Dagur - 03.07.1947, Side 5

Dagur - 03.07.1947, Side 5
Fimmtudagur 3. júlí 1947 DAGUR 5 Ólafur Metúsalemsson SJÖTUGUR. Sjötugur varð 17. f. m. Ólafui' Methúsalemsson skrifstofustjóri. Ólafur er af hinni fornfrægu Bustafellsætt.SonurMethúsalems Ijónda Einarssonar. Hefir Bust- arfell verið óðal ættarinnar síðan 1532. Ólafur hefir lengst af starfað ;við verzlun. Stundaði hann nám við Flensborgarskóla veturinn 1897—98 og-réðst 1899 sem verzl- unarmaður við verzlun Louis Zöllners í Vopnafirði. Verzlunár- stjór.i á ísafirði 1901 til 1906 og síðan nokkur ár fyrir O. Wath- nes Arvinger á Seyðisfirði. Flutt- ist aftur í Bustarfell vorið 1911 og bjó þar um nokkur ár. En jaegar Kaupfélag Vopnfirðinga var stofnað 1918 var hann kjör- inn formaður þess og forstjóri og gegndi liann Joví starfi til 1937 að hann tók ;við aðalbókarastarfi hjá Klæðaverksmiðjunni 'Gefjun hér á Akureyri. Hefir hann í hvívetna notið trausts og virðing- ar samborgara sinna sinna, en er annars lítt gefinn fyrir að halda sér fram. Hann er kvæntur Ás- rúnu Jörgensdóttur frá Krossa- vík í Vopnafirði og hefir heimili þeirra ætíð verið ramíslenzkt í bezta skilningi. Gestkvæmt var hjá þeim á sjötugsafmæli Olafs og skorti þar ekki á rausn og fagnað. Þau hjón lengi lifi. Sveitungi. Brautarhólsmótið Þótt eg sé ekki í neinu ráðandi um hin kristilegu mót, er haidin ltafa verið á Brautarhóli í Svarf- aðardal undanfarin sumur, lang- ar mig sem mótsgest að minna á þau. Eg ;vil ráðleggja sem flest- um að sækja næsta mót, sem stendur ylir þann 5. og 6. júlí n.k., en það er laugardagur og sunnudagur, heppilegustu dagar vikunnar til Jress að taka sér frí. Það mun engan iðra þess að dvelja þar, því að jrar er gott að vera. Eg get ekki neitað því að fyrst í stað varð eg dálítið undr- andi, en undrunin snerist brátt í hrifningu, sem svo endaði með því, að eg er farin að hlakka til þess að fá að vera þar með, og eitt er víst að eg mun ekki sitja heima ef ekkert sérstakt hindrar. Þar er gott að dvelja við svellandi söng og ómissandi hvatningarorð. Mót þessi eru ekki bundin.við neinn utankirkjusöfnuð. Þau til- heyra þjóðkirkjunni einni; fyrst og fremst „Kirkju Krists“ og #vilja stuðla að Jtví, að hún eflist og blómgist. íslenzka þjóðin Jrarf á kraftmiklum kristindómi að halda, þá fyrst verður hún gæfusöm þjóð. Fram, fram, skal vera kjörorð hennar, fram til sig'- urs skal hún berjast unz allar hjá- róma raddir Jjagna. Þið, sent hugsið ykkur að verða með á mótinu, talið við frú Jó- hönnu Þór, Norðurgötu 3, Ak. Mqtsgestur. Mótorhjol, Royal Enfield, til sölu. A. v. á. — Fokdreifar (Framhald af 4. síðu). mönnum eða á götunni. Og þótt ekki þyki það sætt hlutskipti, þá er óvíst hvort það er verra en ferðamannsins, sem kemst á gistihús og fær reikning- inn þar afhentan eftir vikudvöl. Verð- lagið á gistingu í höfuðstaðnum, þá sjaldan hún fæst, er nánast sagt furðulegt. Og þó er starfandi verðlags- eftirlit, sem útdeilir réttlæti og skiptir gistihúsum og greiðasölum í flokka, að því er sagt er. Það skyldi þó aldrei vera svo, að þeir fyrstu verði síðastir og þeir síðustu fyrstir í þeim dæma- lausu útreikningum og flokkunum. Og yíst er um það, að verðlagseftirlit- ið má setjast niður og reikna betur, ef það á að finna sanngjarnan og kristi- legan verðlagsmáta handa gestum og gangandi þar í höfuðborginni. Hrjóstur og gróðurlönd. Si£ur8ur Vilhjálmsson á Háneísstöö- um ritar bla&inu þessa hugleiðingu: EG HORFI yfir alndið umhverfis mig. Undanfarnar vikur hefir jörðin verið að færast í sumarskrtS- ann. En hrjóstrin eru víða mikil í Austfjörðum og stinga þau einkenni- lega af við gróðursælar