Dagur - 27.04.1949, Blaðsíða 2

Dagur - 27.04.1949, Blaðsíða 2
2 DAGUR Miðvikudaginn 27. apríl 1949 Tillögur Fjórðungsþinganna í stjórnarskrármálinu (Framhald af 1. síðu). Allt frá því að fjórðungsþingin á Norðurlandi og Austurlandi hófu starfsemi sína fyrir 4—G árurn, hefur ríkt þar hinn mesti áhugi fyrir því, að nýtt stjórnskipulag yrði tekið upp. .Stjórn- skipulag, sem væri í sem fyllstu samræmi við þá breytingu, sem orðin er á stjórnarforminu, þar sem lýðveldi hefur verið stofnað, en konungsríkið afnumið. Fjórðungsþing þessi, sem enn eru að- eins tvö, þ. e. fyrir Austfirðinga og Norðlendinga, eru skipuð fulltrúum frá sýslunefndum og bæjarstjórnum. Auk þessara full- trúa eiga ennfremur sæti á fjórðungsþingi Norðlendinga bæjar- fógetar og sýslumenn á sambandssvæðinu. Stjórnskipun ríkisins hefur jafnan verið eitt helzta umræðu- efnið á báðum þessum þingum, og bæði þingin hafa jafnan haft starfandi milliþinganefndir í þessu máli. 1 Tillögur fjórðungsþinganna. Á fjórðungsþingi Austfirðingá, sem haldið var í Neskaupstað 1947, voru samþykktar allýtarlegar tillögur um stjórnskipun rík- isins. Tillögur þessar voru samdar af stjórnarskrárnefnd þingsins, sem starfaði rnilli þinga. Fjórðungsþingið fól nefndinni að starfa áfram, einkum með það fyrir augum að eiga viðræður við nefnd frá Fjórðungssambandi Norðlendinga um mál þetta, en það hafði einmitt óskað eftir viðræðum um málið. Af ýmsum óviðráð- anlegum ástæðum varð ekki úr sameiginlegum fundi nefndanna fyrr en seint í ágúst nú í sumar. En þá komu nefndir þessar saman á Akureyri og hófu viðræðufund um málið. Á nefndarfundi þess- um voru engar ályktanir gerðar, en skipzt á sjónarmiðum og það ákveðið, að ef fjórðungsþingin næðu samstöðu um málin nú í liaust, skyldi kosin sameiginleg nefnd frá báðunt þingunum til þess að vinna málinu brautargengi. Á fjórðungsþingi Norðlend- inga, sem haldið var á Akureyri fyrir miðjan september í haust, var málið til umræðu. Samþykkti þingið tillögur, sem í höfuð- atriðum voru samhljóða tillögum þeirn, sem samþykktar voru á fjórðungsþingi Austfirðinga haustið 1947. Eigi þykir ástæða til að gera hér nánari grein fyrir þeim atriðum, sem á milli bar, en tillögur þessar voru síðan sendar fjórðungsþingi Áustfirðinga og voru ræddar þar á fjórðungsþiriginu, sem hað val' á Séyðisfirði fyrir miðjan október s. I. Fjórðungsþing Austfirðinga samþykkti tillögur þessar óbreyttar og kaus af sinni hálfu tvo menn í nefnd, ásamt þeim tveim, sem Norðlendingar kusu á sínu þingi, til þess að fara áfram með málið. Þessa sameiginlegu nefnd skipa: Hjálmar Vilhjálmsson, sýslumaður, Seyðisfirði. Erlendur Björnsson, bæjarstjóri, Seyðisfirði. Jónas G. Rafnar, lögfiæðingur, Akureyri. Karl Kristjánsson, oddviti, Húsavík. Hefur þannig náðst algjör samstaða fjórðungsþinga Norðlend- inga og Austfirðinga um tillögurnar, og fara þær hér á eftir: Tillögur urn nokkur rneginatriði í lýðveldisstjórnarskrá fyrir ísland. I ísland er lýðveldi. Ríkisvaldið er hjá þjóðinni. Það deilist í þrennt: Löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald. Þjóðin felur Alþingi löggjafarvaldið, foiseta framkvæmdarvaldið og dómstólum dómsvaldið. II Landinu skal skipt í fylki: 1. Reykjavík og Hafnarfjörður með næsta nágrenni (Höfuð- borgarfylki). 