Dagur - 16.04.1947, Blaðsíða 6
6
Miðvflcudagur 16. apríl 1947
f, 1 CLAUDÍA
SAGA HJÓNABANDS
EFTIR
ROSE FRANKEN j
43. dagur
(Framhald).
snobbeií, meira kynlíf og dugleg flenging. En gallínn var bara sá,
að Hartley var ekki maður til þess að innleiða neina af þessum
breycingum . Hann var allt of upptekinn af umhugsuninni um sinn
eigin blóðþrýsting.
„Ljómandi ertu hraustleg," sagði Júlía, um leið og Claudía kom
inn.
Claudía varð hálf feimfn af því að bera hreystina svo augljóslega
utan á sér. „Mikið er þessi stofa skemmtileg," sagði hún, til þess að
leiða umræðurnar inn á aðrar brautir.
„Já, hún er ágæt,“ sagði Júlía kæruleysislega. „Þú veist að við
erum að loka húsinu.“
„Loka húsinu? Nei, eg hefi ekki heyrt það fyrr. Hvers vegna?“
Júlía yppti öxlum. „Erfiðir tíinar," sagði hún. „Við höfum bók-
staflega ekki efni á því, að hafa það allt undir. Við ætlum að leigja
okkur litla íbúð á Plaza hóteli."
„0,“ sagði Claudía. Hún áttaði sig ekki á hvaða sparnaður væri
fólginn í því.
„Þú ætlar þó ekki að segja mér, að Davíð hafi ekki orðið var við
kreppuna," hélt Júlía áfram.
Einhver eðlishvöt kom Claudíu til þess að gera heldur minna en
meira úr fjárhagserfiðleikum þeirra. Það var ekki aðeins meðfætt
stolt hennar sem varnaði því, að hún viðurkenndi að þau ættu erf-
itt, heldur einnig undarleg tilfinning, sem gerði uppreist gegn
þessu sífellda barlómstali um kreppuna. „Við lifum svona svipað
og venjulega," sagði hún. Til allrar hamingju var hádegisverðurinn
tilbúinn einmitt á þessu augnabliki. Tvær snotrar stúlkur i ein-
kennisbúningi óku honum inn á hjólaborði. Þar var allt þakið í
diskum með silfurkúplum yfir.
„Eg vona að þér sé sama þótt við borðum hér,“ sagði Júlía.
Claudía var himinlifandi. Já, hún fullvissaði hana um að sér
væri alveg sama.
„Þú hefur heyrt um George Riddle," sagði Júlía allt í einu.
„Nei. Við vorum einmitt að tala um Riddlehjónin í gærkveldi,
en ekkert sérstakt."
„Hann fannst dauður í morgun í íbúð sinni. Sjálfsmorð."
Claudía rak upp ofurlítið angistar- og undarunaróp.
„0, hann var svo elskulegur maður. Hvað kom honum til þess
að gera þetta?“
„Fjárhagsvandræði, auðvitað."
„En hann var vellauðugur. Þau voru alltaf að halda veizlur.“
„Já, það voru hennar peningar nú þetta siðasta ár. Það er voða-
legt fyrir hana, því að þeir eru búnir. Til allrar hamingju var hann
hátt líftryggður."
Claudía hætti að borða og var hugsi. „Veslings frú Riddle," sagði
hún loksins. „Hvaða gagn er að vátryggingu án eiginmanns?"
„Hún er þó alltaf léttir," s'agði Júlía.
„Ekki fyrir mig.“ Henni leið illa. Ef þetta hefði nú verið Davíð.
Eða Hartley. Það var aldrei hægt að vita upp á hverju menn kynnu
að taka undir svona kringumstæðum.
„Hvernig líður Hartley?" spurði hún allt í einu.
„Hann er ekki á marga fiska.“
„Auminginn," sagði Claudía og lagði frá sér gaffalinn fyrir fullt
og allt. Maturinn var ágætur, en matarlystin var rokin út í veður og
vind.
Júlíu virtist létta mikið, sjálf hafði hún varla smakkað matinn.
