi óska að við gætum fundið ein- hver ráð til að hlynna alvarlega að þessum manni, því að við höfum ekki efni á að láta slíka hæfileika fara forgörðum. Eg vildi mega skjóta því til með- borgara minna, að taka þetta mál til alvarlegrar íhugunar, og má vera að ég kveðji mér aftur hljóðs í því sambandi, ef ég, eða aðrir, eygja eitthvert ráð til að notfæra ökkur það fágæta listamannsat- gerfi, sem hér er um að ræða. Akureyri, 15. desember 1946. Björgvin Guðmundsson. • „Dagur“ aftur á morgun Vegna þess hve mikið efni bíð- ur næsta bláðk kemur Dagur aft- ur út á morgun. Saga þessi er bráðskemmti- legt og spennandi ástarævintýri. Þeir, sem gerazt áskrifendur að Degi n-ú, tryggja sér þessa sögu, og þeir geta ennþá fengið mynda- söguna „Systurnar í Höfrunga- stræti“ alla í kaupbæti, á meðan upplagið endist. Þá fá þeir og jólabókina, 52 bls., sem er út komin. — Dragið ekki áð gera afgreiðslunni aðvartl Furðuleg reglugerð um gjafaböggla og tollskoðun: Skriflegt leyli Irá Reykjavík er nauðsynlegt til þess að menn megi senda gjafaböggla úr landi Á landamerkjum hins gamla og nýja heims Tollyfirvöld utan höfuð- staðarins mega ekki af- greiða slíka böggla. Er ætlast til, að farþegar til útlanda, með skipum, sem sigla frá höfnum úti á landi, mæti fyrst á „toll- stöðinni“ í Reykjavík? Nýlega birti stórblaðið New York. Times uppdrátt þann, er sést hér að ofan, og átti hann að gefa lesendum blaðsins hugmynd um mikilvægi íslands, sem millistöðvai- á flugleiðum í milli Evrópu og Ameríku. Jafnframt birti blaðið ýtarlega frásögn um átökin, sem urðu hér á landi fyrir skemmstu um Keflavíkurflugvöllinn og samningana við Bandaríkin. Var þar, eins og í nýlegri Reut- ersfrétt frá New York, talið, að Sovét-Rússland hefði áhuga fyrir málefnum íslands, sem kæmi m. a. fram í tilboðum um verzlun- arsamninga. Vegalengdin á kortiinu er flugleiðin frá Islandi til ýmissa helztu höfuðborga heims. Póststjórnin ákveður aukna póstflutn- inga með flugvélum Samkomulag við Flugfélagið frá s. 1. helgi Síðastliðinn sunundag kom Douglas Dakota flugvél Flugfé- lags íslands frá Reykjavík á flug- völlinn á Melgérðismelum með ca. 2V£ tonn af alls konar pósti. Er þetta mesti póstflutningur með íslenzikri flugvél til þessa. — Amerískir bílar hækka r 1 veroi Skýrt er frá því í amérískum blöðum, að jafnframt því sem opinbert eftirlit á verðlagi hafi verið afnumið, hafi viðskipti á kauphöllum aukizt mjög og verð á ýmsum málmum hafi stigið. Afleiðing þessa er sú, að General Motors félagið hefir tilkynnt, að það hafi neyðst til þess að hækka verð á bílum sínum um 100 doll- ara. Áður var bíláverð þess fé- lags tiltölulega lægra en hjá Ford og Chrysler. Þannig hófust stórauknir póst- flutningar með flugvélum hing- að norður, samkvæmt nýlega gerðu samkomulagi í milli póst- stjórnarinnar og Flugfélags ís- lands h. f., sem heldur uppi föst- um flugferðum hingað. ! Ætlunin er, að framvegis verði 1 allur póstur, jafnt blöð og böggl- ar, sem bréf, fluttur með flugvél- um, a. m. k. yfir veturinn, og er þetta stórmikil samgöngubót fyr-f ir allan almenning hér. Póst- flutningar með flugvél hafa hingað til verið hverfandi litlir I ° i og mest megnis bréfapostur. I Ekkert sérstakt flugpóstgjald | er reiknað af þessum pósti, a. m. k. ennþá sem komið er. Hátíðaguðsþjónustur í Möðruvalla- kl.prestakalli. — Jóladag kl. 1 e. h. Möðruvöllum og kl. 4 e. h. Glæsibæ. — Annan í jólum kl. 1 e. h. Bakka. — Sunnudaginn 29. des. kl. 2 e. h. Elli- heimilinu í Skjaldarvík. — Gamlaárs- dag kl. S e. h. Hjalteyri. — Nýársdag kl. 1 e. h. Bægisá. Eftir að viðgengist hafði um langan aldur, að gjaldeyrislög- gjöfin væri sniðgengin með send- ingum svokallaðra gjafaböggla úr landi, og ýmsar vörutegundir eru gengnar til þurrðar m. a. vegna óhóflegs útflutnings af þessu tagi, er loksins gripið til ráðstalfana til þess að koma í veg fyrir þetta og er tilgangurinn því góður og grignlegur. En aðferðin, sem viðhöfð er, er hins vegar í hæsta máta furðuleg og ennþá eitt sýnishomið af hinum ein- strengingslegu Reykjavíkursjón- armiðum valdhafa þess^ lands. — Samkvæmt reglugerð frá Við- skiptamálaráðuneytinu um þessi mál, sem birt var sem auglýsing í Rvíkurblöðunum — og auð- vitað eingöngu þar — er bannað að senda nokkra böggla úr landi, nema menn leggi fram skriflegt leyfi, annað tveggja frá Samn- inganefnd utanríkisviðskipta í Reykjavík, eða Viðskiptamála- ráðunueytinu sjálfu. Fólk úti á landi, sem vill koma smávegis gjöfum áleiðis, til ættingja og vina erlendis, verður fyrst að skrifri umsókn til Reykjavíkur og fá svar, sem oft vill reynast erfitt þegar opinberar stofnanir eiga í lilut — áður en það getur sent böggulinn. Með þessu móti sýn- ist alls ekki gert ráð fyrir, að riðr- ir en Reykvíkingar sendi slíka böggla, eða a. m. k. augljóst, að ráðherranum, sem setti reglu- gerðina, hefir ekki komið annað fólk í hug en það, sem höfuðstað- inn byggir. Því að hvergi er gert ráð fyrir því, að umboðsmenn ríkisvaldsiris á hverjum stað, toll- yfirvöld eða sýslumenn og bæjar- fógetar, geti afgreitt þessi leyfi, eftir sömu reglum og ráðneytið, og veitt landsmönnum öllum að sem mestu leyti sömu aðstöðu til sendinganna, heldur er aðeins miðað við þörf og þægindi Reyk- víkinga. Farþegarnir og „tollstöðin“. í annan stað setti Viðskipta- málaráðuneytið reglugerð um af- greiðsluu farþegaflutnings til út- (Framhald á 12. síðu).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.