Dagur - 11.01.1950, Síða 4
I
D AGUR
Miðvikudaginn 11. janúar 1950
^7>WVVWVVVVVvWW>^/VVWWVyV'^A/VVW^NWy^W'/VNÍl
DAGUR
Ritstjóri: Haukur Snorrason.
Afgreiðsla, auglýsingar, innlieimta:
Marínó H. Pctursson
Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sími 166
Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi
Árgangurinn kostar kr. 25.00
Gjalddagi er 1. júlí.
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F.
Skattamálabrandur íhaldsins
L ■
EF AÐ venju lætur, munu a.m.k. tvö bæj-
arblaðanna nú taka til þar sem frá var horfið
á sl. ári og halda áfram hinni sérstæðu
fræðslu sinni um starfsemi kaupfélagsins hér
og samvinnufélaganna í heild. Tilefnið að
þessu sinni eru bæjarstjórnarkosningarnar.
Hefir það aldrei brugðizt nú hina síðari ára-
tugi, að sérstakur fjörkippur hefir komið í
ófrægingarstríð íhaldsins gegn samvinnufé-
lögunum skömmu fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingar. Þrátt fyrir allar nýjungar í stríðstækni
nú hin síðari ár, eru vopnin, er í þessu stríði
eru helzt notuð, öll af gamla skólanum og
rauriar flest orðin harla bitlítil, enda langt í
frá að þau hafi legið í smiðju í milli bæjar-
stjórnarkosninga. Þarf raunar.ekkert sér-
stakt tilefni til þess, að þeim sé brugðið á loft,
ef riddararnir á ritstjórnarstólunum-halda að.
stríðsdans muni á einhvern hátt. lyfta, undir
fvlgi flokka þeirra, er útlitið er svart að öðru
leyti. Víðkunnast þessara fornlégu vopna er
skattamálabrandurinn. Honum er sveiflað í
tíma og ótíma, og líklega er búið að eyða
meiri prentsyertu til þess að, brýna hann og
sijóvga en nokkurt annað pólitískt vopn hér
á landi hin síðari ár. Og þó er þetta raunar
ekki flokkslegt vopn, þótt reynt sé stundurii
að láta almenning halda, að svo sé. Vissulega
verða deilur um skattamál samvinnufélaga
ekki leystar í bæjarstjórnum landsins. Bæir
og sveitarfélög leggja útsvör og.aðra skatta
á samkvæmt landslögum hverju sinni. Sú
undirstaða rótast ekki vitund, þótt manna-
skipti verði í bæjarstjórnunum á fjögurra
ára fresti. Hins vegar munu sumir menn telja
að með því að útbreiða rangar upplýsingar
um þessi mál og ala á tortryggni, geti þeir
lyft eitthvað undir kjörfylgi flokka sinna. Ef
að venju fer, munu þau sjónarmið verða á-
berandi í hinum tilvonandi kosningaslag.
SAMVINNUFÉLÖGIN endurgreiða fé-
lagsmönnum sínum árlega miklar fjárfúlgur.
Félagsmennirnir hafa lagt þar inn fé til vöru-
kaupa, en kaupin eru ekki endanlega gerð
fyrr en við árslok, er reikningar eru upp
ge^ðir og séð verður, hvað varan hefir raun-
verulega kostað. Þá endurgreiða kaupfélögin
félagsmönnum sínum það fé; sem þeirra er.
Félagsmennirnir sjálfir hafa greitt skatt af
því, sem einstaklingar. Allir sjá, hve ranglátt
væri að skattleggja þetta fé á ný og svipta
félagsmennina þannig möguleikum til þess
að fá vörur sínar við sannvirði. Slíkt athæfi
væri í rauninni bein árás á félagsfrelsið í
landinu og miðaði að því að eyðileggja mögu-
leika þegnanna til þess að njóta ávaxtanna
af samstarfinu. Hvergi meðal nágrannaþjóð-
anna, þar sem samvinnufélög eru rekin á
sama grundvelli og hér, hefir andstæðingum
samvinnuhreyfingarinnar tekizt að setja slík
höft á félagsfrelsi fólksins. Það mundi vafa-
laust þykja tíðindum sæta þar, ef gróðavald-
:ið á íslandi fengi því áorkað, að leggja tvö-
faldan skatt á samvinnumenn og ekki þykja
bera vott um hátt menningarstig eða mikinn
félagsþroska íslendinga. En
sem betur fer, stendur ekkert
slíkt til enda þótt viljann til
þess vanti ekki sums staðar.
Samvinnustefnan á of sterk í-
tök í hugum almennings til
þess að gróðaklíkum takist sú
fyrirætlun.
í UMRÆÐUM þeim, sem
farið hafa fram í bæjarblöð-
unum um útsvars- og skatta-
mál mörg undanfarin ár, hafa
málsvarar tvöfalda skattsins
jafnan talað um útsvör til
bæjarfélagsins eins og þar
væru allar skattgreiðslur sam
vinnufélaganna. Þrátt fyrir
margendurteknar áskoranir
hér í blaðnu, hafa þessi mál-
gögn aldrei fengizt til þess að
ræða ákvæði skattalaganna
frá 1941, þar sem ríkisvaldið
gekk mjög á rétt bæjarfélag-
anna með því að banna þeim
að leggja á skattskyldartekjur
eftir að vissu marki er náð.
Ríkið tók sér einkaleyfi á
skattlagningu þess, sem þar
er fyrir ofan. Útkoman er sú,
að ríkisvaldið fær bróðurpart-
inn af skattgreiðslum stórra
fyrirtækja, en bæirnir eru
rændir eðlilegum tekjustofni.
Leiðin til þess að laga þetta
er ekki að hækka skatta á
þessum fyrirtækjum, heldur
sú, að breyta þessum lögum
og veita bæjarfélögunum ríf-
legri hlutdeild í þeim fúlgum,
sem stór fyrirtæki greiða ár-
lega í skatta. Slík breyting er
réttlát og sjálfsögð. Hér í blað
inu hefir hvað eftir annað
verið bent á þetta. Blöð and-
stæðinganna hafa ekki enn í
dag tekið undir þá kröfu. Sú
þögn bendir til þess, að þau
hafi meiri áhuga fyrir því að
geta beitt þessu blekkngar-
vopni í kosningaslag en að
bæta hag bæjarfélagsins með
skynsamlegum ráðstöfunum.
Fróðlegt verður að sjá, hvort
áhugi fyrir þessu máli lifnar
nokkuð núna fyrir kosning-
arnar.
FOKDREIFAR
Lítill kosningahugur enn.
Flest sólarmerki virðast benda
til þess, að bæjarstjórnarkosn-
ingaslagurinn hér verði ekki sér-
lega illvígur að þessu sinni, og
að undanfari kosninganna, — a-
gitasjónir, fundir og blaðaskrif —
muni ekki setja geðsmuni borg-
aranna mjög út úr jafnvægi.
Bæjarstjórnin, sú sem nú er að
kveðja, hefur að vísu ekki verið
sérlega vinsæl. Naumast verður
þó með skjótum hætti hægt að
festa hönd á neinni sérstakri á-
stæðu til þess, að mönnum liggur
mörgum hverjum þungt orð til
hennar. Raunar munu margir þó
frekar eiga við framkvæmda-
stjórn bæjarins en bæjai-stjórn-
ina sjálfa. Framkvæmdastjórnin
hefur á þessu kjörtímabili verið
vonum lakar slöpp og seinlát og
þetta hefur orðið meira áberandi
en ella vegna þess, að bærinn
hefur haft með höndum ýmsar
markverðar framkvæmdir, sem
borgararnir veita sérstaka at-
hygli. Þó er mér nær að halda,
að það sé ekki seinagangur hinna
stærri mannvirkja, sem mest hef-
ur gramist borgurunum, enda
hefur þar oft verið við ramman
reip áð draga, þar sem er hið
sjúklega fjármálaástand í land-
inu, vöruskortur og erfiður láns-
fjármarkaður, heldur vinnu-
brögðin, sem þeir sjá daglega fyr-
ir sér á götunum og við ýms
verkefni, sem bærinn hefur með
höndum. Sem dæmi um þetta má
nefna útlit gatnanna hér nú eftir
nýórið. Meðan hlákur gengu yfir
á dögunum, og auðvelt var að
hreinsa snjó af götum miðbæjar-
ins, var ekkert til þess gert. Þeg-
ar frysta tók, varð afleiðingin sú,
að svellbunkar mynduðust, og
bílarnir gerðu brátt djúpar rásir í
þá. Þessar rásir eru svo keyrðar
alla daga, með þeim afleiðingum,
að malbikið slitnar þar, svo að á
vorin má rekja rásirnar í mal-
bikinu. Þetta eru vinnuvísindi,
sem ekki borga sig, og það bætti
ekki úr skák, þegar menn sáu það
nú upp úr helginni, að byrjað var
að höggva klaka af götunum,
Hvers vegna var ekkert gert,
meðan hlákan var? Líklegast eiga
þeir í sameiningu heiðurinn af
því Sjálfstæðisflokkurinn, sem
hefur lagt bænum til bæjar-
stjórann nú um meira en áratug,
og kommúnistar, sem helga sér
bæjarverkfræðinginn, að gera
stjórn málefna kaupstaðar-
ins þyrni í augum margra borg-
ara. Mun það sannast sagna, að
bæjarbúar líti ekki til þess með
neinni tilhlökkun að þessir heið-
ursmenn stýri áfram fram-
kvæmdum. Er það og ekkert
leyndarmál, að allsendis ósenni-
legt er að núverandi bæjarstjóri
verði kosinn hér enn einu sinni,
enda þótt Sjálfstæðisflokkurinn
muni að sjálfsögðu óska þess
heitt og innilega.
Skugginn af framkvæmdastjórn-
inni.
En þótt deyfðin og drunginn í
daglegum rekstri bæjarins hafi
þannig varpað skugga á bæjar-
stjórnina meira en eðlilegt má
má kalla fyrir hennar eigin til-
verknað, er þó engan veginn sagt,
að hún sé syndlaus. Má með réttu
margt að störfum hennar finna,
sem og öðrum mannanna verk-
um, en hinu ber heldur ekki að
neita, að margt hefur vel tekizt
og hún hefur borið gæfu til að
halda fjárhag bæjarins á réttum
kili. Þegar stjórn bæjai-málefna
Akureyrar er borin saman við
það, sem gerst hefur víða annars
staðar, t. d. ísafirði, Vestmanna-
eyjum og Siglufirði, sést berlega,
að betur hefur verið haldið á mál-
unum hér en þar. í sumum hinna
bæjanna er allt sokkið í skuldir,
og sums staðar hins mesta óreiða
á fjárhagnum, að sögn blaða í
þessum bæjum. Ekki verður ann-
að sagt, en fjármál og fjárreiður
kaupstaðarins hér séu í allgóðu
lagi og mega borgararnir líka
meta það að verðleikum, einkum
þar sem nú fara erfiðir tímar í
hönd, og mun þá líklegra til
trausts að eiga gott orð fyrir
skynsamlega fjármálastjórn en
langa sögu um ævintýralegar að-
gerðir þeirra flokka, sem kalla
sjálfa sig framsækna og haldna
alveg sérstökum áhuga fyrir vel-
ferð almennings. Síðan 1946 hafa
þessir flokkar nokkuð fengið að
reyna ágæti kenninga sinna í
ýmsum bæjum, og mega Akur-
eyringar vera þakklátir sjálfum
sér fyrir það, að hafa ekki veitt
þeim meirihluta 1946. Þá mundi
hér öðruvísi og ömurlegra um-
horfs en nú er og minni líkur til
þess að hægt væri að halda uppi
skynsamlegum framkvæmdum og
forða atvinnuleysi og vandræð
um.
(Framhald á 5. síðu).
/é/wa,
Hjúskaparskólinn í Kaupmannahöfn
Fyrir nokkrum mánuðum var stofnsettur nokkuð
sérstæður skóli í Kaupmannahöfn. „Köbenhavns
ægteskabsskole“ heitir hann, þ. e. a. s. hjúskapar-
skóli Kaupmannahafnar.
