Dagur - 13.04.1950, Blaðsíða 1

Dagur - 13.04.1950, Blaðsíða 1
Forustugreinin: Alþýðuflokkurinn í gerfi leiðsögumanns. DÁGUB Fimmta síðan: Minnzt Kristjáns Sigurðs- sonar kennara frá Dag- verðareyri. XXXIII. árg. Akureyri, fimmtudaginn 13. apríl 1950 19. tbl. Frægur rithöfundur á vegum Unesco Á vegum Unesco (Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna) er rekin starfsemi, sem miðar að því að koma góðum og gagnlegum bókum sem víðast um heim. Myndin sýnir hinn heimsfræga, þýzka rithöfund, Thomas Mann (sem nú er Bandaríkjaþegn) ræða mál þetta við tvo af íulltrúum Unesco í Lake Success nú fyrir skemmstu. Happdrætti húsbyggingarsjóðs Framsóknarmanna býður skagfirzkan reiðhest Dregið verður í happdrættinu á laugardaginn Eins og Dagur hefur áður skýrt frá, hafa Framsóknarmenn efnt til happdrættis fyrir liúshyggingarsjóð sinn, og verður dregið í happdrættinu næstk. laugardag. Margt ágætra vinnmga er í happ- drættinu en sá, sem mörgum mun leika einna mestur hugur á — auk Ferguson- dráttarvélarinnar, sem er fyrsti vinningurinn - er skagfirzkur úrvalsgæðingur. Horfur á að fiskimjölsvinnsla í Krossanesi geti hafizt innan skamms Samkomulag orðið milli sjómanna og togara útgerðarinnar hér Nú hafa verið fest kaup á þessum gæðingi. í bréfi norðan úr Skagafirði, þar sem gripnum er lýst, segir á þessa leið: „Hesturinn er rauðblesóttur, sjö vetra í vor, meðalhestur að stærð, glófextur með fallega skipt fax, ákaflega reistur, f jör- hestur með miklu tölti og var nokkuð ódæll í tamningu. Hann er ættaður af góðu reið- hcstakyni frá Syðra-Vallholti í Skagafirði cn eigandi hans nú er Steingrímur Óskarsson bóndi á Páfastöðum.“ Ekki hefur tekizt að fá góða mynd af Blesa enn, og getur blað- ið því ekki birt hana. En óhætt er að fullyrða, að hér er um mik- inn gæðing að ræða. Ættu hesta- menn ekki að glata þessu tæki- færi til að eignast fallegan, fjör- gamm, ef heppnin er með, auk vonarinnar í öllum öðrum ágæt- um vinningum happdrættisins. Hér á Akureyri fást happ- drættismiðar í Skóbúð KEA, hjá Marteini Sigurðssyni form. Fram sóknarfélags Akureyrar. Kaupið iniða í dag eða á morgun! Akureyringar sigruðu Siglfirðinga og Dalvík- inga í bridge Hin árlega keppni í bridge milli Akureyringar og Siglfirð- inga var háð hér 3.—5. apríl. Spil- að var á þrem borðum öll kvöld- in. Leikar fóru þannig, að Akur- eyringar sigruðu með 6 vinning- um gegn 3. Skal það tekið fram, að þetta er í fyrsta skipti, sem Akureyringar vinna þessa keppni, en jafntefli varð í henni síðast. Nokkrir góðir spilamenn Sigl- firðinga dvelja nú utan heimilis í atvinnu og var því lið þeirra veikara en ella. Þá komu og á annan páskadag 3 bridgesveitir frá Dalvík og kepptu við Akureyringa. Leikar fóru þannig, að Akureyringar unnu á öllum borðum. „Geysir64 syngur á morgun Karlakórinn Geysir efnir til hljómleika í Nýja-Bíó næstk. föstudagskvöld kl. 9. Eru þetta fyrstu hljómleikar kórsins á þessu ári. Á söngskránni eru mörg ný lög, sem kórinn hefur æft í vetur. Ingimundur Árnason stjórnar. Árni Ingimundarson er við hljóð- færið. Sérstaklega er vandað til söngskrárinnar og eru allir text- arnir birtir í henni. r Iþróttaflokkur frá Siglufirð sýnir hér á sunnudaginn Næstk. sunnudagskvöld verður nýstárleg íþróttasýning í Sam- komuhúsinu hér. Karlaflokkur frá Siglufirði, undir stjórn Helga Sveinssonar íþróttakennara, sýn- ir hér ýmiss konar æfingar á svifslá, tvíslá og dýnu, sem ekki munu hafa sést hér áður. Með flokknum er norski íþróttakenn- arinn Jeppen Eriksen, og sýnir hann með honum sem gestur. — Flokkurinn hefur sýnt í Siglu- firði að undanförnu við mjög góða aðsókn og dóma. Á sunnudaginn kemur fer fram ferming í Akureyrarkirkju. — Vígslubiskup Friðrik J. Rafnar fermir kl. 11 f. h. og kl. 2 e. h. þcssi börn: Fermingarbörn kl. 11, piltar: Ágúst Gugmundur Berg, Ágúst K. Sigurlaugsson, Eiríkur Ingvars son, Guðmundur Oddsson, Gunn- ar Berg, Hallgrímur Tryggvason, Hannes G. Jónsson, Helgi Þ. Valdemarsson, Hilmar H. Gísla- son, Hörður Steinþórsson, Hörð- ur Tulinius, Ingimar Eydal, Ing- ólfur Ármannsson, Jón Bjarna- son, Jón L. Guðmundsson, Jón M. Guðmundsson, Knútur Karls- son, Kristinn Jóhannsson, Krist- inn H. Vigfússon, Kristján