Dagur - 23.04.1947, Blaðsíða 8
8
DAGUR
Miðvikudagur 23. apríl 1947
Þakka hjartanlega auðsýnda samúð og Mýhug vegna and-
láts og jarðarfarar konunnar minnar,
GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR.
Sérstaklega þakka eg þeim frúnum, Ingibjörgu Austfjörð
og Báru Sigurjónsdóttir, fyrir þeirtú miklu hjálp.
Fyrir mína hönd, barna minna, tengdabarnaogbarnabama.
Hjörtur Lárusson.
Jarðarför SIGURJÓNS JÓNSSONAR fer fram laugar-
daginn 26. þ. m., og hefst með húskveðju að Byrgi, Glerár-
þorpi, kl. 1.30 e. h. — Jarðsett verður að Lögmannshlíð.
Börn, tengdaböm og barnaböm.
Þökkuxn innilega þeim mörgu, sem á eánn eða annan hátt
auðsýndu hjálp og samúð við andlát og jarðarför JÓ-
HANNS sonar okkar.
Benedikta Sigvaldadóttir. Stefán Guðjónsson.
Glæsilegasta og bezta
fermingargjöfin
er tvirruelalaust
íslendingasögumar nýju
Síðari hiutinn kemur út 15. maí.
Foreldrar, gefið börnunum yðar aðeins það
bezta i fermingargjöf, þegar það er fáanlegt.
Bókaverzlunin EDDA h/f, Akureyri
«—...■■ ■ .......—— ■ _ ...........jj
....... .............
/"' ....—*-------------
Úr bæ o$ byggð
....—— =
□ Huld 5947423 — Fundi frestað
I. O. O. F. - 1284266. -
KIRKJAN. Messað á Akureyri á
sumardaginn fyrsta klukkan 10.30 f.
h. Skátamessa. Allir hjartanlega vel-
komnir. — Messað næstk. sunnudag
kl. 11 f. h. Barnaguðsþjónusta.
Frá stariinu í ,£íon“. Föstud. 25.
apríl og sunnud. 27. apríl verða al-
mennar samkomur. Þar tala Gunnar
Sigurjónsson, cand. theol. og, að öllu
forfallalausu, Bjami Eyjólfsson, ritstj.
— Allir hjartanlega velkomnir! —
Sunnudagaskólinn kl. 10.30 f. h. á
sunnudaginn. Öll böm velkomin!
Akureyringar! Verið velkomnir á
kristilegu samkomumar, sem haldnar
eru í Verzlunarmannafélagshúsinu,
Gránufélagsgötu 9 (niðri), hvem
íunnudag kl. 8.30 e. h. og hvem
fimmtudag kl. 8.3 Oe. h. Fílafeldía.
Hjálpræðisherirm, Akureyri. Föstu-
daginn 25. apríi kl. 6 e ,h. kl. 6: Barna-
samkoma. Kl. 8.30: Opinber samkoma.
— Sunnudaginn 27. apríl kl. 11 f. h.:
Helgunarsamkoma. Kl. 2: Sunnudaga-
skóli. Kl. 5.30: Bamasamkoma. Kl.
8.30: Hátíðasamkoma. Ein- og tví-
söngur, upplestur o. fl. — Mánudag
28. apríl kl. 4: Heimilissambandið. Kl.
8.30: Æskulýðsfélag. — Allir vel-
komnir.
Aðalíundur Karlakórsins Geysis var
haldinn í Geysishúsinu í fyrradag. —
Formaður kórsins var endurkjörínn
Tómas Steingrímsson.
Skjaldborgarbíó sýnir kvikmyndina
Glötuð helgi þessa viku. Síðustu for-
vöð að sjá þessa merkilegu kvikmynd
eru um næstu helgi.
Starndarkirkja. Áheit frá ónefndri
konu kr. 50.00.
Kvertiél. Hlíi hefir fjársöfnun til
icóða fyrir dagheimili bama á morg-
un. Merki verða seid á götunum, bazar
C£ kaffi L Hótel Norðurlandi kl. 2.30.
