Dagur - 13.04.1950, Blaðsíða 5

Dagur - 13.04.1950, Blaðsíða 5
Fimmiudaginn 13. apríl 1950 D AGUR 5 Kristján Sigurðsson, kennari, frá Dagverðareyri MINNINGARORÐ í gær var cfnt til minningarat- hafnar um Kristján Sigurðsson í Gagnfræðaskóla Akurcyrar. Þor- steinn M. Jónsson, skólastjóri, flutti ræðu og mælti á þessa leið: „Sælir eru hógværir, því þeir munu landið, erfa."' Þessi getning úr Mattheusar guðspjalli 5. kap., 5. versi kemur mér í hug, er eg ætla að minnast Kristjáns Sig- urðssonar kennara frá Dagverð- areyri. Hann andaðist kl. 7 að morgni föstudags hins langa, 7. þ. m. Kristján Sigurðsson var fædd- ur 31. maí 1885 að Dagverðareyri hér við Eyjafjörð. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Oddsson bóndi á Dagverðareyri. og kona hans Rannveig Sigríður Jóns- dóttir. Nítján ára að aldri settist Krist- ján í Gagnfræðaskólann á Akur- eyri. Þá sá eg Kristján fyrst, því að eg var þá í efri bekk skólans. Vakti hann þegar athygli í skól- anum sem glæsimenni, fyrir greind sína og hógværa og glað- lega framkomu. Hann var ágætur námsmaður og mun jafnan hafa verið efstur í sínum bekk. Hann útskrifaðist úr gagnfræðaskólan- um vorið 1906 með góðri eink- unn. I annað skipti lágu leiðir okkar Kristjáns saman. Eg kom í Kennaraskólann í Reykjavík og settist í III. bekk mánuði eftir að skóli hófst haustið 1908. Var Kristján þá einn af þeim, sem sezt hafði í III. bekk skólans um haustið og hafði verið kosinn for- maður málfundafélags skólans. Var sem fyrr, að hann var vin- sæll af öllum skólafélögum sín- um og stundaði námið prýðilega og laus var hann við allar inn- byrðis deilur í skólanum. Um vorið lauk hann kennaraprófi með ágætiseinkunn og einn af fjórum, er þá tóku hæsta eink- unn. Haustið eftir varð hann kennari við barnaskólann á Ak- ureyri, og það var hann, þar til hann fyrir 4 árum varð kennari við þennan skóla. Hann hefur því verið samfleytt kennari hér í bæ í 40 ár. Eg kom kennari að barnaskóla Akureyrar haustið 1921. Þá lágu leiðir okkar Kristjáns saman í 3. skipti. Var hann þá á bezta aldri. Prúður var hann og hógvær, glaður og góðlátur eins og eg hafði áður þekkt hann á skólaár- um okkar. Og nú var hann jafn- vel látinn sem kennari sem hann hafði áður verið sem nemandi. Eftir minni kynningu af Krist- jáni þá, taldi eg hann afbragðs- kennara. Og þá treystust vin- áttubönd okkar enn fastara, en nokkru sinni fyrr. Eg hvarf frá barnaskólanum eftir nokkm- ár og um skeið leit út fyrir að eg myndi sigla löngu á undan Kristjáni yfir um landa- mæri lífs og dauða. En hið ólík- lega gerizt oft, og svo varð í þessu efni. í f jórða skipti urðum við Krist- ján samherjar, er hann kom sem kennari að Gagnfræðaskóla Ak- ureyrar. Hugði eg gott til komu Kristjáns hingað. Og sami vinur reyndist hann mér í hér í sam- vinnu, sem áður, er sýnt var að hann var ekki eins þróttmikill, sem hann hafði áður verið. Var aldri ekki um að kenna, heldur áfelli, sem hann hafði orðið fyrir síðla sumars 1944. Þá féll hann af hestbaki og rotaðist og meidd- ist mikið að öðru leyti. Lá hann rúmfastur á sjúkrahúsi í marga mánuði. En eftir þetta áfelli náði Kristján aldrei fullri heilsu aftur. í fyrra vetur veiktist Kristján af mænusótt. Varð þessi veiki til þess að enn dró úr þrótti hans, og sá hann sér því ekki lengur fært að vera fastur kennari við skól- ann og sagði því stöðu sinni lausri sl. sumar. En samt gat hann ekki hugsað til þess að hætta alveg kennslu, og því réð- ist hann tímakennari að skólan- um í haust með tveggja tíma kennslu á dag. En Kristján Sigurðsson fékkst við fleiri störf um ævina en kennslu. Hann rak búsliap eitt ár í