Dagur - 03.07.1947, Page 8
i
Fimmtudagur 3. júlí 1947
DAGUR
Arsháfíð Framsóknarmanna
á Akureyri og í Eyjafjarðarsýslu verður haldin að
Hrafnagili sunnudaginn 6. júlí n. k., og hefst kl.
3 e. m.
Til skemmtunar verður: Ræður, söngur horna-
blástur og dans.
Veitingar fást á staðnum. Þar verða einnig seld
rnerki hátíðarinnar.
Sætaferðir verða frá B. S. A. og B. S. O.
NEFNDIN
Hestamannafélagið Léttir
efnir til kappreiða sunnudaginn 20. júlí. 1‘átttakend-
ur gefi sig fram við stjóm félagsins eða skeiðvallai-
nefnd, ekki síðar en á lokaæfingu, er frant fer á skeið-
velli félagsins miðvikudaginn 16. júlí, kl. 8.30 e. h.
S t j ó r n i n.
§krá
Um útsvör í Akureyrarkaupstað árið 1947 Uggur
frammi, almenningi til sýnia, á skrifstofu bæjargjald-
kera frá 30. júní til 12. júlí næstk., að báðum dögum
meðtöldum. — Kaerum út af skránni ber að skila á
skiifstofu bæjarstjóra innan loka framlagningarfrest#-
ins.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 26. júní 1947.
Steinn Steinsen.
Akureyringar:
Það er enn þá skorað fastlega á alla bæjarbúa
að fara sparlega með vatn frá Vatnsveitunni, og
eru þeir, sem varir verða við hirðuleysi manna í
því efni, beðnir að tilkynna það tafarlaust til
vatnsveitustjóra.
VATNSVEITA AKUREYRAR.
Ullarmóttaka
Ullarmóttaka hefst hjá oss 9. júlí n. k. Að þessu sinni
tökum vér bæði þvegna og óþvegna ull. Athygdi ullar-
framleiðenda skal sérstaklega vakin á reglugerð um
Iflokkun og mat á ull.
Kaupfélag Eyfirðinga
/r~'".......~
Úr bæ og byqgð
KIRKJAN. Messað á Akureyri n.k.
sunnudag kl. 2 e. h.
Akureyrarkirkja. Kirkjan er opin
alla daga og öllum heimilt þar inn að
ganga. Björgvin Guðmundsson tón-
skáld leikur á kirkjuorgelið kl. 6—6V2
alla virka daga.
Vegna fjarvista ritstj. úr bænum
kemur þetta blað út einum degi
seinna, en venja er. Myndasagan gat
ekki orðið samferða þessu tbl. og
fylgir framhald hennar næsta blaði.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin sam-
an í hjónaband af aðstoðarprestinum,
séra Pétri Sigurgeirssyni, ungfrú Guð-
rún I. Jónsdóttir og Ari Steinberg
Árnason, bifreiðastj., Aðalstræti 80,
Akureyri. • j
Hjúskapur. Gefin saman í hjóna-
band af sóknarprestinum í Grundar-
þingum: 21. júní. Ungfrú Rósa Hjalta-
dóttir húsgagnasmiðs Sigurðssonar og
Hugi Kristinsson frá Ytra-Dalsgerði.
22. júní. Ungfrú Guðrún Jónsdóttir
frá Hrafnagili og Jón Davíðsson, bíl-
stjóri, Akureyri.
Til nýja sjúkrahússirts: Gjöf frá 85
ára gamalli konu kr. 200. Frá G. S.
kr. 100. Frá Kvenfélaginu „Aldan“ í
Öngulsstaðahreppi kr. 1000. Frá
Kvenfélagi og íþróttafélagi Hríseyjar
kr. 1255. Frá Kvenfélaginu Tilraun í
Svarfaðardal kr. 2000. Með þökkum
Móttekið. G. Karl Pétursson.
Dávaldurinn Ernsto Waldoza er
væntanlegur til bæjarins núna í vik-
unni og mun hafa sýningar í Sam-
komuhúsi bæjarins laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9 e. h. Waldosa
hefir að undanförnu sýnt listir sínar í
Reykjavík, Hafnarfirði, Keflavík, á
Akranesi og ísafirði. í Reykjavík hef-
ir hann haft 25 sýningar.
