Dagur - 23.04.1947, Blaðsíða 1

Dagur - 23.04.1947, Blaðsíða 1
 Kristján X. látinn Friðrik IX. kemur til ; ríkis í Danmörku Að kvöldi hins 20. þ. m. lézt Kristján tíundi Danlakonung- ur, eftir nær 35 ára ríkisstjóm. Hann varð 76 ára gamall. Kristján konungur var í hópi ástsælustu þjóðhöfðingja álf- unnar, naut vinsælda og virð- ingar langt út fyrir landamæri ríkis síns. Framkomu hans á hernámsárunum í Danmörku mun lengi verða minnzt. Ein- beittni hans, æðruleysi og karl- mennska varð Ðönum styrkur og stoð í baráttu þeirra fyiir frelsinu. Konungur varð þjóð- hetja á þedm árum og er hans víða minnzt nú með þakklát- um hug. íslendingar minnast kon- ; ungs með virðingu og þakk- læti. Hann var konungur ís- lands um 32 ára skeið. Hann undirritaði sambandslögin 1918, en með þeim hlaut ís- land viðurkenningu sem full- valda ríki. Hann kom fjórum sinnum hingað til lands, ásamt dxottningu sixmi, og ferðaðist um landið, kom m. a. tvisvar hingað til Akureyrar. Fram- koma konungs við lýðveldis- tökuna 17. júní 1944 sýndi hver drengskaparmaður hann var og vakti kveðja hans þá hrifningu og þökk í brjóstum íslendinga. Daginn eftir andlát kon- ungs, tilkynnti forsætisráð- herra Dana, Knud Kristensen, Valdatöku Friðriks konungs ; níunda. Flutti konungur ávarp til þjóðarinnar og var ákaft hylltur. Friðrik konung- ur er 48 ára að aldri. Helztu æviatriða Kristjáhs ; konungs er getið í grein á 5. bls. í * B1 m ■ i vm XXX. árg. Akureyri, miðvikudaginn 23. apríl 1947 16. tbl. Olíusamlök kauplélaga og úlvegsmanna helja olíuverzlun í stórum slíl Hátíðasýning Leikfélagsins var virðuleg og ánægjuleg Félaginu bárust góðar gjafir á 30 ára afmælinu Þéttskipað var í sæti í leikhúsinu sl. laugardagskvöld, er hátíða- sýning Leikfélags Akureyrar hófst, í tilefni af 30 ára afmæli félags- ins. Viðtökur áhorfenda voru ágætar og var félaginu og forvígis- mönnum þess margvíslegur sómi sýndur þetta kvöld. Eftir að formaður félagsins, Guðmundur Gunnarsson, hafði boðið gesti velkomna og rakið í stórum dráttuan sögu þess, lék hljómsveit Theo Andersen nokk- ur lög, en síðan hófst hátíðasýn- ingin. Var fyrst sýndur þáttur úr Skugga-Sveini Matthíasar. Kom þar fram einn af kunnustu leik- urum félagsins frá fyrri tíð, Jón Steingrímsson, er oftast hefir fer- ið með hlutverk Sveins hér. Var honum ákaft fagnað. Aðrir leik- endur í þessum þeetti voru Ami Bjömsson, Tryggvi Kirstjánsson, Sigmundur Bjömsson og Ingólf- ur Kristinsson, Leikstjóri var Guðm. Gunnarsíton. Að þessum þætti loknum kvaddi sér hljóðs Tómas Steingrímsson, form. Geysis, og flutti félaginu árnað- aróskir og þakkaði langt og gott samstarf. Geysix söng síðan tvö lög til heiðurs Leikfélaginu. Næst var sýning á þætti úr Nýj- ársnóttinni, er tókst ágætlega. í þessum þætti léku frú Svava Níu togbátar ákærðir fyrir landhelgis- brot eftir fyrsta landhelgisgæzluflug í sögu landsins Verða Catalina-flugbátar notaðir til landhelgisgæzlu í framtíðinni? Síðastliðinn laugardag fóm embættismenn landhelgisgæzl- unnar í eftirlitsferð norður fyrir land, í einum af flugbátum Flug- íéílags íslands, er landhelgisþjón- ustan hafði leigt til fararinnar, ásamt áhöfn. Umkvörtun mun hafa borizt suður tum landhelgisveiðar tog- báta innarlega á Húnaflóa og var ætlunin að rannsaka tifefni þeirra kvartana. Árangur þessa fvrsta landhelgisflugs varð sá, að flugvélin kom að níu bátum við Vatnsnes og voru þeir allir ákærðir fyrir landhelgisbrot. Bát- ar þessir em: Andey og Eldey