Dagur


Dagur - 17.12.1947, Qupperneq 4

Dagur - 17.12.1947, Qupperneq 4
4 D A G U R Miðvikudaginn 17. desember 1947 DAGUR Ritstjóri: Haukur Snorrason. Afgreiðsla, anglýsingar, innheimta: Marinó H. Pétursson Skrifstofa i Hafnarsir.xti 87 — Sími 166 Blaðið kemur út á hverjum miðviku'dégi Árgangurinn kostar kr. 25.00 Gjalddagi er 1. júlí Prentverk Odds Björnssonar h.f. Akureyri Gömul saga rifjuð upp TILVITNANIR þær í skýrslu brezka fiskveiði- málaráðuneytisins, um fiskveiðar og fiskkaup Breta á stríðsárunum, sem birtust hér í blaðinu i sl. viku, gefa tilefni til þess að við íslendingar rennum huganum aftur í tímann, til ársins 1940. Eftir mitt sumar stóðu Bretar aleinir uppi gegn herveldi nazismans. Hin fyrirhugaða innrás þýzku herjanna var á hvers manns vörum. Kaf- bátar Þjóðverja slógu hring um Bretlandseyjar og skipatjónið varð ægilegt. Það átti að lama brezku þjóðina með skorti, áður en vopnin væru látin tala. Sprengjuhríðin dundi á brezkum borg- um nótt eftir nótt. Þá var „dimmt í heimi“, Bret- land var eini hlekkurinn, sem tengdi Vestur- Evrópu við lýðræðið og frelsið og vonina um sig- ur. Ef þessi hlekkur hefði brostið þá, hefði myrk- ur kúgunarinnar lagst yfir gjör.valla álfuna. Þess hefði þá verið skammt að bíða, að hrammur her- veldisins hefði náð hingað út til íslands. Skýrsl- ur, sem birtar hafa verið eftir stríðslokin, sýna, að Þjóðverjar höfðu vissulega látið sér detta í hug, að taka ísland herskildi árið 1940, og herða þannig kafbátahernaðinn á Atlantshafinu. Það var því ekki aðeins í þágu menningarinnar, lýð- ræðisins og frelsisins í heiminum, að Bretar héldu velli árin 1940 og 1941, og létu ekki bug- ast, þrátt fyrir miklar hörmungar. Það var lífs- nauðsyn fyrir frjálst og fullvalda ísland. LANGSAMLEGA mestur hluti íslenzku þjóð- arinnar skyldi þetta mæta vel og landsmenn lögðu líka flestir fram þann skerf, er þeir máttu, til þess að styðja Breta í baráttu þeirra. Þeir tóku hernámi þeirra með skilningi. íslenzkir sjó- menn lögðu líf sitt í hættu við að flytja matvæli til brezku þjóðarinnar, sem umkringd var af kaf- bátum Þjóðverja. Margir íslenzkir menn létu lífið í þessari viðureign. En flutningunum var haldið áfram, Bretar fengu geysiverðmætar fisk- birgðir, og íslendingar dýrmætan, erlendan gjaldeyri til síðari tíma uppbyggingar. Skýrsla brezka fiskimálaráðuneytisins sýnir, að flutn- ingarnir héðan voru mjög þýðingarmiklir fyrir Breta. Árin 1940 og 1941 fluttu íslendingar allra þjóða mest af fiski til Breta, en þeirra eigin fisk- veiðar gengu mjög saman, bæði vegna þess, að hin stærri veiðiskip voru tekin í flotann, og ná- lægari fiskimið lokuðust vegna stríðshættunnar. Allt árabilið 1940—1944 voru íslendingar hæstir á blaði þeirra, sem fluttu fisk heim til Breta. Með þessu starfi var lagt lóð á vogarskálina til þess að létta Bretum sigurinn og tryggja fram- tíð okkar eigin lands EN ÞÓTT flestir íslendingar litu þannig á, voru nokkrar sorglegar undantekningar. Það er fróðlegt að minnast þess nú, þegar þýðing þess- ara fiskflutninga til Bretlands er svo augljós, hverjir það voru, sem kröfðust þess árið 1940, að íslendingar hætíu að flytja fisk til Bretlands, og stungu upp á því, að þeir flyttu hann í staðinn til Norðuríshafshafna Rússa, sem síðan mundu koma honum til