Jónsmessuhátíð Kvenfél. Framtíð-
in fór fram um sl. helgi og var fjöl-
breytt og skemmtileg að venju. Fjöldi
fólks sótti hátíðina. Konurnar hafa
enn sýnt mikinn dugnað og fórnfýsi
fyrir málstað sjúkrahússins.
1 happdrætti Kvenfélagsins Fram-
■tíðin komu upp þessi númer: Púða-
borð 359 — kaffidúkur 73 — Púða-
borð með baki 118 — mynd 399. —
Vitjið munanna til Laufeyjar Páls-
dóttur í Hamborg.
I happdrætti Verkakvennafélagsins
„Eining“ komu eftirtalin númer upp:
Nr. 48 — rafofn, 50 — stoppaður
stóll, 51 — stofuborð, 152 — 100 kr.,
1329 — gasvél, 1498 — málverk,
1698 — 100 kr.
Hjálpræðisherirm. Utisamkoma nk.
sunnudag kl. 4. Hjálpræðissamkoma
kl. 8.30. Foringjar og hermenn taka
patt! Allir velkomnir.
Samkoma verður í Zíon nk. mánu-
dag og þriðjudag kl. 8.30, í framhaldi
af Brautarhólsmótinu. Margir ræðu-
menn. Allir velkomnir.
Vörubifreið
21/2 tons, með vélsturtum, til
sölu. Hagkvæmt verð, ef samið
er strax. Upplýsingar gæfur
Guðmundur Jónsson, N. B. S.,
Sími 218 og 529.
Kris tjd n Valdemarsso n.
Taglhár
kaupum við fyrst um sinn á
kr. 10 pr. kg.
KOLAAFGREIÐSLA KEA.
LAN DBÚN AÐARSÝNIN GIN
(Framhald af 1. síðu).
fram af kliettastalli, sýning mjólk-
urbúanna, er hafa þar fullkomn-
ar, nýtízku mjólkurvinnsluvélar
og bjóða gestum upp á bragðsýn-
ishorn af ostum og annarri fram-
leiðslu, sýning kjötverzlana, er
gera samanburð á nýtízku kjöt-
búð, með kæliskápum og „disk-
um“ og' gömlu kjötbúðunum,
sýning sandgræðslunrtar og skóg-
ræktarinnar, þar sem höfuð-
áherzla er lögð á nauðsyn þess að
hefta örfok landsins og gert er
grein fyr.ir nytsemi melgrasins.
Svo mætti lengi telja. Verður
sýningunni ekki lýst í stuttu
máli. Þar má dvelja lengi og læra
mikið.
Sýrting samvinnumanna.
Ein stærsta og eftirtektarverð-
asta deild sýningarinnar er sýn-
ing Sambands ísl. samvinnu-
félaga, er reisti stóran og rúm-
góðan skála á sýningarsvæðinu
og hefir þar fjölbreytta sýningu
á framleiðslu sinni og verzlunar-
vörurtl. í fremri hluta þessa skála
eru sýningar verksmiðjanna hér
á Akureyri, Gefjunar og Iðunn-
ar. Er þar á smekklegan hátt sýnd
framleiðsla verksmiðjanna. Þar
gengur ivefstóll úr Gefjun lið-
langan dagimn og vefur klæði, en
skóvél úr Iðunni randsaumar
skó. Vinna fagmenn úr verk-
smiðjunum þessi störf og er jafn-
an fjöldi áhorfenda í kringum
þá.
í þessum forskála eru einnig
sýndar alils konar' heimilisvélar,
er Sambandið hefir flutt inn, svo
sém skilvindur, saumavélar o. fl.,
og loks er þar gerður skemmti-
legur .. samanburður á nýtízku
éldhúsi, með ölulm fáanlegum
rafmagnstækjum, og gömlu eld-
hiisi, þar sem eldur ldgar undir
potti á hlóðum en hangikjötslæri
hanga í rjáfrinu.
Næst þessum forskála er mikill
salur, þar sem SÍS sýnir allls kon-
ar 1 andbúrtaðarvélar er það hefir
útvegað á liðn.um árum. Er þar
að sjá öll þau nýtízku tæki, sem
nú eru að ryðja sér til rúms í
landbúnaðinum, svosem dráttai'-
:vélar af ýmsum gerðum, og alls
konar vinnsluverkfæri, er þeim
fylgja og margt fleira. Þá eru og
þar sýndir bílar þeir, er SÍS hefir
umboð fyrir.