Ytra-Krossanesi, fjögur ár á Möðruvöllum í Hörgárdal og síð- an í mörg ár á Dagverðareyri, og gerði hann þá jörð að einu af álitlegri býlum hér við Eyjafjörð. Við opinber störf hefur hann fengist. Hann hefur veríð í hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps og um mörg ár hefur hann setið í stjórn Kaupfélags Eyfirðinga. Kristján kvæntist árið 1911 Sesselju Eggertsdóttur frá Ytra- Krossanesi, mikilhæfri ágætis- konu. Andaðist hún fyrir nokkr- um árum. Þau áttu 5 börn er lifa. Kristján hafði ætlað sér að hætta alveg kennslustörfum í vor, því að hann fann að þróttur sinn var lamaður og taugar bilaðar. En hann féll á verðinum, sem kennari, áður en varði. En hann stóð meðan stætt var. Kl. rúm- lega 12, laugardaginn 29. marz sl., vorum við tveir einir eftir af jcennurum í skólanum. Þá segir hann mér að hægri handleggur- inn á sér væri orðinn máttlaus. Og meðan eg síma eftir lækni þyrmir yfir hann. Um kl. 1.30 e. hád. er hann borinn máttlaus hægra megin og mállaus út úr skólanum. Þögn og alvara ríkti í skólanum. Nemendur stóðu hljóðir og kennararnir voru sem lamaðir og treystu sér ekki til þess að kenna, það sem eftir var dagsins. Og nú er Kristján Sigurðsson „dáinn, horfinn", og móðir jörð hylur líkamsleifar hans innan fárra daga. En eg flyt honum þakkir nemenda hans, þakkir samkennara hans og þakkir frá sjálfum mér fyrir ágæta kynn- ingu í hálfan fimmta áratug, fyrir vináttu og samstarf. Líkamlegt líf Kristjáns Sigurðssonar er slokkn- að. Lifið, sem er það dýrðlegasta, er við þekkjum, dýrasta eignin, sem oss er fengin í hendur og vér reynum að varðveita eins lengi og unnt er. En jafnframt er það dularfyllsta fyrirbærið er vér skynjum. En hvað er dauðinn, þessi bölvaldur, er veldur sorg- um og einlægt situr um oss? Megnar hann að slökkva sjálf mannsins, eða er hann aðeins sem flutningatæki á milli tveggja tilvera? En skynjun vor er tak- mörkuð, og þar sem þekking vor og líkamleg skynjun þrjóta, þá taka vonin og trúin við. Þær reyna að brúa djúpið mikla, þeg- ar vinir hverfa. Þær segja að andinn sé neisti, er dauðinn fái ekki slökkt; að andinn sé líkam- legu lífi æðri; að hið líkamlega líf sé tæki hans á vissu þroska- stigi. En vér öll erum í raun og veru sem börn, sem vitum lítið og skynjum fátt. Þegar eg sá Kristján Sigurðs- son í fyrstar skipti, þá fannst mér svipur hans óvenju bjartur. Það var bjart yfir lífi hans, og það mun verða bjart yfir minningu hans. Og birtan mun fylgja hon- um inn í landið, sem Kristur hét þeim að erfð, sem hógværir reyndust. Eg bið yður öll að standa upp í þakkar- og virðing- arskyni við kennara yðar, félaga vorn og vin Kristján Sigurðsson frá Dagverðareyri. Eg bið yður öll að drjúpa höfði í nokkur augabrögð í hljóðlátri bæn til hans, sem er frumorsök alls; hans, sem ræður lífi og dauða; hans, sem ræður því, sem kann að bíða vor allra handan við dauðans dyr. - Blessuð sé minning Kristjáns Sigurðssonar. „Vinir mínir fara fjöld-----“. Hann lézt að morgni á föstu- daginn langa, því nær hálfsjötug- ur að aldri, fæddur 31. maí 1885. Það kom ekki alveg á óvart. Þó var hann heilsugóður síðari hluta æfinnar, þótt nokkuð v^l væri um tíma framan af. En lömunar- veikin í fýrra vetur lék hann grátt, eins og fleiri, og varð þess greinilega vart, að hann var ekki sami maður síðan. Og nú er hann hniginn í valinn fyrir' aldur frám, að mér • finnst, því að þrátt fýrir allt vár Krist- ján unglegur enn. En ekki má skÖpúm rénna. Og því' er hug- urinn gljúpúr og tregasár er vinir hverfa, einn af öðrum. Og í dag minnist eg Kristjáns Sigurðsson- ar frá Dagverðareyri, er eg kynntist fyrst fyrir nálega hálfri öld. Það var fallegur og prúður ungur maður, söngvinn og glað- ur, með sterkar rætur í fögrum ættarreit, sem hann unni og var að fegra og bæta alla æfi. Að Dagverðareyri kom eg til foreldra hans, Sigurðar Oddssonar bónda og Rannveigar Jónsdóttur konu hans, sem bæði voru kvistir á sterkum bændastofni og merkis- hjón.