Hún leit á armbandsúrið sitt og sagði svo: „Mér þykir leitt að þurfa
að ýta við þér, en eg hefi nefndarfund hér klukkan þrjú.“
„Eg var að fara," sagði Claudía hálf vandræðaleg. Það var undar-
legt, að hún skyldi aldrei mega koma til Júlíu án þess að þurfa að
fara þaðan í leiðu skapi.
„Já, á meðan eg man,“ sagði Júlía. „Eg hefi lofað að tala á fundi
í Sambandi þjóðfélagslega sinnaðra kvenna á mánudaginn kemur,
ef þið Davíð hefðu gaman af því, að koma.“
„Það væri skemmtilegt," sagði Claudía, en hugsaði með sjálfri sér
að tíu villtir hestar mundu ekki geta dregið þau þangað.
Þegar Claudía kom upp á skrifstofuna, sat Davíð við skrifborðið
sitt en Roger Killian lá makindalega í stónim leðurstól og var að
sötra mjólk úr glasi. Venjulega var hann skrafhreyfinn, en í Jretta
sinn sagði hann bara „Halló Claudía," og skundaði því næst inn á
sína einkaskrifstofu.
„Hvers vegna ferðu ekki heim, Roger?" kallaði Davíð á eftir hon-
um.
„Eg fer bráðum," svaraði hann.
„Hann gerir það víst,“ sagði Davíð við Claudíu. „Hann sefur að
(Framhald).
DAGUR
Framhald af 3. síðu
mér brautina vel, áður en keppni
hófst. Eitt það fyrsta, sem eg sá,
er eg kom að brautinni, var ís-
lenzki fáninn, sem nú blakti í
fyrsta skipti í „Rödkleiva“, einni
at stærstu og vafalaust bröttustu
svigbraut Noregs. (Vonandi á
hann einnig eftir að blakta þama
miklu oiftar). Svigbrautin var af-
ar erfið á að líta með hárnálum,
og öllum þeim „portasamstæð-
um“, sem vera eiga í meistara-
braut. En einkennandi fannst
mér, að maður kom öfugt að
hverri nárnál, þannag, að úr því
urðu 2 beygjur í staðinn fyrir 1,
ef maður tók þær eins og við er-
um vanir hér heima. Og á tveim
stöðum var uppbyggð snjóbrú
yfir gil til þess að komast inn í
skóginn, og á þessum snjóbrúm,
sem voru mjög mjóar, og um 4
metrar á hæð, voru „portin" lang
þrengst og erfiðust. En ef maður
fór fram af, hrapaði maður til
botns í brekkunni, þessar snjó-
brýr skutu flestum keppendum
skelk í bringu, enda voru þær
rannsakaðar nákvæmlega af öll-
um, og margt um þær rætt. Ann-
ars var brautin afar hörð, og það
hörð og brött neðst, að ef maður
datt fyrir neðan miðja braut, var
ekki við,lit að stoppa sig, fyrr en
niður á sléttu. Þetta og margt
tleira varð eg að gera mér ljóst,
áður en eg lagði af stað í keppn-
ina. Og þar sem eg var eini
keppandinn frá íslandi, varð eg
at standa báðar brekkurnar, til
þess að Island kæmist í úrslit
ásamt hinum þjóðunum, sem
höfðu miklu fleiri mönnum á að
skipa, því það var öllum ljóst,
vegna þess, hve brautin var hörð,
að margir myndu „keyra sig út
úr“, enda kom það líka á daginn.
Eg varð no. 42 út úr bruninu, og
J?að númer hafði eg sem rásnúm-
er í svigi, því að eins og áður er
sagt, réðu úrslit í bruni rásröð í
svigi. Fyrir aftan mig í bruni
voru auk Norðmanna: 2 Frakkar,
1 Svíi, 2 Ameríkumenn.
Stundvíslega kl. 2 byrjaði svig-
keppnin. Meðal áhorfenda var
norska konungsfjölskyldan, og
var henni fagnað ákaflega, er hún
tók sér sæti á upphækkuðum
palli, sem komið var fyrir sem
næst miðri brautinni.
Keppendurnir runnu nú niður
hver af öðrum, en þeim var start-
að með mínútu millibili, eins og
í bruni. og þess vegna voru tveir
í brautinni í einu, því að flestir
voru 11/2 mínútu á leiðinni nið-
ur, þetta fyrirkomulag flýtti
mjög mikið fyrir keppninni. No.
