Dagur


Dagur - 11.01.1950, Qupperneq 2

Dagur - 11.01.1950, Qupperneq 2
D A G U R Miðvikudaginn 11. janxiar 1950 LAUST OG FAST'I Fjármálastefna nnýsköpunar,r-áranna forveldaði fratnkvæmd bæjarmálefnasamningsins og boðar nú vaxandi erfiðleika \ aiidamál bæjarfélagsins verða ekki leyst með glamuryrtum kosningástefnuskrám Þegar máiefnasamningur stjómmálaflokkanna i bæjarstjórniniji gekk í gildi í ársbyrjun 1946, var bent á það hér í blaðinu, að þar með væri engan veginn létt af borgurunxun áhyggjum af þeim úr- lausnarefnum, sem samið var um. Framkvæmd samningsins ætti íncst undir því, að heilbrigt fjármála- og atvinnulíf gæti þróazt í landinu. Fyrir því byggðist framkv'æmd samningsins og afkomu- horfur bæjarfélagsins ekki aðeins á vilja og samþykktum bæjar- stjórnarinnar, heldur einnig og miklu fremur á þeirri stefnu, sem ráðandi væri í atvinnu- og fjármálum á Alþingi og ríkisstjórn. Bærinn fær að kenna á eyðslu- stefnunni. ^ Árið 1946 var síðasta ár ný- sköpunarþrenningarinnar. í sama mund sem bæjarfulltrúarnir hér sátu við samningaborðið, voru nýsköpunarílokkarnir að gefa út ávísanir á síðustu gjaldeyrissjóð- ina. Fjármálaástandið var þegar orðið sjúkt. Lánamarkaðurinn þrotinn að verulegu leyti, dýrtíð- in geigvænleg og vaxandi og fjárhagsundirstöður útflutnings- atvinnuveganna að bresta. En í kosningabardögunum 1946 voru viðvörunarorð Framsóknar- manna enn kölluð „barlómsvæl" og „hrunsöngur“. Eyðslustefnan hélt sínu striki allt árið 1946 og fram til stjórnarmyndunarinnar 1947. Blekið var naumast þornað á undirskriftum bæjarfulltrú- anna á bæjarmálasamningnum þegar bærinn fékk að reyna það, hversu haldgott var að treysta loforðum „nýsköpunarflokk- anna“, og hversu væri komið fjárhag ríkisins. Samið hafði verið um að byggja árlega allmargar íbúðir í bæn- um og var sú samþykkt byggð á frumvarpi þáverandi stjórnar- flokka um stórkostlega aðstoð ríkisvaldsins við íbúðabyggingar í kaupstöðum. Þessu frumvarpi var mjög hampað af nýsköpunar- flokkunum í kosningunum, átti það að bera vitni um framsýni þeirra og umhyggju fyrir al- menningsheill. Fulltrúar nýsköp- unarflokkanna í bæjarstjórninni ’bentu sigrihrósandi á hin tilvon- andi lagafyrirmæli og töldu það létt verk og löðurmannlegt fyrir kaupstaðinn, að hefja stórfelldar íbúðabyggingar á þessum trausta grundvelli. Og ekki stóð á því að frumvarp þetta yrði að lögum. Alþingiskosningar voru í aðsigi, og flokkum þessum mun hafa þótt hentara að hafa lagabókstaf til að benda á en frumvarpið hálfkarað, þótt það gengi ómelt ofan í bæjarfulltrúána á Akur- eyri. Þetta húsbyggingafrumvarp var eitt helzta áróðursvopn ný- sköpunarflokkanna í Alþingis- kosningunum 1946 og vafalaust liúsnæðislaust fólk til fylgis við sig með þessum skrumloforðum. Akureyri mátti sigla sinn sjó. Bæjarstjórnin hér hafði fullan hug á að standa við húsabygg- ingaákvæði málefnasamningsins gerði fljótlega menn á fund nýsköpunarráðherra þess, sem með þessi mál fór, og leitaði eftir lögboðinni fjárhagslegri aðstoð. En þá voru kosningar um garð gengnar, enda komið annað hljóð í strokkinn. Sendimenn bæjar- ins fengu greið svör hjá Finni Jónssyni, sem þá fór með þessi mál: Ríkið hafði alls enga pen- inga til þess að framkvæma lög- m.i Ríkið vildi heldur ekki veita aðstöð til þess að þærinn fengi lán í; lánsstofnunum til bygging- anna með eins hagkvæmum kjör- um ög lögin ætluðust til. Yfiríeitt málinu og sagði Akureyri og mál- efnasamning stjórnmálaflokk- anna mega sigla sinn sjó. Eftir þetta reyndi bærinn þrásinnis að fá lán til langs tíma í lánsstofn- unum til þess að hefja húsbygg- ingar í smærri stíl, en fé var ekki fáanlegt. Eyðslu- og sukkstefna sú, sem markar feril Alþýðu- flokksins og Sjálfstæðisflokksins í landsmálum allt síðan 1944, var búin að eyðileggja lánamarkað- inn og koma fjármálum ríkis og þjóðarbús í öngþveiti. Þessi eyðslustefna girti fyrir það, að Akureyri gæti framkvæmt það atriði bæjarmálefnasamningsins, sem fjallar um íbúðabyggingar í allstórum stíl. En hræsnin á sér lítil takmörk. Málgögn Alþýðu- flokksins og kommúnista saka nú fulltrúa Framsóknarmanna í bæjarstjórninni hér um að hafa svikið þetta atriði málefnasamn- ingsins! Sjálfir hafa þessir flokk- ar raunverulega svikið allan bæj- armálefnasamninginn með því að styðja af fremstu getu þá stefnu í fjármálum og atvinnumálum, sem hlaut mjög að torveldi fram- kvæmd samningsins og skapa þessum bæ, eins og þjóðfélaginu í heild, mikla og torleysta fjár- hagslega erfiðleika. Á að verðlauna eyðslusíefnuna? Þjóðin er nú að súpa seyðið af stjórnarfarinu frá 1944 og fram á þennan dag. Nú sjá allir, að kom- hlýtur að verða sársaukafull, hvernig svo sem henni vei ður háttað. Skyldu bæjarmenn hér | telja það heppilegt nú, að verð- launa eyðslustefnuna og þakka fyrir erfiðleikana með því að kjósa fulltrúa hinnar ábyrgðar- lausu eyðslu- og dýrtíðarstefnu, sem öllu er búin að sigla í strand? Glöggir menn úr andstöðuflokk- um Framsóknarflokksins sjá nú gjörla, að viðvaranir hans allt frá 1944 voru á fullum rökum reist- ar og að betur hefði farnazt, ef þeim hefði verið sinnt nægilega snemma. Dýrtíðarstefnah hvarvetna til hindrunar. Þótt hér hafi aðeins verið vikið að íbúðabyggingaákvæði bæjar- málefnasamningsins, er það samt engan veginn svo, að það eitt hafi orðið fyrir barðinu á fjármála- stefnu þeirri, sem hófst með ný- sköpunarstjórninni og síðar naut verndar bandalags íhalds og jafn- aðarmanna í ííkisstjórn Stefáns Jóhanns. Nær því hver fr5m- kvæmd hefur strítt við mikla erf- iðleika, sem stafa af hinu sjúk- lega fjármálaástandi. Bærinn keypti Krossanesverksmiðjuna og hóf rekstur hennar. Kommún- istar reyndu þegar í upphafi að bregða fæti fyrir þetta fyrirtæki bæjarins og skapa því erfiðleika. Þeir stofnuðu til eyðileggingar- verkfalls vi ðverksmiðjuna þegar fyrsta sumarið og höfðu nær því girt fyrir rekstursmöguleika hennar þá. í þessu efni nutu þeir aðstoðar upplausar- og glund- foðastefnunnar, sem upphófst ár- ið 1944. Meginkenning þeirrar stefnu var sú, að dýrtíðin og auk- inn tilkostnaður atvinnuveganna hefði sínar „björtu hliðar". Það var fjármálaráðherra Sjálfstæðis- flokksins, sem hélt þessari kenn- ingu fram. í bæjarmálefnasamningnum var samið um aukningu Laxár- virkjunarinnar. Meðan nýsköp- unarþrenningin sat á valdastól- um og sjóðir voru enn til, var ekkert gert til þess að efla orku- ver landsins. Það gleymdist. Þótt kommúnistar og jafnaðarmenn gali hátt um nauðsyn orkuvers í bæjarstjórn Akureyrar, gerðu ráðherrar þeirra ekkert til þess að greiða fyrir málinu. Það var fyrst eftir að Framsóknarmenn höfðu tekið við stjórn raforku- mála í fyrrv. ríkisstjórn, sem skriður komst á það og fyrir þátt- töku íslands í Marshalláætlun- inni verður framkvæmd nú möguleg. Bærinn á þó eftir að út- vega sér mikið lánsfé til fram- kvæmdanna, því að Marshallfé mun miðað við innkaup véla og efnis. Hið sjúka fjármálaástand mun mjög^ torvclda öflun slíks lánsfjár nú. Þar sýpur bærinn enn seyðið af stjórnarstefnu síð- ustu ára. Vaudinn verður ekki leystur mcð glamuryrtum kosningastefnu- skrám. Þannig mætti lengi telja dæm- in um evfiðleika þá, sem dýrtíð- (Framh. á 7. síðu). KN ATTSP YRNUf ÞRÓTT. Tvö bæjarblaðanna, Alþýðu- maðurinn og fslcndingur, hafa gert framboðslista Framsókn- armanna hér í bænum að um- talsefni. Segja þau Marteini Sigurðssyni hafa verið „spark- að“ af því að hann á ekki sæti á listanum nú. Raunar munu málgögn þessi vita það, að Marteinn sjálfur óskaði ekki að vera í kjöri að þessu sinni og að sjálfsögðu var tekið tillit til þeirra óska hans. En annars ættu þessi blöð ekki að nefna snöru í hengds manns húsi. — Alþýðuflokkurinn virðist hafa „sparkað“ skrautnúmeri sínxi í síðustu bæjarstjór'narkosn- ingum. Þá var Friðjón Skarp- héðinsson efsti maður á lista flokksins, en nú í vonlausu sæti. Hver „sparkaði“ hon- um? Eða „sparkaði“ Bragi sjálfum sér upp í 2. sæti? — Sjálfstæðismenn ættu heldur ekki að tala um knattspyrnu í blaði sínu. Þar eru þeir flokka fremstir. í síðustu kosningum „spörkuðu“ þeir efsta manni sínum niður í þriðja sæti, með útstrikunum, og lá við borð að þeir „spöi-kuðu“ honum út í yztu myrkur .1 þetta sinn hafa þeir ,,sparkað“ honum marka í milli, úr cfsta sæti i hið neðsta. Og hvað er orðið um Svavar Guðmundsson? Hvaða tilburðir eru það, sem hafa komið honum burt af listan- um? Og það skyldi þó aldrei vera, að sumt af því fólki, sem hlaut verulegt fylgi í próf- kosninguni frægu, hafi,fengið FLESTIR BÆJARBÚAR vita að skátafélög eru stavfandi í bænum. Ef ekki af öðru, þá af því að oft má sjá einkennisbúna skáta á götunum, eða þeir knýja á dyr manna í erindum einhverr- ar hjálparstofnunar. eða aðstoða við hátíðleg tækifæri eins og t. d. á þjóðhátíðardaginn o s. frv. Af þessu mætti e. t. v. ætla, að tilgangur félagsskaparins væri einmitt sá, að koma upp hjálpar- sveitum ungmenna, sem hentugt er að grípa til, ef á þarf að halda. En þetta er þó aðeins ytri hliðin, sú er snýr að samfélaginu. Innri hliðin er þó víst merkilegri, sú, er snýr að uppeldi, menntun og menningu unglinganna í samfé- laginu. Á þeim vettvangi gegnir skátareglan áreiðanlega mjög merku hlutverki. Hún vinnur á sérstæðan hátt að því, að þroska sjálfsbjargarhvöt, drengskap og kunnáttu meðlima sinna. ÁGÆTT TÆKIFÆRI til þess að kynnast þessari starfsemi of- urlítið nánar gafst á nýársdag, er skátafélögin hér buðu allmörgum gestum á nokkurs konar skáta- mót í Barnaskólahúsinu hér. Þar var á skömmum tíma hægt að