frá Hrísey, Njörður, Akureyri, Súl- an, Akureyri, Hannes Hafstein, Dalvík, Njáll, ólafsfirði, Sigurð- ur, Gestur og Geir frá Siglufirði. Einn þessara báta, Hannes Haf- stein, er kominn hingað til bæjar- ins og hefir mál ham verið tekið fyrir hér í bænum. Var búizt við því, að dómur mundi £alla í gær- kveldi og að hann mundi sleppa með hlerasekx. Um rannsiókn í málum ann- arra hiáta er ‘blaðinu ekki kunn- ugt. Sýslumaður Húnvetninga haföi farið til Skagastrandar sl. siznnudagsmorgun til þess að taka fyrir mál einhverra báta, er þangað höfðu leitað. Ekki höfðu borizt fregnir af þeim réttarhöld- um í gær, er blaðið átti tal við sýslunwannsskrifstofuna á Bkinduósi, en sambandslaust er við Skagaströnd. Þessir ajtburðir hafa vakið mikla athygli. Menn harma það, að íslenzkir fiskimenn skuli ekki hafa virt laindhelgina. Fregnir af slíkum atjburðum munu ekki verða léttir í baráttu landsmanna fyrir auknum réttindum sínum við strendur landsins. En einkum er tekið eftir því, að það var Catalinaflugbátur, sem notaður var í þennan leið- (Framhald á 8. síðu). Jónsdóttir, frú Sigurjóna Jakobs- dóttir, frk. Freyja Antonsdóttir, l:rk. Rósa Gísladóttir, frk. Bryn- íildur Steingrímsdóttir, frk. Márgrét Steingrímsdóttir frú Anna Tryggva, Bjöm Sigmunds- son og Stefán Halldórsson. Guð- mundur Gunnarsson var leik- sljóri þessarar sýningar. Síðast var sýndur þáttur úr „Æfintýri á gönguför“ eftir Hostrup, undir leikstjórn Jóns Norðfjörð. Fór hann með hlutverk Skrifta-Hans, en aðrir leikendur voru frú Björg Baldvinsdóttir, frú Helga Jónsdóttir, frú Jóninna Þor- steinsdóttir, Skjöldur Hlíðar, Jó- hannes Jónasson, Zóphonias Ámason og Jóhann Ögmunds- son. Sumir þessara leikenda höfðu ekki komið fram á sviðinu nú um nokkurra ára skeið, en voru áður í hópi vinsælustu leik- ara hér. Var þessum þætti ágæt- lega fagnað, enda tókst sýningin vel, var fjörleg og skemmtileg. Er sýningunum var lokið kvaddi sér hljóðs .Þorsteinn M Jónsson forseti bæjarstjórnar. — Ávarpaði hann Leikfélagið með snjallri ræðu, minnti á það menningarhlutverk er það hefði með höndum og óeigingirni og síarfs leikfélagsmeðlima. Síðan afhenti hann formanni félagsins 15000 krónur að gjöf frá Akur- eyrarkaupstað, sem viðurkenn- ingu fyrir störf félagsins á liðn- um árum. Jafnframt ávarpaði forseti bæjarstjórnarinnar Hall- grím Valdimarsson, hinn kunna forvígismann leiklistarmála hér, þakkaði honum störf hans og af- henti honum 5000 krónur frá Akureyrarkaupstað, sem viður- kenningu fyrir þátt hans í leik- listarmenningu bæjarfélagsins Fjöldi blómvanda barst til fé- lagsins og leikenda og mikill fjöldi árnaðaróska víða að. M. a. barst kveðja frá Leikfélagi Reykjavíkur og fagur silfurbikar áletraður . Að lokum voru heiðursfélagar Leikfélagsins, frú Svava Jónsdótt- ir, Hallgrímur Valdimársson og Ingimar Eydal, hylltir af öllum áhorfendum. Yfir þessu kvöldi var skemmti- legur og virðulegur blær og bar þess órækt vitni, hvern hug bæj- arbúar bera til Leikfélagsins. — Þessara tímamóta í leiklistar- sögu bæjarfélagsins er nánar minnst í leiðara blaðsins í dag. Mjólkurframleiðslan í Eyjafirði jókst um 15,5% s. 1. ár Meðalverð til framleið- enda kr. 1.33 Ársfundur Mjólkursamlags K. E. A. var haldinn hér í bænum 16. þ. m. Fundinn sóttu 98 full- tiúar 12 félagsdeilda samlagsins. Samlagið tók á móti 5.390.538 ltr. mjólkur á árinu 1946, með 3.59% ficumagni. Þetta er 723 þús. ltr. meira en árið 1945, eða 15.5% aukning. Árið 1945 jókst