41 stóð á startinu, það var Amerí-
kani, eg var næsti maður og brátt
stóð eg á startinu. Eg man, að
ræsirinn spurði í símann um 41,
rétt áður en hann startaði mér,
en fékk það svar, að ekkert sæist
til 41 frá markinu. Þá var byrjað
að telja 5, 4, o. s. frv. „Nú“, gall
við, og eg af stað af fullum krafti,
mér gekk vel frá byrjun. Að vísu
keyrði eg ekki nema það, sem eg
þóttist viss með að standa og
„bremsaði" vel á öllum hættuleg-
ustu stöðunum. Þegar egkom
fram í brattann, var 41 að renna
i mark og hafði fengið slæman
tíma. Tími minn var 1 mín. 40
sek„ og mátti það teljast gott, þar
sem beztu tímarnir í fyrri ferð
voru frá 1 mín. 18 sek og 1 mín.
24 sek. Margir keyrðu sig „út úr“,
og þar á meðal margir ágætir
svigmenn, eins og t .d. Svíinn Is-
berg. Seinni ferðin var verri hjá
öilum, enda var brautin sums
staðar orðin mjög slæm og holótt,
en svell á milli. Mér gekk vel
fyrst, í seinni ferð, en hrasaði
framan í brattanum og fékk víta-
einingu. Þetta skeði, er eftir voru
um 5 „port“ í mark, eða þar sem
brautin var bröttust og hættuleg-
ust. Út úr samanlögðu bruni og
svigi, varð eg númer 33, eða færði
n.ig fram um 9 sæti á sviginu. Eg
er prýðilega ánægður með mitt
sæti, því að margir miklu betri
st igmenn en eg fóru ýmist „út úr
því“ eða voru á eftir mér, og þar
á meðal allir Ameríkanarnir
nema einn.
i I
I f
s 1
Bókaútsala
Bókaútgáfu Pálma H. Jónssonar, Akureyri,
5 -
1 3
| stendur nú yfir. — Þar getið þér fengið fjölda góðra f
| bóka fyrir allt að hálfvirði og jafnvel minna. — Hér f
| skulu taldar upp nokkrar bækur af öllum þeim \
I mörgu, sem þar fást nú: f
| 1
f Don Quixote, eftir Servantes.
Hamingjudagar heima í Noregi, e. Sigr. Undset. |
Lönd leyndardómanna, eftir Sven Hedin.
Töframaðurinn, eftir Lion Feuchtwangler.
Sjö mílna skórnir, eftir Richard Halliburton.
Skrúðsbóndinn, leikrit, eftir Bj. Guðmundsson. |
Nú er tækifærið. — Kaupið því, meðan úr nógu j
f er að velja. f
\ \
l z
Bókaverzlun Pálma H. Jónssonar, |
“ 3
Hafnarstræti 105 — Akureyri
c =
CmIMIMMMMIMIIMMIMMMMMMIMMMIIMIMMMMMMMIMMMMMMMMIMMMMMMIMIIMI 111110 IMIMMMIMMMMMMMMMMMMMMMMMMI?
MMMIMIMII MIMIMIIIflllllllMIIIIMIIIIIIIII»MIIIMIII(MIIHIMIIMUIIMIIIHIMIIIM»IIIMIII»IIIMMIIMIMIIMIMIMIMMIIMMMMMIMMIIHll*
! ÞEIR,
sem óska eftir að fá garðlönd til ræktunar hjá Akur- 1
I eyrarbæ, sæki um þau fyrir 25. þ. m. |
Eftirlitsmaður með görðunum veitir umsóknunum |
móttöku. Hann verður til viðtals á skrifstofu bæjar- 1
stjóra alla virka daga frá 16. þ. m„ kl. 5—6 e. h.
Akureyri, 14. apríl 1947. |
I Bæjarstjóri. J
7||IMMMMMMIMMMMIMMMIMMMMMMMMMIMMMMMI IIIIIIIIIIIIMIIMIIIIIIIMMMMMMMMIM ••111111111111IMMMIMMMMMMMMMMMMIM*
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild.