Dagur - 01.03.1950, Side 5

Dagur - 01.03.1950, Side 5
Miðvikudaginn 1. marz 1950 DAGUR 5 Tilbúnar fiskitjarnir í Bandaríkjunum. er yaxandi atvi í mörgum Fiskimelin og bændur ,,rækta“ margar fiskteg- undir i tilbúnum tjörnum og pollum með góðum og arðvænlegum árangri Brezka fiskveiðablaðið Fish- ing News í Aberdeen flutti nú á dögunum athyglisverða grein xim fiskirækt í tjörnum og pollum og hvetur Breta til þess að gefa þessú máli meiri gaum en áður. Þetta er at- hýglisvert, einnig fyrir Is- lendinga, og birtir Dagur því grein þessa hér á eftir í Iausl. endúrsögn. ’ Við höfum kýr, he'sta og hænsni sem húsdýr, en hvers vegna ekki fiska líka? Hver sú starfsemi, sem miðar að: aúkinnr'matvælafram- léiðslu er athyglisverð, og nú eru uppi fyrirætlanir um fiskirækt víða í landinu. Búgarðar, sem framleiða fisk, hafa fjölda af tilbúnum tjörnum og pollum og kerum. í Bretlandi hefur lítið verið gert að slíkri framleiðslu til þessa, en víða ann- ars staðár er þessi framleiðsla talsverð, t. d. í Þýzkalandi, Frakklandi, ítalíu, Danmörku, Hollandi, Tékkóslóvakíu, Kan- ada, Japan og Palestínu. Fiskirækt á miðöldum. En Bretar hafa ekki alltaf verið á eftir öðrum þjóðum í þessari framleiðslu. Á miðöldum átti hvert kiaustur og hver herragarð ur sína fiskitjörn. Alla fram á síð- ustu öld, var siður landeigenda, að hafa góðar fiskitjarnir í land- areign sinni, og ýmsir vatnafisk- arnir þóttu herramannsmatur. Á stríðsárunum fóru menn að gefa fiskiræktinni meiri gaum en áður. Nefna má t. d., áð verk- smiðjueigandi einn í Durham- sýslu hóf þá silungarækt í kerum, og hann hefur stundum getað selt 2000 silunga á markaðnum í senn. Silungarnir eru teknir í net í tönkunum, eða fluttir lifandi á markað. Vatnakaríi. Vatnakarfi er einn elzti og þekktasti fiskurinn, sem ræktað- ur hefur verið á þennan hátt. — í Þýzkalandi hafa menn ræktað hann síðan á miðöldum. Nú hafa Egyptar hafið framleiðslu vatna- karfa í stórum stíl. Þeir fá seyði eða hrogn frá Indlandi, og þetta er nú orðin veruleg framleiðslu- grein í Egyptalandi. Tékkar eiga, af landfræðilegum ástæðum, erf- itt með áð fá nýjan fisk. Helzt er á böðstólum þar hraðfrýstur fisk- ur frá íslandi og söltuð síld. En þeir eiga líka vatnakarfa, sem ræktaður er í stjörnumáBæheimi og Mæri. Tjarnir þessar eru þurrkaðar þriðja eða fjórðá hvert ár, og stærstu fiskarnir teknir, en vátni síðan hleypt í tjarnirnár aftur. Þá klekja Tékkar í tjarnir þessar til þess að viðhalda stofn- inum. í Hollándi er vatnafiskur mjög algeng fæða. Fiskkaupmenn hafa þá lifandi í glerkrukkum í búðum sínum og kaupandinn get- ur valið fiskinn úr kerinu, bráð- lifandi. Er þarna um að ræða ýmsar fisktegundir. Á mörgum fiskmörkuðum Evrópu er fiskur til daglegrar neyzlu jafnan lif- andi í kerum á markaðinum og ekki tekinn úr vatninu fyrr en kaupandinn hefur ákveðið, hvað hann vill. Norðmenn rækta ál. í Þýzkalandi er fiskirækt heil vísindagrein og þessi framleiðsla átti sinn verulega þátt í því að forða hungursneyð þar á síðari hluta stríðsáranna. Reiknað er með því að ekra undir vatni geti skilað 500 pundum af góðum fiski á ári, og nærri því hver borg hefur slíkan fiski-„búgarð“ í ná- grenni sínu. Upp til fjalla, er sil- ungsræktin mest stunduð, en á láglendi karfi og aðrar skyldar tegundir. í Noregi hefur tekizt ágætlega að rækta ál. Bændabýli nokkurt stendur utarlega við fjörð, Landið er 300 ekrur að stærð, og var upphaflega beiti land að mestu leyti. En fram- kvæmdasamur fiskimaður sá aðra möguleika fólgna þar og hófst handa. Hann veitti vatni, blönd- uðu sjó, yfir landið, en í slíku vatni þrífst állinn ágætlega. Áll inn leitar í tjarnir hans, eins og í læki. Hann ef fóðraður á fiskiúr- gangi. Þessi norska