sjá margt um starfshætti og uppeld- isaðferðir skátareglunnar. Þar voru Ijósmyndir frá skátamótum og skátastarfi hér og erlendis, bæklingar og bækur um skáta- regluna , ýmiss konar gripir, sem skátar höfðu safnað og sýnt á skátamótum erlendis og síðast en ekki sízt sýningar á ýmsu því er skátar læra og starfa við í útileg- um og allt miðar að því að gera þá að sjálfstæðum, drengilcgum að kenna á einu af hinuni frægu íhalds-(,spörkum“? Þá er og þess að gcta, að komm- únistar hafa nú ,.sparkað“ höf- uðsmanni sínum hér um slóðir út í eilífðina, ef svo má kalla, með því að nafn Steingríms cr nú á halanunx á lista þeix-ra. Sannleikurinn í niálinu er því sá, að umræður jíessara virðulegu blaða um „spörk“, eru ekkert nema spark í þeirra cigin cnda. UMHYGGJA FYRIR VERKAMÖNNUM? Kominform-málgagnið hér á staðnum hneykslast mjög á því að verkameim skuli ekki vera í öruggum sætum á framboðslistum borgaraflokk- anna. Á lista þeirra sjálfra eru taldir 6 verkamenn, en enginn í öruggu sæti. Bæjarmenn munu og telja, að tveir efstu menn kommúnistalistans séu þar sem fulltrúar kommiin- istaflokksins en ekki verk- lýðssamtakanna. Hitt skilja allir, að kommúnistar vilja gjarnan að verklýðssamtökin þjóni undir flokk þeirra hér cins og fyrir austan tjald. — Helzt vildu þeir fyrirskipa öllum meðlimum verklýðsfé- laganna að kjósa íista sinn og gerðu tilraun í þá átt 1946. En hér vantar það, sem til þarf og handhægt cr fyrir austan: Herlið, lögreglu og ógnarstjórn. Þess vegna gera slíkir tilburðir hér ckkert' nema að opiúbera innræti for- sprakkanna. mönnum. Þarna voru drengir að flétta reipi og hnýta hnúta, drengir að matbúa, drengir að búa um meiðsli á félaga og sinna margvíslegum öðrum störfum, sem nauðsynlegt er að kunna fyrir hvern þann,/sem vill bjarga sér sjálfur og jafnan vera viðbú- inn að mæta hverju því, sem að höndum ber, með rólyndi og karlmennsku. Aðeins það, að koma þessari sýningu upp hefur kostað mikið starf fyrir drengina sjálfa og fyrirliða þeirra. En það hefur verið hollt og skemmtilegt starf, eins og svo mörg önnur störf og leikir, sem skátareglan leggur áherzlu á. ÞAÐ ER .GOTT ef hið skemmti- lega boð skátanna á nýársdag verður til þess að beina athygli samfélagsins frekar en áður að hinu kyrrláta en mjög athyglis- verða starfi skátareglunnar. For- ustumenn skátanna leggja á sig mikið og óeigingjarnt starf og þeir eiga skilið fullan stuðning borgaranna og samfélagsins í heild. Á óróleikatímum, sem þeim, er nú ganga yfir, er rík þörf á því, að sá andi, scm ríkir innan skátareglunnar, nái að skjóta traustum rótum í brjósti sem flestra af ungu kynslóðinni. Allt gott uppeldisstarf þarfnast síns tíma og e. t. v verður árang- urinn ekki metinn til fjár. En okkur skortir ekki mest nú þau verðmæti, sem látin verða í ask- ana, heldur miklu fremur sið- ferðilegan þrótt og styrk til þess að mæta hverjum vanda í öruggri vissu um að við séum viðbúin að breyta rétt. hefur þeim tekizt að tæla margt jjj ei. á heljarþröm og lækningin þvoði ráðherann hehdur stnár af) ÚR BÆNUM: Kyrrlát eo athyglisverð starfsemi shátafélaganna

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.