Dagur - 16.04.1947, Blaðsíða 1
Æskulýðsfundur
í Skjaldborgarbíó
n. k. sunnudag
Á sunnudaginn kemur, 20. apr.
kl. 1.30 e. h., verður haldinn
æskulýðsfundur í Skjaldborgar-
Bíó á vegum kirkjunnar hér á
slaðnum og templara, sem hafa
lánað fundinum húsnæði sitt.
Fundur þessi verður með
svipuðum hætti og æsku-
lýðsfundir Bræðralags, kristilegs
félags stúdenta í Reykjavík, er
1 aldnir voru í Tjamarbíó 2. fe-
brúar og 6. apríl «1.
Ræðumaður fundarins verður
sr Pétur Siigurgeirsson, einsöngv-,
ari Jóhann Konrúðsson, og við
hljóðfærið Áskell Jónsson, söng-
sljóri. Verður mikill almennur
söngur á fundinum.
Kvikmyndin, sem sýnd verður,
er frá háskólum í Kaliforníu, ís-
lendingum þar og víðar í Banda-
ríkjunum. Einnig verða sýndir
kvikmyndaþættir frá aldarhátíð
Menntaskólans í Reykjavík, frá
Austurvelli, íþróttavellinum og
fleiri stöðum 'í Reykjavík og úti
um land.
Fundur þessi er algjörlega fyr-
iv æskuna á Akureyri, og þess er
að vænta, að hún fjölmenni í
Skjaldborgarbíó á sunnudaginn
keinur, kl. 1.30 e. h.
Skjaldborgarbíó sýnir
fræga kvikmynd
Skjaldborgarbíó sýnir þessa
dagana fræga ameríska kvik-
mynd, er nefnist „Glötuð helgi“
(Lost Weekend). Myndin fjallar
um baráttu drykkjumanns og
hefir hlotið mikið lof í erlendum
blöðum. Aðalhlutverkið leikur
Ray Milland og hlaut einróma
lof fyrir.
Skjaldborgarbíó hafði frum-
sýningu á þessari mynd 1 gær-
kveldi og bauð þangað frétta-
mönnum og fleiri gestum. Nán-
ari umsögn um myndina verður
að bíða næsta blaðs.
Umtalaður í fréttum
Myndin er af Henry Wallace, fyrrv.
varaforseta Bandaríkjanna. Hann er
nú á ferðalagi um Evrópu og heldur
þar rœður og gagnrýnir ákaft utan-
ríkisstefnu Trumans forseta. Ræður
Wallace hafa vakið ákafa gremju í
Bandaríkjunum, og hafa sum blöðin
gengið svo langt, að heimta að hann
verði ákærður fyrir landráð, samkv.
lögum frá því seint á 18. öldl
Ríkissljórnin hefir fengið stórfelida nýja skaffa lögfesfa
Listaverk í snjónum
Myndin er af fögru likneski, sem frú Elisabet Geirmundsdóttir, Aðalstreeti
70 hér i beenum, gerði úr snjó framan við hus sitt á dögunum, þegar snjór-
xnn var sem mestur. Likneskið var sérl ega haglega gert og fagurt. En ,nú er
komin langþráð leysing — og líkneskið er horfið. — (Ljósm. E. Sigurgeirsson).
LeikféL Akureyrar 30 ára á laugardag
Afmælisins minnzt með hátíðasýningu og samsæti
Leikféiag Akureyrar á 30 ára
afmæli á laugardaginn kemur.
Það var stofnað 19 apríl 1917.
Stofnendur voru 14. Fyrstu
stjóm félagsins skipuðu Hall-
grímur Valdimarsson, Július
Havsteen og Sigurður E. Hlíðar.
Félagið hefir ákveðið að minnast
þessara tímamóta með hátíðasýn-
ingu í leikhúsinu næstk. laugar-
dagskvöld og með veglegu sam-
sæti að Hótel KEA síðasta vetrar-
dag.