bandamanna sinna þáverandi, Þjóðverja. Þá var það, á þessumörlagaríkuárum, að Þjóðviljinn benti íslendingum á þá staðreynd, að Danir ættu inni hjá Þjóðverjum milljarð króna fyrir verndina, og „Þjóðverjar borga, ef jpeir sigra,“ sagði blaðið. Skilvísi og heiðarleiki i Sþarnaðuéinn — dyggð í haust — en gleymdur á jólum. SKYLDI útgáfustarfsmi í alls konar myndum -vei'a stunduð af öðru eins kappi í nokkru landi um þessar mundir og hér á ls- landi? í auglýsingatímum út- varpsins má sjá spegilmynd af þessari starfsemi. Bókaútgefend- ur og skrifstofur hins opinbera fara langt með það að skipta aug- lýsingatímanum í milli sín, og má ekki í milli sjá, hvort er hvim- leiðara fyrir hlustendur, að hlusta á skrumið um bækurnar, sem virðist verða hástemdara með hverju árinu og færast í algleym- ing er dr'egur 'að jólum, eða fylgj- ast með öllu þvi moldviðri af op- inberum tilkynningum, auglýs- ingum og tilskipunum um skýrsl- ur og form og eyðublöð, og síðan útvarpskennslu skýrsluhöfund- anna í því mikla stúdíum, að fylla út eyðúblöðirf. Mikið rfiá Vei'a, ef einhverjum finnst elíki að .eitt- hvað af þessu öllu hefði mátt spara og sparnaðurínn er dyggð var okkur sagtað sunnan í haust.- En nú er það tal hætt, enda synd að segja, að sparnaðarandinn gangi ljósum lögurrt 'um larfdið, hvorki á opinberum skrifstofum eða meðal almennings. Mér er næst að haldá að sparnaðárand- inn; sem greip um sig þegar skömmtunin var að fæðast, sé genginn fyrir björg og týndur. Bogið skipulag. BÆKURNAR renna út úr prentsmiðjunum í stríðum straumurti og' í' bókabúðirnar og síðan nær viðstöðulaust. út til nazistanna var ekki dreginn í efa á þeim árum. En fiskflutningarn- ir til Bfeta áttú ekki áð vefa' eins fjárhagslega tryggir, þeir voru auk þess aðstoð við hinn brezka málstað, þess vegna var sjálfsagt að taka upp flutninga til Norður- Rússlands og stuðla þannig að sigri nazismans. ÞAÐ ER læi'dómsríkt að minn- ast þessara atburða nú og gera sér grein fyrir þýðingu þess, að kommúnistum varð ekki að vilja sínum 1940. Það er auðvelt að sjá, hverja þýðingu það hefði haft fyrir sjálfstæði og fullveldi lánds- ins, ef íslendingar hefðu' á ör- lagastundu Bretlands og lýð- ræðisþjóðanna,. lagt lykkj.u á. leið sína til þess að styðja naz- ismann og þrælkunarstefnu hans. Það hefði þá orðið annar svipur á árinu 1944, en 'reyn'din várð. En' kommúnistum tókst ekki að eyðileggja sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar með tillögum .sínum. og ráðagerðum í stríðsbyrjun. Vafalaust hafa ýmsir þeirra ekki gert sér ljóst, hverjar afleið- ingar þ'að gætl haft, ef farið ’væri' að ráðum þeirra. Þeim var mest í mun þá ,eins og æ fyrr og síðar, að þjóna málstað Rússa og héldu. sig gera það bezt þá með því að spilla fyrir Bretum. Þessi reynsla af kommúnistum í stríðsbyrjun, ætti að vera lærdómsrík fyrir þá landsmfenn, s'em taká alöa'rlega' allt skraf þeirra nú um verndun- sjálfstæðis og. fullveldis fyrir yf-. ii'gangi Bandaríkjamanna. Engir menn hafa eins berlega gengið gegn hagsmunum sinnar eigiíi þjóðar síðar á Sturlungaöld, og kommúnistar 1940. Því eiga landsmenn ekki að gleyma í átökum yfirstandandi tíma. fólksins. Mér er sagt að bóksalan hafi aldrei vérið fjörUgri en ein- mitt núna. Gott er það, að menn hafi ráð á því að kaupa