Dagur - 23.03.1949, Page 7
Miðvikudaginn 30. marz 1949
D AGUR
7
— Að hallandi degi
(Framhald af 2. síðu). ■
núlifandi manna eigi fleiri ferðir
inn á afrétti Dalamanna en
hann. En hér skal ekki fjölyrt um
þær ferðir, því að væntanlega
fær Guðmundur orðið, svo að al-
þjóð heyri, á málaþingi því, sem
allir fremstu fjallkóngar landsins
og eftirleitagarpar, heyja nú um
þessar mundir, í ritsafninu
Göngur og réttir.
Eins atviks vil eg þó geta hér,
þar sem mér þykir óvíst að það
komizt að í hinu nefnda riti, en
það lýsir manninn nokkuð:
Guðmundur fór enn í göngur
sl. haust. Honum þótti félagar
sínir síðbúnir, en þeir þurftu að
ganga frá heyjum heima hjá sér
áður en þeir færu, og eirði hann
ekki að bíða þeirra, ,og lagði einn
á fjöllin hálfum degi fyrr en þeir,
með tvo vanstillta, unga klára til
reiðar. En tamning hesta og glíma
við galda fola hefir verið snar
þáttur í lífi hans aHt frá barn-
æsku. Hefir hann jafnan þótt
einn hinn snjallasti hestamaður í
Skagafirði. — Hann hefir vænt-
anlega verið búinn að sofa góðan
blund í kofanum á Keldudal þeg-
ar hinir náðu þangað um nóttina.
Þetta er vel gert af manni á 80.
árinu.
Guðmundur hefir það til að
vera snöggur í bragði, og jafnvel
orðhvass við fyrstu kynningu. En
engan hefi eg þekkt honum
fremri, né fyrri til, að leysa
vandræði manna þá til hans er
leitað. Og það hefir oft verið gert.
Slíkur er hans innri maður.
Mér þykir vel fara á því, að
þessara gömlu sveitunga og
æskukunningja sé minnst í senn,
á þessum merku tímamótum æfi
þeirra.
Eg þakka þeim báðum góða
kynningu, og óska að æfikvöld
þeirra verði bjart og fagurt. Og
eg vona, að þeir fái að sjá sól hins
komandi lífs „fóðra gulli Tinda-
stól“.
Þormóður Sveinsson.
- Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
réttum aðilum, hvers af þeim
verði að krefjast fyrir hönd með-
borgara þeirra og meðbræðra. —
Hér á eg við þær óþolandi og
andstyggilegu truflanir, sem
virðast vera hnitmiðaðar við
helztu fréttatíma dagsins: Kl.
12,25, kl. 4 (16) og loks kl. 8 (20).
— Þessar geysimiklu „rokur“,
eru ýmist frá verkstæðunum
(logsuðu-rokur), og eru þær
auðþekktar, eða þá frá annarri
starfsemi og frá prívathúsum. —
Og venjulega taka þær allar
fréttirnar í hvert sinn! Nægi ekki
ein „roka“ lengur en fyrir veð-
urspánni, kemur önnur óðara og
tekur þá það, sem eftir er af
fréttunum! — Þó er hér ekki um
lenðri tíma að ræða en 5—10
mínútur í tvö fyrri skiptin, en
nokkuð lengra að kvöldi til. —
Það virðist ótrúlegt, að réttir að-
ilar myndu taka því öðruvísi en
vel, væri þeim bent á þessa tak-
markalausu ónærgætni sína
gagnvart miklum fjölda hlust-
enda hér í bæ! — En skyldi sú
verða raunin, að það stoðaði ekki,
ætti Rafveitunni að vera innan
handar að grípa til sinna ráða, og
ættum við hlustendur ekki að
þurfa að skýra henni frá þeim!
Jarðarför SIGURÐAR SIGURÐSSONAR, sem andaðist 27.
þ. m., fer fram laugardaginn 2. apríl og hefst kl. 3 e. h. með
húskveðju frá heimili hins Iátna, Holti, Glerárþorpi. — Jarð-
sett verður að Lögmannshlíð.
Aðstandendur.
Þeir kerföfluframleiðendur,
sem ætla að biðja oss að selja útsæði, tilkynni
magn þess fyrir 7. apríl n. k.
Kjötbúð KEA.
HttHS<HS<HStS<HS<HS<HS»<BS<BS<HS<HSIS)S<HSlS<HS<HSIS««H*lS<HS<HS<H**KH*<H!
HRAFNA GILSHREPPSBÚAR OG
AÐRIR VINIR MÍNIR!
Hafið hjartans þakkir fyrir þann heiður, sem þið
auðsýnduð mér d fimmtugsafmœli rnínu, 26. þ. m..
Þaklta stórgjafir, skeyti og blórn.
Lifið heil og sœl.
Ragnar Davíðsson.
