Dagur - 15.02.1950, Blaðsíða 1
.13 >-:
:Forustugrcinin:
í miðjum straumi.
Fimmta síðan:
,,Norsel“-leiðangurinn
til Suðurheimskauts-
landsins.
XXXUI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 15. febrúar 1950
11. tbl..
Svanirnir á andatjörninni
^—.- ———
Verkðmannðflokkurinn brezki lofar rniklum sfuðn-
ingi við brezkar fiskveiðar
Bretar eiga ná 865 togara - hafa á iprjónunum
áætlanir um stórfélldar nýbyggingar
Audatjörnin í giiinu er augnayndi ungra og aldna allan ársins hring.
Á jiessum árstúna sækja jiangað viiliandir svo tugum skiptir, og er
gaman að sjá þær fljúga á sjó fram í ljósaskiptum á kvöidin þegar
ldjtt cr í veðri. Ein mesta prýði tjarnarinnar eru svanimar. —
Edvard Sigurgeirss. tók þessa mynd af þeim á tjörninni fyrir nokkru.
En annar flokkurinn skilaði auðum seðlum
og hinn hélt sér við vonlausa frambjóðendur
í kosningapésa þeim, er Alþýðuflokkurinn gaf út í janúar sl.,
stendur feitletrað yfir þvera síðu: „Við viljum fá nýjan og framtaks-
saman bæjarstjóra“. Þessi yfirlýsing og aðrar, sem birtar hafa verið
í svipuðum dúr á vegum flokksins, virtust gefa til kynna, að flokkn
um væri í raun og sannleika áhugamál að fá ötulan mann í sæti
Steins Steinsen. Kommúnistar höfðu gefið svipaðar yfirlýsingar, og
Framsóknarflokkurinn lýsti yfir því fyrir kosningarnar, að flokk-
urimi væri þess mjög fýsondi að ötulli maður en núverandi bæjar-
stj. væri ráðinn til starfsins, og mundi flokkurinn beita sér fyrir því.
Heitið var efnt.
Framsóknarmenn efndu þetta
heit með því að'Guðmundur Guð-
laugsson sótti um bæjarstjóra-
stöðuna. Hins vegar urðu þær
efndir á fyrirheiti Alþýðuflokks-
ins, að tveir jafnaðarmenn sóttu,
og þött báðir séu nýtir menn, var
fyrirfram vitað, að hvorugur
þeirra kom tíl greina sem bæjar-
stjóri. Eftir áð umsóknir voru
kunnar, var ljóst, að Guðmundur
Guðlaugsson var álitlegasti fram-
bjóðandinn og líklegastur til þess
að hljóta stöðuna ef vilji var fyrir
heridi hjá vinstri flokkunum til
þess að breyta -til.
F ramsóknarf lokkurinn hef ur
ekki nema 3 menn af 11 í bæjar-
stjórn og getur því að sjálfsögðu
ekki komið sínum manni að nema
með stuðningi annars staðar frá.
Sá 1 stuðningur fékkst ekki frá
vinstri fiokkunum, sem einir
komu þarna til greina, með því að
fyi irfram var vitað, að Sjálfstæð-
isflokkurinn mundi óskiptur
standa með Steini Steinsen. Al-
þýðuflokkurinn studdi auk lield-
ur þá tillögu Sjálfstæðismanna, í
upphafi bæjarstjórakjörsins, að
cnginn frambjóðandi skyldi telj-
ast kjörinn, sem eklti fengi hieiri-
hluía 'bæjarstjórnar. Þessari til-
lögu Sjálfstæðismanna var ætlað
það hlutverk að fyrirbyggja að
Guðmundur Guðlaugsson yrði
kjörinn með 5 atkv. Þannig lagði
Alþýðuflokkurinn liðsinni sitt til
þess að ekki reyndist unnt að
skipta um bæjarstjóra og fá ötulli
mann en Steinsen.
Blekkingar Alþýðuijiannsins.
Alþýðumaðurinn í gær flytur
ósvífna blekkingargrein um þetta
mál og sparar þár ekki stóryrðin
frekar en venja er. Ræðir blaðið
málið rétt eins og Framsóknar-
flokkurinn hafi gefið yfirlýsingar
um kjósa aldrei Stein Steinsen.
