Dagur - 12.05.1948, Side 1
Fimmta síðan:
Sýnishorn af stjórnarfari
í leppríki. Flestir ráðherr-
arnir í Búlgaríu eru rúss-
neskir þegnar!
F orustugreinin:
Kommúnistar hér líkjast
lærifeðrum sínum. Þeir
hafa í hótunum við and-
stæðinga sína!
XXXI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 12. maí 1948
19. tbl.
Jtgerð Kaldbaks ekki betur sett annars staðar"
Álasundsbúar sögðust errgan
„vinabæ" vilja á íslandi
nema Ákureyri
Rætt nm starfsmannaskipti milli firnm
vinabæja á Norðurlöndom
Steindór Steindórsson frá íllöðum segir frá
hátíðahöldunum á 100 ára afmæli
r
Alasundskaupstaðar
Sæmundur Auðunsson skipstjóri telur legu
Akureyrar enga hindrun fyrir togaraútgerð
úr bænum
Ár liðið síðan Kaldbakur kom hingað
„Kaldbakur" er nú kominn á veiðar aftur að lokinni fyrstu Þýzka-
landsferð sinni og verður hann væntanlega að Veiðum hér úti fyrir
Norðurlandi á morgun, en ba er ár liðið síðan skipið kom til lands-
ins. Það var því tvöfalt tilefni til þcss að ná tali af skipstjóranum er
skipið var hér inni sl. mánudag og segja lesendum Ðags eitthvað frá
fyrstu Þýzkalandsför togarans og reynslu skipstjórans af ársvist hér
í bænum og siglingum héðan. !
„Vinabæjahreyfing sú, sem
Norrænafélagið beitti sér fyrir,
var hugsuð þannig, að sem jafn-
stærstir bæir á Norðurlöndum
gerðu með sér sérstakt samband.
Höfuðborgirnar væru sér í hóp,
næst stærstu bæirnir í öðrum
flokki o. s. frv. Hefðum við þá átt
að hafa samband við Bergen,
Gautaborg, Árósa o. s. frv. — En
Álasundsbúar sögðust engan
vinabæ vilja á íslandi nema Ak-
ureyri! Sýnir það hug þeirra til
bæjarbúa.“
Þannig fórust Steindóri Stein-
dórssyni menntaskólakennara
orð, er blaðið ræddi við hann um
för hans til Álasunds á vegum
bæjarstjórnarinnar og hátíða-
höldin þar.
Steindór og frú hans eru ný-
komin til bæjarins úr þessari ferð
og kunna frá mörgu skemmtilegu
að segja.
Hvernig hófst sainband Ála-
sunds og Akui-eyrar?
Um það hefi eg ekki heimildir,
sagði Steindór, en árið 1906, eftir
brunann hér, sendu Álasunds-
búar hingað tilhöggvið hús og
húsmuni sem gjöf. Þykir mér lík-
legt að norskir síldveiðimenn,
sem mikið var af hér þá, hafi haft
góð kynni af Akureyri og ástand-
inu hér. Álasundsbúar þekktu
einnig sjálfir áhrif mikilla elds-
voða því að árið 1904 brann bær-
inn nær því allur. Hús það, er
þeir sendu hingað, stendur enn,
við Skipagötu og er nú geymsla
rafveitunnar. Svo lá samband
í milli bæjanna niðri þangað
til Akureyri sendi Álasundi gjaf-
ir í sambandi við Noregssöfnun-
ina. Næsta skrefið tóku Ála-
sundsbúar í sambandi við vina-
bæjarhreyfingu Norrænafélags-
ins. Hinir vinabæir Álasunds —
og okkar — eru Randers í Dan-
mörku, Vesturás í Svíþjóð og
Lahti í Finnlandi. Sambandið í
milli bæjanna fjögurra er all-
traust orðið, en við höfum dregizt
afturúr. Enda engin boð komið
um þetta mál til bæjarstjórnar-
innar hér frá Norrænafélaginu.
