Dagur - 01.04.1948, Page 8
8
Fimmtudaginn 1. apríl 1948.
Kaupdeila varnar 20 togbátum
að fara á veiðar
Krafist hærra kaups hér en saniið var um
í Reykjavík og Hafnarfirði
„Bláskeggur býður upp í dans“
Þannig hugsar skopteiknari við Chicago Tribune sér „boð“ það, er
Stalin sendi Finnum fyrir nokkru um „bandalag“. Fregnir frá Hels-
inki herma, að Finnum lirjósi hugur við' beim skilmálum, sem
Rússar reyna nú að þrönvga upp á bá í sambandi við þessa samninga.
Talið er, að ætlunin sé að gera Finnland að ósjálfstæðu leppríki á
borð við Austur-Evrópuríkin, sem þegar liafa verið kúguð til und-
irgefni við vilja einræðisherranna í Kreml.
Sjálfvirka símstöðin vænfanleg
á þessu ári
Alþingi heimilaði fjárveitingu - fjárfestingar-
leyfi mun þó ennþá ófengið
Nokkrar undanfarnar vikur
hafa farið fram viðræður uin
nýja kjarasamninga á togveiði-
bátum í milli útgerðarmanna hér
og Sjómannafélags Akureyrar og
hefur samkomulag ekki náðst.
S.l. viku hefur sáttasemjarinn,
Þorsteinn M. Jónsson, haft málið
til meðferðar.
Honum til aðstoðar eru tveir
menn, skipaðir af félagsmála-
ráðuneytinu, þeir dr. Kristinn
Guðmundsson og Olafur Thor-
arensen. í gær var ekki orðið
samkomulag og óvíst hvernig
deilu þessari reiðir af.
Vilja hærra kaup en samið var
um syðra.
Sjómannafélag Akureyrar, sem
kommúnistar stjórna, krefst
hækkunar úr 35%% af afla í
39% til skipshafnar, en 35%%
kjörin hafa gilt hér undanfafin
ár, svo og í Reykjavík. Nýlega
sömdu sjómenn í Reykjavík og
Hafnarfirði um sömu prósentu-
kjör en fengu hækkaða kaup-
tryggingu úr 325 kr. á mánuði í
578 kr. Hér er krafizt 580 kr.
kauptryggingar allt árið, en í
Reykjavík gildir 578 kr. trygging
8 mánuði ársins en 325 kr. trygg-
ing 4 mánuði. Af þessu má sjá,
að hér er farið frain á mun hærra
kaup yfirleitt en gildir fyrir
sunnan.
20 togbátar bíða þess að komast
á veiðar.
Allgóður afli mun nú vera á
togbáta hér fyrir Norðurlandi.
Einn bátur úr Olafsfirði stundar
þegar veiðarnar og mun afla vel.
Hér á Akureyri og í verstöðv-
unum við fjörðinn bíða um 20
bátar þess að komazt á veiðar,
en útgerðarmenn munu ekki
telja fært að greiða hærra kaup-
gjald en greitt er annars staðar á
Skagfieltl heldur hljóm-
leika um helgina
Sigurður Skagfield, óperu-
söngvari, er fyrir nokkru kominn
til landsins eftir margra ára dvöl
erlendis. Hefur hann haldið hljóm
leika í Reykjavík við ágæta dóma
og aðsókn. Skagfield er væntan-
legur til bæjarins nú í vikulokin
og mun halda hér hljómleika um
helgina, með aðstoð Fritz Weiss-
happel, á vegum Tónlistarfélags
Akureyrar.
„KALDBAKUR“ AÐ VEIÐUM A
ELDEYJARBANKA
Akux-eyrartogarinn Kaldbak-
ur stundar nú veiðar fyrir sunn-
an land, einkum á Eldeyjarbanka.
Hefur afli togaranna verið treg-
ur þar að undanförnu, enda
stormasamt á miðunum.
landinu, einkum þar sem afla-
sala er ótrygg. Frystihúsin hér
munu alls ekki anna móttöku afla
allra bátanna. Munu utgerðar-
menn hafa hug á að fá skip til
ísfisksflutninga, eða láta skipin
sjálf sigla með fiskinn á erlend-
an markað. Sú leið mun þó ófær
sem stendur, ef sjómenn hér
halda kröfum um hlutdeild af
brúttosölu til streitu. Er krafa
þeirra, að aflaskipti skips og skips
hafnar séu af brúttosölu á- torgi
erlendis, en ekki af því fé, sem
skipið raunverulega fær fyrir
fiskinn, en það er um 20% lægra
en brúttosala þegar búið er að
greiða toll í Bretlandi og lönd-
unarkostnað.