Þetta er ósvífin blekking, því
að Framsóknarmenn lýstu
því einu yfir, að þcir vildu
beita sér fyrir því að fá ötulli
mann í bæjarstjóraembættið
en Stein Steinsen.
Framsóknarmenn höfðu slíkan
mann í kjöri, en fengu því vita-
skuld ekki ráðið með sínum 3 at-
kv., að hann yrði kjörinn. Aftur á
móti varð lítið úr efndum fyrir-
heits Alþýðuflokksins um að
(Framhald á 8. síðu).
Skákþing Norð-
lendinga hefst
a mami
Skákþing Norðlendinga hefst í
bæjarstjórnarsálnúm hér á
mánudaginn kemur kl. 8. Verður
keppt í meistarafl., I. og II. fl. —
Allmargir norðlenzkir skákmenn
hafa þegar tilkynnt þátttöku sína.
Skákfélag Akureyrar gengst fyrir
mótinu og sér um það. Þeir, sem
óska nánari upplýsinga, eða vilja
láta skrá sig til þátttöku, geta
snúið sér til Guðbrands Hlíðar
dýralæknis hér í bæ.
Verkamamiafélagið hér
og Bílstjórafélagið aug-
lýsa afgreiðslubann
á flugvélabensíni
Deila flugvirkja og flugfélag-
anna stendur enn og nú hefur Al-
þýðusamband íslands farið þess
á leit við Verkamannafélagið hér
og Bílstjórafélagið, að þau lýsi:
flutninga- og afgreiðslubanni á
fíugvélabenzíni frá olíufélögun-
um hér á staðnum til Flugfélags
íslands og Loftleiða. Bæði félög-
in hafa nú samþykkt að verða við
þessari málaleitan, og lýsir
Verkamannafélagið banni frá 17.
þ. m., en Bílstjórafélagið frá 21.
þ. m.
Þrátt fyrir verkfall flugvéla-
virkja, halda flugsamgöngur
áfram. Tvær Douglasflugvélar
voru á Melgerðisflugvelli nú um
helgina og fóru suður í gær.
j\ý saoisk
fiskskurðarvél
Sænskur upþfinningamaður,
Laurin að nafni, sýndi nýlega
dönskum útgerðaimönnum nýja
fiskskurðarvél, sem hann héfur
fundið upp ,og talin er líkleg til
gagns við fiskveiðarnar við Græn
land. Vél þessa gengur fyrir raf-
magni og getur flakað og skorið
12 fiska á mínútu. Ætlast er til
að hún sé sett upp í verstöð eða
um borð í móðurskipi. ÞorsKinum
er fleygt inn í vélina, hausinn á
undan, og afhausar vélin fiskinn
samstundis. Fiskurinn flytzt síð-
an til og sker vélin þá innan úr
honum, flakar hann og skilur
lifrina frá slóginu. Síðast roðflett-
ir vélin flökin. Norge Handels- og
Sjöfartstidende segir frá vél
þessari nú um sl. mánaðamót. —
Ekki greinir blaðið frá því, hverj-
ar móttokur hún fékk hjá Dön-
um, en lætur þess getið, að hún
kosti um 36000 danskar krónur.
Kosningabaráttan í Bretlandi
stendur nú sem hæst. Framboðs-
frestur var útrunninn nú um sl.
helgi og eru frambjóðendur rösk-
lega 1860 talsins, í 625 kjördæm-
um, og eru það fleiri frambjóð-
endur cn í kosningunum 1945.
Erlendir áhorfendur telja lík-
legast, að Verkamannaflokkurinn
muni halda völdum í Bretlandi,
en meirihluti hans á þingi muni
minnka verulega.
Kosningaloforðin.
AUir flokkarnir hafa gefið út
kosningastefnuskrár og kennir
þar margra grasa. í einum kosn-
ingapésa Verkamannaflokksins erj
sérstaklega rætt um brezku fisk-
veiðarnar og framtíð þeirra-. Er sá
þáttur kosningastefnuskrárinnar
líklegur til þess að vekja einna
mesta athygli hér á landi, og' vill
Dagur því geta aðalatriðanna með
því að þau snerta einnig íslenzkar
fiskveiðar og markaðsmöguleika.
*
865 togarar — 600 þurfa að
endurnýjast.
