Dagur - 05.04.1950, Page 8
8
Bagur
Mi'ðvikudaginn 5. apríl 1950
Forustumenn Bændafélags Þing-
eyinga harðorðir um stjórn-
málaástandið
Skora í dreifibréfi á bændur að stofna
bændafélög
Bændafélag Þingeyinga hefur nýlega sent bændum víðs vegar um
landið áskorun um að stofna bændafélög eins og hið þingeyska. í
bréfi sínu eru forráðamenn þessara samtaka harðorðir um stjórn-
málaástandið. Bréfið fer hér á eftir:
Sýslufundi Eyjafjarðarsýslu
nýlega lokið
Hreppum beimiluð lán til vegagerðar
„Bændur hófu bai-áttu fyrir
rétti sínum og gegn arðráni fyrir
hundrað árum. Mjög mikið þok-
aði áleiðis. — Samvinnufélögin
urðu um skeið sterkasta áhrifa-
valdið um verðlag vara. Bændur
gerðu stjórnmálasamtök á fyrsta
fjórðungi þessarar aldar og varð
flokkur þeirra áhrifaríkastur
allra flokka og hafði forustu í
stjórnmálum frá 1924—42. Allur
þessi árangur er nú að miklu
glataður. Verzlunin er ófrjáls.
Álagning er lögskipuð, oft 30—
40% eða meir. Tollar nema oft
hærri hundraðshluta, þannig, að
af hverjum þremur krónum, sem
vara er keypt fyrir, fer oft ein
króna til vörudreifingar, önnur til
ríkisins, en aðeins einn þriðji
vöruverðsins fer til þess að borga
innkaupsverð og flutning.
Innlendar iðnvörur sæta sömu
lögum vegna álagningar iðn-
meistara og verzlana. Samvinnu-
félögin geta nú ekki lengur sýnt
mátt sinn til umbóta vegna lög-
þvingunar. Áhrifavald bænda og
annarra kjósenda er nú einnig
mjög þorrið í stjómmálum.
Flokksstjórnirnar í Reykjavík
stefna a ðeinveldi. Þær vilja jafn-
an ákveða þingmannsefni og ráða
síðan hvernig flokksmennimir
greiða atkvæði. Valdamenn í
stjórnmálum eru löngu horfnir úr
hópi þeirra, sem starfa að fram-
leiðslu nauðsynja.
Flokksstjórnirnar eru samtaka
um, að beina meginafli ríkis-
teknanna til óarðbærra hluta og
fjölga þeim starfsgreinum ríkis-
rekstrar, er leggja kvaðir á al-
menning, og hömlur á athafna- og
atvinnufrelsi.
Nú getur enginn hreyft hönd
eða fót til neinna framkvæmda,
án þess að leita fyrst til hinna
mörgu nefnda og leyfisgjafa, sem
sitja í Reykjavík.
Allt þetta stjórnarfar byggir
upp rándýrt ski-ifstofukerfi. Þessi
verzlunarskipun og ríkisrekstur
er óhóflega dýr fyrir fámenna
þjóð, og er það frumrót dýrtíðar-
innar.
Þessari óstjórn hefur tekizt að
eyða 600 milljónum króna af er-
lendum innstæðum og koma rík-
issjóðnum í 200 milljón ki-óna
skuldir. Og þó að 300 milljónir
séu árlega lagðar á landsfólkið,
skortir fé til styrktar atvinnuveg-
unum.
Vegna alls þessa og margs fleira
virðist full nauðsyn að hugsandi
áHugamenn meðal bænda bindist
samtökum óháðum þeim stjórn-
málaflokkum, sem nú eru, til þess
að auka áhrifavald sitt og spyrna
á móti þjóðmálaspillingunni.
Þetta er megintilgangurinn
með stofnun Bændafélags Þing-
eyinga. Okkur er ljóst, að einir
megnum við lítils; þá fyrst, ef
lík félög væru stofnuð víðs vegar
um landið, mætti vænta verulegs
árangurs. Við leyfum okkur því
að fara þess á leit við þig, að þú
athugir gaumgæfilega þetta mál,
og ef þú sérð þér fært, að gangast
fyrir stofnun slíks félags með
öðrum áhugamönnum í þínu hér-
Fjárfestingarleyfi fyrir
slökkvistöðinni fengið
Slökkviliðsstjóri hefur skýrt
blaðinu frá því að fengið sé fjár-
festingarleyfi fyrir einni hæð
nýju slökkvistöðvarbyggingar-
innar, og er þess vænzt, að verkið
verði hafið hið bráðasta. Vegna
fyrirhugaðrar brunaiðgjaldalækk
unar, er slökkvistöðin kemst í
notkun, er mikið hagsmunamál
fyrir þæjarbúa að málinu verði
hraðað. Ný slökkvistöð og bruna-
varzla er og til mjög aukins ör-
yggis fyrir bæjarmenn.