tilraun hefur gefizt mjög vel. Fiskirækt Gyðinga. í Biblíunni er sagt frá fisk- veiðum Gyðinga í Landinu helga, og fiskveiðar hafa verið mikilvægur þáttur í þjóðarbú- skapnum þar í þúsundir ára. En síðan innflutningur Gyðinga hófst í stórum stíl, hafa þær fiskveiðar hvergi nærri nægt þörfum þjóð- arinnar og fram til þessa hefur hið nýja ríki mátt flytja inn helm Jng þess fiskmagrts, sem neytt er í landinu. En nú er fiskirækt í stórum stíl hafin þar. Gyðingar rækta nú vatnakarfa í stórum stíl. Þeir þrífast ágætlega á nátt- úrlegri fæðu í tjörnunum og maís, sem þeim er gefinn. Reikn- að er með að þrjú pund af maís gefi af sér pund af fiski á ári. Þessi fiskur hefur reynzt ágæt markaðsvara. Bandarikin framst. Þótt fiskirækt sé allmikil í Ev- rópulöndum og nálægum löndum, er hún þó miklu meiri í Banda ríkjunum. Þar hefur þessi at vinnugrein vaxið mjög síðustu árin. Skýrslur herma, að allt að 30.000 tjarnir hafi verið gerðar á ári nú að undanförnu af bændum, stangaveiðimönnum og öðrum Tjarnir þessar eru mjög misjafn- ar að stærð, frá einni ekru til 100 ekra, og kostnaðurinn er frá 260 krónur til 2600 krónur á ekru, eftir landsháttum, aðstöðu til vatns og vinnu. Slíkar tjarnir geta skilað góðum arði. Getið er um 100 ekru vaín í Georgiu, sem skilaði eiganda sínum 7000 10000 dollurum á ári. Tilbúin'n áburður eykur botngróður. Áburður er notaður til þess að tjarnir skili góðum afrakstri alveg eins og tún. Nítrógen, fósfór og kalsíum hefur verið notað í sil- ungsvötn og tjarnir í Kanada til þess að örfa botngróður og bæta lífsskilyrði silungsins. Þessi gróð- ur eykur smádýralífið í vötnun- um, en silungurínn lifir á þeim. Árangur af þessum tilraunum er mjög merkilegur. í Quebec-fylki var afrakstur silungsvatns um 5 pd. á ekru, en eftir tilraunir þess- ar komst hann í 120 pund. Með alþungi silungsins hefur einnig vaxið um allt að 40%. Áburður- inn er settur í vatnið einu sinni í mánuði, yfir sumarið. Reynslan, sem þegar er fengin, bendir eindregið til þess að til- tölulega auðvelt sé að rækta fisk með góðum árangri. Góður afli á Dalvíkurbáta Frá Dalvík róa nú tveir þil- farsbátar með línu og afla vel frá 11—16000 pund í róðri af sæmilega góðum fiski. Aflinn er allur saltaður. Lítill sem enginn afli er hér innfjarðar. Bátar þessir sækja fiskinn vestur á Skaga grunn. Framsóknar-whist og dans halda Framsóknarfélogin að Hó- tel KEA næstk. sunnudagskvöld. Sjá nánar á götuauglýsingum. ♦ . Meimtaskólaleikurinn 1950 ,Geðveikrahælið“ — Frumsýning s. 1. föstudag Nemendur Menntaskólans á Akureyri höfðu frumsýnmgu á gamanleiknum Geðveikrahælið (Dvölin hjá Shöller) í leikhúsi bæjarins sl. föstudagskvöld. — Leikstjóri var Jón Norðfjörð, en nemendur M. A. léku öll hlut- verkin, 14 að tölu, og gerðu þeim yfirleitt góð skil. Leikurinn er auðvitað ekkert bókmenntaverk, en hins vegar harla broslegur og léttviðrislegur samsetningur, svo sem tilgangurinn mun vera, og vel til þess fallinn, að ungt og lífsglatt fólk reyni á honum krafta sína í fyrsta sinn, er það kemur opinberlega fram á leik- sviðinu. Einn leikendanna Bald- ur Hóhngeirsson, mun þó allleik- sviðsvanur áður, enda má sjá þess glögg merki á leik hans, og það svo að segja má, að hann beri leikinn mjög uppi, einkum þó, þegar fram í sækir, enda gerir hann hlutverki sínu ágæt skil. — Leikur hann eina aðalpersónuna, Klapprotti gamla, auðugan og skringilegan sérvitring. — Ýmis önnur hlutverk voru og vel leik- in og öll sæmilega, þegar sann- gjarnt tillit er tekið til æsku og óvana leikendanna, enda skemmtu leikhúsgestir, — sem því miður voru alltof fáir, — sér ágætlega á föstudagskvöldið og fögnuðu vel leikurunum og frammistöðu þeirra, sem og mak- legt var. í vetur