í kosningapésa þessum lofar
brezki Verkamannaflokkurinn
áframhaldandi stuðningi við
brezka útgerð, og bendir á, að
Bretar eigi nú 865 togara, en af
þeim þurfi að endurnýja a. m. k.
600. Flokkurinn leggur til að tek-
in verði upp ný stjórn fiskveiða-
málanna undir stjórn Sir John
Forster, og minnir á, að án fisks-
ins geti þjóðin naumast lifað,
hvorki í friði né stríði. Þegar
heimafiskimiðin þrjóti, verði
brezk fiskiskip að sækja á fjarlæg
mið. Meðaltúr brezks togara nú
tekur 24 daga. Nýju skipin eru
ágætlega búin til slíkra langferða
og þjóðin þarfnast fleiri slikra
skipa.
Vilja að ríkið aðstoði við
aukningu togaraflotans.
Flokkurinn harmar það, að
fiskverðið sé nú orðið eins hátt
og raun ber vitni, og gefur í skyn,
að milliliðir taki óþarfan gróða.
Til þess að fyrirbyggja það, legg-
ur flokkurinn til, að hert verði á
eftirljti. Bendir flokkurinn á, að
líklegt megi telja, að fiskurinn
yrði ódýrari fyrir húsmæðurnar
í landinu, ef ríkið hjálpaði til við
að byggja nokkur hundruð nýja
togara. í dag reka Bretar enn
fiskibáta, sem eru smíðaðir fyrir
aldamót. Flokkurinn vill setja
nýbýggingarlög, þar sem ríkið
hjálþar útvegsmönnum að býggja
ný fiskiskip, sem búin eru ný-
tízku tækjum og hæf til ferða á
íjarlæg fiskimið.
Mikil framför í togarasiníðum
síðan 1945.
Bent er á, að mikil framför hafi
orðið í togarasmíðum síðan 1945.
í flestum hafnarborgum Breta
geta ungir menn nú fengið nóg að
starfa, en þeir fást ekki á fiski-
skipin nema aðstaða og þægindi.
um borð sé fyrsta flokks. Þetta
gerir brezka útgerðin sér ljóst nú.
Þá er og þess að geta, að ríkinu
er umhugað um að togarabygg-
ingar verði mjög vandaðar með
tilliti til hernaðarþarfa. í báðum
heimsstyrjöldunum voru togarar
mjög notaðir til ýmiss konar
starfa í þágu flotans. Hinir nýju
togarar Breta, sem nú eru sem
óðast að fara á flpt, eru mun
stærri og' hraðgengari en gömlu
skipin. Margir þeirra sækja á
fjarlæg mið, svo sem til íslands.
Bjarnareyjar og Grænlands. Þeir
eru minnst 175 feta langir, og allt
upp í 185 fet. Þeir eru búnir öll-
um nýtízku siglingatækjum og
þægindum, og fiskverkuarvél-
um. Bráðlega hleypur af stokk-
unum stærsti dieseltogari, sem
Bretar hafa smiðað, „Lammer-
muir“, og verður það reynsluskip.
Brezkir útgerðarmenn gera sér
miklar vonir urn það skip.
Versta mæönveikisár
sögimnar í Banda-
ríkjmium
Amerískar skýrslur herma, að
árið 1949 hafi verið versta mænu-
veikisár í sögu landsins. Alls voru
skráð rösklega 45000 tilfelli í
landinu. Mænuveikisvarnafélagið
ameríska, sem er borgaraleg sam-
tök, notaði rösklega 200 milljónir
dollara á árinu til þéss að berj-
ast gegn þessum vágesti.
Fyrsti Bæjarstjórnar-
fimdur á 'Húsavik
Fyrsti bæjarstjórnarfundur í
hinum nýja kaupstað, Húsavík,
var sl. miðvikudag. Bárust hinni
nýkjörnu bæjarstjórn heillaóskir
víða að, meðal annars frá félags-
málaráðuneytinu.
Forseti bæjarstjórnarinnar var
kosinn Karl Kristjánsson, álþing-
ismaður. Samþykkti bæjarstjórn-
in að auglýsa eftir bæjarstjóra. en
þar til hann verður ráðinn var
Karli Kristjánssyni, sem verið
hefur oddviti í Húsavík, falið að
gegna störfum bæjarstjóra.