Viðræður aftur
hafnar um slimar-
útgerð togaranna
Fyrir nokkru hófust á ný við-
ræður milli forráðamanna togara-
útgerðarinnar hér í bæ og sjó-
manna um kaup og kjör á togur-
unum í sumar, ef þeir færu að
veiða hráefnj. til fiskimjölsvinnslu
í Krossanes:', Enginn endanlegur
árangur hefur fengizt fram, enn
sem komið er, en rætt mun vera
um nýjan kjarágrundvöll. sem
væntanlega mun koma til at-
kvæðagreiðslu meðal sjómanna
innan skamms.
Háseti á „Svalbak44
slasast
Sl. sunnudagskvöld kom tog-
arinn Svalbakur til Reykjavíkur
með slasaðan mann. Var það Vik-
tor Þórðarson háseti, búsettur í
Reykjavík. Meiðsli hans eru ekki
talin lífshættuleg. Skipið var að
veiðum sunnan við land. Er bú-
izt við að það leggi af stað til Eng-
lands í þessari viku.
Sérstakur sendifulltrúi
Myndin er af PHILIP C. JESSUP,
sem gegnir sérstökum sendifull-
trúastörfum fyrir Bandaríkja-
stjórn. Jessup er nýlega kominn
til Bandaríkjanna úr ferð um
Asíulönd.
Níu keppendur
héðan á Skíðamóti
r
Islands
Skíðamót íslands hefst í Siglu-
firði á morgun. Er búizt við góðri
þátttöku skíðamanna hvaðanæva
af landinu. Keppendur frá Akur-
eyrarfélögunum eru 9 talsins og
fóru þeir til Siglufjarðar með
Esju í fyrrinótt. Keppa þeir í
göngu, bruni, svigi og stökki. —
Meðal keppendanna er Magnús
Brynjólfsson. — Sunnlendingar
fjölmenna á mótið. Komu flestir
þeirra með flugvélum sl. sunnu-
dag. Munu nær 30 reykvískir
skíðamenn keppa á mótinu.
„ArnarfeU“ losar
kornvörur
Um sl. helgi kom m.s. Amar-
fell hingað og losar hér ýmiss kon
ar kornvörur frá Bandaríkjun-
um, en þaðah kom skipið í sl.
viku. Héðan fer skipið til Húsa-
víkur og Reyðarfjarðar og losar
þar, en byrjar að því búnu að
hlaða saltfisk á ýmsum höfnum,
sem það flytur til Grikklands. —
Hvassafell er nýlega lagt af stað
til ítalíu með saltfiskfarm.
Skýrsla um árangur j
gróðuríilrauna hjá
Ræktunarfélaginu
Ársrit Ræktunarfélags Norður-
lands, 45.—46. árg., er nýkomin
út. Af efni ritsins, sem er nær 200
bls. að stærð, er skýrsla Ólafs
Jónssonar fyrrv. framkvæmda-
stjóra um árangur gróðurtilraun-
anna á vegum Ræktunarfélagsins
sl. 45 ár. Skýrsla um 30 ára ár-
angui' gróðurtilrauna kom út í
ársritinu 1933, en í þessari skýrslu
eru tekin upp meginatriði hinnar
fyrri skýrslu, og aukið við til-
raunaái-angri síðustu 15 áranna.
Þá fiytur íitið og skýrslur Bún-
aðai sambandanna í Norðiend-
ingafjórðungi 1948—1949.
Sýslui'undur Eyjafjarðarsýslu
hófst 23. marz og lauk 31. s. m.
Meðal mála er sýslunefndin af-
greiddi eru þessi:
Skorað var á vitamálastjórnina,
að láta setja upp radiostefnuvita í
Hrísey.
Til viðhalds sýsluvega voru
veittar 74500 krónur. Til nýbygg-
inga kr. 83000.00. Til brúar á
Öxnadalsá kr. 30000.00.
Þá tók sýslunefndin upp þá ný-
breytni að heimila þeim hreppum,
sem vildu flýta sýsluvegagerð hjá
sér, að taka lán til þess. Lán þessi
Aðalfundur Ferðaféálags Akur-
eyrar var haldinn sl. sunnudag.
Fóru þar fram venjuleg aðal-
fundarstörf. Auk þess var rætt
um framtíðarstarfsemi félagsins.
Hringferð um landið.
Rætt var um að nota flugvélar
í þjónustu félagsins til ferðalaga
og ákveðið að félagið efndi til
hringferðar umhverfis landið
með flugvél í sumar. Þá var og
ákveðið að i-eyna að koma upp
göngubrú á Kreppu til þess að
(Framhald af I. síðu).
hvergi nærri þörfum landsmanna.
Þá benti hann á, að seinni tíma
rannsóknir hefðu breytt skoðun
manna á smjörlíki og sýnt að það
væri fjarstæða að telja það óhollt
eða næringarlaust. Það væri
þvert á móti holl fæða og næring-
arrík, því að það væri eingöngu
búið til úr góðum olíum, hins
vegar væri það vítamínsnautt, en
auðvelt væri að bæta úr því með
því að vítamínblanda það, og
gerðu það margar þjóðir. For-
stöðumaður hinnar nýju smjör-
líkisverksmiðju er Svafar Helga-
son.
Nýja pylsugerðin.
Síðastliðið haust flutti pylsu-
gerð félagsins, sem var til húsa í
Hafnarstræti 87, í bakhúsum
kjötbúðarinnar, í ný húsakynni í
göml u sm j örlíkis verksmið j unni.
Hefur húsinu verið breytt veru-
lega, komið fyrir suðuklefum,
reykofnum og kæliklefum. Þá
hefur verið innréttaður afgreiðslu
salur á neðstu hæð hússins og fer
þar fram móttaka á afurðum og
afhending frá pylsugerðinni. —
Pylsugerðin framleiðir margar
tegundir af pylsum og bjúgum,
kjöt- og fiskifars og ýmiss konar
brauðálegg. Hún annast og heild-
sölu félagsins til kjötbúða og mat-
vöruverzlana í bænum og úti á
landi, ásamt sölu á nýju, reyktu.
yrðu svo greidd úr sýsluvegasjóði
á 5 til 10 árum. Á þessum sýslu-
fundi samþykkti sýslunefndin
lánsheimildir til þessa fyrir kr.
375000.00.
Veitt var til mentnamála kr.
39600.00, þar af til viðbótarbygg-
ingar Laugalandsskóla kr.
30000.00 og reksturs hans kr.
7000.00.
Til heilbrigðismála kr. 39700.00,
þar í ljósmóðurlaun.
Til búnaðarmála kr. 11900.00.
Sýslusjóðsgjald var ákveðið kr.
80000.00.
auðvelda ferðamönnum að kom-
ast í Hvannalindir.
Kosningar.
Úr stjái'ninni áttu að ganga
Björn Þórðarson, form., Björn
Bessason og Eyjólfur Árnason, og
voru allir endurkosnir. Þorsteinn
Þorsteinsson er framkvæmdastj.
félagsins.
í félaginu éru nú 530 félags-
menn og er það sama tala og árið
áður. Hagur félagsins er góður.
söltuðu og frystu kjöti. Verk-
meistari pylsugerðarinnar er
danskur pylsumeistari, O. Jörg-
ensen, en forstöðumaður er Valdi
mar Haraldsson, sem lengi hefur
verið starfsmaður kjötbúðarinnar.
Kjötbúðareldliús.
Þá er nýlega tekið til starfa eld-
hús í sambandi við kjötbúð fé-
lagsins. Þar er framleiddur alls
konar matur til framreiðslu á
matborðið eða til upphitunar. Er
þessi vara mikið notuð í bænum
og þykir framleiðslan til mikilla
þæginda fyrir bæjai'menn. For-
stöðukona eldhússins er frá Ingi-
björg Júlíusdóttir, en kjötbúðar-
stjórinn, Sigmundur Björnsson,
hefur á hendi stjórn þess ásamt
kjötbúðarstjórninni. Um allar
þessar framkvæmdir KEA má
segja, að þær séu með miklum
myndarþrag og hefur allt kapp
verið lagt á að gera fyrirtækin
vel úr garði í hvívetna. Þessi
ÍTamleiðsla er í senn til hagsbóta
og þæginda fyrir neytendur í
bænum og víðar og fyrir fram-
leiðendur landbúnaðarafurða. —
Með þessum framkvæmdum hef-
ur sala margs konar landbúnað-
arafurða til neytenda komizt á
traustari grundvöll en áður og
meira kapp en fyrr verið lagt á að
hafa framleiðsluna fjölbreytta og
er hvort tvéggja mikill ávinning-
ur.
Ferðafélag Akureyrar hyggst efna til
hringferðar um landið í flugvél
Frá aðalfundi félagsins sl. sunnudag
- Framkvæmdir K. E. A.