Inn af þessum vélasal er hag-
lega komið fyrir félagsmállasýn-
ingu samvinnumanna. Þar er
rakin í líhuritum og myndum
þróunarsaga samvinnunnar, fjár-
hagslega og félagslega. í þessum
sal er kvikmyndasalur og eru þar
jafnan sýndar fræðaúdi kvik-
myndir frá starfi samvinnufélaga
í ýmsum löndum.
Þessi sýning Sambandsins er
hin glæsilegasta og hefir mjög
verið til hennar vandað. Hin
myndarlega þátttaka Sambands-
ins í landbúnaðarsýningunni
gefur heildarsýningun’ni glæsi-
legan svip.
Aðrar deildir.
Auk þess, sem hér hefir verið
talið eru fjölmargar aðrar deildir
á sýningunni og margar þeirra
mjög eftirtektarverðar. Fjölmörg
einkafyrirtæki eiga þar sýningar-
’ deildir ,sumar mjög smekklega
FRÁ AÐALFUNDI SÍS.
(Framhald af 1. síðu).
Hin nýja ullarþvottastöð, sem
hér verður byggð, mun afkasta
Jrvotti á allri ull landsmanna.
hafa þessar auknu framkvæmdir
í ullariðnaðinum geysilega þýð-
ingu fyrir þjóðarbúskapinn, og
atvinnulíf hér á Akureyri og ná-
grenni sérstaklega. &
UMHLEÐSLAN.
Upplýst var einnig, að Sam-
bandið hefði unnið að því, að fá
sem mest af vörum beint á hafnir
landisins og minnka umhleðsluna
í Reykjavík.
Nú hefir fengist loforð fyrir
því, að Eimskip muni taka upp
beinar siglingar á fjórar helztu
hafnir landsins frá Ameríiku, og
er þetta rnikil úrbót. Þá mun
Sambandið og vinna að áfram-
haldandi, beinum siglingum
með Hvassafelli og leiguskipum
sínum.
—= SK|aidborgar-B(d ==n
Aðalmynd vikunnar:
Litli lávarðurinn
Eftir hinni viðfrtegu skáld-
sögu Burnetts, sem komið hef-
ir út í þýðingu séra Friðriks
Friðrikssonar.
A ð a 1 h 1 u t v e r k:
Freddie Bartholomew
Mickey Rooney
Dolores C- Barrymore
C. Aubrey Smith
Guy Kibbee
Henry Stephenson
........ -
Nokkrar ungar kýr
og kvígur,
af góðu kyni, til sölu. —
Upplýsingar gefur
Eirikur Bryujólfsson.
Kristnesliæli.
Fyrir börn:
* Hjólskautar
Barna-boltar
4 tegundir
Barna-bílar
stórir og stnáir ^
Brynjólfur Sveinsson h.f.
Sími 580.
úr garði gerðar. Þá eru og gripa-
sýningar í sambandi við heildar-
sýni'nguna. Hefir sýningarstjórn-
in átt við ýmsa erfiðleika að
stríða í sambandi við þær, vegna
verkfallsins og voru þær ekiki
komnar í horf, er aðalsýningin
var opnuð.
Þegar er ljóst, að sýningin
verður mjög fjölsótt. Mikill
földi fólks hvaðanæfa af landinu
fer nú suður til Reykjavíkur til
þess að koma sýninguna. Er
óhætt að hvetja menn til þeirrar
farar. Sýningin er mjög lærdóms-
rík og glæsileg að ölhim búningi.
Hefir sýningarstjómin og fram-
kvæmdastjóri hennar unnið
geysimikið starf og farizt það*á
allan hátt vel úr hendi.
Stálgrá tík
tapaðist frá Björgum í Hörgár-
dal, nú í vor. Gegnir nafninu
Polly. Bið vinsamlegast þá, er
kynnu að hafa orðið hennar
varir, að gera mér aðvart.
Björn Gestsson,
Björgum.
Trilla
til sölu. — Afgi'. vísar á.
ós sumarkápa
til sölu. — Upplýsingar í
Brekkugötu 21.