Dagur - 17.12.1947, Blaðsíða 8
8
Miðvikudaginn 17. desember 1947
Baguk
Frækileg björgun brezkrar skips-
hafnar við Látrabjarg
Síðastliðinn föstudagsmorgun strandaði brezki togarinn Dhoon frá
Fleetwood við Látrabjörg. Er þetta einhver allra hættulegasti stað-
ur við ströndina hér sökum þess hve aðstaða til björgunar er þar
erfið, bjargið um 200 metra hátt og fjara undir bví aðeins á köflum.
Þarna strandaði brezki togarinn Jeria árið 1936 og drukknuðu þá
allir mennirnir, án þess að að væri gert.
Nú er starfandi slysavarnadeild
á Rauðasandi, og bændurnir í þess-
ari fámennu sveit sýndu í þetta
sinn mikinn fræknleik og dugnað
við björgunina. Mun vart ofsagt, að
þarna hafi verið unnið frækilegasta
björgunarafrek, sem um getur hér
við land á síðari árum.
A föstudaginn var mönnum í
landi gert aðvart um strandið, og
varðbáturinn Finnbjörn fór á vett-
vang. Kom fljótt í ljós, að ógerlegt
var að komast að skipinu af sjó,
sökum brims og grynninga. Á
föstudagskvöld bjuggu menn sig á
Hvallátrum og í Breiðuvik til
björgunarstarfsins, með línubyssur
og annan björgunarútbúnað, sig-
reipi og aðhlynningartæki fyrir
skipsmenn. Komu þeir að bjarg-
brúninni snemma á laugardags-
morgun og hófust þegar handa.
Björgunarsveitin varð að fara nið-
ur 30—40 metra bergflár, yfir
svellbunka og gjár og síðan að
síga um 150 metra hátt bjargið.
Þetta tókst giftusamlega, og kom-
ust björgunarmennirnir niður í
fjöru og gátu skotið línu út til
skipsins, og voru skipsmenn dregn-
ir í land. Voru 12 þeirra á lífi, en
3 höfðu drukknað fyrsta daginn.
Þótt mennirnir væru komnir í
land, var eigi að síður mikið og
Samkvæmt reglugerð, er fjár-
málaráðherra hefir gefið út, verða
allir íslenzkir peningaseðlar
ógildir frá og með gamlársdegi,
en Landsbankinn byrjar þann
dag að skipta þeim fyrir nýja
seðla.
Þó er sú undantekning, að leyfi-
legt verður að nota 5 og 10 krónu
seðlana gömlu til þess að greiða
farmiða, flutningsgjöld, lyf og
nauðsynleg matvæli í smásölu-
verzlunum framtalsdag og tvo
næstu daga.
Leggið fé í bankann.
í sambandi við innköllunina er
brýnt fyrir fólki að leggja sem
mest af fé sínu í bankann fyrir
framtalsdag, þar sem það auðveld-
ar mjög skiptin. Landsbankinn sér
um öll peningaskipti, og verða
menn að sýna nafnskírteini, er
skiptin fara fram.
Framtölum skilað fyrir 1. febrúar
Framtölum eigna og tekna skal
skila til skattayfirvaldanna fyrir 1.
febrúar, en öll innlend handahafa-
verðbréf skal tilkynna til sérstakr-
ar skráningar á sama tíma.
Nýju seðlamir.
Nýju seðlarnir eru prentaðir í
Bretlandi og eru þeir komnir til
erfitt starf eftir, að koma þeim
heilu og höldnu upp bjargið aftur.
Á laugardaginn var komizt með þá
á miðja vegu á snös, sem var er,
og þar látið fyrirberast um nóttina.
Einn skipbrotsmaður var þó kom-
inn alla leið upp á bjargið. Á
sunnudaginn komust allir upp á
bjargbrúnina og 7 menn til byggða,
en það er 3—4 stunda ferð fyrir
fullfríska menn. Hinir létu fyrir-
berast á bjargbrúninni um nóttina,
en um hádegisbil á ménudag voru
allir komnir til bæja, sæmilega
hressir, nema matsveinninn, maður
við aldur, er hafði fengið snert af
lungnabólgu.
Björgun þessi hefir vakið athygli
alþjóðar, og raunar langt út fyrir
landsteinana.
Fyrirliði björgunarmanna var
Eggert Daníelsson, bóndi á Hval-
látrum. Aðrir björgunarmenn voru
bændur á Hvallátrum og í Breiðu-
vík.
Þessir atburðir sýna, hverja þýð-
ingu það hefir, að byggð haldist í
þessum afskekktu en blómlegu
Er þess að vænta, að þeir menn,
er þarna voru að verki, fái maklega
viðurkenningu fyrir dúg sinn og
áræði.
landsins. Er Landsbankinn byrj-
aður að senda þá út um land til
umboðsmanna sinna. Verða hinir
nýju seðlar svipaðir hinum gömlu,
nema hvað litirnir verða öðruvísi.