eru liðin 10 ár frá form- legri stofnun Leikfélags M. A. Höfðu nemendur menntaskólans þó áður sett á svið nokkur leikrit, en um skipulegt félag hafði ekki fyrr verið að ræða. Hafa leiksýn- ingar félagsins þannig um alllangt skeið verið fastur þáttur og vel- þeginn í hinu annars fremur fá- breytta skemmtana- og leikhús- lífi bæjarins. Er líklegt og ósk- andi, að bæjarbúar sýni hug sinn í garð þessarar starfsemi unga fólksins og styikti það til starfs og dáða á þessu sviði, með því að sækja leiksýningar M. A. vel, enda hefur þangað ávallt verið góða skemmtun og hressing að sækja. Sú nýlunda er á leiksýningum M. A. að þessu sinni, að hljóm- sveit nemenda skólans leikur á milli þátta og einnig öðru hvoru meðan á sýningunum stendur. — Er að þessu góð skemmtun og til- breytni. Það mun mála sannast, sem stendur í ávarpi til leikhúsgesta fremst í leikskránni, að hinir ungu og óæfðu leikendur „ætlast ekki til, að á þessa sýningu sína verði litið sem neinn sérstakan viðburð í leiklistarlífinu, en ef þeim tekst að koma yður í gott skap eina stutta kvöldstund, er tilgangi þeirra náð.“ Og leikfólk M. A. náði þessum hógværa tilgangi sínum vissulega vel á föstudagskvöldið. - Dáiiská flotvarpan (Framhald af 8. síðu). vörpu alla vertíðina, en varpan kostar aðeins d. kr. 4000.00. Verð- mæti aflans á vertíðinni var frá 70—120 þús. d. kr. á „úthald“, þ. e. tvo báta með eina vörpu, og þykir það mjög gott þar, enda eru ekki nema 4 menn á hvorum bát og kaupgjald og annar útgerðar- kostnaður miklu lægri en hér gerizt, t. d. er kaupgjald á Skagen kr. 2,60—2,70 í daglaunavinnu. — Á Skagen landa oft 4—500 bátar á dag, fíestir um 30 smál. að stærð. — Robert Larsen er nú til- búinn að hefja framleiðslu á flot- vörpum úr sterkara efni en hann hefur hingað til notað, eða úr hylon. Munu þær vörpur verða a. m. k. helmingi dýrari en hinar, kosta 8—9000 danskar krónur. — Veiði með flotvörpunni er háð því, að síldin finnist með dýptar- mælum bátanna. Eru dýptarmæl- ar í öllum dönsku bátunum. Með dýptarmælunum má sjá, hversu djúpt síldin er og stilla nótina á rétt dýpi samkvæmt því. Ýfirleitt hafa Danir og Svíar mikla trú á þessu veiðarfæri. Danir reyndu flotvörpuna fyrir Norðurlandi. Dönsk síldveiðiskip reyndu flotvörpuna fyrir Norðurlandi sl. sumar, en án árangurs. Sama varð uppi á teningnum hjá þeim við Færeyjar, enda fundu þeir á hvorugum staðnum síld með dýptarmælum. Óvíst er því að bert Larsen, Skagen, og fá allt að 150 tunnur í drætti. Eg ræddi við marga danska skipstjóra um vörpuna og töldu allir hana miklu betra veiðarfæri á þessum slóðum en herpinótina. Kosti hennar töldu þeir þessa: Hún er ódýrari en aðrar nætur. Hægt er að veiða með henni í verra veðri en herpi- nót. Hún nær síldinni á dýpra vatni en venjuleg nót, og færri menn þarf til veiðanna en með herpinótinni. Sprengingar vörp- unnar eru nú miklu sjaldgæfari en áður. Hafa skipstjórar fengið reynslu um meðferð hennar. — Ýmsir bátar hafa notað eina þetta veiðarfæri dugi á miðunum fyrir Norðurlandi. Hins vegar miklar líkur fyrir því að það reyndist hentugt við síldveiði, þegar síldin stendur það þétt, að hún finnst greinilega með dýpt- armæli. Tel eg mikla nauðsyn að halda áfram tilraunum með það hér við land og heppilegast að fá skipstjóra, sem er vanur veiðar- færinu, til þess að reyna það hér, er síldar verður vart, svo að skil- yrði til þess eru fyrir hendi, t. d. eins og nú virðist vera við Suð- urland. Varpan er ódýr, en hins vegar til svo mikils að vinna að sjálfsagt má telja að reyna hana til þrautar hér, áður en endan- legur dómur um gagnsejni henn- ar er uppkveðinn, segir Valtýr Þorsteinsson að lokum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.