hlíðar og víð- áttumikil graslendin. Svona er þetta víðast á íslandi. I dag er sérstaklega ástæða til að líta x kringum sig og láta sig dreyma dagdrauma um hvað verið gæti ef öll íslenzka þjóðin legðist á eitt um að hagnýta gróðurlendin, sem eru svo hjálparþurfi í baráttunni við hinn nálæga heimskautakulda og önn- ur náttúruöfl, sem heyja þrotlaust árásarstríð á lífið í þessu einmana og unaðslega landi. , UNDANFARNA áratugi hefir fólkið á íslandi verið að þyrpast saman í bæi og borgir á sjávarströndinni. Það leitar þar einhvers, sem það þó aldrei finnur. Sífellt eirðarleysi ein- kennir þessa staði. Ráp á rykugum götum, einhvers konar vinna til þess að innvinna sér peninga, til þess að geta keypt nauðsynjar. Og til þess að hafast eitthvað að í tómstundum æði- mikið af sukki og svalli, jafnframt ýmsum kapphlaupum um fánýt met og metorð. Þetta fólk hefir yfirgefið gróður- lendin á Suðurlandsundirlendinu, í vestfirzkum, í norðlenzkum og aust- firzkum dölum og fjörðum, sem allt of fáar hendur eru nú til þess að yrkja og allt of fáa langar til að njóta unað- ar af fagurri náttúru og vel unnu dags- verki. VERKFALL, þessi óskapnður í ís lenzku þjóðlífi, er afleiðingin af þessari misheppnuðu leit fólksins eft- ir hamingju. Dagsbrúnarverkfall, tak- ið eftir þessari himinhrópandi mót- setningu. Dagsbrún — verkfall. Dagur boðar vinnu og unað, sem vinnunni fylgir, og margbreytileg fyrirbrigði, sem vinnandi fólkið nýtur, en iðju- leysinginn veit ekki af. Við íslendingar höfum bundizt heit- um um að vera sjálfstæð menningar- þjóð. Hver, sem dregur af sér við að hagnýta gæði landsins og berjast gegn eyðingaröflunum, er heitrofi og lið- hlaupi. Hver sá, sem gerir meiri kröf- ur til annarra en sjálfs sín, gerir ekki skyldu sína og stuðlar með því að ó- sigri hins íslenzka kynstofns í baráttu hans fyrir batnandi mönnum og síauk- inni menningu, sem flytja á niðjunum betri tima og meiri hamingju. Umfram allt megum við ekki tapa sjónar á innsta kjarna lífsins. Við megum ekki láta aukaatriði blinda okkur sýn. Við verðum að vera raunsæir sjáendur. Því aðeins getum við vænzt þess, að okkar unga lýðveldi eigi fyrir sér var- anlega þroskabraut. Vörubíll, G. M. C. (10 hjóla truck'), A-54^er til sölu. — Upplýs- ingar hjá Ingólfi Guðmundssyni, Gránufélag’sgötu 53. Tilkynnin um greiðslu sjúkrabóta (dagpeninga) Ákvæði ahnannatryggíngalaganna um sjúkrabætur,,39.-44. gr., taka gildi i. júlí n. k., og liefjast greiðslur sjúkradagpeninga væntanlega í lok þessa mánaðar. Réttur til sjúkrabóta er bundinn eftirlarandi skilyrðum: 1. nð umsækjandi sé orðinn fullra 16 ára, ekki yfir 67 ára og njóti ekki örorkubóta samtímis. 2. að umsækjandi hafi greitt að fullu áfallin iðgjöld til> tryggingarsjóðs áður en veik- indin hólust. 3. uð sannað sé með vottorði atvinnurekanda eða á annan fulinægjandi hátt, að utn- sækjandi hafi hætt störfum á þeim tíma, er læknisvottorð greinir, og kaup hans eða.atvinnutekjur fallið niður vegna sjúkleikans að öllu eða mestu leyti. 4. nð sannað sé með læknisvottorði, að umsækjandí liafi orðið að hætta störfum vegna sjúkleika, verið fullkomlega óvinnufær a. m. k. 15 daga og, af hinn sjúki dvelur utan kaupstaða og kauptúna, Jrar sem læknar starfa, að hann hafi legið rúmfastur samkvæmt fyrirmæluim læknis a. m. k. 7 daga samfleytt af þeim tíma, Jregar um legu utan sjúkrahúss er að ræða. Læknar teljast starfandi, auk Jxess kaupstaðar eða kauptúns, þar sem Jreir eru b'úsettir, í kauptúnum þar sem þeir liafa ákveðinn viðtals- og vitjunartíma a. m. k. tvisvar í mán- uði. Vottorð tveggja óvilhallra manna nægir sem sönnun þess, að rúmlega