5 krónu seðlar munu vera bláleit-
ir, 10 krónu seðlar rauðir, 100 kr.
seðlar grænir og 500 kr. seðlar
brúnleitir.
Hið hörmulega ástand í raf-
magnsmálum bæjarins í vetur, og
umræður þær, sem orðið hafa í
blöðum um seinagang nývirkjun-
aráætlananna í höndum Raf-
magnscftirlits ríkisins, hefir nú
orðið til þess að ofurlítill skriður
virðist vera að koma á þau mál.
Raforkumálastjóri ríkisins hef-
ir með bréfi nú nýlega tilkynnt að
síðustu áætlanir um fullnaðar-
virkjun Laxár séu að verða til-
búnar og undirbúningi svo langt
komið, að hægt verði að bjóða út
vélar til virkjunarinnar snemma
Níu þjóðir
Þannig hugsar teiknarinn Russell
(Los Angeles Times) hina nýju
kommúnistafylkingu í hinu end-
urreista kommúnistabandalagi. —
Níu þjóðir hafa skráð sig til bar-
áttu fyrir rauða fánann og ham-
arinn og sigðina, gegn Iýðræðis-
legri endurreisn Evrópuþjóðanna.
UmræSiifiiiiditr
í Framsóknar-
félagi Akureyrar
Á fundi í Framsóknarfélagi
Akureyrar sl. föstudagskvöld var
rætt um dýrtíðar- og skattamál,
og hafði dr. Kristinn Guðmunds-
son framsögu, og um bæjarmál,
og hafði Jakob Frímannsson
framsögu. í fundarbyrjun minnt-
ist fox-maður félagsins, Marteinn
Sigurðsson bæjarfulltrúi, Einars
Ái-nasonar á Eyrai-landi með
nokki-um oi-ðum og vottaði fund-
urinn. minningu hans virðingu
j sína með því að fundai-menn risu
I úr sætum. Dr. Kristinn Guð-
mundsson flutti fróðlegt og
skemmtilegt erindi um dýrtíðar-
og skattamálin og þær ráðstaf-
anir, sem ofarlega hafa verið á
baugi hjá þingi og stjórn að und-
anföi-nu. Jakob Frímannsson
ræddi aðallega um skipulagsmál
baejarins og um nauðsyn þess að
hefjast handa um smíði nýrrar
dráttarbrautar. Nokkrar umræð-
ur urðu á fundinum, sem var all-
fjölsóttur.
Bæjarstjórnin hyggst taka 300
þús. kr. lán í Landsbankanum til
aukningar á vatnsveitu bæjarins.
á næsta ári.
Rafveitustjórnin samþykkti af
þessu tilefni, að skora á rafoi-ku-
málastjóra að reyna að flýta sem
unt er útboði og öðrum undir-
búningi vix-kjunarinnar, svo að
verkið gefi hafizt á næsta ári og
orðið lokið sem fyrst.
Varastöð.
Þá hefir rafveitustjórnin óskað
eftir, að raforkumálastjóri leiti
upplýsinga um hvað 6000 kw.
dieselmótorstöð, eða eimtúrbínu-
stöð, muni kosta uppsett, sem
varastöð fyrir bæinn.
Peningaseðisr ógildir frá
gamlársdegí
Nýju seðlarnir eru svipaðir þeim gömlu, en
litunum er þó breytt
Áæiiunin um fullnaðarvirkjun
Laxár senn filbúin
Rætt um 6000 kw. varastöð fyrir bæinn
Niðar hægt að stækkun Torfu-
nefsbryggjunnar
Óvissa nm lánsfé og áætlanir Vita-
málaskrifstofunnar - Æskilegt að
ráða sérstakan framkvæmdastjóra
fyrir höfnina
Áætlanir um stækkun Torfunefsbryggjunnar hér og endurbætur
á hafnarmannvirkjum bæjarins hafa verið alllengi á döfinni, en því
miður horfir enn heldur dauflega um framkvæmdir. Óvissa ríkir um
lánsf járöflun og áætlanir um stækkunina virðast ganga heldur hægt
í höndum Vitamálaskrifstofunnar.
Virðist kominn tími til að taka
upp önnur vinnubrögð í þessum
málum og ráða sérstakan fram-
kvæmdastjóra til þess að sinna
þeim og öðrumaðkallandimálefn-
um hafnarinnar. Væri t. d. heppi-
legt að slíkur framkvæmdastjóri
hefði einnig með höndum fram-
kvæmdir fyrir hönd bæjarins
norðan á Oddeyri, er hafizt vei’ð-
ur handa um smíði dráttarbrauta
þar.
Nauðsyn endurbóta á Torfunefi.