Kvöldskemmtun í Samkomuhúsi bæj-
rrins og dansleikur. Einnig danr.leikur
-t Hóte! Norðuriandi í kvöld, til
ágóða fyiir sama málefni.
Bamastúkan Samúð heldur fund
næstkomandi sunnudag kl. 10 árd. —
Kosnir fulltrúar á Stórstúkuþing og
unglingaregluþing. — Skemmtiatriði.
Félagar fjölmennið!
Stúkan Brynja nr. 99 heldur fund í
Skjaldborg mánudaginn 28. þ. m. kl.
l. 30 e. h. — Dagskrá: Venjuleg fund-
arstörf. Inntaka nýrra félaga. Kosning
embættismanna. Hagnefnd skemmtir
á fundinum.
Bamastúkan Bemskan heldur fund
í Skjaldborg næstk. sunnudag, 26. þ.
m. , kl. 1 e. h. — Kosning embættis-
manna. Upplestur. Sjónleikur o. fl.
Akureyringar! Eyíitðingar! Dregið
verður í happdrætti Bifreiðastjórafé-
lagsins „Hreyfils" fimmtudaginn 1.
maí næstk. Tveir glæsilegir vinningar:
1. Nýr 6 manna Chevroletbifreið. 2.
Tíu daga ferð í sumarfríinu í 5 farþega
bifreið. — Freystið gæfunnar! Kaupið
dappdrættismiða á bifreiðastöðvum
bæjarins, í Bókaverzlun Gunnl. Tr.
Jónssonar og hjá Svavari Jóhannssyni,
c/o. Bifreiðaeftirlitinu. Hver verður
sá heppni? Einhver hér?
Ný íélagsbók irá Máli og mennittgu
er komin út Heitir hún Kjamorka á
komandi tímum, eftir David Dietz. —
Þýðinguna hefir gert Ágúst H. Bjama-
son. Félagsmenn í Akureyrarumdæmi
vitji bókarinnar í Bókaverzlun Pálma
H. Jónssonar.
Heilsuvemd, timarit Náttúmlækn-
ingafélags íslands, 4. hefti 1. árgangs
(1946), er nýkomið út Efni þess ar
sem hér segir: Þrjár greinar eftír rit-
stjórann, Jónas lækni Krístjánsson:
Lausnin á gátu sjúkdómanna, á fyrir-
ifcstri hjá Are Waerland, og munurinn
á almennum lækningum og náttúm-
lækningum. Líf er eldur, eftir Are
Waerland. Hvemig eg læknaðist af
eksemi, eftir Ingólf Sveinsson, lög-
rtgluþjón. Reynslan er sannleikur, eft-
ir Pétur Jakobsson. Danskur kven-
læknir kemur til íslands. Upskriftir.
Tannskemmdir og styrjaldir. Jónas
Kristjánsson heiðraður. Nokkrar
myndir prýða ritið.
| Olíusamtök kaupfélagana
(Framhald af 1. síðu).
samvinnufélögin beittu sér fyrir
alinnlendum olíusamtökum á sl.
ári. Þeir samningar, sem þegar
liafa verið gerðir, munu vera til
mikilla hagsbóta fyrir útgerðina
yfirleitt og innan skamms mun
félagið hefjast handa um smíði
olíugeyma við helztu verstöðvar
landsins og skapa sér þannig að-
stöðu til þess að geta skipt við
sem flesta aðila í landinu, er
þurfa að nota olíu og benzín til
aivinnureksturs.
Landráðabrigzl kommúnista.