sér góðar og gagnlegar bækur, en naumast verður hægt að segja það um allt það, sem út er gefið fyrir þessi jól. Kennir þar margra og e. t. v. mis- jafnari grasa en áðui'. En útgef- ertdurnir hafa verið forsjálir. Þeir hafa séð fyrir, að sparnaðarand- inn mundi ekki eiga langa lífdaga fyrir höndum og mesta þróttinn mundin vera farið að draga úr honum þegar fór að hilla urtdir eignakönnunina. Og þeir voru viðbúnir að setja undii" lekann. Það var ekki pappirsskorturinn hjá þeim. Þar hafa þeir vissulega skákað hinni opinberu skipu- lagningu, því að nú er sagt, að stóru skrifstofurnar fyrir sunnan séu að komast í pappírsþrot og ekki verði út yfir það séð ennþá, hvernig koma eigi öllum eyðu blöðunum og skýrsluformunum til landsmanna í táeka tíð. Manni virðist- eitthvað bogið við alla skipulagninguna, þegar þeir, sem hana eiga að framkvæma og hafa öll gjaldeyrisráðin í hendi sinni, eru að .komast á vonarvöl í miðj - um klíðum, á sama tíma og bóka- útgefendurnir, sem eiga pappír- inn og- gjaldeyririnn undir högg að sækja, lifa sínar fjörugustu stundir. Fimm börn hámark! ANNARS er rétt að geta þess, ■ ð hinar opinberu skrifstofur hafa vissulega verið misjafnlega frekar til fjárins, eða öllu heldur papp- írsins. Til dæmis verður það ekki sagt með npkkrum sanni, að sú skrifstofan sem samdi og útbjó formín fyrir nafnskírteinin, sem nú er- verið að úthluta um landið, hafi sólundað verðmætunum. í hennar augum hefir það þótt óhæfilegt bruðl, að eiga fleiri en fimm. hörn og. er kpr.tið rniðað við þetta sjónarmið. Þeir, sem fleiri börn eiga, verða að láta sér lynda að þau verði sett utan og ofan við lög og rétt bæði í skömmtun og eignakönnun. Frágangurinn á þessmn nafnskírsteinisbleðlum er annars þannig, að hann vekur ekki hrifningu fyrir hugkvæmni óg 'skipulágningargáfu þeirfá sem skrifstof uskipulagninguna hafa að aðalatvinnu sinni um þessar mundir. Auðséð er, að þau verða ekki langlíf í þjóðfélaginu en það er mpira en sagt verður um skriffinnskuna yfirleitt. Virð ist því að öllu samanlögðú hafa verið- miklu- skynsamlegra að gefa út almenn vegabréf til handa hverjum manni, er framvísa mætti • til skömmtunaryfirvalda, skattheimtumanna og annarra embættismanna, sem senda þarf út af örkinni á næstu árum. Þá væri þetta nafnskírteinamál leyst í eitt skipti fyrir öll og hvei' skrif- stofa um sig þyrfti ekki að gefa út opinberar tHkynnmgar um fram- vísup, .eins.og sköpimtrinaryfir- völdin og eignakönnunarstjór- árnir’hafa gért nú.‘Og váfalaust þurfa fléiri yfirvöld að vitna til þeirra síðar, eftir því sem skipu- lagningin kemst á hærra stig, ríkisvaldið ■ vei’ðui' ágengara og umsvifameif'a og embættismönp- um þess og eftirlitsmönnum fjölgar. í þá áttina siglir þjóðar- skútan hraðbyri um þessar mundir. ')skilahross - Rauð hryssa, ung, lítil, mark: biti aftan hægra, biti fr. vinstra, er í óskilum á Knararbergi. Réttur eigandi gefi sig fram strax. Guðm. Guðmundsson, Knararbergi. MÓÐIR- KONA-MEYJA Gert upp á milli benzín- og B-miða ÞÁ VEIT maður það ,að B-miðai’nir verða ónýtir, ef ekki er keypt fyrir þá fyrir áramótin. Skömmt- unaryfii-völdin birtu tilkynningu um þetta í út- varpinu nú fyrir helgina. Ekki svo að skilja, að þau hafi lagst svo lágt, að svara fyrirspurn þeirri, sem birtist í þessum dálki og var