Bæir þessir skiptast á nemenda-
hópum í sumar og ætlunin er að
koma á starfsmannaskiptum bæj -
anna, t. d. í kennarastétt, starfs-
mönnum bæjarfyrirtækja o.s.frv.
Þetta er hugsað þannig, að hvert
(Framhald á 8. síðu).
„Snæfell“ með bátafisk
á Bretlandsmarkað
í gær lagði m. s. Snæfell af
stað með fullfermi af bátafisk til
Grimsby á vegum Fisksölusam-
lags Eyfirðinga. Veiði hefur verið
heldur treg hér að undanförnu,
en sjómenn vænta þess að hún
glæðist eftir norðaustangarðinn,
sem gengið hefur yfir hér að und-
anförnu. M. s. Pólstjarnan tek-
ur nú fisk úr bátum hér í firð-
inum til úlflutnings.
GEYSIR SÖNG í GÆR.
Karlakórinn Geysir endurtók
sö.ngskemmtun sína í gærkveldi í
Nýja-Bíó. Var kórnum, ein-
söngvurum og söngstjóra ágæt-
lega fagnað. Söngskráin var hin
sama og á fyrri samsöngnum.
gengst fyrir nám-
skeiði í blóma- og
grænmetisræktun
I þessari viku hefst námskeið í
blóma- og grænmetisræktun á
vegum Fræðsludeildar KEA. Á
uámskeiðiinu verða fluttir fyrir-
Iestrar, gerðar verklegar sefingar,
sýndar kvikmyndir og skugga-
myndir og garðyrkjuáhöld og
bækur um þessi mál verða til
sýnis.
Námskeiðið fer fram í Gilda-
skála KEA og verða aðgöngukort
seld við innganginn.
Fyrsti fyrirlesturinn verður
fluttur næstk. föstudagskvöld og
hefst kl. 8,30 e. h. Þá talar Jón
Rögnvaldsson um garðablóm.
Lokið er nú 5 fyrirlestrum
námskeiðsins: Heilbrigð börn —
hamingjusamir menn“ og hafa
þeir allir verið fjölsóttir. Fyrir-
lesturinn, sem flytja átti næstk.
mánudag verður vegna hátíðar-
innar fluttur til n.k. miðvikudags
á sama stað og sama tíma. Þá tal-
ar Baldvin Ringsted tannlæknir
um tennur og tannskemmdir
Þingeyingar taka þátt
í hvítasunnuhlaupinu
Hvítasunnuhlaupið fer fram —
að venju — annan í hvítasunnu
og um svipaðar leiðir. Vegalengd-
in er 3 km. 2 sveitir frá HSÞ taka
þátt í hlaupinu auk Akureyringa.
Stjórnar
viðreisnarstarfi
Myndin er af Paul G. Hoffman,
framkvæmdastjóra lijálparstarf-
semi Bandaríkjanna við Evrópu-
ríkin 16, sem aðnjótandi verða
Marshallhjálparinnar svokölluðu.
Útnefning hans til þessa embætt-
is hefir verið mjög vel teldð í
blöðum austan hafs og vestan.
Skipstjórinn er ekki marga
daga í landi og tími hans naumur
þá, en samt veitti hann viðtalið
óðara og um var beðið.
Eg skal taka það strax fram,
að eg hefi ekkert sérstakt að
segja, sagði hann. Það er liógvær
maður, skipstjórinn á einum afla-
hæsta og giftusamlegasta togara
landsins, og hefir margur mað-
urinn sagt meira í blaðaviðtali af
minna tilefni. Skipstjórinn gerði
ekki mikið úr erfiðleikunum við
löndun fiskjarins í Þýzkalandi,
en orð hefir verið haft á þeim í
sunnanblöðum. — Þjóðverjarnir
reyndust alldjarfir til íanga, sagði
hann, en okkur tókst að koma í
veg fyrir óeðlilega rýrnun á fisk-
inum. Fyrirkomulag löndunar-
innar er allt annað en í Bretlandi,
en engir teljandi erfiðleikar því
samfara. Lestarborðin má fá
þvegin og fengum við þau hrein
um borð. Skipið landaði þessum
farmi í Bremerhaven. Borgin er
illa útlítandi, ber augljós merki
styrjaldarinnar, því að 60%.hús-
anna eru í rústum, en höfnin
slapp óskemmd. Húsnæðisvand-
ræði voru auðséð, því að ofan á
húsamissirinn bættist, að setulið
Bandamanna hefst við í mörgum
óskemmdum húsum. Annars var
fólkið betur útlítandi en maður
átti von á, t. d. þokkalega klætt.