mjólkurmagn um 11% frá árinu á undan. — Mjólkurframleiðslan í héraðinu er því í örum vexti. Samlagið seldi 36% mjólkur- innar til neyzlu, en 64% fóru til vinnslu. Framleiðendur höfðu fengið greidda 107.6 aura fyrir ltr. og urðu eftirstöðvar til verð uppbótar 25.6 au. Meðalverð í l.tra var því 133.1 aurar. Á fundinum flutti Ólafur Jóns- son framkv-stj. erindi um súg þurrkun á heyi og Hjörtur Eld járn framkv.stj. erindi um starfs- árangur nautgriparæktarfélag- anna í Eyjafirði og starf sæðinga- stöðvarinnar að Grísabóli. — Fundurinn samþykkti allríflega fjárveitingu til þessarar stofnun ar. Bærinn rafmagnslaus í fyrradag og til hádegis í gær Bilun varð á háspennulínunni frá Laxá í óveðri þvi, er brast á sl. sunnudagskvöld. Slitnaði línan á nokkrum stöðum í Ljósavatns- skarði og var viðgerð ekki lokið fyrr en um hádegi í gær. Mikið óveður hefir geysað um Norður- land, og hafa orðið rafmagnsbil- anir víðar, t. d. á Blönduósi. Guðmundur Jónsson söngvari væntanlegur til bæjarins Guðmundur Jónsson, söngvari hafði ráðgert að koma til bæjar- ins í gær og halda söngskemmtun hér á vegum Tónlistarfélags Ak- ureyrar. En vegna óveðurs komst söngvarinn ekki norður, en mun væntanlegur með fyrstu flugferð og þá syngja hér. Fritz Weisshap- pel verður í för með Guðmundi og leikur undir fyrir hann. Fyrsta söngskemmtunin verður aðeins fyrir styrktarfélaga Tónlistarfé- lagsins, en líklegt er, að Guð- niundur syngi aftur opinberlega fyrir almenning. Olíufélagið hefir keypt stöðina í Hvalf irði og gert samninga um olíusölu til nýju togaranna og síldar- verksmiðja ríkisins Kommúnistar drótta land- ráðum að samvinnu- mönnum Snemma í þessum mánuði var gengið frá samningum milli rík- isstjómarinnar og Olíufélagsins h.f. um sölu olíustöðvarinnar í Hvallfirði. Olíufélagið hefir keypt 2/3 Muta stöðvarinnar fyr- ir 1.3 millj. króna og Hvalveiða- félagið 1/3 hlutann fyiir 650 þúsund kr. Áður var ríkið búið að taka til sín ýmsar eignir í Hvalfirði, er vom með í kaupun- um frá Bandaríkjunum. Óselt er einnig 700 smálesta tanksldp er fylgdi stöðinni. Hefir ríkið því hagnast vel á kaupum þessum, því að það greiddi aðeins 2 millj. fyrir stöðina. Olíusala til togaraflotans og SR. Með kaupunum á Hvalfjarð- arstöðinni hafa hin nýju olíusam- tök kaupfélaganna og útvegs- raanna skapað sér aðstöðu til þess að hefja þegar olíuverzlun í stórum stíl. Kaupverðið mun einnig mjög hagstætt og er samn- ingurinn um yfirtökuna mikið hagræði fyrir þessi samtök og veldur því, að þau geta látið til sín taka í olíuverzluninni fyrr en ella. Hefir félagið þegar gert siimninga um olíusölu í stómm stíl til útgerðarinnar. Flestir hinna nýju togara hafa samið við félagið um ölíukaup úr geymun- um í Hvalfirði. Gildir samningur þessi um 2 næstu ár. Brennsluolí- ui togaranna þarfnast sérstakra geyma, sem ekki eru til annars staðar á landinu. Eru olíumál togaraútgerðarinnar þar með leyst á hinn ákjósanlegasta hátt. Þá hefir Olíufélagið samið við Síldarverksmiðjur ríkisins um olíusölu til þeirra, en unnið er að því, að breyta rekstri verksmiðj- anna úr kolakyndingu í olíu- kyndingu. Þessi samningur er einnig hinn markverðasti og mun hafa mikla þýðingu fyrir s í ldarútveginn. H val ve iðafélagið nýja hefir einnig gert samning um olíukaup frá stöðinni í Hval- firði. Þessir samningar um olíusölu í stórum stíl til útgerðarinnar sýna hverja þýðingu það hefir, að (Framhald á 8. síðu).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.