síðan send þeim bréf- lega með ósk um svar. Það er gamall siður opin- berra stofnana á þessu landi, að svara ekki bréfum, og skömmtunarskrifstofan virðist elcki ætla að verða nein undantekning að því leyti, og er það miðúr farið og ber ekki vott um vilja þeirrar stofnunar til þess að ástunda þá samvinnu við almenning, sem hún fór fram á í upphafi. Eg held að ýmsar þær op- inberu stofnanir, sem komið hefir verið á fót að undanförnú hér — og þær eru æði margar — mis- skilji hlutverk sitt að verulegu leyti. Forráðamenn þeirra eru ekki til þess settir í embættin, að gefa í sífellu út misjafnlega gáfulegar tilskipanir eða skýrslúform og eyðublöð og heimta skilyrðislausa hlýðni af almenningi í krafti vald síns og metorða. Þeir eru langflestir settir til þess að þjóna hagsmun- um ríkis og þjóðar, framkvæma nauðsynlegar að- gerðir af réttlæti og sanngirni og ástunda samvinnu við fólkið í landinu. Með þeim hætti næst líka bezt- ur árangur af starfi þeirra. í lýðræðisþjóðfélagi er almenningur ekki réttlaus leiksoppur fyrir tilraun- ir misjafnra embættismanna í skipulagningu og skrifstofumennsku. Slík vinnubrögð tilheyra þeim þjóðfélögum, sem hafa falið einvöldum foringja alla sína forsjá, eða tillitslausri og harðúgri i-íkisrekstr- arstefnu. Sem betur fer er hvorugu til að dreifa hér og verður vonandi aldrei. En þjóðin má vissulega gá að sér, að allar nefndirnar og ráðin og skrifstofu- báknin, taki ekki alveg af henni vöJdin og hlaði upp ógengum fjallgörðum skýrsluforma, tilskipana og auglýsinga. EN SVO að maður snúi sér aftur að B-miðunum, sem nú eiga að falla úr gildi, þá er það sannast mála, að mjög orkar sú tilskipun tvímælis. Síðan skömmt- unin var sett, hafa ýmsar hinar allra nauðsynleg- ustu vefnaðarvörur alls ekki sést í verzlunum úti um land. Margar konur hafa geymt þessa B-miða, í von um að geta fengið léreft, damask eða önnur nauðsynleg efni út á þá síðar. Nú getur sú bið ekki orðið lengri, og hætt er við að menn freistist til þess að eyða þessum miðum í óþarfari hluti, af því að ekki er annarra kosta völ. Með tilskipun þessari er eklcert tillit tekið til vöruþurrðarinnar úti á landi, 'og þeim raunverulega hegnt, sem hafa haldið í B- miða sína til þess að verja þeim fyrir gagnlega vöru. Eg get ekki séð, að það sé meiri þörf á því, að end- urnýja benzínmiða þeirra bílstjóra, sem hafa af- skráð bíla sína og eiga miða þessa skömmtunar- tímabils ónotaða að einhvérju leyti, en að endur- nýja B-miða húsmóðurinnar, sem hefir árangurs- laust reynt að fá fiðurhelt lérft eða annan nauð- synlegan varning í allan vetur. En skömmtunaryfir- völdin hafa gert þarna upp á milli og talið benzín- miða bíleigendanna rétthærri en B-miða húsmóð- urinnar. Eg sé ekki skynsemina eða réttlætið í þessu, og ævinlegaskortirþað,aðembættismennirnir rökstyðji tilskipanir sínar. Á meðan ríkisvaldið ger- ir ekkert til þess að láta skömmtunina koma rétt- látt niður, lætur það afskiptalaust þótt ýmsar skömmtunarvöi'ur séu aðeins fáanlegar á einum stað á landinu, er síðasta tilskipunin um B-miðana óréttlát og ósanngjörn og ekki til þess Jallin að auka vinsældir skömmtunarinnar eða þá skoðun, að reynt sé að framkvæma hana af sanngirni gagh- vart öllum landsmönnum. P.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.