Dagur - 08.01.1947, Síða 2

Dagur - 08.01.1947, Síða 2
2 DAGUR Miðvikudagur 8. janúar 1947 Síldarútvegsmenn og sjómenn eiga að borga verðbólguævintýri Olafs Thors Afleiðingin af verðbólgu- stjórn Olafs Thors. Þær staðreyndir urðu kunnar þingmönnum fyrir allmörgum vikurn síðan, að bátaútvegurinn myndi ekki getað stundað þorsk- veiðar í vetur, að öbreyttum að- stæðum. Þetta var þingmönnum gert kunnuo't með vfirlvisingu frá Landssambandi ísl. útvegs- manna, er síðar var birt í blöð- um og útvarpi. Margir útvegs- menn töldu, að fiskverðið þyrfti að hækka um 50% — úr 50 aur- um í 75 aura kg. — en nánari athugun virtist leiða í ljós, að 30% hækkun — úr 50 aurum í 65 aura kg. — væri nægjanleg, .þó því aðeins að miðað væri við meðalaíia í beztu verstöðvunum. Þessi staðreynd var næsta þungur áfdlisdómur fyrir rík- isstjórn Ólafs Tihors, sem farið hafði með völdin tvö undanfar- in ár. Ef dýrtíðin hefði verið stöðvuð haustið 1944, eins og Framsóknarmenn lögðu til og gerðu að skilyrði fyrir þátttöku sinni í ríkisstjórn, hefði út- gerðinni getað nægt 50 aura verð til að standa undir_rekstri sínum, og sú verðhækkun, er þar var umfram, hefði getað orðið lireinn arður. I stað þess þurfti hún nú 30% verðhækkun til að geta staðið undir rekstrinum vegna hinnar stórauknu dýrtíð- ar í landinu tvö seinustu árin. Þannig hafði stjórn Ólafs leik- ið þennan undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Stórum glæsilegri hefði þó af- koma útvegsins verið, ef farið hefði verið að ráðum Framsókn- armanna strax haustið 1941 og dýrtíðin stöðvuð þá, eins og þeir beyttu sér fyrir. Þá myndu út- gerðarmenn geta átt hin nýju skip sín skúldlaus að mestu eða öllu. Þá liefðu hlutasjómennirn- ir verið tekjuhæsta vinnustéttin, eins og þeir eiga líka að vera, þegar miðað er við áhættu starfs- ins og erfiði. -'Allar leiðir lokaðar, nema uppbótaleiðin. Það eitt var vitanlega heil- brigð og riikrétt afleiðing af stöðvun bátaútvegsins, að haf- ist yrði handa um stöðvun og niðurfærslu dýrtíðarinnar 4 og honum þannig tryggður arð- vænlegur grundvöllur til fram- búðar. Það var líka ein helsta krafa útvegsmanna, að dýrtíðin yrði stöðvuð. Framsóknarflokk- urinn var fyrir sitt leyti fús til að taka á sig ábyrgðina af slík- um ráðstöfunum, ef þær væru gerðar með réttlátu tilliti til annarra stétta, og þeir, sem mesta hefðu getuna, tækju full- | komlega sinn hluta af byrðun- um. Það kom hins vegar fljótt í ^ ljós í þinginu, að ekki myndi | fyrir hendi manndómur og áræði ( hjáihinum flokkunum til að taka þátt í slíkunr ráðstöfunum. Þegar svo var komið, var ekki nema um I stað raunhæfra ráðstafana, verð- ur haldið áfram að velta byrðum vaxandi dýrtíðar yfir á útgerðina Hin nýju lög um ríkisábyrgð og tryggingarsjóð vegna bátaútvegsins hafa verið mesta deilumálið, sem yfir- standandi þing hefur fengið til afgreiðslu. Einkum urðu deilurnar harðar um síldarskattinn, er lögin fjalla um. Þar sem hér er um mál að ræða, sem snertir útvegsmenn og sjómenn miklu máli — og raunar alla þjóðina —, þykir hlýða að gefa yfirlit um aðalatriði þess og meðferð þess á Alþingi. tvennt að velja: Láta útgerðina stöðvast eða halda áfram á þeirri braut, sem byrjað var á í lyrra, að láta ríkið ábyrgjast hækkun á fiskverðinu, þótt það gæti valdið því útgjöldum, svo að tugum millj. kr. skipti. Eins og ástatt var, töldu Fram- sóknarmenn betra aif tvennu illu að velja síðari kostinn. Með því var komið í veg fyrir það tjón, er leiddi af stöðvun útgerðarinnar. Hins vegar var hér vitanlega ekki um neina lausn að ræða, því að það getur ekki vara'ð lengi, að at- vinnuvegurinn, sem aflar rnestra teknanna, geti lifað á uppbótum úr ríkissjóði. Fyrr en síðar verður ríkið með einum eða öðrum hætti að sækja féð, sem fer í upp- bæturnar, til hans aftur, og upp- bæturnar verða þá ekki annað en blekking. Uppbótaleiðin er því fullkomnasta bráðabirgðaúrræði, sem getur kannske lánast einu sinni eða tvisvar, en ekki oftar. Og því aðeins getur uppbótaleið- in kcanið að bráðabirgðanotum, að dýrtíðin sé ekki látin aukast á sama tíma og éta up]r uppbæt- urnar og meira til. Þá getur farið svo fljótlega, að -65 aura verðið reynist útgerðinni eins ónógt og 50 aura verðið nú. Frumhlaup sósíalista. Þegar ljóst var orðið í þinginu, aðekki myndi verða samkomulag um aðra leið en uppbótaleiðina, hlupu sósíalistar til handa og fóta og íluttu frv., sem gekk í þá átt. Framsóknarflokkurinn vildi ekki taka þátt í flutningi þess frv., því aðhinir stjórnarflokkarnir höfðu þá til athugunar tekjuöflun til að mæta uppbótunum. Framsóknar- flokkurinn vildi ekki koma í veg fyrir, að þessir flokkar reyndu að finna iheilbrigða lausn þess máls. Niðurstaðan varð hins vegar sú, að Fnamsóknarflokkurinn gat ekki sætt sig við tekjupílun þeirra, síldarskattinn, eins og síð- ar verður rakið. Flokkurinn taldi ieigi að síður rétt að vera með- flytjandi frv. um ríkisábyrgðina og tryggingarsjóðini|. en áskildi sér óbundnar hendur um einstök atriði frv. Það er vitanlega eins rangt og nokkuð getur verið, að áður- nefnt frv. sósíalista haifi átt ein- hvern þátt í því að hráða fram- gangi þessa máls eða bæta íyrir því. Sósíalistar skárust hér úr 'leik til að reyna að auglýsa sig sem | mestu vini útvegsins. Það mun þeim ekki hafa tekizt. Hins vegar hafa þeir auglýst það vel með þessu ifrv. sínu, að næst Olafi Thors bera þeir höfuðábyrgðina á því, að högum útgerðarinnar er svo kornið eftir tveggja ára sjávar- útvegsmálastjórn þeirra, að hún þarf 30% verðhækkun til að mæta auknurn útgjöldum af völdum verðbólgunnar. \ ' Bardtta Framsóknarmanna fyrir stöðvun dýrtíðarinnar. Þó að Framsóknarflokkurinn veitti uppbótarleiðinni stuðning sinn í þetta skipti vegna þess, að aðrar leiðir voru lokaðar, gerði hann sér nypira en ljóst, að hér var um fyllsta bráðabirgðaúrræði að ræða og sem ekki myndi einu sinni hafa bráðabirgðanot, ef dýrtíðin yrð.i .ekki stöðvuð. Þess vegna lagði hann til strax við 1. umr. málsins í neðri deild, að sett yrði framán við lrv. ný grein, er hljóðaði á þessa leið: „Fyrir 7. febrúar 1947 leggi rikisstjórnin fyrir Alþingi til- lögur um stöðvun dýrtiðarinn- ar og pœr ráðstafanir, er nægja til pess að framleiðslan geti orðið arðvœnleg og tekjur þeirra, er að henni slarfa, það miklar í hlutfalli við tekjúr annarra, að framleiðslustörfin verði eftrisóknarverð." Með þessari tillögu vildi Frain- sóknarflokkurinn láta Alþingi marka það sem aðalúrræð' sitt í þessum máluny. að dýrtíðin yrði stöðvuð, og stuðla jafnframt að því, að það yrði aðalmálið í sam- bandi við væntanlega stjórnar- myndun. Hinir flokkarnir sner- ust öndverðir gegn þessu, en sam- þykktu í staðinn að ifela fjögurra manna nefnd frá þingflokkunum að gera tillögur um það fyrir 1. lebr. 1947 „á hvern veg verði komið í veg fyrir, að dýrtíðin í landinu vaxi“. Samkvæmt þeirri reynslu, sem fengin er af með- ferðinni á hagfræðingaálitinu, er þess ekki að vænta, að neinn ár- angur náist af störfum nýrrar nefndar. Með þessari nýju n.efnd- arskipun eru stjórnarflokkarnir raunverulega ekki að gera annað en að leggja dýrtíðarmálið til hliðar og það einmitt á þeim tíma, þegar unnið er að nýrri stjórnarmyndun, og það ætti að vera aðalmálið í viðræðunum um hana. Þegar Ijóst var, að áðurnefnd tillaga Framsóknarmanna myndi ekki ná samþykki, lögðu Fram- sóknarmenn til, að svo'h!jóðandi ákvæði yrði bætt við þá grein frv., sem fjallaði um nefndarskip- unina: „Á meðan tillögur nefndaf- innar koma ekki til fram- kværnda cða önnur ný úrræði i dýrtiðarmálunum, skal rikis- stjórnin nota heimildir þær, sem hún hefir í löguml, til að koma i veg fyrir hœkkun vísi- tölunnar frá þvi, sem hún er við gildislöku þessara laga.