utan sjúkrahúss liafi verið óslitin frá* þeim tíma, er læknir vottaði upphaf og nauðsyn legunnar. Launþegar, þ. e. J>eir, sem starfa í annarra Jrjónustu, eiga rétt til sjúkrabóta, e£ þeir eru fullkomlega óvinnufærir a.'m. k. 15 daga, og greiðast J>á dagpeningar frá og með ellefta degi. Þéir, sem stunda eða reka sjálfstæða atvinnu, fá rétt til sjúkrabóta frá og með sjöttu sjúkraviku. Einyrkjar geta J>ó átt rétt til dagpeninga eftir sanra biðtíma og launþegar, et ákveðin skilyrði eru fyrir hendi, sbr. lög um aknannatryggingar, 42. gr. b. Hámark sjúkrabóta er: Fyrir kvænta karla, þegar ,konan vinnur eigi utan heimilis eða er atvinnulaus, kr. 6.00 á dag á I. verðlagssvæði og kr. 5.00 á II. verðlagssvæði, og fyrir aðra kr. 5.00 á.I. vprðlagssvæði, en kr. 4.00 á II. verðlagssvæði, auk verðlagsuppbótar. Auk þess greiðast fjölskyldubætur með þremur fyrstu börnurn bótaþega undir 16 ára aldri, sem hann hefur á framfæri, enda njóti þau ekki lífeyris. Sjúkrabætur mega þó aldrei fara fram úr yA þess, sem hinn sjúki hefir misst í af tekjum vegna sjúkdómsins. GLftar konur fá -því aðeins greiddar sjúkrabætur, þótt þær hafi unnið utan heimilisins, að ntaður þeirra geti eigi séð heimilinu farborða. Sjúkrabætur falla niður þann clag, sem hinn tryggði telst vinnufær, enda þótt hann taki ekki til starfa eða vanræki að segja ifrá bata sín.um, og greiðast ekki lengur en 26 vikur á 12 mánuðum. Haldi hinn sjúki þrátt fyrir sjúkleikann kaupi eða atvinnutekjum, sem er lægra en sjúkrabótum nemur, greiðast sjúkradagpeningar þó aldrei hærri en svo, að þeir, að viðbættum tekjum, nemi einum fjórða meiru en sjúkrábætur. Sé kaupið eða tekjurnar Itærra, greiðast ekki sjiikrabætur. Ef hinn sjúki dvelur á sjúkrahúsi og á rétt á að Tryggingastofnunin (sjtikrasamlag eða ríkisframfærsla) greiði dvalarkostnaðinn, lækka dagpeningagreiðslur til hans um jafn mikið og ellilífeyrir til einstaklinga fyrir sama tímabil nemur, ef um kvæntan mann er að ræða, ella um 4/£ hluta. Réttur til sjúkrabóta íellur- niður, ef sjúkdómurinn stafar af áfengisneyzlu eða öðrum orsökum, sem hinn sjúki sjálfur á sök á. Sjúkrabætur greiðast ekki'ivegna farsótta, þegar slíkir sjúkdómar ganga. Fastir starfsmenn, þ. e. þeir, sem ráðnir eru eða skipaðir til a. m. k. eins árs eða með þriggja mánaða uppsagnarfresti, skulu aldrei missa.neins í af launum sínum fyrstu fjórtán dagana eftir að þeir forfallast frá vinnu, og eiga því ekki rétt til dagpeninga fyrir þann tíma. Sama gildir ef þeir njóta kaupgreiðslu fyrir lengri tíma samkvæmt samningi, sérstökum lög- um eða venju i starfsgrein þeirra. Þeir, sem ætla að sækja um sjúkrabætur, skulu tilkynna Tryggingastofnun eða (utan Reykjavíkur) umboðsmanni hennar (eða fulltrúa lians í hreppnnm) veikindin ineð læknis- vottorði áður en 10 dagar eru liðnir frá því að sjúkdómurinn olli óvinnuhæfni. Umsóknir um sjúkrabætur skulu, ef óvinnuhæfnin varir fullan biðtíma, sendar aðilum ásamt tilskild- um vottorðum og upplýsingum. Eyðublöð fyrir umsóknir og læknisvottorð fást hjá Trygg- ingastofnuninni ((slysatrýggingadeild) og utan Reykjavíkur eftir 10. júlí hjá umboðsmönn- uim, sem gefa nánari upplýsingar. Tryggingaráð getur ákiveðið að greiða þeim, sem veikst hafa fyrir 1. júlí, þá eru veikir og óvinnufærir, og ekki njóta örorkustyrks, sjúkrabætur frá 1. júlí, ef sjúkleiki þeirra hefur hafizt og valdið tekjumissi á síðustu sex mánuðum, enda greiðist dagpeningar Jxi eigi leng- ur en þar til liðnar eru 26 vikur auk biðtíma frá því veikindin hófust. Reykjavík, 28. júlí 1947. Tryggingastofnun ríkisins.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.