2. Vesturland: Borgarfjarðarsýsla, Mýrasýsla, Snæfellsness- og Hnappadalssýsla, Dalasýsla og Húnavatnssýslur (Bæjarhreppur úr Strandasýslu) (Vesturfylki). 3. Vestfjarðakjálkinn allur (Vestfjarðafylki). 4. Norðurland: Skagafjarðarsýsla að og með Norður-Þingeyjar- sýslu (Norðurfylki). 5. Austurland: Norður-Múlasýsla að og með Austur-Skafta- fellssýslu (Austurfylki). 6. Suðurland: Vestur-Skaftafellssýsla að og nreð Kjósarsýslu, þar með Vestmannaeyjar (Suðurfylki). Hvert fylki verði stjórnarfarsleg heild með allvíðtæku starfs- sviði og valdi í ýmsum sérmálum. Vald og starfssvið fylkjanna skal ákveðið með lögum. í hverju fylki skal árlega háð fylkisþing. Á þingi þessu skulu sitja 15 fulltrúar, sem kosnir verða í ein- menningskjördæmum, er hafi sem jafnasta kjósendatölu. Fylkis- þing geta þó sjálf ákveðið tölu þingmanna sinna hærri, eða allt að 30 þingmönnum, en jafnframt skal þá fjölga kjördæmum að sama marki. Fylkisstjóri skal kosinn af kjósendum fylkisins eins og forseti, og sé aðstaða hans til fylkisþings svipuð og forsetans til Alþingis. III Alþingi skiptist í tvær deildir, efri deild og neðri deild. í efri deild skulu sitja 18 fulltrúar, 3 úr hverju fylki, kosnir á fylkisþingum, hlutbundnum kosningum. Kjörgengir eru aðeins menn búsettir í fylkinu. í neðri deild skulu sitja 30 þingmenn, kosnir í einmennings- kjördæmum. Kjördæmaskipun skal þannig háttað, að sein næst jafnmargir kjósendur verði í hverju kjördæmi, og skulu kjör- dæmin að öðru leyti ákveðin sem samfelldust, eftir því sem stað- hættir leyfa. Sveitarlelagi má ekki skipta milli kjördæma, nema hvor eða hver hluti verði meginhluti kjördæmisins. Kjördæma- skipun skal endurskoðuð á 10 ára fresti og gerðar á henni þær breytingar, sem nauðsynlegar reynast til þess, að fylgt verði áður- greindri meginreglu um jafna kjósendatölu í kjördæmum. End- urskoðun þessi skal gerð af þriggja manna nefnd. Skal einn nefndarmanna tilnefndur af hæstarétti, annar af Alþingi og þriðji af forseta. Engu fylki má skipta í fleiri en 10 kjördæmi. Báðar þingdeildir og forseti mega hafa frumkvæði að laga- setningu. Forseti skal leggja fram frumvarp til fjárlaga fyrir hvert reglulegt Alþingi eigi síðar en viku eftir að þing kemur sarnan. Ef lagafrumvarp, sem samþykkt hefur Nerið í annarri deild þingsins, er fellt í hinni, skal það afgreitt í sameinuðu þingi, nema fellt hafi verið með 2/s hlutum atkvæða í annarri hvorri þingdeild. Ekkert frumvarp má hljóta fullnaðarafgreiðslu sem -lög frá Alþingi fyrr en forseta hefur gefizt nægilegur frestur til að skýra þinginu frá viðhorfi sínu til frumvarpsins. Forsetinn getur látið fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um lagasetningar, og falla lög úr gildi, ef meiri hluti atkvæða fellir þau við atkvæðagreiðsluna. Þegar brýna nauðsyn ber til, og Alþingi situr ekki, geta for- setar Alþingis eftir beiðni forseta ríkisins sett bráðabirgðalög. Ætíð skulu þau lögð fyrir- næsta Alþingi á eftir. Forseti hefur heimild til Jjess að kalla saman aukaþing, ef hann telur brýna þörf bera til þess. IV Forseti skal kjörinn beinum kosningum af þeim, er kosninga- rétt hafa til Alþingis. Það forsetaefni, sem flest fær atkvæði, er rétt kjörinn forseti. Hvert forsetaefni skal hafa varamann. Forseti myndar ríkisstjórn. Heimilt skal sameinuðu Alþingi að samþykkja rökstudda tillögu um vantraust á ríkisstjórn for- seta. Ef slík tillaga verður