Auðvitað sást sár ney.ð innan um.
Fenguð þið nokkrar vistir í
borginni?
Nei, ekkert. Þarna er ekkert að
fá. Setuliðið sér skipunum ekki
heldur fyrir neinum föng'um. En
búizt er við því að togararnir fái
brennsluolíur í Þýzkalandi er
fram líða stundir.
Hvern teljið þér a'ðaikostinn
við Þýzkalandssöluma t ?
Aðallega þann, að með Þýzka-
landssölunni fæst öruggur mark-
aður fyrir þann fisk, sem helzt
veiðist á sumrin, eða karfa, ufsa
og steinbít. Við höfðum t. d. mik-
ið af þessum tegundum í síðasta
túr. •
Nú er senn liðið ár siðan
„Kaldbakur“ hóf veiðar. Hvert er
álit yðar á togaraútgerð héðan að
fenginni þeirri reynslu?
Eg fæ ekki séð að Kaldbakur
hefði verið betur settur annars
staðar á landinu. Lega Akureyrar
er engin hindrun í vegi togaraút-
gerðar. Við höfum að vísu ekki
ævinleg'a komið hingað, en slíkt
verður aldrei hægt að forðast. Á
vissum tímum ársins er jafnvel
betra að sigla héðan en annars
staðar fiá.
Þetta álit hins duglega skip-
stjóra mun gleðja Akureyringa
og áuka áhuga þeirra fyi'ir aukn-
ingu togaraútgerðarinnar héðan.
Afkoma „Kaldbaks" sl. ár — sbr.
frásögn í síðasta blaði — styður
álit skipstjórans og mun þess nú
skammt að bíða að hin gamla
þjóðtrú, að ekki sé hægt að gera
togara út frá Akureyri, verði út-
læg gerð með öllu og heyrist ekki
nefnd framai'.
Við snúum okkur nú að því að
spjalla um skipið sjálft. Það hefir
reynst ágætlega, segir skipstjór-
inn. Óhætt að fullyrða það. En
svo er það bærinn sjálíui'. Hvern-
ig líkar skipstjóranum vistin hér?
Hann kann vel við bæinn. Finnst
hann vinalegur og blakkar til
sumarsins. Ymsu er áfátt, en allt
stendur til bóta. Hann játar þó, að
hann langi stundum suður aftur.
Vonandi fer svo, að þau hjónin
kunni því betur við sig hér, sem
þau eiga hér heimili lengur. Mun
það einlæg ósk allra bæjarbúa.
Og hvert er förinni heitið nú?
Við reynum sennilega fyiir •
okkur hér fyrir Norðnrlandi að
þessu sinni, annars eru helztu
miðin um þetta leyti árs fyrir
Vestfjörðum og undan Jökli. Við
sjáum hvað setur.
Og í fyrrakvöld lagði „Kald-
bakur“ enn af stað undir stjórn
Sæmundar Auðonssonar. Bæjar-
menn allir munu taka undir árn-
aðaróskir til skipshafnarinnar,
sem aðalfundur Útgerðarfélagsins
sendi þeim í sl. viku, og þakka
þeim ötullega unnin störf á fyrsta
starfsári togaraútgerðarinnar
héðan.
Þing Sambands sveitar-
félaga háð hér í júní
Ákveðið hefur verið að þing
Sambands íslenzkra sveitarfé-
laga verði haldið hér á Akureyri
dagana 25.—27. júlí n. k. Auk
fullti'úa sveitarfélaganna hér,
munu fulltrúar sveitarfélaga á
-Norðurlöndum sækja þingið.