^Þar var gott að gista, en skemmtilegast þó að kynnast jafnaldranum þar. Svo komu skólaár hér á Akureyri, sem treystu kvmningsskapinn, og þá ekki sízt samstarf við söngnám og margt gleðimóta, meðan við vorum söngbræður í gömlu Heklu frá 1903. Og enn áttu leiðir eftir að liggja saman, því að starfsbræður urðum við hér við barnaskólann um 15 ára skeið. Og síðasta árið, sem Kristján starfaði þar, var hann settur skólastjóri um nokk- urra mánaða skeið, í forföllum mínum, og reyndist þar prýðilega vel. Kristján Sigurðsson leysti af hendi mikið ræktunarstarf, bæði á landi og í lundu. Aðalstarf hans var kennslustarfið hér við barna- skólann. Við þessa stofnun, barnaskóla Akureyrar, vann hann sleitulaust um hálfan fjórða tug ára. Hann á því fjölda nem- enda hér í bæ, og mörg starfs- systkini, sem að líkum lætur. Og það ætla eg', að allir, sem kynnt- ust Kristjáni að nokkru ráði, muni vitna um það, að hann var ekki aðeins óvenjulega glæsileg- ur á svip og í fasi, heldur og prúðmenni hið mesta og hinn drengilegasti á alla lund. Hann var og ágætlega greindur og mikill námsmaður, svo að eftir- tekt vakti á skólaárum hans, bæði í Gagnfræðaskólanum og Kennaraskólanum, en frá báðum þessum skólum lauk hann lof- samlegu burtfararprófi. Hann var því mjög vel búinn undir kennslustarfið, enda má segja með sanni, að á meðan hann naut heillar heilsu, var hann ágætur kennari. Kennsla hans var jafn- an mjög skýr og glögg, studd staðgóðri þekkingu. Hann bjó vanalega þau börn, er lengst komust, undir framhaldsnám, og tókst það yfjrleitt farsællega, enda var honum mjög annt um að kennslan bæri árangur, og að ekki væri unnið fyrir gíg, en vinnu umfram lögboðið dagsverk taldi hann aldrei eftir sér. Eg minnist því Kristjáns í dag í hópi hinna beztu samverkamanna, er eg hefi átt um dagana. En Kristján Sigurðsson átti sér líka annað áhugaefni, en það voru jarðræktarmál og búnaðar- menning. Uti á Dagverðareyri dvaldi hann jafnan á sumrum við að rækta og prýða ættaróðal sitt, og hélt þar uppi myndarleg- um búskap fram til síðustu ára, að sonur hans tók þar við. Og í nánum tengslum við þetta hugð- arefni sitt, átti hann þá bjarg- föstu trú og skoðun, að sam- vinnustefnan væi'i sú líftaug, sem allur almenningur ætti að styi-kja, sér og þjóð sinni til fai-sældar. Hann var því samvinnumaður í orðsins beztu merkingu, enda lengi ti’únaðarmaður samvinnu- manna hér í stjóm Kaupfélags Eyfirðinga, og mun hafa í’eynzt þar, sem annars staðar, hinn lið- tækasti og samvizkusamasti maður. Það var þetta þríþætta menn- ingarstarf, sem Kristján Sigurðs- son þjónaði af mikilli alúð: að glæða skilning og auka þekk- ingu nemenda sinna og íækta hugai’far þeirra, að auka frjómagn íslenzkrar moldar, rækta jörð og pi-ýða, og glæða skilning manna á þjóðnýtum menningarmálum og þroskavænlegum. Slík þjónusta er göfugs eðlis, og ein hin mikilverðasta á lífsins akri. Undir merkjum hennar lifði Kristján og stai’faði, — og féll í valinn. Kvæntur var hann Sesselju Eggertsdóttur frá Krossanesi, hinni mætustu konu, sem látin er fyrir fáum árum. Þörn þeirra eru 5, öll hin mannvænlegustu. Og nú skal Kristján Sigurðsson kvaddur með^ ástúðar þökk fyrir langa og góða viðkynningu og ágætt samstarf. 1 guðs friði. Snorri Sigfússon.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.