samþykkt, skulu fara fram almennar kosningar til Alþingis. Jafnframt skulu fara frarn forsetakosn- ingar, og fer forseti þá frá, nema hann verði endurkjörinn. Verði forseti endurkjörinn, má ekki bera fram á Alþingi vantrauststil- lögu á ríkisstjórn hans í næstu tvö ár. Ef Alþingi afgreiðir ekki fjárlög áður en fjárlagaár hefst, skal greiðslum úr ríkissjóði liagað eftir fjárlagafrumvarpi forseta það fjárhagsár. V Dómsvaldinu skal skipað með sérstökum lögum. Ágallar núgildandi stjórnarskrár f greinargerð Fjórgungssambananna fyrir tillögum sínum scgir mcðal annars: Ágallar núgildandi stjórnarskrár. Þegar ákveðin verða meginatriði stjórnarskrár lýðveldisins, verður að hafa hliðsjón af þeim ágöllum á stjórnskipun ríkisins, sem afdrifaríkastir hafa orðið á liðnum árum. Gallar þessir eru aðallega þrenns konar: í fyrsta lagi of mikill samdráttur ríkisvaldsins á einum stað. í öðru lagi sérstakir erfið- leikar í sambandi við myndun ríkisstjórna, hinar þrálátu stjórn- arkreppur. í þriðja lagi óeðlileg flokkaskipun. Verður nú vikið nánar að liverju tilviki um sig. 1. Samdráttur ríkisvaldsins. Almennt mun viðurkennt, að stjórnarfar síðustu ára hafi stefnt um of að samdrætti alls opinbers valds á einum stað, í höfijðborg ríkisins, Reykjavík. Að sama skapi hafa aðrar byggðir landsins orðið útundan og háðar höfuðborginni í fjárhagslegu, atvinnu- legu og menningarlegu tilliti. Hefur þróun þessi leitt til þess, að ofsalegur vöxtur hefur hlaupið í Reykjavík, og fólki hefur fjölg- að rnjög í borginni og nágrenni hennar um leið og því hefur (Framh. á 3. síðu). Nauðsynleg nýmæli í stjórnar- skránni í framhaldi af grein- argerð fyrir tillögunum um helztu atriði nýrrar lýðveldisstjórnarskrár , segir svo í bæklingi Fjórðungsþings Aust- firðinga og Norðlend- inga: Markmið með setningu nýrrar stjórnarskrár verður það að sneiða hjá þeim ágöllum, sem rík- astir liafa orðið í gild- andi stjórnarskrá, og koma á stjórnskipun, sein bctur mætti henta liögum og starfi þegn- anna. Með skírskotun til þeirrar gagnrýni, sem hér að framan hefur verið gjörð á gildandi stjórnskipun, er ber- sýnilegt, að nauðsyn er nokkurra nýmæla, og eru þessi helzt: Fyrst og fremst er áríðandi að dreifa ríkis- •valdinu eins mikið og fært er, án þess að nauðsynlegur styrkleiki ríkisheildarinnar bíði tjón af þeim sökum. Til þess að ná því marki, eru tvær lciðir gagnleg- "ar. Onnur að auka völd héraðanna, og hin að auka völd forsetans. — Hið fyrra miðar einkum að dreifingu ríkisvalds- ins, en hið síðara treyst- ir ríkisheildina, bæði út á við og inn á við. Þar næst er brýn nauðsyn að endurbæta kosningafyrirkomulagið, sérstaklega með það fyrir augum, að flokka- skipun verði gleggri og eðlilegri en verið hefur. Til nauðsynlegra ný- mæla lieyrir og það, að gera þá breytingu á deildaskiptingu Alþing- is, að hún verði meir að þeirn hætti, sem er tíðk- anlegastur með öðrum þjóðum, en hverfa frá þeirri tilhögun, að al- þingismenn skipti sér sjálfir í deildir. Loks er nauðsyn nýrra ákvæða varðandi ágreining, sem upp kynni að koma milli handhafa framkvænid- arvalds og löggjafar- valds og um framferði hvors valdhafa. Verður nú rakið nokkru nánar hvert atr- iði um sig og að lokum drepið á þriðja handhafa ríldsvaldsins, dómsvahl- ið. (Framh. á 3. síðu).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.