Óbilgjarnar kröfur.
Það erfitt að koma auga á rétt-
mæti þess að krefjast hærra
kaups á togbátum hér nyrðra en
samið hefur verið um í Reykja-
vík og Hafnarfirði. Stöðvun báta-
flotans hér á vorvertíðinni er
mikið tjón fyrir atvinnulífið hér
og þjóðarbúskapinn í heild. Það
segir sína sögu um tregðuna á
samningum hér, að það eru
kommúnistar sem eru annarsamn
ingsaðilinn hér, en sunnanlands
hafa þeir aldrei náð að brjótast til
valda í samtökum sjómanna. Það
er augljóslega ekki til hagsbóta
fyrir sjómenn, frekar en aðrar
stéttir, að bátarnir liggi aðgerð-
arlausir í höfnum, þótt góð kjör
séu í boði. Hitt má vel vera, að
kommúnistaflokkurinn telji sér
pólitískan ávinning að því, að
efna hér til ófriðar og lama fram-
leiðslukerfið. Verður því vart
trúað, að sjómenn •almennt gerist
verkfæri kommúnistiskra for-
sprakka til þess að auðvelda þeim
þann leik.
Fyrir helgina birti utanríkis-
málaráðuneytið tilkynningu, þar
sem bornar eru til baka blaða-
fregnir um að ráðuneytinu
hafi borizt skýrsla frá Banda-
ríkjastjórn um milljónainn-
stæður íslenzkra þegna í
Bandaríkjunum. Segist ráðuneyt-
ið engin slík gögn hafa móttekið.
Þótt þesi yfirlýsing hafi verið
birt, gengur orðrómurinn áfram
staflaust um landið. Munu komm
únistar einkum vinna að því að
breiða hann út. Þótt vel megi
vera að einhverjir íslendingar
hafi svikið fé úr landi og eigi
mikið fé í Bandaríkjunum, er ó-
Áður en Alþingi var slitið var
samþykkt heimild fyrir ríkis-
stjórnina að verja rösklega 3
milljónum króna til símafram-
kvæmda víðs vegar um landið, og
er sérstaklega áætlað til sjálf-
virku símstöðvarinnar hér og
endurbóta á bæjarkerfinu í sam-
bandi við hana 1,4 milj. króna.
Kunnugt er að sjálfvirka stöð-
in, sem Akureyri er ætluð, mun
tilbúin til afgreiðslu frá sænsku
verksmiðjunum Eirikson snemma
á þessu sumri, og má því ein-
dregið vænta þess, að stöðin kom-
izt upp á þessu ári.
Fjárfestingarleyfi og gjaldeyr-
sennilegt að þær háu upphæðir,
sem Þjóðviljinn hefur nefnt —
yfir 40 milljónir dollara — geti
verið réttar. Rétt er að benda á,
að ef fé hefur verið svikið úr
landi, hefur það gerzt á þeim
tíma, er kommúnistar áttu sæti
í ríkisstjórn. Allir gjaldeyris-
sjóðir voru til þurrðar gengnir,
er núverandi stjórn kom til
valda. Almenningur væntir þess,
að íslenzk stjórnarvöld láti rann-
saka þessi mál, eftir því, sem
kostur er, og vinni að því að ná
tangarhaldi á fé því, sem ólög-
lega hefur verið flutt úr landinu.
isleyfi munu þó ennþá óafgreidd
hjá stjórnarvöldunum syðra, en
með tilliti til heimildar Alþingis
um fjárveitingu til þessara fram-
kvæmda, mun mega gera ráð fyr-
ir að framkvæmdirnar verði ekki
látnar stranda á slíkum leyfum.
Munu bæjarbúar mjög fagna því,
að mál þetta virðist nú vera að
komazt á rekspöl. .
Fyrirlestrar um
börn og uppeldi
Fræðsludeild KEA gengst fyri-
ir fyrirlestra-námskeiði fyrir
foreldra nú næstu daga. Heitir
flokkur þessi „Heilbrigð börn —
hamingjusamir menn“. Alls verða
fluttir 8 fyrirlestrar um börn og
uppeldismál. Ymsir kunnir bæj-
armenn flytja fyrirlestrana. Að
loknum hverjum fyrirlestri verða
frjálsar umræður og fyrirspurn-
um svarað. Mikið úrval fræðslu-
kvikmynda verður sýnt.