Björn Samúelsson, Kristján Grandt, Magnús L. Stefánsson, Magnús V. Tryggvason, Olafur Snorri Jóh. Hauksson, Stefán M. Jónsson, Sveinn Eiríksson. Stúlkur: Agnes G. Haralds- dóttir, Anna M. Hallsdóttir, Birna Björnsdóttir, Edda S. Indriða- dóttir, Erna Alfreðsdóttir, Erna T. Karlsdóttir, Erla Böðvarsdótt- ir, Eygló S. Hallgrímsdóttir, Gerða Á. Jónsdóttir, Guðbjörg Bjarman, Gúðrún Guðmunds- Á skírdag varð samkomulag milli togarasjómanna hér um slóðir og togaraútgerðarinnar um kaup og kjör á veiðum togaranna til fiskimjölsvinnslu og eru því horfur á að sumarútgerð togar- anna verði tryggð, enda þótt ekki væri gengið frá samningum Krossanesverksmiðjunnar og tog- aranna um vinnslukjörin, er blað- ið frétti síðast af þessum málum. Seint í marz var felldur sam- komulagsgrundvöllur í milli sjó- manna og togaraútgerðarinnar í almennri atkvæðagreiðslu meðal Alþingi kom saman í gær Alþingi kom aftur saman til funda í gær að loknu páskaleyfi þingmanna. Búizt er við því. að ríkisstjórnip muni leggja brpyt- ingartillögur sínar við fjái-laga- frumvarpið fyrir þingið nú næstu daga, en stjórnin hafði frv. til endurskoðunar um páskana. — Munu fjárlögin verða aðalverk- efni þingsins á næstunni. dóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Gunn- laug B. Steingrímsdóttir, Halla S. Guðmundsdóttir, Helga Maggý Magnúsdóttir, Hildur Jónsdóttir, Hólmfríður G. Jónsdóttir, Hrefna Jakobsdóttir, Hrönn Sveinsdóttir, Inga E. Sigurðardóttir, Jóna H. Vestmann, Kolbrún Magnúsdótt- ir, Kristín Guðlaugsdóttir, María Jónsdóttir, Maríanna G. B. Bjarnadóttir, Sigurjóna Jakobs- dóttir, Stefanía Jóhannsdóttir, Stella Stefánsdöttir, Valborg Svavarsdóttir, Valgerður Berg- þórsdóttir, Þóra Björk Sveins- dóttir, Þórdís Tryggvadóttir, Alda S. Guðmundsdóttir, Erla Jónas- dóttir, Guðrún Ákadóttir. Kl. 2 e. h., piltar: Ásgeir Karls- son, Eiður B. Sigurþórsson, Frið- rik Jensen ,Niels Jensen, Geir Garðarsson, Hallgrímur G. Gísla- son, Jón Valdemar Hjaltalín, Jón- as G. Sigurðsson, Skjöldur Guð- mundsson, Stefán Örn Kristjáns- son, Sveinn Kristjánsson. Stúlkur: Anna Helgadóttir, Birna Magnúsdóttir, Erla Gunn- arsdóttir, Halldóra Gunnarsdótt- ir, Hólmfríður Ólafsdóttir, Ingi- björg Marinósdóttir, Jóna Sig'- urðardóttir, Sólveig Sigurðar- dóttir, Þyri Jónsdóttir. sjómanna, en nokkru síðar hófust samningar á ný og er þeim nú lokið, sem fyrr segir. Hin nýju kjör. Grundvöllur sá, sem nú var samþykktur af sjómönnum er í aðalatriðum svipaður hinum fyrri. Fastakaup er það sama og nú, eða kr. 1080 á mánuði fyrir háseta, en að auki fá þeir nú 0.75% af aflaverðmæti, miðað við kr. 0.30 af hverju fiskkg., sem í vinnslu fer, og kr. 1600.00 verð á saltfisktonni. í fyrri ^samnings- grundvelli var miðað við kr. 2.50 af hverju tonni hráefnis til fiski- mjölsvinnslu og kr. 6.75 af hverju saltfisktonni, miðað við vigt upp úr skipi. í hinum nýju samning- um er hlutur skjpsmanna af lýsi ákveðinn 0.7%, eins og áður var, miðað við tveggja krónu verð. Að auki kemur svo orlofsfé, eins og fyrr var ráðgert. Þessum úrslitum mun verða fagnað meðal almennings í bæn- um og þess mun ennfremur verða vænzt, að samningar togar- anna og Krossanessverksmiðj- unnar gangi greiðlega og sumar- rekstur togaranna verði þannig tryggður. Er slíkt mikið og aug- ljóst hagsmunaatriði fyrir bæjar- félagið í heild. Góð aflasala „Svalbaks“ í fyrradag seldi „Svalbakur“ afla sinn í Grimsby, samtals 3308 kit, fyrir 10.388 sterlingspund, sem er góð sala. Jörundur átti að selja afla sinn í Grimsby í gær, en ekki höfðu borizt fréttir af söl- unni, er blaðið fór í pressuna. — Kaldbakur er á veiðum, en mun væntanlega leggja af stað til Bretlands í þessari viku. Kristján Sigurðsson látinn Kristján Sigurðsson kennari frá Dagverðareyri andaðist að heimili sínu hér í bænum á föstudaginn langa. í gær var þessa ágæta kennara minnzt í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Flutti Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri, þar minningar- ræðu. Þessi ræða, svo og minningargrein eftir Snorra Sigfússon, námsstjóra, birtast á 5. síðu blaðsins í dag. Fermingarbörn á Akureyri næstkom- andisunnudag

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.