<BSÍHS<HS*HWHttHttHS<HK«Ha*HS*H*iWHKHS0*H*<H**K«HS0«BS*BKHS<H*«nSi
lllllllllllllll
i ■ i ■ ■ 11 ■ i ■ 11 ■ 1111 ■ i ■ 111 ■ 1111111111111 ■ ■ ■■ ■ ■ • ■ ■ i ■ ■ ■ ■ i ■ i ■■ 1111111 ■ 11111111 ■ ■ 1111 ■ 11 ■ i ■ ■ ■ i ■ 11111 ■ i ■ ■ i ■ i ■ 11111111III "£
Samsæti
\ verður frk. Jóninnu Sigurðardóttur, veitingakonu, hald-
| ið mánudaginn 11. apríl að Hótel KEA, í tilefni af
I sjötugsafmccli hennar. Hefst hófið kl. 7 síðdegis. — Þátt-
I tökulisti liggur frammi alla næstu viku í Bókaverzl.
I Gunnl. Tr. Jónssonar, Ráðhústórgi I.
| FORST ÖÐUNEFNDIN.
........111111II1111111111111111111111111111 ■ • II11 ■ 111 ■ .....
I**m 11IIIMIIIIIIIIIIIIIIIIII ...................................
1111II11111111
T ilkynning
Eftirleiðis verður garðyrkjuráðunautur bæjar- l
ins til viðtals frá kl. 12—14 alla virka daga, í \
Hafnarstrœti 103. Simi 497. |
r £
Finnur Arnason. \
•iiiiiiiiiiiiii■■■11111111111111111111iii■111111111111111111iiilll■•■ll•••l•ll■llll••llllliiiiiiiniiiiiiiiiiiillll■llll■lll■ll•lll•lllllll(:
liiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimfiiniii,
| ÁRSFUNDUR |
Mjólkursamlags K. E. A.
| verður haldinn í samkomuhúsinu „Skjald- j
| borg“ á Akureyri föstudaginn 8. apríl n. k. |
i og hefst kl. 13.
1 Dagskrá samkvæmt reglugerð Mjólkursam- |
lagsins.
Akureyri, 29. marz 1949.
| Félagsstjórnin. i
oimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiniiMiiiiiiii n iiiiiiin 1111111111 ■:
•IIIIIIIIIIIIIIIIIIMMItlllllllllMIIIIIIIMIIIIItllllllMIIIIIIIMIIIIMIIIIIIIIIIIIUIMIIIIIIIIIIIItllllllltlltllltlllllllllMtlMIIIIIII ,,,
I Nokkrar stúlkur
geta fengið atvinnu í Skógerðinni nú þegar.
Nánari upplýsingar gefur Lihn, í síma 304.
Skimiaverksmiðjan IÐ U N N
IUMIIIItMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlhlllMlllllMIMIIIMt'IIUÍ
UR BÆ OG BYGGÐ
I. O. O. F. = 130418% =
Kirkjan. Messað næstk. sunnu-
dag kl. 2 e. h.
Föstuguðsþjónusta í kvöld kl.
8.30 í kirkjukapellunni. Fólk beð-
ið um að hafa Passíusálmana með
sér.
Sunnudagaskólinn kl. 11 f. h.
— Bekkjarstjórar mæti kl. 10.30.
Æskulýðsfundur í kii-kjukap-
ellunni kl. 8.30 (eldri deild). —
Inntaka.
Vígslubiskupinn séra Friðrik J.
Rafnar, er væntanlegur heim frá
útlöndum um næstu helgi.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prestakalli. Hólum, pálmasunnu-
dag, kl. 1. e. h. — Saurbæ, sama
dag, kl. 3 e. h. — Grund, föstu-
daginn langa, kl. 1 e. h. — Kaup-
angi, páskadag, kl. 2.e. h. —
Munkaþverá, 2. pásltadag, kl. 1
e. h. — Möðruvöllum ,sunnudag-
inn 24. apríl, kl. 1 e. h.
Sjónarhæð. Sunnudag kl. 5, op-
inber samkoma; kl. 1, sunnu-
dagaskóli. Allir velkomnir.
Fíladelfía. Samkomur verða í
Verzlunarmananhúsinu, Gránu-
félagsgötu 9, neðri hæð, sem hér
segir: Miðvikudag 30. marz:
Saumafundur kl. 5.30 e. h. Allar
stúlkur velkomnar, meðan hús-
rúm leyfir. — Fimmtudag 31.
marz: Almenn samkoma kl. 8.30
e. h. — Sunnudag 3. apríl: Al-
menn samkoma kl. 8.30 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 1.30 e. h.
Oll börn velkomin.
Æskufólk. Velkomin á sam-
komuna næstk. laugardagskvöld
kl. 8.30 á Sjónarhæð. Vitnisburð-
;ir, ræða og söngur. Biblíunáms-
flokkurinn.
Hjálpræðisherinn. í kvöld kl.
8.30: Hermannasamkoma. —
Fimmtud. kl. 8.30: Norsk Foren-
ing. — Föstud. 1. apríl kl. 8.30:
Bænasamkoma. — Sunnud. kl.
11 f. h.: Helgunarsamkoma. Kl. 2:
Sunnudagaskóli. Kl. 6: Barna-
samkoma. Kl. 8.30: Vakninga-
samkoma. — Mánud. kl. 4: Heim-
ilissambandið. Kl. 8.30: Æsku-
lýðsamkoma. — Þriðjud. kl. 5:
Kærleiksbandið.