HÁTÍÐASÝNINGIN.
Sýningin á laugardagskvöld
verður eingöngu fyrir boðsgesti
félagsins. Þar verða sýndir þættir
úr þessum leikritum: Nýjársnótt-
in eftir Indriða Einarsson,
Skugga-Sveinn eftir Matthíasjoc-
humsson og Æfintýri á gönguför
eftir Hostrup. Formaður félags-
ins flytur ávarp og hljómsveit
T heo Andersen leikur. Þessi
sýning verður endurtekin á
sunnudagskvöld fyrir almenn-
ing, og e. t. v. síðar.
SAMSÆTI.
Félagið gengst fyrir afmælis-
hófi að Hótel KEA síðasta vetrar-
dag og er þátttaka heimil öllum
leiklistarunnendum. Nánari til-
högun auglýst í blaðinu í dag.
AFMÆLISRIT.
Félagið gefur út myndarlegt
afmælisrit, þar sem rakin er saga
félgasins í stórum dráttum og
getið helztu leikara og leikstjóra,
er hér hafa starfað. Ritið er prýtt
miklum fjölda fallegra mynda.
í tilefni þessara tímamóta í
sögu félagsins hefir bæjarstjórn
Akureyrar ákveðið að veita því
(Framhald á 8. síðu).
Einstakir hafnarnefndarmenn
höfðu óskað þess, strax þegar
skemmdirnar urðu kunnar, að
bæjarstjóri, sem er formaður
nefndarinnar, kallaði hana sam-
an, en úr því varð ekki fyrr en í
fyrradag, er sunnanveðrið hafði
enn aukið á eyðilegginguna. Er
þetta sleifarlag furðulegt og virð-
ist ekki bera áhuga bæjarstjórans
eða framkvæmdasemi hans lof-
legt vitni. Ekkert virðist heldur
hafa verið gert til þess að stöðva
frekari skemmdir á þessu tíma-
bili.
Nú mun vera í ráði, að maður
Aðalfundur K. E. A.
7. og 8. maí
Ákveðið hefir verið að aðal-
fundur KEA verði haldinn hér í
bænum 7. og 8. maí næstk. Nán-
ari tilhögun verður auglýst í
næsta blaði.
Samgöngur um héraðið
batna
Unnið var að því í gær að opna
bílveginn út í Svarfaðardal og út
Svalbarðsströndina, og var búizt
við því, að þessar leiðir yrðu bíl-
færar í dag. Ennþá er ófært um
Öxnadal og Þelamörk, og verða
bændur þar að flytja mjólk sína
á sleðum að færum akvegi. Veg-
urinn inn fjörðinn er nú fær bíl-
um báðum megin Eyjafjarðarár,
en færi er þungt.
Mjólkursamlagsfundur
hefst í dag
Ársfundur Mjólkursamlags K.
F.. A. er haldinn hér í bænum í
dag og hefst kl. 1 e. h. í Skjald-
borg. Þar verður tekin ákvörðun
um endanlegt verð mjólkur á sl.
ári. Á fundinum eiga sæti 107
fulltrúar frá deildum Samlagsins.
Sýsluftmdur Eyjafjarðarsýslu hefir
setið á rökstólum hér í bænum að und-
anförnu. Er búizt við að honum ljúki
annað kvöld.
frá Vitamálaskrifstofunni komi
hingað og geri áætlun um alls-
herjarviðgerð á bryggjunni. Er
það vitaskuld gott út af fyrir sig.
En sú viðgerð mun taka langan
tíma, því að líklegt er, að nauð-
synlegt reynist að breikka alla
bryggjuna. Verður því verki ekki
lokið í skjótri svipan. En á með-
an sýnist alveg nauðsynlegt, að
hvrirbyggja, að sjór brjóti stærri
skörð í bryggjuna en orðið er, og
ættu ráðamenn bæjarins ekki að
þurfa lengri umhugsunartíma en
þeir þegar hafa fengið, til að
hefjast handa um það.