Það mundi ekki hafa komið á
óvart þótt þeir erlendu olíu-
hringar, er hér starfa, hefðu
reynt að gera þessi innlendu
samtök tortryggileg. Hitt þykir
gegna furðu, að kommúnistar
hafa í blaðakosti sínum — og á
Alþingi — þyrlað upp miklu
moldviðri í sambandi við kaup
Olíufélagsins á Hvalfjarðarstöð-
inni, hafa jafnvel brigzlað rík-
isstjórninni og olíusamtökunum
um landráðl Samkvæmt frásögn
kommúnistablaðanna af þessum
merku framkvæmdum, hefir
bandaríska félagið Standard Oil
náð Hvalfjarðarstöðinni undir
sig og er hún dulbúin herstöð
Bandaríkjamanna. Þessi skrif eru
hin furðulegustu. Kommúnistar
vita vel að kaupfélögin og olíu-
samlög útvegsmanna eiga Olíufé-
lagið h.f. og hafa þar öll ráð. Fé-
lagið er byggt upp af innlendu
fjármagni og er eina olíufélagið
hérlendis, sem ekki er í beinum
tengslum við erlent fjármagn.
Allt tal um „leppa“ í þessu sam-
bandi er því ósvífin blekking.
Einu tengsl Olíufélagsins við
Standard Oil eru þau, að það hef-
ir söluumboð á olíum frá hinu
bandaríska félagi, hér á landi. Er
sannast að segja ekki auðvelt að
sjá hvernig kommúnistar ætlast
til þess, að Olíufélagið gegni því
hlutverki, að útvega útgerðinni
og öðrum atvinnurekstri ódýra
olíu, ef það má ekki kaupa hana
frá erlendum framleiðendum. —
Kommúnistar hafa lýst því yfir,
að þeir vilji láta jafna olíustöðina
í Hvalfirði við jörðu, vegna hern-
aðarhættu. Samkvæmt þessari
fáranlegu kenningu, ætti þá að
eyðileggja öll þau mannvirki hér,
er gætu haft þýðingu í hernaði.
Verður ekki séð, að meiri ástæða
sé þá til að spara olíugeymana við
Reykjavík og víðar á landinu,
flugvellina, hafnarmannvirkin o.
s. frv.
Kommúnistar leppár ealends
auðhrings.
Ef ráðum kommúnista hefði
verið fylgt í Hvalfjarðarmálinu,
mundu milljónaverðmæti hafa
farið forgörðum, endurbætur
þær á olíuverzluninni, sem nú
eru að verða að veruleika, hafa
tafist um mörg ár og kostað at-
vinnuvegi landsmanna mikil,
ónauðsynleg útgjöld. Allt þetta
bendir til þess, að uppþot komm-
únista út af Hvalfjarðarkaupun-
um, sé sprottið af annarri rót en
umhyggju fyrir sjálfstæði og at-
vinnulífi landsmanna. Má í því
sambandi minna á, að sumir
helztu forkólfar kommúnista-
flokksins eru aðaleigendur olíu-
. og benzinsölufélagsins Nafta h.f.,
sem er leppfélag erlends auð-
lirings. Renna því fleiri en ein
stoð undir hina furðulegu og
óþjóðlegu afstöðu kommúnista í
þessu stórmáli.
Níu togbátar kærðir
(Framhald af 1. síðu).
angur. Báturinn lenti á sjónum
við hlið landhelgisbrjótanna. —
Áttu þeir ekki undankomu auð-
ið. Þetta er ábending um það, að
hentugt muni að nota Catalina-
flugbáta til landhelgisgæzlu að
verulegu leyti í framtíðinni. —
Fiugvélar þessar eru framúrskar-
andi öruggar og flestum flugvél-
um hæfari til flugs í misjöfnum
veðrum. Þá geta þær verið mjög
ltngi á flugi í einu. Catalinaflug-
bátur, sem notaður væri til síld-
arleitar fyrir Norðurlandi á
sumrum, mundi jafnframt geta
varið landhelgina frá Homi til
Langaness, að áliti ýmsra, sem
sérþekkingu hafa á þessum mál-
um. Landhelgisgæzlan hefir ver-
ið í molum síðustu mánuðina. —
Sjálfsagt virðist að haldið verði
áfram tilraunum með gæzlu land-
helginnar úr lofti. Bendir margt
til þess, að Catalinabátar muni
koma að miklum notum við slík
störf í framtíðinni.