Námskeið þetta fer fram í
Gildaskála KEA og er öllum
heimill aðgangur. Aðgöngukort
fást í Fræðsludeild KEA, í Hótel
KEA.. Fyrsti fyrirlesturinn verð-
ur fluttur mánudaginn 5. apríl.
Sbr. auglýsingu í blaðinu í dag.
Fræðsludeildin efnir um þessar
mundir til sænskunámskeiðs fyr-
ir félagskonur og liófst það í gær.
20 konur komast að á þessu nám-
skeiði, sem er 20 kennslustundir.
Fyrirhugað er námskeið í blóma-
rækt og blóinameðferð, og verður
það auglýst nánar síðar.
Glæsilegir hljóm-
leikar Ruth
Hermanns
Þýzki fiðluleikarinn Ruth Her-
manns, sem ráðin er til kennslu
við Tónlistarskólann hér, hélt
fyrstu hljómleika sína í Nýja-
Bíó á páskadagskvöld við hús-
fylli og mikla hrifningu áheyr-
enda. Árni Kristjánsson lék und-
ir. Tónleikar þessir, sem haldnir
vorú á vegum Tónlistarfélags
Akureyrar, voru í alla staði hin-
ir veglegustu. Efnisskráin öll hin
ágætustu tónverk og flutningur
fiðluleikara og undirleikara með
snilldarbrag. Frk. Hermanns er
sannkallaður snillingur, fiðlu-
tónninn mjúkur og fagur og leikn
in með afbrigðum. Túlkaði hún
hvert verkið öður betur, sérstak-
lega Sónötu í A-dúr eftir César
Franck og hinn undurfagra fiðlu-
konsert Mendelsohns. Onnur
verk á efnisskránni voru són-
ata í D-dúr eftir Hándel og
Chaconne eftir Bach. Kom hin
mikla og fágaða leikni, sem ung-
frúin hefur yfir að ráða, e.t.v.
bezt í ljós í því verki.
Það var ánægjulegt að sjá Árna
Kristjánsson hér aftur, eftir lang-
ar fjarvistir. Undirleikur hans
var með miklum ágætum, smekk
vís og fágaður, sérstaklega í A-
dúr sónötu Césái' Francks. Var
samleikur þeirra frk. Hermanns
í því verki éftirminnilegur. Á-
gætur listainaður hefur bætzt í
hóp bæjarbúa með komu frk.
Hermanns. Mun músiklíf bæjar-
ins njóta góðs af og ber að þakka
Tónlistarfélaginu það framtak,
að ráða svo ipenntaða listakonu
til starfa hingað.
íllt viðhald girð-
ingarinnar um
Það bar við nú á dögunum, að
duggönd úr andapolli bæjarins
fannst á Kaupvangstorgi innan
um bílaþvöguna. Hafði hún slopp
ið út um gat á girðingunni, sem
er í hinu hörmulegasta ásig-
komulagi. Girðing þessi er bæn-
um til vansæmdar. Hún var aldrei
fögur né merkileg, en virðist alls
ekki hafa verið haldið við. Yfir-
leitt má segja, að áhuginn fyrir
því að gera umhverfi andapolls-
ins skemmtilega bæjarprýði,
hafi rokið burtu eftir fyrsta á-
hlaup bæjaryfirvaldanna. Bæjar-
búar almennt hafa gaman af poll
inum. í vetur voru þar um 150
andir þegar mest var, þar af um
120 villiandir, sem leituðu grið-
lands þar, þegar veður voru hörð.
Fuglar þesir hafa nú flestir leit-
að burt aftur. Nokkuð hefur bor-
ið .á því, að menn færu yfir girð-
inguna til þess að taka myndir af
álftunum. Reyna þeir þá að gera
þær reiðar svo þær baði vængj-
unum. Börn hafa tekið þennan
sið upp nú síðustu dagana, en
ættu að leggja hann niður. Álft-
irnai: verða grimmar af þessum
söfeum og girðingin sligast að
lokum alveg.
Utaíiríkisráðuneytið neitar sögneum
um milliónainnstæðurnar
En orðrómurinn gengur enn staflaust