Þessi skóli er talinn vera alger nýjung þótt um
víða veröld væri leitað. Indland og Kanada hafa
snúið sér til skólans og beðið um upplýsingar um
það, hvernig þessu sé hagað, með það fyrir augum
að setja á stofn slíkan skóla. Fréttastofa Reuters
hefir sent út greinar um skólann til allra eða a. m. k.
allflestra landa heims.
Hvernig varð þessi skóli til?
.Við verðum að fara 6 ár aftur í tímann, þegar ráð-.
gefandi skrifstofa um einkamál var opnuð í borg-
inni. Það var þá orðið ýmsum merkum mönnum
ljóst, að nauðsyn bæri til þess að fólk fengi marg-
háttaða fræðslu um hjónabandið og hin ýmsu hjú-
skaparmál, og að þetta væri í té látið af hæfum
mönnum og konum en ekki æsandi bókum, sem
venjulega voru ófullnægjandi og gátu af eðlilegum
ástæðum aldrei gert sama gagn og menntaður, vel-
viljaður og ráðgefandi maður, sem hægt var að leita
til og ræða við um hin ýmsu mál.
Hjónaskilnaðir höfðu aukizt mjög og mikið af
hjónaböndum voru í vanda stödd. Þá var rætt um að
hefja mikinn áróður á breiðum giundvelli. í Eng-
landi hafði kirkjan unnið að þessum málum, en í
Ameríku hafði verið farin sú leið, að kenna um hjú-
skaparmál við hina æðri skóla, og hafði það að
mörgu leyti gefizt vel.
Árið 1947 var danskur prestur, C. E. Dam-Hend-
riksen að nafni á ferð í Englandi. Meðan hann
dvaldist þar, las hann grein nokkra í ensku blaði
um vandamál hjúskaparins og þar var þess getið,
að Danir væru líka að glíma við, á hvem hátt væri
hægt að koma til hjálpar hinum ungu og leiðbeina
þeim og fræða um hjónabandið.
Þessi grein varð til þess, að presturinn ákvað að
stofna skóla heima í Danmörku, skóla, sem ætti að
veita hinum ógiftu fræðslu um, hvað hjónabandið
í raun réttri er, og hjálpa hjónum, sem af einhverj-
um ástæðum gengur illa búskapurinn, til hamingj-
unnar aftur. Kennsla skyldi fara fram í fyrirlestr-
um, en vandamál hvers einstaks hekið fyrir á þann
hátt, að nemendur væru örvaðir til að spyrja að
loknum fyrirlestrunum.
Það var brautryðjendastarf, sem þessi maður
vann, með því að koma skólanum á laggirnar, það
var erfitt starf eins og allt brautryðjendastarf er,
en hann hóf starfið, og nú er skólinn í fullum gangl
og hefur þegar hjálpað mörgum.
í sambandi við skólann hefm’ verið stofnuð ráð-
gefandi nefnd fyrir ung hjón og heimili þeirra. f
þessari nefnd eiga sæti fulltrúar fró hinum ýmsu
aðiljum svo sem læknum, lögfræðingum, skóla-
mönnum, verzlunarmönnum og húsmæðrafélögum.
Nefndin vinnur án nokkurs fjárhagslegs stuðnings,
en fræðslumálastjórn Kaupmannahafnar hefir látið
henni í té húsnæði.
Hjúskaparskólinn starfar í námskeiðum og hefur
um 100 nemendur á hverju námskeiði. Nemendur
geta allir orðið, bæði gamlir og ungir, giftir og ógift-
ir, en mest ber að sjálfsögðu á nýgiftu fólki og þeim,
sem í náinni framtíð ætla að ganga í hjónaband.
Hvað er kennt?
Það er ekki um neina kennslu að ræða í venju-
legum skilningi þess orð. En mál, sem tekin eru
fyrir í fyrirlestrunum eru m. a.: Kynlíf hjóna, rétt-
ur hjónabandsins og þjóðfélagsleg aðstaða, árekstr-
ar í hjónabandinu, fjármál heimilisins, nútíð og
framtíð bamsins og starf konunnar utan veggja
heimilisins. Ýmis önnur mál og aíbrigði af þessum,
sem hér voru nefnd koma fram, þegar nemendur
gera fyrirspurnir, sem kennararnir þurfa að svara
og greiða úr.
(Framhald á 7. síðu).