Barnastúkan „Samúð“ nr. 102
heldur fund í Skjaldborg sunnu-
daginn 3. apríl næstk. kl. 1,15 e.
h. — Inntaka nýrra félaga. —
Upplestur. — Leiksýning. —
Nánar auglýst í Barnaskólanum.
Áttræð varð síðastl. fimmtu-
dag Sigríður Sigtryggsdóttir,
Stóra-Hamri í Eyjafirði. Hún er
fædd á Stóra-Hamri 24. marz
1869, dóttir Sigtryggs Jónssonar
bónda þar og konu hans, Rann-
veigar Jónsdóttur frá Yti-a-
Laugalandi, Halldórssonar. Ólst
hún upp með foi-eldrum sínum
fram yfir tvítugsaldur, en fór þá
í kvennaskólann á Laugalandi og
dvaldi síðan á ýmsum stöðum,
lengst á Öngulsstöðum, um 20
ára skeið. Síðustu árin hefir hún
átt heima á Stóra-Hamri, —
Sigríður er alkunn dugnaðar- og
atorkukona og hefir áúnnið kér
virðingu og vinsældir sveitunga
sinna. — Á annað hundrað manns
sóttu Sigríði heim á áttræðisaf-
mæli hennar, og sýndi það glöggt
vinsældir hennar og hversu vel
metin hún er af nágrönnum sín-
um. Bárust henni margar heilla-
óskir, blóm og gjafir í tilefni af
þessum heiðursdegi.
5-krónu veltan. Vegna þrengsla
í blaðinu verður enn að bíða að
prenta áskoranalistann. Skoðið
listana sem bíða prentunar í
glugga SportvöruverzlunarBryn-
jólfs Sveinssonar og Co. —
íþróttafélagið Þór.
Judy Bolton heitir skemmtileg
unglingasaga, sem nýlega er
komin út á forlagi Norðra.
Vegna þrengsla í blaðinu, bíð-
ur mikið efni næst tbl., m. a.
grein um fyrirhuguð fjárskipti á
svæðinu rnilli Eyjafjarðar og
Héraðsvatna, framh. af æviminn-
ingum Hannesar Jónssonar o. fl.
Hörmulegt slys varð í Reykja-
vík s. 1. laugardag. Sex ára gam-
all drengur, Sturla, sonur Péturs
Jónssonar, læknis, hér, og frú
Ástu Jónsson, varð fyrir bifreið
og beið bana.
Nú, eftir að snjóa hefir tekið af
öllu láglendi, og göturnar liér
eru orðnar alauðar, sést bezt,
hversu malbikuðu spottarnir,
sem bærinn hefir komið upp á ,
undanförnum árum, eru herfi-
lega farnir. Er ckki nóg með
það að gloppur og göt — háska-
legar umfcrðatækjum — blasi
Jiar hvarvetna við augum,
heldur ber nú meira en áður á
mishæðum á götunum, eins og
missigs gætti þar sem malbikað
hefir verið. Sums staðar, t. d.‘í
Brekkugötunni, eru malbikuðu
spottarnir eins og undiröldu-
sjór og illir yfirferðar. Sú
spurning vaknar við þessa sýn
alla, hvort heppilegt sé að
halda áfram að ausa fé í mal-
bikun gatnanna ef ending
þeirra er ekki meiri og betri en
þetta. Væri ckki heldur ráð að
verja fénu í steinsteypta
spotta? Mundi það ekki meiri
hagur fyrir bæinn í lengdinni?
„Gullfaxi“, millilandaflugvél
Flugfélags íslands, er væntanleg-
ur til landsins úr áætlunárférð til
Kaupmannahafnar síðdegis í dag.
Meðal farþega munu vera þeir
Guðmundur Karl Péltu’sson yfir-
læknir og Jakob Frímannsson
framkvæmdastjóri.
Austfirðingar! Munið kvöld-
vökuna annað kvöld í Gildaskála
K. E. A. Sjá auglýsingu í blaðinu
í dag.
Fimmtugur verður 1. apríl n.k.
Gunnar Jónsson, skipasmiður,
Fjólugötu 16.
Klukkan. Ef að venju fer, verð-
ur tekinn upp sumartími hér á
landi á næstunni. Af blaðaskrif-
um að dæma, líta menn misjöfn-
um augum á þá ráðstöfun, telja
sumir þeirra, sem um það mál
hafa ritað í sunnanblöðin, bezt að
láta klukkuna í friði.
r, .......... --j'
Drengur,
ráðvandur og heilsuhraust
ur, ca. 15 ára, getur fengið
atvinnu í sumar sem hjálp
arsveinn við vörukeyrslu o.
fl. — Leggið nafn og heim-
ilisfang inn á afgr. Dags, —
fyrir 15. a p r í 1, — mrk.
Hjálparsveinn.
1 - —- .................
Starfsstúlku
til liúsverka, vantar mig.
Eðvard Sigurgeirsson, Ijósrn.,
Akureyra. 5ími 151.