Skattahækkanirnar vegna
dýrtíðar og lagasetningar
síðustu þinga nema alls
um 50 millj. króna
Lækkun dýrtíðarinnar hef-
ir ekki „nægilegt þing-
fyigi“
Þegar ríkisstjórniin var mynd-
uð lýsti hún því yfir, að hún
mundi beita sér fyrir afgreiðslu
tekjuhallalausra fjárlaga. Mjög
skorti á að fjárlagafrumvarp það,
er fyrrv. stjóm halfði lagt fram,
væri þannig úr garði gert. Raun-
verulegur tekjuhalli á þvií skipti
mörgum milljónatugum. Á Al-
þingi var ekki ríkjandi áhugi fyr-
ir því, að skera niður útgjöld rík-
isins og forða því að nauðsynlegt
reyndist að leggja á nýja skatta til
þess að standa undir auknum út-
gjöldum ríkisins. Stjómin lagði
því fram þrjú tekjuöflunarfrum-
vörp í síðustu viku og hlutu þau
afgreiðslu þingsins sl. laugardag.
Með þeim er áætlað að tekjur
ríkisins hækki um 35 millj.
króna. Áður hafði stjómin hækk-
að verð á áfengi og tóbaki og er
áætlað að sú tekjuaukning nemi
15—16 millj. Alls hefir því stjóm-
in lagt á skatta er nema munu
um 50 millj. króna á þessu ári til
þess að geta staðið við skuldbind-
ingar þær, er Alþingi hefir lagt
ríkinu á herðar með löggjöf síð-
ustu missira og vegna dýrtíðar-
innar.
Við umræður um frumvörpin
í sl. viku lýsti Eysteinn Jónsson
því yfir, fyrir hönd Framsóknar-
flokksins, að flokkurinn hefði
óskað þess að önnur leið yrði far-
in, þ. e. að draga úr verðbólg-
unni og forða því þannig, að
leggja þyrfti á nýja skatta, en
þessi leið hafði ekki nægilegt
þingfylgi, sagði ráðherrann, og
var því ekki um annað að ræða
en afla nýrra tekna. Ráðherrann
lýsti því yfir, að Framsóknar-
flokkurinn teldi þessa tekjuöflun
aðeins bráðabirgðaúrræði og yrði
nú ekki hjá því komizt lengur, að
hefjast handa um raunhæfari að-
gtrðir í dýrtíðarmálunum. —
Mundi þessi nýja skattheimta e.
t. v. verða til þess að opna atigu
almennings og flokkanna fyrir
nauðsyn þess.
Hér fer á eftir aðalefni þessara
r.ýju laga.
Tóllahækkunin.
Aðal tekjuöflunarlögin fjalla
um hækkun á aðflutningsgjöld-
um árið 1947. Tekjuöflunin, sem
þar er fyrirhuguð, er þrenns kon-
ar:
I fyrsta lagi er vörumagnstoll-
(Framhald á 8, síðu).
Auknar skemmdir á hafnarbryggjunni
í sunnanveðrinu s. 1. laugardag
Bæjarstjóri hafði ekki kallað Hafnamefnd á fund
til að ræða fyrri skemmdir!
í sunnanrokinu sl. laugaxdag urðu enn auknar skemmdir á syðri
hafnarbryggjunni. Jókst enn niðurbrotið úr uppfyllingunni, því að
ekkert hafði verið gert til þess að fynirbyggja, að sjór flæddi inn um
gatið, sem kom á bóilverkið fyrir um það bil þremur vikum síðan.
Það hefir nú komiið í ljós, við eftirgrennslanir, að Hafnarnefnd
lialfði ekki haldið fund til þess að ræða fyrri skemmdir eða ráðstaf-
anir til þess að gera við þær og varna frekari eyðileggingu á mann-
virkinu.