“ Þau lög, sém hér er einkum átt við, eru verðlagslögin og lög um heimildir til niðurgreiðslu. Með því að beita þessum lögum til hins ýtrasta, eiinkum þó verð- lagslögunum, væri áreiðanlega hægt að halda vísitölunni í skefj- um um nokkurn tíma, án veru- leg’s kostnaðar fyrir ríkissjóð. En það spáir illu um, að stjórnar- flokkarnir búist við miklum ár- angri af störfum nefndarinmar, að þeir felldu þessa tillögu. Verða ! því bersýnilega ekki á næstunni reistar neinar frekari skorður gegn vaxandi dýrtið og verð- bólgu. Það sézt hins vegar á framansögðu, að Framsóknar- fíokkurinn hefir gert sitt ítrasta til að, 'fá dý.rtíðina stöðvaða og talið það höfuðatriði í sambandi við meðferð útgerðarmálanna á þinginu. i Rétt er að geta þess, að Pétur Ottesen lagði til, að ekki yrði i greidd hærri dýrtíðaruppbót en ■ núM.,þar til öðruvísi verði ákveð- (ið með lögum“. Framsóknar- j menn sátu hjá við atkvæða- | greiðsluna um þessa tillögu, þar I sem þeir telja eigi fært að gera slíka ráðstöfun einhliða, heldur verði hún, ef til hennar væri gripið, að vera liður í heildarráð- stöfunum, sem ekki legðu byrð- arnar einhliða á eina stétt, held- ur hlutfallslega jafnt á alla eftir tekjum og efnahag. • Barátta Framsóknarmanna gegn sildarskattnum. í hinum nýju lögtim um r.íkis- ábyrgð og tryggingarsjóð vegna bátaútvegsins, er annað aðalat- riðið um uppbætur á fiskverðið, en hitt aðalatriðið um sérstak- an 'skatt á síldarafurðir, er nota skal til að mæta fiskuppbótun- um. Þótt Framsóknarflokkurinn teldi ekki óeðlilegt að séð yrði fyrir tekjum til að mæta upp- bótunum, jaifnhliða og þær voru samþykktar, beitti hann sér af fyllstu orku gegn þessari skatta- álagningu. Ástæður hans fyrir því voru m. a. þessar: Undanfarin tvö ár hefir verið rnikið síldarleysi, og er fjöldi út- gerðarmanna stórskuldugur a£ þeim sökuin. Þeirha'faþví fyllstu þörf fyrir að njóta alls síldai'- verðsins næsta ár til greiðslu á þessum skuldum sínum. Sama gildir um þá sjómenn, er borið hafa skarðan hlut frá borði vegna tveggja undanfarinna vertíða. Margir útgerðarmenn hafa ráðist í dýr skipakaup að und- tniförnu og gert það eftir hvatn- ingu stjórnarvaldanna. Það kem- ur því úr hörðustu átt, að stjórn- arvöldin skuli með nýjum skatta- álögum svijrta þá kannske eina möguleikanum til að borga skip- in niður áður en verðfallið kem- ur til sögunnar. Þessi nýi síldarskattur er mjög ranglátutj, þar sem hann legst þyngst á þá, er verst er.u staddir og minnsta ihaifa getuna. Hann er einnig ranglátur af þeirri ástæðu, að hanri leggst tiltölulega þyngra á þá útgerðarmennina, sem byggja afkomu sína aðallega á síldveiðum, og hafa því minni not fiskuppbótanna, eins og t. d. útgerðarmenn á Norðurlandi og Vestfjörðum. Það er í mesta máta kaldhæð- ið, ef gera á ráðstafanir til hjálp- ar útveginum, að taka það aftur með annarri hendinni, sem gefið er nreð hinni. -Verði -halli -af ábyrgðinni á fiskverðinu, ber því að afla tekna með öðrum hætti en þeim að taka þær af út- gerðinmi. Hætt er við því, ef teknanna er aflað á þennan liátt og það nægir til að fleyta útgerðinni í ár, verði engar frekari ráðstaf- anir gerðar til úrbóta í dýrtíðar- málunum. Síldarskatturinn verði þá sá „svæfill, sem reynt verði að sofa á gamla andvaraleysissvefn- inn“, eins og Hennann Jónasson orðaði það í efri deild. Vegna þessara ástæðna,. beittu Framsóknarmenn sér af alefli gegn síldarskattinum í því formi, sem hann var. Hitt tóku þeir fr.am, að þeir gætu vel hugsað sér róttækar ráðstafanir til að koma í veg fyrir verðbólgu af stór'hækkuðu síldarverði, en þá yrði hún framkvæmd þannig, að útgerðarmenn og sjómenn fengju fullkomlega það, sem þeim bæri, en hins vegar yrði ákveðinn hluti teknanna festur ufli nokkurt skeið, svo að pen- ingaveltan ykist ekki. í þessari baráttu fylgdu Fram- sóknarflokknum að miálum Finn- ur Jónsson, Pétur Ottesen, Sig- urður E. H’líðar og Sósíalistar. Af hálfu Sjálfstæðisflokksins og AlþýðuflokksinS var hins vegar beitt því ofurkappi undir for- ustu þeina Ólafs Thors og Ás- geirs Asgeirssonar, að slíks munu fá dæmi. Tókst þeim að lokum að koma síldarskattinum fram, eftir að Ingólfur Jónsson hafði (Framh. á 7. síðu).

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.