Þegar hluti Torfunefsbi-yggj-
unnar hrundi í fyrrasumar, varð
flestum bæjarmönnum það ljóst,
að ekki mundi hollt að draga það
lengux-, að hefja gagngei’ðar end-
urbætur á bryggjunni. Viðgerð á
skemmdunum dróst nokkuð, en
var þó framkvæmd í sumar, en
getur ekki talist nema bráða-
birgðaviðgerð og mun öðrum
hlutum bryggjunnar hætt að fara
sömu leið. Einnighefirveriðunnið
að því að endurnýja skjólranann
fyrir fi-aman skipakvína og er því
| verki langt komið og til þess ætl-
azt, að þessi rani geti fallið inn í
allsherjarstækkun á bi-yggjunni.
Hins vegar mun engin áætlun
ennþá tilbúin fx-á Vitamálaskrif-
stofunni um þessa allsherjar-
stækkun og viðgerð Hefir málið
þó verið alllengi í höndum henn-
ar og vissulega tími til þess kom-
inn' að ákveða, hvernig hinum
væntanlegu endui-bótum skuli
hagað og hvernig framkvæmd-
iinni. Um nauðsyn þessai-a fi-am-
kvæmda þarf ekki að deila. Má í
því sambandi benda á samþykkt
fjórðungsþings fiskideildanna hér
í haust, um nauðsyn endurbóta á
hafnai-mannvirkjum hér.
Fjárþörf hafnarinnar.
Augljóst er, að stækkun Toi-fu-
nefsbryggjunnar kostar allmikið
fé. í fyrra voru veittar tæpar 300
þús. kr. til hafnarendurbóta á
fjárlögum, en ekki mun sú upp-
hæð hrökkva og verður höfnin að
fá lánsfé. Leitað mun hafa verið
til bankanna um lán, en ekkert
endanlegt svar er fengið þaðan.
Fjái-festingarleyfi fyrir áfram-
haldandi viðgerð á bryggjunni á
næsta ári, er enn ófengið, en um-
sókn um það hjá Fjárhagsráði.
Sérstakur framkvæmdastjóri.
Til þess að hrinda endurbótum
hafnarinnar af stað þarf þrennt:
Áætlun um það, hvei-nig nýbygg-
ingunni skuli hagað, frá Vita-
málaskrifstofunni, talsvert láns-
fé frá bönkunum, og leyfi Fjár-
hagsráðs til fjáx-festingar. Allt
þetta þarf að sækja í hendur
valdsmanna og skrifstofa í
Reykjavík. Reynslan er sú, að
það kostar mikinn tíma og stapp
að fá slík mál afgreidd og færi
bezt á því, að fela sérstökum
manni það og síðan umsjón með
framkvæmdunum hér. Er senni-
legt, að slíkt fyrirkomulag mundi
spai-a bæði fé og tíma.
,Dagur4 aftur á morgun
og laugardaginn
Dagur kemur aftur út á morg-
un og á laugard. og verður það
blað jafnframt jólablað í ár. —
Auglýsingar í blaðið þurfa að
berast afgreiðslunni á morgun.
- Dýrtíðarfrumvarpið
(Fi-amhald af 1. síðu).
Lán til úígerðarinnar.
Þá er ríkisstjórninni heimilað að
taka 3 millj. kr. lán til þess að geta
veitt útvegsmönnum, er gerðu út á
síld í sumar, lán með góðum kjör-
um, í allt að 5 ár.
Þetta munu helztu atriði frum-
varpsins, og eru ekki tök á að gera
því fyllri skil að sinni, þar sem
það hefir ekki borizt hingað ennþá.
Með þessum aðgerðum hyggst
rikisstjórnin geta komið framleiðsl-
unni af stað, og gera loksins alvöru
úr því, að láta „breiðu bökin“
greiða verulegar fjárhæðir af gróða
stríðsáranna til ríkisins.
Hins vegar mun mörgum þykja
þessar ráðstafanir, sem svo ’lengi
hafa verið í undirbúningi og miklar
vonir voru tengdar við, ganga full
skammt og ná ekki þeim tilgangi,
að færa dýrtíðina niður að því
marki, að framleiðsla landsmanna
jverði samkeppnisfær á erlendum
markaði.
Vera má, að frumvarpið breytist
eitthvað í meðferð Alþingis, en
ætlunin mun verá að lögfesta það
fyrir jól.
Líklegt er, að mikill samblástur
verði hafinn gegn frumvarpinu af
kommúnistum.
En mikið er í húfi, að þær ráð-
stafanir verði gerðar, sem megna
að halda framleiðslunni og gjald-
eyrisöfluninni gangandi, og að þvi
stefnir frumvarpið, þótt því kunni
að vera ábótavant. Er því nauð-
synlegt, að landsmenn standi sam-
an um þes^r ráðstafanir, unz rót-
tækari lækning dýrtíðarmeinsins
er fundin.