Vegleg gjöf til sum-
ardagheimilis barna
Kvenfélagið Hlíf hefir fjár
söfnun til þessa nauðsynja-
máls á morgun
Nýlega hefir Kvenfélaginu
Hlíf borizt vegleg gjöf í sumar-
dagheimilissjóð sinn frá einu af
iðnaðarfyrirtækjum bæjarins,
Amaro hi. Forráðamenn þess
sendu kvenfélaginu 10.000 krón-
ur til þessa nauðsynjamáls, en
eins og kunnugt er hefir Hlíf
fjársöfnun með höndum til þess
að koma á fót dagheimili fyrir
börn úr bænum, og hefir þegar
iengið land undir bygginguna
hér sunnan og ofan við bæinn. —
Á morgun — sumardaginn fyrsta
— hefir Hlíf almenna fjársöfnun
fyrir þennan sjóð. Verður bazar
og kaffisaila á Hótel Norðurlandd,
en kvöldskemmtun og dans í
Samkomuhúsi bæjarins. Á kvöld-
skemmtuninni verður leikinn
gamanleikur og fara félagskonur
með öll hlutverkin. Þá verður
merkjasala á götum bæjarins. —
\’ænta félagskonur sér góðs
stuðnings almennings í bænum.
F rístundamálarar
stofna félag
Síðastliðinn sunnudag var
stofnað Félag frístundamálara á
Akureyri. Stofnendur voru 20.
Tilgangur félagsins er, „að koma
á samvinnu meðal þeirra, er
kggja stund á myndlíst í tóm-
stundum sínum. Fyrst og fremst
sé lögð áherzla á, að félagarnir
geti unnið sjálfstætt að þeim
verkefnum, er þeir velja sér.“ —
Stjórn félagsins skipa: Haukur
Stefánsson, form., Brynja Hlíð-
ar, Baldur Eiríksson, Emil Sig-
urðsson og Garðar Loftsson.
íbúð
Hef verið beðinn að útvega
2—3 herbergja íbúð, til eins
árs. Fyrirframgreiðsla.
Gunnar Steingrimsson.
Sími 302.
Brezka fyrirtækið tekur
að sér rottueyðingu hér
Brezka fyrirtækið, The British
Ratin Co„ Ltd., hefir tekið til-
boði bæjarstjórnar um rottueyð-
ingu hér fyrir 105.000 kr. Eru
starfsmenn væntanlegir hingað
u.m 20. maí næstk., og mun þá
starfið hefjast strax.
Þingi í. B. A. lokið
Þing ÍBA lauk 20. þ. m. Á
þinginu áttu sæti 28 fulltrúar
íþróttafélaganna og sérráðanna í
bænum. Þingið ræddi íþrótta-
vallamál bæjarins, yfirbyggða
sundlaug, skíðahótel og gerði
áætlun um íþróttamót sumarsins.
Nánar verður greint frá störfum
þingsins síðar. Formaður var end-
urkjörinn Ármann Dalmanns-
son.
Til sjúkrahússins. Gjöf frá ónefnd-
um kr. 400.00. Gjöf frá Helgu Jónsd.
ki'. 50.00. Áheit frá Jóni Laxdal kr.
100.00. Áheit frá Ö. S..kr. 20.00. Með
þökkum meðtekið. G. KarL Péturason.
Cheviot
í fermingarföt
Gudmanns Verzlun
Otto Schiöth.
Ágætt herbergi
til leigu í miðbænm, frá 1. eða
14. maí, gegn lítilsháttar hús-
hjálp. Uppl. í síma 3.
f== Shiaiðiiorgar-Bfð
Sýningar vikunnar:
Glötuð helgi
Lundúnaborg
í lampaljósi
Seldur á leigu
(ný mynd).
Síðxistu sýningar þessara
mynda um helgina.
^NÝJA BÍÓ=1
Næsta mynd:
Bak við tjöldin
(George White’s Scandals)
Leikstjóri: Felix E. Feist.
Áðalhlutverk:
Joan Davids — Jack Haley
Martha Holliday.